Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.1999, Side 51
LAUGARDAGUR 1. MAI 1999
C
fanga sem eru ólöglega I haldi eöa
ódæmdir. Síöan árið 1993 hafa sam-
tökin náð aö leysa um 3-4 þúsund
fanga úr haldi. Þetta er nú gert í
samráði við fangelsisyfirvöld og
saksóknara í Lagos og á undanfom-
um mánuðum hefur orðið mikil
breyting á. Þar er bæði um að ræða
ódæmda fanga, sem sitja inni fyrir
litlar sakir, sem og pólitíska fanga.
Okkur hefur orðið talsvert ágengt í
þessum efnum að undanfomu og við
vonumst eftir auknum árangri á
þessu sviði.“
Þriðji liðurinn í starfseminni er
rekstur áfangaheimilisins í Lagos,
þar sem skotið er skjólshúsi yfir
fanga sem losna úr haldi. Þar er
þeim veitt nauðsynlegasta aðstoð,
svo sem húsaskjól og fæði, auk þess
sem þeim gefst kostur á að læra
undirstöðu í einhverri iðn, svo sem
saumaskap og fleim.
Fólk barið með leður-
svipum
Baldur hefur búið lengst af á
áfangaheimilinu og lætur nokkuð
vel af vistinni. „Fyrst i stað var ég
nokkuð hræddur, þar sem flest allir
sem búa þarna em fyrrverandi
fangar. Ég hef síðan vanist þeirri
hugsun, auk þess sem ég komst að
því að þetta er margt hið besta fólk.
Það hefur þó komið fyrir að hlutir
hafa horfið, en það má segja að það
sé vandamál sem einskorðist ekki
við það sem við köllum afbrota-
menn, heldur er það spurning um
almennan hugsunarhátt."
Her og lögregla er gríðarlega
áberandi í öllu mannlífi í Nígeríu,
bæði á götum úti og í stjómkerfi
landsins. Ekki þarf að dvelja lengi í
landinu til að verða þess áskynja að
herinn er allsráðandi og að yfir-
mönnum í her og lögreglu em allir
vegir færir. Til að halda uppi aga
nota þeir leðursvipur og önnur bar-
efli óspart og berja fólk miskunnar-
laust ef þeir telja sig þurfa. Einnig
veigra þeir sér ekki við að nota
skotvopnin, oft af litlu eða engu til-
efni, og hefur Baldur ekki farið var-
hluta af því.
„Ég var á ferð í Lagos ásamt bíl-
stjóra okkar og vorum við stöðvaðir
af hernum. Ég sat í aftursæti bílsins
og skipaði hermaðurinn bílstjóran-
um að koma út úr bílnum og hótaði
meö því að veifa riffli sínum. Þeir
hurfu sjónum mér, en skyndilega
heyrði ég skot hlaupa úr riffli her-
mannsins. Ég hélt hreinlega að
hann hefði skotið bílstjórann úti á
miðri götu, sem reyndist sem betur
fer ekki raunin. Mér brá alveg rosa-
lega og þetta segir manni að hægt er
að eiga von á hverju sem er.“
Spillingin gríðarleg
Nigeria er eitt fjölmennasta land í
heimi, telur um 120 milljónir íbúa,
og er landið mjög auðugt af auðlind-
um. Olía er mikil og sjávarútvegur
umfangsmikill, auk þess sem málm-
ar af ýmsu tagi finnast í vinnanlegu
magni. Þrátt fyrir þessar auðlindir
hafa Nígeríubúar ekki borið gæfu
til þess að nýta sér þessar auðlindir
í þágu allrar þjóðarinnar. Gott
dæmi um þetta er að öll olía er flutt
og seld óunnin út úr landinu, þar
sem allar olíuhreinsunarstöðvar í
landinu eru óstarfhæfar, en í stað
þess er keypt eldsneyti frá Brasilíu
til að knýja ökutæki landsmanna.
Stéttaskipting er gríðarleg í land-
inu og misskipting auðsins algjör og
kemur herinn þar mjög við sögu.
Herinn hefur öll yfirráð yfir olíu-
auðnum og eru yfirmenn í hernum
mjög auðugir menn. Spilling er gríð-
arleg í öllu viðskiptalífi í Nígeríu og
veigra erlend stórfyrirtæki sér við
því að gera viöskipti við Nígeríu-
menn. Baldur segir þó að á undan-
förnum mánuðum hafi örlað á
breytingum í átt til hins betra. Á
síðasta ári lést herstjórinn og ein-
ræðisherrann Abacha, en talið er að
honum hefði verið byrlað eitur. Við
embætti hans tók Abubakar, sem
var næstæðsti maður í hemum, og
hefur hann reynst umbótasinnaður.
í kjöfarið var efnt til kosninga, í
þeim sigraði Obasanjo og mun hann
taka við embætti nú innan tíðar.
Verður það í fyrsta sinn í mjög lang-
an tíma sem æðsti maður þjóðarinn-
ar situr ekki beint í krafti hervalds
viðtal
„Ég hélt hreinlega að hann hefði skotið bílstjórann úti á miðri götu, sem
reyndist sem betur fer ekki raunin. Mér brá alveg rosalega og þetta segir
manni að hægt er að eiga von á hverju sem er.“
og er ekki hermaður, þó sami mað-
ur hafi ríkt sem herstjóri fyrir um
20 árum, en hann hefur nú látið af
hermennsku.
Ætla aftur til Nígeríu
„Staðan er þannig að ég held að
ástandið geti ekki annað en batnað.
Þetta getur ekki orðið verra. Niger-
íumenn sjálfir em hins vegar mjög
vantrúaðir á að þessi þjóð nái sér
upp úr því ástandi sem nú er ríkj-
andi. Mér verður hins vegar alltaf
hugsað til þeirrar þróunar sem orð-
ið hefur hjá okkur, þó í raun sé
erfitt að bera það saman, en það er
jú eini samanburðurinn sem ég hef.
Við hvaða aðstæður bjuggum við
fyrir um hundrað árum síðan og
hvar erum við nú?“
Baldur er, eins og kom fram í
upphafi, sjálfboðaliði og þiggur ekki
laun fyrir vinnuframlag sitt, aðeins
húsnæði og mat. Með þessu segist
hann halda sjálfstæði sínu og sé
frjálsari. Baldur er þó ekki eini ís-
lendingurinn í Nígeríu því auk
Baldurs búa þar þær Sólveig Norð-
fjörð, 22 ára, sem starfar á munaðar-
leysingjahæli í Lagos-borg, og
Rebekka Jónasdóttir, sem starfar
hjá norska sendiráðinu í Lagos.
Rebekka er gift nígerískum manni
og hefur búið lengi í landinu, en Sól-
veig fór til Nígeríu á vegum sömu
samtaka og Baldur.
Hvað framtiðina varðar segir
Baldur aö á honum sé engan bilbug
að finna. Hann muni dvelja í Lagos
fram í janúar næstkomandi, en þá
sé ráðningartími hans á enda. Hann
ætli að vitja heimalandsins um
hríð, en hann sé hins vegar staðráð-
inn í því að shúa til baka til Níger-
íu. „Ég er alveg tilbúinn til að búa
hér í einhvem tíma, en um það
hvort ég er tilbúinn til að eyða því
sem eftir er af ævinni hér, get ég
ekki sagt til um,“ segir Baldur að
lokum.
Texti og myndir:
Pjetur Sigurðsson
63
Verslunin Sófalist er flutt
að Laugavegi 92.
Fallegar yfirbreiðslur á sófa.
10% afsláttur
á löngum
laugardegi.
Sófalist
Sfmi 551 7111
Askrifendur fá
oitt rnil// hibty
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Smóauglýsingar
%
FBJI
550 5000
ar:
150,-
650,-
150,-
950,-
idu og njóttu þess að gæða þér á safaríkum
íingabitum. Kjúklingurinn og kryddið er okkar vörumerki.
SOUTHERN Boröað
FRIED á staðnum eða
CHICKEN tekið með heim
Við hliðina á Svörtu Pönnunni v/Tryggvagötu • s. 551 6480
Vélkomin
í nýja afgreiðslu
Orkuveitu Reykjavfkur
að Suðurlandsbraut 34
Frá og með mánudeginum, 3. maí næstkomandi,
veröur öll afgreiðsla Orkuveitu Reykjavíkur, fyrir heitt vatn
og rafmagn, sameinuð að Suburlandsbraut 34.
Orkuveita
Reykjavíkur
Inníhald pakka: 2 bítar pr. mann, franskar sósa og salat