Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 JLlV
íönd
Ungar flóttakonur
neyddar til vændis
stuttar fréttir
Útilokar kjarnorkustríð
Talsmaður BJP-flokksins á
Indlandi útilokaði í gær notkun
kjarnavopna í átökunum við
skæruliða í Indlandshluta
Kasmírhéraðs.
Rak ráðherra
Fidel Castro Kúbuforseti rak í
gær óvænt Roberto Robaina úr
embætti utan-
ríkisráðherra
sem hann
hafði gegnt síð-
an 1993. Ekki
er vitað um or-
sök brottrekst-
urs Robaina
sem hafði ver-
ið talinn líklegur arftaki
Castros. Nýr utanrikisráöherra
verður þingmaðurinn Felipe
Perez sem á sæti í miðstjóm
Kommúnistaflokksins.
Gyðingabyggðir
Fráfarandi stjóm ísraels hefur
samþykkt að stækka byggð gyð-
inga á Vesturbakkanum þannig
að hún nái til borgarmarka Jer-
úsalems. Þar með myndast röð
gyðingabyggða sem skipta Vest-
urbakkanum í tvennt.
Ecevit myndar stjórn
Bulent Ecevit, leiðtogi Lýðræð-
islega vinstri flokksins í Tyrk-
landi, náði í gær samkomulagi
við þjóðemissinna og íhaldsmenn
um myndun nýrrar stjómar.
Vændi eykst á ný
Vændi í sænskum borgum
hefur aukist á ný. 5 mánuðir
era liðnir frá því að viöskipti við
vændiskonur vora gerð ólögleg.
Fyrstu mánuðina dró úr vændi.
Zadornov rekinn
Nýr fyrsti aðstoðarforsætis-
ráðherra Rússlands, Míkhaíl Za-
domov, var
rekinn í gær
af Jeltsín for-
seta tæpri viku
eftir að hann
tók við emb-
ættinu. Za-
domov var áð-
ur fjármála-
ráðherra og
vildi halda því embætti ásamt
nýja embættinu. Sergei Stepa-
1 sjln, forsætisráðherra Rúss-
lánds, viðurkenndi óbeint fyrr I
gær að að valdabarátta á bak við
tjöldin hefði seinkað því að
stjórn hans yrði samþykkt. „Þið
vitið sjálfir hvað er í gangi,“
sagði Stepasjín á fundi með
fréttamönnum í tilefni opinberr-
ar heimsóknar Kjells Magnes
Bondeviks, forsætisráðherra
Noregs.
Olíuævintýri
Þing Færeyja samþykkti í gær
samninginn við Bretland um
miðlínu milli Færeyja og Bret-
lands. Þar með getur olíuiðnað-
ur hafist.
Leki um leyniþjónustu
Vamarmálaráðherra Portú-
gals, Veiga Simao, sagði af sér í
gær eftir að hafa sent skýrslu
með nöfnum 69 leyniþjónustu-
manna til þingnefndar. Nefndin
átti að rannsaka fjármögnun að-
gerða leyniþjónustannar. Viku-
ritið Indepente komst yfir
skýrsluna.
Havei útskrífaöur
Vaclav Havel, forseti Tékk-
lands, var í gær útskrifaður af
herspítalanum
í Prag þar sem
hann hefur leg-
ið í um það bil
viku vegna
bronkítis. For-
setinn er enn
veikburða og
heldur áfram
lyfjatöku. Talið
er að hann geti snúið aftur til
starfa 7. júní næskomandi. Havel
hefur átt við vanheilsu aö stríða
í nokkur ár.
Sameinuðu þjóðimar hafa varað
við því að albanska mafían neyði
flóttakonur frá Kosovo til vændis í
löndum Evrópusambandsins eftir
að þeim hafi verið lofuð atvinna og
heimili þar. Um sé að ræða glæpa-
gengi sem hafi langa reynslu af því
að smygla konum og bömum inn í
Evrópusambandslöndin.
ítalskir hjálparstarfsmenn í flótta-
mannabúðum í Vlore á strönd Al-
baníu hafa greint frá heimsóknum
manna sem halda á brott með ungar
stúlkur. Einn mannanna kvaðst að-
spurður vera lögreglumaður. Hjálp-
arstarfsmennirnir segjast ekkert vita
Þrír bankaræningjar á flótta í
Svíþjóð skutu í gær tvo
lögreglumenn til bana. Eftir að
hafa rænt banka í bænum Kisa um
miðjan dag í gær skutu
ræningjarnir lögreglumennina tvo
við vegatálma.
Á flóttanum stöðvuðu
ræningjarnir síðan bíl sinn við
hvert sé farið með stúlkumar. Þeir
geti heldur ekkert gert til að koma í
veg fyrir brottnám þeirra.
Hjálparstofnanir hafa gert innan-
ríkisráðuneytinu á Ítalíu viðvart.
Talsmaður stjómarinnar sagði að
það væri lítið sem yfirvöld gætu
gert. Stúlkurnar væra ffjálsar.
Flóttamannabúðirnar væra ekki
fangelsi.
Albönsk yfirvöld greindu í gær
frá komu sjötíu flóttakvenna ffá
Kosovo sem hafði verið nauðgað
kerfisbundið af Serbum. Sendiherra
Albaníu hjá NATO sagði Serba hafa
eyðilagt þorp nálægt Suva Rekaí
heilsugæslustöð til að hleypa félaga
sinum út en hann var með skotsár,
að því er sagði í netútgáfum
sænskra fjölmiðla í gær. Maður var
með meðvitund þegar hjúkrunarlið
kom á vettvang. Hann hefur áður
komu við sögu lögreglu en þá var
ekki um jafnalvarlegan glæp að
ræða.
apríl. Karlar hefðu verið aðskildir
frá fjölskyldum sínum. Sjötíu konur
og hundrað og fimmtán böm hefðu
verið flutt á brott. Konunum var
nauðgað kerfisbundið og þeim sagt
að þær sæju menn sína ekki aftur.
Einnig var greint ffá hermdar-
verkum Serba í bænum Ferizaj. Þar
var kveikt í yfir fjögur hundruð
húsum og um tuttugu manns
brenndir lifandi. Herferð gegn
menntamönnum er einnig sögð hafa
átt sér stað. Ekkert væri vitað um
afdrif að minnsta kosti þrjátíu
menntamanna sem hefðu verið
handteknir.
Lögreglumaður sem var einn á
ferð í bíl á þjóðvegi sá ræningjana
og hóf eftirför. Bankaræningjamir
skutu í átt að lögreglubílnum en
hittu ekki.
Gífurlegur fjöldi lögreglumanna
leitaði bankaræningjanna í gær og
voru þyrlur meðal annars notaðar
við leitina.
De Klerk tengd-
ur morði
á blökkumanni
Leynifundur, sem tveir fyrr-
' verandi leiðtogar S-Afríku, F.W.
j De Klerk og P.W. Botha, sóttu
1 fyrir 15 áram
getur tengt þá
við morð á
i blökkumanni.
Þetta kom fram
í breska blað-
inu The Guar-
dian í gær.
Blaðið kvaðst
hafa undir
5 höndum fundargerð ffá fundi s-
I afríska öryggisráðsins i mars
. 1984. Á fundinum var rætt um að
■ ryðja úr vegi svörtum andófs-
? manni stjómar kynþáttaaðskiln-
; aöarstefnunnar. De Klefk, sem
þá var innanríkisráðherra, sat
; fundinn ásamt 11 öðrum ráðherr-
um og Botha sem þá var forseti.
; Barend du Plessis, ráðherra
menntunarmála blökkumanna,
! ræddi á fúndinum um að fjar-
| lægja þyrfti andófsmanninn
;i Matthew Goniwe sem síðar var
; pyntaður og drepinn ásamt þrem-
ur félögum sínum.
De Klerk hefur hcirðlega neitað
í; að hafa átt nokkum þátt í glæp-
ufh öryggislögreglu fyrrverandi
| ríkisstjómar S-Afríku. Hann seg-
ir að á fyrrnefndum fundi hafi
| verið rætt um að færa Goniwe til
| í starfi.
Farþegar
frelsuðu bund-
inn og keflað-
an mann
Farþegum um borð í flugvél
1 svissneska flugfélagsins Swiss-
air ofbauð á dögunum meðferð
lögreglumanna á samferðamanni
þeirra. Lögreglumennimir höfðu
; bundið og keflað mann frá Kongó
sem neitað hafði verið um hæli í
I Sviss. Hafði lögreglan sett lím-
band fyrir munn mannsins til
! þess að hann væri ekki með há-
reysti. Þegar maðurinn, sem var
| á bak við hengi aftast í flugvél-
| inni, hafði róast fjarlægði lög-
| reglan límbandið. Hann hrópaði
þá á hjálp. Um 20 farþegar
ákváðu að láta til skarar skríða
? þegar miflilent var í Kongó og
? réðust á lögregluna og leystu
!! fangann. Yfirvöld í Kamerún
kyrrsettu vélina þar til Swissair
; hafði lofað að fljúga með mann-
inn aftur tU Zúrich. Kongómað-
?: urinn varð frjáls ferða sinna í
Sviss þar sem ákvörðunin um
brottvísun var fallin úr gUdi, að
j því er svissneskir fjölmiðlar
j greina frá.
Fjögurra stjörnu
hótel fýrir
tuskubangsa
Hótel fyrir tuskubangsa var
; opnað í Somerset i suðurhluta
: Englands í þessari viku. Hótelið,
; The Withy Bears Hotel, ætlar að
! verða bjargvættur þeirra bangsa-
eigenda sem ætla í utanlands-
| ferðir og geta ekki hugsað sér að
í láta bangsakrúttin vera ein
! heima. Þegar hefur verið pantað
fyrir 15 loðna gesti.
Gistingin er ekki dýr. Einnar
í nætur gisting með morgunverði
| kostar frá um 50 íslenskum krón-
um. Gisting með fuUu fæði kost-
3 ar um 200 íslenskar krónur. Hót-
eleigandinn, Rikey Austin, ber
? gjaman fram hunang og pönnu-
| kökur. Þegar veörið er gott fer
! hún í skógargöngu með bangsana
1 og les fyrir þá ævintýri um
| bangsa. Að sögn Austin, sem sjálf
j fór að safna böngsum fyrir tveim-
j ur áram, kemur maður tfl henn-
Iar með fimm bangsa í næstu
viku. Kærastan hans neitaði að
fara í frí þar sem hún vUdi ekki
fara frá krúttunum sínum.
I Austin segir að kona, sem býr í
S Glasgow, sé að hugsa um gefa
!* bangsanum sínum hóteldvöl í
I; afmælisgjöf.
Kauphallir og vöruverð erlendis
*/t r M A M
London
60001 5500 5000 4000
6199,5
FT-SE100
F M A M
2000
Frankfurt
C/Wj 5083,83
Dwv /innn
4UUU
2000 DAX-40
F M A M
180
152
180
16177,19
Bensín 95 okt «1 Bensin 98 okt.
Hong Kong
12308,53
zUUUU
ÍDUUU 10000, 5000
HangSeng
F M A M
Hráolia
$/
tunnaF M
15,19
Nígerímenn æfðu í gær dansatriði fyrir hátíðahöldin í dag í tilefni valdaskiptanna. Herstjórnin lætur af völdum og við
tekur borgaralegur forseti, Olusegun Oasanjon. Símamynd Reuter
Lögreglumenn skotnir
til bana í Svíþjóð