Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
%tort
Þrenna og ótrú-
Veturinn 1998 til 1999, hefur
veriö ein ótrúleg sigurganga
hjá Manchester United. Þrír tit-
ilar, enskir meistarar, enski
bikarinn og Evrópumeistarar, |
sem er einsdæmi í Englandi.
Þetta eru ekki auðunnin tak-
mörk, að baki liggja 62 leikir á 10
mánuðum. Liðið vann 36 af
þeim, gerði 22 jafntefli og tapaði
aðeins 4. Liðið er enn taplaust
á þessu ári, tapaði ekki í
síðustu 32 leikjum sínum,
leikjunum sem skiptu öllu
máli í lok timabils.
Alls skoraði Manchest-
er United 128 mörk í leikj-
unum 62 eða yfír 2 að
meðaltali og fékk á
sama tíma aðeins á
sig 60. Liðið var
taplaust í meist-
aradeild Evr-.
ópu í 13 leikj-,
um þar afi
vann liðið 6
leiki. og a
gerði
Koma Danans Schmeichel
Grunnur að velgengni Ferguson voru
kaup hans á markverðinum Peter
Schmeichel frá Bröndby 1991. Frá því að
Schmeichel kom á Old Trafford hefur
liðið aldrei lent neðar en í 2. sæti í
ensku deildinni, unnið 5 meistaratitla,
3 bikEirmeistaratitla og alls hafa þeir
saman skilað 10 bikurum í hús.
Alls hefur Ferguson unnið 13 titla
með Manchester United og byggt
upp stórveldi í enskri og evr-
ópskri knattspyrnu.
Með sigri á miðvikudag
jafnaði Ferguson afrek Bob
Paisley með Liverpool
á áttunda og ní-
unda áratugnum
er Paisley vann
13 titla.
En það má
heldur ekki
gleyma í þessu
sambandi sigr-
um Ferguson í
heimalandinu.
Ferguson vann 9
titla með Aber-
I deen og hefur
| því unnið sam-
| tals 22 titla með
i þessum tveimur
I félögum.
Sá 22. var
samt örugglega
sá eftirsóttasti
enda náði hann
með honum að
komast upp að hlið
Sir -Matt Busby, sem
31 ári áður hafði leik-
ið sama leik á
Wembley.
Ferguson hefur þrisvar
farið í úrslit með lið sitt í
Evrópukeppni og unnið í öll
skiptin. Hann var Evrópumeistari
bikarhafa með Aberdeen 1983 og
rManchester 1991 og vann síðan meist-
r aradeild Evrópu á miðvikudaginn.
Margt minnir á Matt Busby
legur vetur
13 titlar
Enskir meistarar (5)
1993, 1994, 1996
1997, 1999
I
Enskir bikarmeistarar (4)
1990, 1994, 1996, 1999
Enskir deildameistarar (1)
1992
Evrópumeistarar bikarhafa (1)
1992
Evropumeistarar meistaraliða (1)
1999
Meistarar meistaranna i Evropu 1
1991
jafntefli
Bros fra sigursælasta þjalfara i sögu
enska boltans, Alex Ferguson, sem
á miðvikudag kórónaði ótrúlega
sigurgöngu Manchester United og
þrjá titla í vetur.
Menn líta oft til Sir Matt Busby til að leita eftir sam-
anburði við Ferguson, eina framkvæmdastjóra United
sem hafði skilað Evrópubikarnum til Manchester. Bus-
by var einn þeirra sem lifði af Múnchen-slysið 1958 og
byggði upp liðið sem á endanum vann Evrópukeppni
meistaraliða 1968, með 4-1 sigri á Benfica á
Wembley.
Það er margt sem styður þann samanburð.
Matt Busby hefði orðið 90 ára á miðvikudag, það
tók Busby 12 ár að byggja upp evrópskt stór-
veldi, en þetta er 12. heila tímabil Ferguson
með Manchester United, mótherjarnir þá
voru Bayern Múnchen, þeir sömu og
United var að koma frá við að spila þegar
þeir lentu í flugslysinu fyrir 41 ári og
báðir eru þeir Skotar sem fóru til Eng-
lands til að byggja upp stórveldi.
Sigurganga Alex Ferguson með
Manchester United er þvílík að
samaburðurinn við Sir Matt verð-
ur líklega fullkomnaður þegar
I hægt verður að ávarpa kappann
sir Alex. I^eir tveir eru mestu
stjórar í sögu félagsins.
erguson
Sá sem færði Manchester United sinn fyrsta meistara-
titil í 26 ár, hefur síöan skilað 5 meistaratitlum á sjö
árum og þremur tvöfóldum sigrum á síðustu 6 tímabil-
um, kórónaði frábæran og einstakan árangur með lið
sitt, Manchester United þegar Manchester vann Bayem
Múnchen í Barcelona og innsiglaði fyrstu þrennuna í
sögu enska boltans.
Alex Ferguson, sem er 57 ára Skoti, kom til Manchest-
er 6. nóvember 1986 er Ron Atkinsson var rekinn úr
starfi. Ferguson tapaði fyrsta leiknum og vann aðeins
einn af fyrstu 6 og liðið endaði í 11. sæti í deildinni.
Fyrstu fimm árin reyndu vissulega á þolinmæði stjórn-
armanna Manchester, liðiö lenti á þeim árum þrisvar
neðar en í 10. sæti en fyrsti titillinn kom er liðiö vann
enska bikarinn 1990. Sá sigur og sigur í Evrópukeppni
bikarhafa árið eftir gáfu aftur á móti góð fyrirheit.
Alex Ferguson hefur nú unnið allt sem hugsast getur
með félagsliði og miðvikudagurinn er því að hans mati
besti dagur í lífi hins 57 ára Skota. „Ég er stoltur af mín-
um leikmönnum, fjölskyldu og arfleifð minni fyrir allt
sem þeir og þau hafa gefið mér og þetta er besti dagur í
mínu lífi,“ sagði Ferguson eftir leikinn.
„Fótbolti er skrýtinn leikur, ég var farinn að undir-
búa mig fyrir að tapa leiknum þegar við jöfnuðum og
þetta var eins og í litlu ævintýri. Þetta er frábær afmæl-
isgjöf til Sir Matt Busby og ég er viss um að hann hefur
sparkað mikið yfir leiknum, þarna uppi.“
Hvemig Alex Ferguson fer að fylgja eftir þessum vetri
er efitt að ímynda sér, en hver veit nema að þessi
ákveðni og staðfasti Skoti komi okkur enn meira á
óvart, þvi það er nú alltaf hægt að vinna fjórfalt.
-ÓÓJ
Lykill að slgurgöngu Fergie hjá Manchester voru örugglega kaupin á Peter
Schmelchel 1991 en þelr félagar lyfta hér saman Evrópubikarnum.