Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 1. MAÍ 1999
Leigðu
falleg og sterk
samkomutjöld
Baldur Steinn Helgason er 22 ára íslenskt ungmenni, sem býr í Lagos í Ní-
geríu og hefur kosiö að eyöa þar einu ári. Óhœtt er aö segja aö Baldur fetar
ekki troönar slóðir, í það minnsta ef tekiö er tillit til íslenskra ungmenna al-
mennt, því í starfi sínu hefur hann kosiö aö kynnast svörtustu hliöum mann-
_> lífsins. Baldur er ósköp venjulegt íslenskt ungmenni, sem tekiö hefur þá
óvenjulegu ákvöröun aö eyöa einu ári í aö aöstoöa fanga í nígerískum fang-
elsum, aöstoöa fólk sem má sín einskis, hefur jafnvel veriö svipt frelsi og
haldiö í fangelsi í áraraöir, fyrir litlar sakir og án dóms og laga. Þetta gerir
Baldur án þess aö þiggja neina þóknun fyrir; í sjálfboöavinnu.
Gapandi byssukjaftar
Þegar til Nígeríu kom mættu
Baldri á flugvellinum gapandi
byssukjaftar. Hermenn ýttu fólki
áfram með rifflum sínum. „Það var
eins og ég væri að horfa á þetta í
sjónvarpi, þetta hafði ég aldrei séð
áður. Þama vom æpandi hermenn
með byssur á lofti og ég vissi í raun
ekki hvað ég átti að gera og til
hvers þeir ætluðust. Eftir að hafa
staðið í hinum ýmsu röðum á leið
minni í gegnum flugstöðina var ég
skyndilega kominn út þar sem við
tók alveg kæfandi hiti og gríðarleg-
ur raki sem einkennir allt veðurfar
í Nígeríu."
Leigium borð, stóla,
ofna o.fl.
Tjaldaleigan
Skemmtilegt hf.
Dalbrekku 22 - sími 544 5990
Greinarhöfundur til hægri ásamt þeim Baldri Steini Helgasyni og Sólveigu Norðfjörð, en Sólveig starfar á
munaðarleysingjahæli í Lagos.
Baldur Steinn Helgason er sonur
hjónanna Helga Baldurssonar og
Guðbjargar Marteinsdóttur. Hann
er fæddur á Sauðárkróki en fluttist
nokkurra mánaða gamall til Reykja-
víkur, þar sem hann hefur verið bú-
settur siðan. Fyrir síðustu jól út-
skrifaðist hann ffá Fjölbrautaskól-
anum í Ármúla.
-Af hverju Nígería?
„Já, mér fannst vera kominn tími
á breytingar. Afríka heillaði mig
ótrúlega mikið og kom Senegal fyrst
upp í huga mér. Ég hafði síðan sam-
band við Alþjóðleg ungmennaskipti
og þar fékk ég þær upplýsingar að
Skiýtinn svipur á ætt-
ingjunum
Baldur segir að það hafi komið
æði skrýtinn svipur á ættingja og
vini þegar hann tilkynnti þeim að
hann hygðist hverfa til staifa í Ní-
geríu. „Ég held að mamma og pabbi
hafi ekki trúað því þegar ég sagði
þeim það. Þau eyddu bara málinu
og sögðust bcira sjá til hvemig mér
gengi að klára skólann fyrst. Ég
dreif því í að klára skólann. Það tók
tíma fyrir þau að sætta sig við
þetta, en þegar þau höfðu gert það
Baldur starfar hjá samtökum sem
nefnast The Good Shepherd Comm-
unity. Verkefni samtakanna eru að
mestu þríþætt. Starfsmenn samtak-
anna aðstoða fyrmm fanga við að
stíga sín fyrstu spor út í þjóðfélagið
eftir lcmga fangelsisvist og að aðlag-
ast því á nýjan leik. I þessum til-
gangi reka samtökin áfangaheimili
í Lagos, þar sem fyrram fangar fá
mat og húsnæði, auk þess sem þeim
er hjálpað að hjálpa sér sjálflr,
kennd einhver iðn svo dæmi sé
nefnt. Þetta áfangaheimili er einnig
heimili Baldurs. Annar viðamikill
þáttur í starfl samtakanna er rekst-
ur skóla innan fangelsismúra í
Lagos-borg og í þriðja lagi vinna
samtökin með fangelsisyfirvöldum
og fleiri opinberum aðilum við að
reyna að frelsa fanga sem setið hafa
í nígerískum fangelsum, flestir í
mjög langan tíma, án þess að hafa
fengið neina dóma fyrir afbrot sín.
„Þetta er fólk sem hefur verið hand-
tekið fyrir frekar litlar sakir, s.s.
fyrir ráf, fyrir að hafa marijúana í
fórum sínum, eða fyrir að vera úti á
„Sanitation-day“, en það er fyrsti
laugardagur í hverjum mánuði. Þá
má enginn fara út úr húsi fyrr en
eftir fjögur og er ætlast til þess að
þá sé fólk að taka til í híbýlum sín-
um. Þeir sem ekki hlíta þessu era
teknir úr umferð af „Operation
Sweep“ og varpað í fangelsi, þar
sem þeir gleymast."
Níutíu í litium klefa
Baldur segir að langverst sé kom-
ið fyrir þessu fólki í fangelsunum.
Hann segir að í einu fangelsi sem
reist var fyrir um sjö hundrað
fanga, séu tæplega þrjú þúsund
fangar, nær allir ódæmdir, og að al-
gengt sé að fangarnir séu búnir að
sitja margfalda þá dóma sem þeir
hefðu fengið ef þeir hefðu verið
„Fyrst í stað var ég nokkuð hræddur, þar sem flest allir sem búa þarna eru
fyrrverandi fangar. Ég hef síðan vanist þeirri hugsun, auk þess sem ég
komst að því að þetta er margt hið besta fólk. „
leiddir fyrir dómara. Föngunum er
hrúgað saman í 20-30 fermetra klefa
þar sem þeir fá að dúsa 90 saman.
„Ástandið í þessum klefum er
hræðilegt og það er ekki hægt að
ímynda sér hörmungamar að
óreyndu. Flestir, ef ekki allir, era
orðnir veikir; með alnæmi, berkla
og/eða einhverja tegund holdsveiki.
Þama gera fangamir allar sínar
þarfir og þeir fá aldrei að fara út úr
þessum klefum. í klefunum hefur
þróast samfélag þar sem ríkir stétta-
skipting. Sá sem hefur verið þar
lengst er nokkurs konar höfðingi en
sá sem lægst er settur hefur aðsetur
næst þeim stað í klefanum þar sem
fangamir gera þarfir stacir. Þá er
þeim sem brýtur reglur samfélags-
ins refsað með því að setja hann á
þann sama stað. Á kvöldin er slegið
saman fyrir marijúana og er þá
sögustund í klefanum. Svona líða
dagar, mánuðir og ár hjá þessum
eihstaklingum, sem ekki hafa einu
sinni fengið tækifæri til að svara
fyrir það sem þeim er gert að sök.“
Baldur segir að þrátt fyrir að það
takist að frelsa mennina eftir langa
dvöl, þá séu vandamál þeirra síður
en svo að baki. Líkami þeirra er svo
illa farinn, bæði vegna sjúkdóma og
einnig vegna þess að allir liðir í fót-
um era orðnir stífir eftir að þeir
hafa setið langtímum saman á
hækjum sér og ekki náð að teygja
úr sér. Þá era allir vöðvar orðnir
rýrir og ekki auðvelt fyrir þá að
stunda neina vinnu eftir að fangels-
isvist lýkur.
50-60 skotnir íeinu
Baldur segir fjölda þeirra sem
bíða fullnustu dauðarefsinga slá-
andi, en þeir era vistaðir á dauða-
deildum í fangelsum með hámarks
öryggisgæslu. Hann segir aðbúnað
þeirra mjög slæman og þrátt fyrir
dauðadóminn sé ekkert vitað hvort
eða hvenær aftakan muni fara fram.
„Síðasta aftaka var framkvæmd
árið 1993, en þá var 50-60 manns
stillt upp við vegg í fangelsinu og
þeir skotnir. Það veit enginn
hvenær sú næsta verður, því einn
daginn kemur bréf frá stjórninni
sem inniheldur aftökuskipun og
næsta dag eru fangamir skotnir."
Starfsemi samtakanna The Good
Shepherd Community innan fang-
elsismúranna felst fyrst og fremst í
fræðslustarfi. Samtökin reka skóla í
tveimur fangelsum og kennir Bald-
ur þar m.a. frönsku. Þá standa sam-
tökin fyrir kvikmyndasýningum og
fleiri uppákomum í fangelsunum.
Utan fangelsimúranna er starfsem-
in eins og áður sagði tvíþætt. „Hjá
samfélaginu sem ég starfa í era
tveir lögfræðingar í vinnu. Þeirra
aðalstarf er, með hjálp annarra
starfsmanna, að leysa úr haldi
Matmálstími f áfangaheimilinu í Lagos
þeir hygðust senda ungmenni til
starfa í Keníu, Ghana og Nígeríu.
Þegar ég hafði hugsað málið aðeins
þá komst ég að þeirri niðurstöðu að
mér leist best á Nígeríu. Nígería er
í hjarta Afríku, fjölmennt og ótrú-
lega ríkt af auðlindum eins og olíu
og ýmsum málmum. Nígería varð
því fyrir valinu."
Magavandamál?
Ekki lengur Aleo Vera „djúsinn“
gæti lagaö alls kyns óþægindi í
meltingarfærum og trefja-flórutöflurnar
halda þeim náttúrulega hreinum.
Póstkr./Visa/Euro. Frí heimsending.
S. 562 2123/861 4577
þá tóku þau þessu vel og hafa stutt
mig siðan.“ Ekki vill Baldur viður-
kenna að hafa verið kvíðinn fyrir
brottförina til Nígeríu, því það hafi
vart gefist tími til þess. Hann hafi
verið upptekinn af því að klára
skólann og halda jólin hátíðleg, auk
þess sem hann hafi verið að reyna
að ljúka gerð stuttmyndar með fé-
lögum sínum. „Ég fékk því ákaflega
takmarkaðan tíma til að hugsa um
þetta eftir að ég hafði tekið endan-
lega ákvörðun. Skyndilega var kom-
ið að brottfor og framtíð mín var í
höndum örlaganna. Ég hafði reynd-
ar undirbúið mig lítillega, með því
að tala við fólk sem búið hafði í Afr-
íku, auk þess sem ég ræddi við
hjúkranarfræðinga um hvað helst
þyrfti að varast."