Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Page 64

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Page 64
Þrefaldur í. vinningur 0:iL0 & 'kvöld FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 22. MAÍ1999 Borgarleikhúsið: Starfsmenn leggja á flótta Arn- „Leikhús er paradís allra vinnu- staða en getur snúist upp í andhverfu sína. Ég hef menntun, reynslu og '^þekkingu á leikhússtarfi og þegar það nýtist ekki þá segi ég hljóðlega bless,“ sagði Hafliði Am- grimsson, leiklist- arráðunautur Borgarleikhússins, sem hefur yfirgefið vinnustað sinn ásamt fjölmörgum samstarfsfélögum sínum síðustu dag- ana. Um ástæður brotthvarfs síns úr Borgarleikhúsinu sagði Hafliði: „Ég get ekki skrifað undir stjórnunarstíl og yfirbragð Þór- hildar Þorleifsdóttur leikhússtjóra.“ I Aðrir sem hætt hafa eða eru á fór- um úr Borgarleikhúsinu af sömu ástæðum og Hafliði eru Jóna Finns- dóttir framkvæmdastjóri, Ingibjörg Björnsdóttir sýningarstjóri, Valdis Gunnarsdóttir leikhúsritari og Robert Clifford leiksviðsstjóri. Alvarlegir samskiptaörðugleikar og skoðanaágreiningur í mikilvægum málum á milli leikhússtjóra og hluta starfsliðs hefur staðið Borgarleikhús- inu fyrir þrifum. -EIR Hafliöi grímsson. Stj órnarviðræður: I góðum gír Viðræður um áframhaldandi stjóm- arsamstarf Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks ganga vel að sögn Geirs H. Haarde, vara- formanns Sjálf- stæðisflokksins. „Þetta er allt í góð- um gír og ég á von á að við skilum af okkur í næstu viku,“ sagði Geir. Aðspurður um hvort flokkarnir héldu sínum ráðu- neytum sagði Geir: „Því get ég engu .svarað til um. Það er mál sem for- ''Tnenn flokkanna munu koma sér sam- an um og gera tillögur um.“ -hb Geir H. Haarde. DV kemur næst út eldsnemma að morgni þriðjudagsins 25. maí. Smáauglýsingadeild DV er opin í dag, laugardag, frá kl. 9-14. Lokað á morgun, hvítasunnudag. Opið verð- ur á mánudag, annan í hvítasunnu, frá kl. 1&-22. Blaðaafgreiðsla DV er opin laug- ardag frá kl. 6-14. Lokað sunnudag og mánudag. Opið á þriðjudag frá 6-20. Síminn er 550 5000. Olafur Ragnar Grfmsson, forseti Islands, lauk heimsókn sinni um byggðir Eyjafjarðar i gær, en þá heimsótti hann Hrísey fyrri hluta dagsins og hélt síðan til Grímseyjar. í heimsókn sinni í Hrísey heimsótti forsetinn fiskvinnslu Snæ- fells, kynnti sér starfsemi fyrirtækisins og ræddi við starfsfólkið. DV-mynd gk Siv Friðleifsdóttir ekki í myndinni varðandi ráðherrastól: Framsóknarflokkur- inn logar í illdeilum - hef heyrt þessu fleygt en vil ræða við Halldór, segir Siv Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um DV er Siv Friðleifsdóttir, fyrsti þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi, ekki ráð- herraefni í áframhaldandi ríkisstjóm Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis- flokksins. Samkvæmt hugmyndum formanns flokksins verða þau Guðni Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttir nýir ráðherrar í 12 manna ríkisstjórn. „Ég hef heyrt þessu fleygt en tel æski- legt að við forum í þessi viðtöl við Halldór Ásgrímsson, sem stefnt var að, strax eftir helgina," sagði Siv Frið- leifsdóttir alþingismaður í gær. Talið er líklegt að viðtölin fari fram á þriðjudaginn þar sem allir .12 þing- menn Framsóknarflokksins verða kallaðir fyrir formann flokksins. Sex verða svo valdir sem ráðherrar. Log- andi óánægja er í kjördæmi Sivjar með þessa ákvörðun en öll stjóm kjör- dæmissambandsins telur allt annað fráleitt nema að Siv verði ráðherra, að einum undanskildum, fulltrúa Suð- urnesja, sem vill að Hjálmar Ámason Á meðan allt lék í lyndi. fái ráðherrastól. Engum þingmanni Framsóknarflokksins hefur verið formlega tilkynnt um hvernig formað- urinn ætlar að skipta ráðherrastólun- um en það hefur þegar lekið út hver línan sé. „Ég mun færa rök fyrir því að það sé eðlilegt að litið sé til Reykjanes- kjördæmis," sagði Siv, en hún var stödd á Kastrup-flugvelli við Kaup- mannahöfn á heimleið í gærkvöld þegar DV ræddi við hana. Siv vildi ekki ræða málið frekar en vísaði til röksemda sinna sem fram hafa komið áður. Hún bendir á að Framsóknarflokkurinn er með flest atkvæði í Reykjaneskjördæmi, fékk nærri 7.200 atkvæði þar, en í Reykja- vík náði flokkurinn 6.800 atkvæðum, önnur kjördæmi miklu minna. í kosn- ingunum tókst flokknum að fá tvo þingmenn í Reykjanesi en það hefur aldrei tekist áður tvennar kosningar í röð. Þá benda Siv og fleiri á að í næstu kosningum múni verða 3 kjör- dæmi á suðvesturhominu með sam- tals 33 þingmenn, meirihluta þing- heims. Þá muni mörgun þykja ein- kennilegt að flokkurinn færi til þeirra kosninga með frmm ráðherra af lands- byggðinni en aðeins einn frá Suðvest- urlandi. -JBP/hb Viagra loks í apótekin: Beöið eftir verðlagningu Viagra - mun betra að- gengi verður Verðið á stinningarlyfinu Viagra hefur ekki verið ákveðið. Erna Jóna Sigmundsdóttir, markaðsstjóri hjá Pharmaco, sagði í gær að sótt hefði ver- ið um verð, málið væri í venjulegum ferli eftir að Lyfja- nefnd veitti sam- þykki sitt fyrir al- mennri sölu á lyfinu í apótekum. Fram til þessa hefur Viagra aðeins verið afgreitt á undanþágu. Ema Jóna sagðist búast við að sala á lyfinu mundi aukast mikið þegar losnar um hömlur á sölunni. Hins vegar yrði Viagra aldrei selt öðruvisi en gegn framvísun á lyf- seðli frá lækni. „Það hefur veriö talsverður þrýst- ingur á okkur frá læknum og sjúk- lingum undanfarið, það hefur verið mikið vesen að fá undanþágu fyrir hvem sjúkling, sækja um skriflega til Lyfjanefndar og síðan hefur þetta komið til okkar. Núna verður þetta mun auðveldara," sagði Ema Jóna. Nokkrar þúsundir íslenskra karl- manna munu hafa gagn af Viagra, einkum karlar frá fertugu og upp úr, sjúklingar sem hafa tapað allri getu og loks þriðji hópurinn sem tel- ur sig vera að missa getu. -JBP Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar kom með hina slösuðu. DV-mynd S Þyrla kölluð út vegna bílslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út í gær vegna slyss. Þrír menn slösuðust þegar bíll valt ofan i á. Hringt var í Landhelgis- gæsluna um tvöleytið og beðið um að hafa þyrluna í viðbragðsstöðu. Hálftíma síðar var útkallið stað- fest og þyrlan send af stað. Búið var að flytja mennina til Hvamms- tanga en slysið varð í grenndinni og sótti þyrlan þá þangað. Einn þeirra var talinn alvarlega slasað- ur og blásið var í hann lífi. Mennirnir sluppu vel miðað við aðstæður. Þyrlan flutti mennina á Sjúkrahús Reykjavíkur. -hvs Veðrið um helgina: Skúrir eða slydduél Á morgun, hvítasunnudag og mánudag, annan í hvítasunnu, verður hæg norðlæg eða breyti- leg átt og skúrir eða slydduél. Hiti verður á bilinu 2 til 8 stig, svalast á Norðurlandi. Veörið í dag er á bls. 67. SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI SÍMI 581 1010 SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA / / / / / / A

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.