Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.1999, Síða 64
Þrefaldur
í. vinningur
0:iL0
& 'kvöld
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö f DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
LAUGARDAGUR 22. MAÍ1999
Borgarleikhúsið:
Starfsmenn
leggja á flótta
Arn-
„Leikhús er paradís allra vinnu-
staða en getur snúist upp í andhverfu
sína. Ég hef menntun, reynslu og
'^þekkingu á leikhússtarfi og þegar það
nýtist ekki þá segi
ég hljóðlega bless,“
sagði Hafliði Am-
grimsson, leiklist-
arráðunautur
Borgarleikhússins,
sem hefur yfirgefið
vinnustað sinn
ásamt fjölmörgum
samstarfsfélögum
sínum síðustu dag-
ana. Um ástæður
brotthvarfs síns úr
Borgarleikhúsinu
sagði Hafliði: „Ég get ekki skrifað
undir stjórnunarstíl og yfirbragð Þór-
hildar Þorleifsdóttur leikhússtjóra.“
I Aðrir sem hætt hafa eða eru á fór-
um úr Borgarleikhúsinu af sömu
ástæðum og Hafliði eru Jóna Finns-
dóttir framkvæmdastjóri, Ingibjörg
Björnsdóttir sýningarstjóri, Valdis
Gunnarsdóttir leikhúsritari og Robert
Clifford leiksviðsstjóri.
Alvarlegir samskiptaörðugleikar og
skoðanaágreiningur í mikilvægum
málum á milli leikhússtjóra og hluta
starfsliðs hefur staðið Borgarleikhús-
inu fyrir þrifum. -EIR
Hafliöi
grímsson.
Stj órnarviðræður:
I góðum gír
Viðræður um áframhaldandi stjóm-
arsamstarf Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks ganga vel að sögn Geirs
H. Haarde, vara-
formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
„Þetta er allt í góð-
um gír og ég á von
á að við skilum af
okkur í næstu
viku,“ sagði Geir.
Aðspurður um
hvort flokkarnir
héldu sínum ráðu-
neytum sagði Geir:
„Því get ég engu
.svarað til um. Það er mál sem for-
''Tnenn flokkanna munu koma sér sam-
an um og gera tillögur um.“ -hb
Geir H. Haarde.
DV kemur næst út eldsnemma að
morgni þriðjudagsins 25. maí.
Smáauglýsingadeild DV er opin í
dag, laugardag, frá kl. 9-14. Lokað á
morgun, hvítasunnudag. Opið verð-
ur á mánudag, annan í hvítasunnu,
frá kl. 1&-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin laug-
ardag frá kl. 6-14. Lokað sunnudag
og mánudag. Opið á þriðjudag frá
6-20.
Síminn er 550 5000.
Olafur Ragnar Grfmsson, forseti Islands, lauk heimsókn sinni um byggðir Eyjafjarðar i gær, en þá heimsótti hann
Hrísey fyrri hluta dagsins og hélt síðan til Grímseyjar. í heimsókn sinni í Hrísey heimsótti forsetinn fiskvinnslu Snæ-
fells, kynnti sér starfsemi fyrirtækisins og ræddi við starfsfólkið. DV-mynd gk
Siv Friðleifsdóttir ekki í myndinni varðandi ráðherrastól:
Framsóknarflokkur-
inn logar í illdeilum
- hef heyrt þessu fleygt en vil ræða við Halldór, segir Siv
Samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um DV er Siv Friðleifsdóttir, fyrsti
þingmaður Framsóknarflokksins í
Reykjaneskjördæmi, ekki ráð-
herraefni í áframhaldandi ríkisstjóm
Framsóknarflokksins og Sjálfstæðis-
flokksins. Samkvæmt hugmyndum
formanns flokksins verða þau Guðni
Ágústsson og Valgerður Sverrisdóttir
nýir ráðherrar í 12 manna ríkisstjórn.
„Ég hef heyrt þessu fleygt en tel æski-
legt að við forum í þessi viðtöl við
Halldór Ásgrímsson, sem stefnt var
að, strax eftir helgina," sagði Siv Frið-
leifsdóttir alþingismaður í gær. Talið
er líklegt að viðtölin fari fram á
þriðjudaginn þar sem allir .12 þing-
menn Framsóknarflokksins verða
kallaðir fyrir formann flokksins. Sex
verða svo valdir sem ráðherrar. Log-
andi óánægja er í kjördæmi Sivjar
með þessa ákvörðun en öll stjóm kjör-
dæmissambandsins telur allt annað
fráleitt nema að Siv verði ráðherra,
að einum undanskildum, fulltrúa Suð-
urnesja, sem vill að Hjálmar Ámason
Á meðan allt lék í lyndi.
fái ráðherrastól. Engum þingmanni
Framsóknarflokksins hefur verið
formlega tilkynnt um hvernig formað-
urinn ætlar að skipta ráðherrastólun-
um en það hefur þegar lekið út hver
línan sé.
„Ég mun færa rök fyrir því að það
sé eðlilegt að litið sé til Reykjanes-
kjördæmis," sagði Siv, en hún var
stödd á Kastrup-flugvelli við Kaup-
mannahöfn á heimleið í gærkvöld
þegar DV ræddi við hana.
Siv vildi ekki ræða málið frekar en
vísaði til röksemda sinna sem fram
hafa komið áður. Hún bendir á að
Framsóknarflokkurinn er með flest
atkvæði í Reykjaneskjördæmi, fékk
nærri 7.200 atkvæði þar, en í Reykja-
vík náði flokkurinn 6.800 atkvæðum,
önnur kjördæmi miklu minna. í kosn-
ingunum tókst flokknum að fá tvo
þingmenn í Reykjanesi en það hefur
aldrei tekist áður tvennar kosningar í
röð. Þá benda Siv og fleiri á að í
næstu kosningum múni verða 3 kjör-
dæmi á suðvesturhominu með sam-
tals 33 þingmenn, meirihluta þing-
heims. Þá muni mörgun þykja ein-
kennilegt að flokkurinn færi til þeirra
kosninga með frmm ráðherra af lands-
byggðinni en aðeins einn frá Suðvest-
urlandi.
-JBP/hb
Viagra loks í apótekin:
Beöið eftir
verðlagningu
Viagra - mun
betra að-
gengi verður
Verðið á stinningarlyfinu Viagra
hefur ekki verið ákveðið. Erna Jóna
Sigmundsdóttir,
markaðsstjóri hjá
Pharmaco, sagði í
gær að sótt hefði ver-
ið um verð, málið
væri í venjulegum
ferli eftir að Lyfja-
nefnd veitti sam-
þykki sitt fyrir al-
mennri sölu á lyfinu
í apótekum. Fram til
þessa hefur Viagra
aðeins verið afgreitt
á undanþágu.
Ema Jóna sagðist búast við að
sala á lyfinu mundi aukast mikið
þegar losnar um hömlur á sölunni.
Hins vegar yrði Viagra aldrei selt
öðruvisi en gegn framvísun á lyf-
seðli frá lækni.
„Það hefur veriö talsverður þrýst-
ingur á okkur frá læknum og sjúk-
lingum undanfarið, það hefur verið
mikið vesen að fá undanþágu fyrir
hvem sjúkling, sækja um skriflega
til Lyfjanefndar og síðan hefur þetta
komið til okkar. Núna verður þetta
mun auðveldara," sagði Ema Jóna.
Nokkrar þúsundir íslenskra karl-
manna munu hafa gagn af Viagra,
einkum karlar frá fertugu og upp
úr, sjúklingar sem hafa tapað allri
getu og loks þriðji hópurinn sem tel-
ur sig vera að missa getu. -JBP
Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar
kom með hina slösuðu. DV-mynd S
Þyrla kölluð út
vegna bílslyss
Þyrla Landhelgisgæslunnar var
kölluð út í gær vegna slyss. Þrír
menn slösuðust þegar bíll valt
ofan i á. Hringt var í Landhelgis-
gæsluna um tvöleytið og beðið um
að hafa þyrluna í viðbragðsstöðu.
Hálftíma síðar var útkallið stað-
fest og þyrlan send af stað. Búið
var að flytja mennina til Hvamms-
tanga en slysið varð í grenndinni
og sótti þyrlan þá þangað. Einn
þeirra var talinn alvarlega slasað-
ur og blásið var í hann lífi.
Mennirnir sluppu vel miðað við
aðstæður. Þyrlan flutti mennina á
Sjúkrahús Reykjavíkur. -hvs
Veðrið um helgina:
Skúrir eða
slydduél
Á morgun, hvítasunnudag og
mánudag, annan í hvítasunnu,
verður hæg norðlæg eða breyti-
leg átt og skúrir eða slydduél.
Hiti verður á bilinu 2 til 8 stig,
svalast á Norðurlandi.
Veörið í dag er á bls. 67.
SKEMMTISKIPIÐ ÁRNES
SKEMMTIFERÐ AÐ PINNI UPPSKRIFT
PAR SEM PÚ RÆÐUR FERÐINNI
SÍMI 581 1010
SPENNANDI KOSTUR FYRIR HÓPA
/
/
/
/
/
/
A