Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Blaðsíða 8
s sælkerinn
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 T|V
Rannveig á Café List:
Galdrakjúklingur
- ásamt fábrotnu brauði
Þegar komiö er á Café List, og
einhver tekur að dásama spænsku
brauðin sem þar eru á boðstólum,
vita ekki margir að það er alíslensk
kona sem á allan heiður af brauðun-
um. Það er Rannveig Gylfadóttir og
hún féllst á gefa svöngum uppskrift
að brauði og jafnframt heilli máltíð
til þess að borða það með.
„Þegar ég fór að pæla í spænskri
og Miðjarðarhafsmatargerð sann-
færðist ég enn betur um að hið ein-
falda er alltaf best. Maður kemst að
ég held ekki lengra í einfaldleikan-
um en í þessari kjúklingauppskrift
sem er af frönskum toga og hálf-
gerður galdur. Sem meðlæti er best
að hafa fábrotið brauð og gott salat.
Kjúklingur í rauðvíni
1 kjúklingur
nokkrir rauðlaukar
ólífuolía
rauðvín
Nýkaup
Þarsem ferskleikinn býr
Baby Ruth
- einföld en dálítið
vandmeðfarin. Er jafn-
góð með rjóma sem ís
Botn
3 stk. eggjarauður
200 g sykur
100 g salthnetur
70 g ritzkex
1/2 tsk. lyftiduft
Krem
100 g suðusúkkulaði
50 g smjör
3 stk. eggjarauður
60 g flórsykur
Þeytið hvítumar og blandið
sykrinum rólega saman við,
þeytið þar tU það er stíft.
Hakkiö niður kexið og bland-
ið saman viö salthneturnar og
lyftiduftið. Bakið í einu formi
við 170"C í ca 20 minútur.
Bræðiö súkkulaðið og smjörið
saman, þeytið rauðurnar og
flórsykurinn saman þar tU
massinn verður stífur, bland-
ið svo súkkulaðinu varlega
saman við svo þeytingin faUi
ekki og smyrjiö kreminu yfir
botninn. Einnig er mjög gott
að bera fram með botninum
vanUluís sem er jafnstór og
botninn og er hann lagður
ofan á þegar botninn er bor-
inn fram. Botninn þarf ekki
að standa lengi áður en tertan
er borin fram.
Uppskriftirnar eru fengnar frá
Nýkaupi þar sem allt hráefni í
þaer fæst.
REVIVAL
DANBERGehf
Skúlagötu 61 sími 562 6470
2 lárviðarlauf
salt og svartur pipar
Kjúklingurinn er hlutaður í sund-
ur og rauðlaukurinn sneiddur.
BotnfyUi af ólífuolíu er hituð í við-
um potti. Kjúklingur og laukur sett
í pottinn ásamt lárviðarlaufi og
slatta af nýmöluðum svörtum pipar.
Látið krauma þar tU laukurinn er
glær, eða í ca 15-20 mín. Þá á að
hella yfir bragðmiklu rauðvíni
þannig að fljóti yflr kjúklingabitana
og salta. Látið malla í 20-25 mín. og
bragðbætið enn frekar með salti og
pipar ef þarf.
Brauð
ca 750 ml vatn
ca 30 g pressuger
smáv. ólífuolía
ca 1 msk. salt
rúmlega 1 kg hveiti
Best er að hnoða brauðið með
hnoðara í hrærivél. Ylvolgu vatn-
inu, gerinu, saltinu og olíunni er
blandað í skálina og hveitinu bætt í
á meðan hnoðað er. Deigið er hæfi-
lega blautt þegar það sleppir skál-
inni. Hnoðað í ca 10 mín. Filma
strengd yflr skálina og deigið látið
hefast á hlýjum stað í 1 tU 11/2 klst.
Rannveig Gylfadóttir er sælkeri vikunnar og gefur uppskrift að kjúklingi af
frönskum toga. Meðlætið erfábrotið brauð, en hún er einmitt þekkt um allt höf-
uðborgarsvæðið fyrir gómsætu brauðin sem hún bakar á Café List.
Þá er deiginu skeUt á hveitistráð
borðið, það hlutað í sundur og form-
að að eigin vali, úðað með vatni og
látið bíða á bökunarplötu í 5 tU 10
mínútur.
Brauðið er síðan bakað við ca
225'C í 25-30 mín.
Síðan er það bara gott salat með
olíu og ediki, sinnepi og svolitlum
hvítlauk út á.
matgæðingur vikunnar
Máltíð að hætti Sri Lanka-búa
Það eru dr. Amfríður Guðmunds-
dóttir og sr. Gunnar Rúnar Matthías-
son sem eru matgæðingar Helgar-
blaðsins að þessu sinni.
„Áhugi okkar á matreiðslu jókst
mjög þau ár sem við bjuggum í Banda-
ríkjunum og við kynntumst matseld
framandi þjóða. Matur með indversku
ívafi er í sérlegu uppáhaldi hjá okkur,
hvort sem er með eða án kjöts. Við
völdum uppskrift að karríkjúklingi,
ásamt gulum hrísgrjónum og linsu-
baunarétti, sem vinafólk frá Sri
Lanka gaf okkur og okkur fmnst sér-
lega góður. Með því að prófa sig áfram
með magn af chili og karríi, er hægt
að hafa þennan rétt sterkan eða mild-
an, eftir smekk.
Karrí-kjúklingur fyrir fjóra
1 lítill kjúklingur
1 laukur
1 ds. af niðurs. tómötum (400 g)
3 -A hvítlauksrif
2 tsk. engifer eða rifin engiferrót.
1 tsk. matarolía
örlítið af turmerickryddi
3/4 tsk. chili (eða eftir smekk)
1/4 tsk. sinnepskom
3-4 kardimommur
3-4 negulnaglar
1/2 kanilstöng
1/2 msk. karrí (eða eftir smekk)
2 tsk. sítrónusafi
salt eftir smekk
1/2 bolli vatn
Hlutið kjúklinginn niður (að sjálf-
sögðu er hægt að kaupa 5-6 kjúklinga-
bita) og best er að fjarlægja bæði
skinn og fitu. Setjið oliuna á heita
pönnu og setjið sinnepskomin, kar-
dimommumar, kanilstöngina og lauk-
inn út í. Þegar laukurinn er farinn aö
taka lit bætið þá við niðurrifnu engi-
ferinu (eða duftinu) og hvítlauknum,
ásamt tómötunum. Þá er kominn tími
til að setja afganginn af kryddinu út í
(turmeric, chili og karrí). Mikilvægt
er að magnið af chili og karríi ráðist
af því hversu sterkur rétturinn skal
vera. Látið krauma í eina mínútu, en
þá era kjúklingabitamir settir á pönn-
una ásamt vatninu. Saltið. Látið koma
upp suðu og lækkið síöan niður í með-
alhita, og látið krauma í 10-15 mínút-
ur undir loki, eða þar til bitarnir era
fyllilega eldaðir. Snúið kjúklingabit-
unum við a.m.k. tvisvar sinnum á
meðan á þessu stendur. Að þessu
Prestshjónin dr. Amfríöur Guðmundsdóttir og séra Gunnar Rúnar Matthías-
son hafa sérstakt dálæti á indverskum mat.
loknu er sítrónusafa hellt yfir og rétt-
urinn borinn fram með hrísgrjónum.
Gul hrísgrjón
Mjög gott er að bregða örlítið út af
hefðinni og bera fram hrísgrjón sem
matreidd hafa verið með lauk og
krydduð með turmeric, sem gerir þau
fallega gul á litinn. Þá má setja hnet-
ur og rúsínur út í. Þetta er afar auð-
velt að gera. Skerið lítinn lauk í sneið-
ar og steikið hann lítiilega í olíu. Þeg-
ar laukurinn er orðinn gegnsær er
hnetunum og rúsínum blandað út í
(má sleppa). Látið krauma í 2-3 mín-
útur. Setjið hrísgrjón í pott og setjið
hæfilega mikið vatn út í. Bætið við
salti og 1/2 tsk. af turmeric. Setjið
laukinn, hneturnar og rúsínurnar
saman við og sjóðið eins og venja er
með hrísgrjón.
Karríréttur með spfnati og dahl
(raiiðum linsubaunum)
Með kjúklingaréttinum og gulu
hrísgijónunum er mjög gott að bera
fram karrírétt með spínati og rauðum
linsubaunum (er líka góður einn og
sér með venjulegum hrísgrjónum).
Uppskriftin er mjög einfóld. Þvoið
rauðu linsubaunimar (ca 2 bolla) og
setjið í pott ásamt 1 tsk. af turmeric.
Látið vatn ná rúmlega 5 cm yfir baun-
irnar og sjóðið við vægan hita, þar til
vatnið er uppurið og linsurnar orðnar
mjúkar (ca 20 mínútur). Bætið við 3/4
bolla af mjólk og fersku spínati (má
einnig nota frosið). Sjóðið i 2-3 mínút-
ur i viðbót. Saltið.
Viö viijum síðan skora á Guðrúnu
Guðmundsdóttur myndlistarkonu og
ffamleiðslustjóra á auglýsingstofunni
Gott fólk, til þess að koma með upp-
skrift í næsta blaði.“
Nýkaup
Þar semferskleikinn býr
Beikon- og ólífubrauð
650 g hveiti
4 tsk. þurrger, (1 bréD
1 tsk. lyftiduft, sléttfull
2 tsk. salt, sléttfullar
75 g smjör
1 1/2 dl mjólk, ylvolg
1 1/2 dl vatn, ylvolgt
150 g beikon í sti'imlum,
þurrsteikt og hakkað
70 g svartar ólífur, sneiddar
70 g grænar ólífur, sneiddar
1 stk. egg
100 g parmigiano-ostur
Hrærið gerið saman við yl-
volga mjólkina, látið standa í
fimm mínútur. Öllum þurrefn-
um blandað saman með hnoð-
aranum. Bætið öllum vökva
saman við ásamt eggi og
beikoni og ólífum. Hnoðið deig-
ið í fimm mínútur. Takið úr
skálinni, mótið í snittubrauð og
skerið síðan í 2 cm þykkar
sneiðar (hleifa). Þetta ættu að
verða 15-20 hleifar, um 40 g á
þyngd. Látið hefast í 20 mínút-
ur við stofuhita. Stráið rifnum
parmigiano-osti yfir brauðið og
bakið við 200°C í 20 mínútur.
Skvettiö 1 dl af vatni i ofninn
um leið og baksturinn hefst.
Aðrir möguleikar
Einnig er hægt að skipta deig-
inu í tvennt og baka tvö 500 g
snittubrauð eða eitt stórt brauð
(1000 g). Snittubrauðin þurfa að
hefast í 30 mínútur og bakast i
25-30 mínútur við 200"C, eitt stórt
brauð á að hefast í 35 mínútur og
bakast í 35 mínútur við 200"C.
Agúrku- og baunaspírusalat
með reyktum laxi
Fyrir 4
600-800 g reyktur lax
í sneiðum
1 stk. agúrka
12 stk. sérrítómatar
1 bakki baunaspírur
1 haus LoUo Rosso
2 stk. hvítlaufssalat (endívur)
1 haus eikarlauf
4 msk. graslaukur
8 msk. furuhnetur
8 msk. hjartahnetur
(cashewhnetur)
Rífið niður laufsalat og bauna-
spírur, skerið hvítlaufssalatið í
sneiðar, setjið aUt í skál. Létt-
brúnið hneturnar á heitri, þurri
pönnu. Agúrkurnar flysjaðar (t.d.
með ostaskera) og síöan skornar
í sneiðar. Sérrítómatarnir skora-
ir í tvennf. Laxasneiðarnar
: skomar i bita. Blandið öUu sam-
an við salatið og stráið gras-
lauknum yfir þegar salatinu hef-
í ur verið skipt á diska.
HeUið sósunni yfir. Stráið létt-
brúnuðum hnetum yfir salatið
um leið og það er borið fram.
Hvitlauks- og balsamedikssósa
2 dl balsamedik
2 dl matarolía
2 stk. hvítlauksrif, söxuð
salt og pipar
Hrærið vel saman ediki, olíu
og söxuðum hvítlauk. Kryddið
með salti og pipar. Þessa sósu má
bera fram strax en hvítlauks-
bragðið verður fyUra eftir því
sem hún stendur lengur, t.d. í
sólarhring í ísskáp._____________
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.