Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Síða 20
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
» fréttaljós
.Martröðin í Borgarleikhúsinu" eða „Leikhússtjórinn sem fólkið óttaðist":
Ef leikskáld væri að leita sér að
efni í leikrit gæti hann sótt það í
ástandið sem ríkt hefur innan
veggja Borgarleikhússins undanfar-
in misseri. Þar hefði hann fundið
alla þá þræði og plott sem þarf i vel
fléttað leikrit, svita, tár, ólgandi
ástríður og tilvistarkreppu fólks
sem óttast um afdrif sín og sinna. í
aðalhlutverki væri leikhússtjórinn
Þórhildur Þorleifsdóttir sem stjórn-
að hefur Borgarleikhúsinu með
sínu lagi í þrjú leikár þannig að
undan hefur sviðið hjá mörgum.
Enginn neitar því hins vegar að
leikhússtjórinn hefur náð árangri í
starfi þrátt fyrir hávaðann sem fylgt
hefur daglegum sveiflum Þórhildar
Þorleifsdóttur. Leikarar hvísla því
þó baksviðs þegar hún heyrir ekki
til að velgengnin í rekstri Borgar-
leikhússins eftir að Þórhildur tók
við sé helst að þakka léttum gaman-
leikjum sem séu margir hverjir fyr-
ir neðan virðingu leikhússins - þó
svo að bróðir hennar leiki aðalhlut-
verkið í þeim flestum. En þetta
segja leikararnir ekki upphátt. Þeir
eru hræddir um að missa vinnuna
enda ekki í mörg önnur hús að
venda fyrir leikara í landinu. Því
hærra kvarta þeir og kveina í
einkasamkvæmum og hrista margir
hverjir höfuðið í örvinglan yfír því
hlutskipti sínu að þurfa aö lúta aga
og valdi Þórhildar Þorleifsdóttur.
Hins vegar hefur hluti starfsfólks á
skrifstofum og þeir sem eiga í dag-
legum samskiptum við leikhússtjór-
ann skorið upp herör gegn ofríki og
meintum skapofsa Þórhildar, gengið
á dyr og ekki vandað henni kveðj-
umar sem frægt er úr fréttum. Þór-
hildur svarar þvi hins vegar til að
tvær hliðar séu á öllum málum og
hún ætli ekki að ræða sína hlið op-
inberlega í fjölmiðlum. Þó ætti hún
sem stjómandi að íhuga starfsað-
ferðir sínar þegar starfsmaður sem
þekktur er að geðprýði og jafnvægi
Létt
hjá Þórhildi
85% áhorfenda
Ef ég væri gullfiskur *
Trúðaskólinn **
Hið ljúfa líf *
Galdrakarlinn í Oz ***
Augun þín blá ....*
Feitir menn í pilsum ***
Sex í sveit *
Grease ★*
Mávahlátur **
Pétur Pan **
Stjómleysingi ferst af ***
Búasaga 0
hugans hefur um tveggja ára skeið
þjáðst af matröð vegna vinnustaðar
síns:
í hjutverki kvalarans
„Ég hef þjáðst reglulega af svefn-
truflunum og martröðum þar sem
leikhússtjórinn hefur undantekn-
ingarlaust verið í hlutverki kvalar-
ans. Stundum hef ég varla treyst
mér í vinnuna að morgni," segir
leikhúsmaðurinn sem af skiljanleg-
um ástæðum vill ekki láta nafns
síns getið og hann bætir því við aö
hann viti af fleiri samstarfsmönn-
Páll Baldvin - hefur ekki roð við leik-
hússtjóranum.
um sínum sem þjáist af svefnleysi
vegna þess sama. Ingibjörg Elfa
Bjarnadóttir, fyrrverandi sýningar-
stjóri Borgarleikhússins sem yfirgaf
skútuna eftir níu ára starf, orðar
þennan ótta starfsmanna svona:
„Það var oft mikið um að vera
þegar Sigurður Hróarsson og Hall-
mar Sigurðsson voru leikhússtjórar
í Borgarleikhúsinu og fólk gat misst
sig. En þeir skömmuðu aldrei starfs-
menn fyrir framan gesti á niðrandi
og dónalegan hátt. Stundum beið ég
bara eftir því að Þórhildur færi að
skamma leikhúsgestina sjálfa. Ég
var búin að fá nóg og var þeim degi
fegnust þegar ég gekk út úr Borgar-
leikhúsinu," segir Ingibjörg, Elfa
sem er farin að vinna á hamborg-
arastað 1 Kópavogi og kann vista-
skiptunum vel.
Ellert Ingimundarson, leikari og
varaformaður stjórnar Leikfélags
Reykjavíkur, segir að stjórn félags-
ins standi enn að baki leikhússtjór-
anum, hvað svo sem verði. Sam-
skiptaörðugleikar á vinnustað séu
aldrei til góðs. Hins vegar hafi þeir
sem sagt hafi upp ekki minnst orði
á samskiptaörðugleika við leikhús-
stjórann í uppsagnarbréfum sínum
og því hafi ekki þótt ástæða til að
taka málið upp á stjómarfundum.
Þessari túlkun varaformannsins
mótmælir Valdis Gunnarsdóttir,
hjá Þórhildi
15% áhorfenda
Largo Desolato *
Gulltáraþöll *
Dómínó ***
Fagra veröld **
yölundarhús 0
Ástarsaga ****
Feður og synir **
Sumarið '37 **
Horft frá brúnni *★
Ofanljós *
Fegurðardrottningin
frá Línakri *★★*
Þórhildur - hefur ekki enn skammað gestina.
fyrrverandi leikhúsritari:
„Þó ég hafi ekki minnst á sam-
skiptaörðugleika við leikhússtjóra í
uppsagnarbréfi mínu þá gerði ég
formanni Leikfélagsins munnlega
grein fyrir ástandi máli og sam-
skiptaörðugleikum á löngum fund-
Ellert Ingimundarson - tvístígandi
varaformaður.
um bæði fyrir og eftir að ég sagði
upp,“ segir Valdís Gunnarsdóttir
sem starfar nú hjá Námsráðgjöf Há-
skóla íslands.
Tvíburarbróðir í skapi
Formaður stjórnar Leikfélags
Reykjavíkur sem Valdís vitnar
til er Páll Baldvin Baldvinsson,
dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hann
dvelur erlendis um þessar mundir
vegna starfa sinna við innkaup á
sjónvarpsefni en samkvæmt heim-
ildum úr innsta hring starfsmanna í
Borgarleikhúsinu hefur hann ekki
roð við leikhússtjóranum þegar Þór-
hildur er í ham. Hefur það komið
þeim sem til þekkja á óvart því á
Stöð 2 er Páll Baldvin hvað þekkt-
astur fyrir stjórnunarstíl sem sver
sig mjög í ætt við það sem Þórhild-
ur Þorleifsdóttir er þekkt fyrir í
Borgarleikhúsinu. Eða, eins og einn
undirmanna Páls Baldvins á Stöð 2
orðar það: „Það sem sagt hefur ver-
ið um yfirganginn og dónaskapinn í
Þórhildi Þorleifsdóttur er eins og
mannlýsing á Páli Baldvin.“ Skýr-
ingin á því að stjóm Leikfélagsins
hefur ekki gripið í taumana vegna
ástandsins í Borgarleikhúsinu, sem
starfsmenn kalla „sjúkt“, er sú að
Páll Baldvin vill sigla lygnan sjó og
eiga þar skjól þegar dagar hans á
Stöð 2 em taldir. Hann segist eiga
starfsframa vísan á öðrum vett-
vangi og á þar við Borgarleikhúsiö.
Því hefur hann haslað sér völl hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og hann hef-
ur persónlegra hagsmuna að gæta
að þar ríki ró og friður í formanns-
tíð hans.
Sú yfírborðskyrrð sem menn
vildu að ríkti yfir starfi Borgarleik-
hússins út á við var rofin af leiklist-
arráðunaut leikhússins, Hafliða
Arngrímssyni, hér í DV þegar hann
kvaddi Borgarleikhúsið og „...sagði
hljóðlega bless“ þegar reynsla hans
og menntun nýttist leikhúsinu ekki
lengur, eins og hann orðaði það, og
..Ég get ekki skrifað upp á stjóm-
unarstíl og yfírbragð Þórhildar Þor-
leifsdóttur leikstjóra." Öllum sem til
þekkja ber saman um að Hafliði sé
einn reyndasti og besti leikhúsmað-
in þjóðcirinnar, auk þess að vera
prúðmenni og þekktur að langlund-
argeði. Þegar hann kveður leikhús
sitt með orðum eins og hann hefur
látið falla þá er ekki allt með felldu.
Samkvæmt heimildum innan Borg-
Fréttaljós
Eiríkur Jónsson
arleikhússins var það þó ákvörðun-
in um að ráða Sigurð Pálsson sem
leiklistarráðunaut að leikritinu
Vorið vaknar, sem sýnt. verður á
næstunni, sem fyllti mælinn hjá
Hafliða. Sjálfur hafði Hafliði þýtt
verkiö og gekk að því sem vísu að
hann fengi að fylgja því alla leið
þegar Kristín Jóhannsdóttir leik-
stjóri réð eiginmann sinn, Sigurð
Pálsson, í starfið í samráði við leik-
hússtjórann. Hafliði Arngrímsson
leitar sér nú að nýju starfi í litlu
samfélagi leikhúsfólks í Reykjavík.
Hávaðinn fældi fuglana
Sá eini sem sagt hefur upp starfi
í Borgarleikhúsinu að undanfórnu
en ekki kvartað opinberlega yfir
stjóm og starfi leikhússtjórans er
Jóna Finnsdóttir
framkvæmdastjóri. Hún segir
andrúmsloftið í leikhúsinu gott og
aldrei hafi borið skugga á samstarf
hennar og Þórhildar. Skýtur þar
skökku við þar sem samstarfsfólk
hennar sver og sárt við leggur að
Jóna hafi oftar en einu sinni setið á
skrifstofu sinni og reytt hár sitt
Jóna Finnsdóttir - reytti hár sitt en
ber sig vel.
vegna samskipta við leikstjórann.
Skýringin á þessum sinnaskiptum
framkvæmdastjórans er, að mati
samstarfsmanna hennar, að Jóna sé
að taka við starfi
framkvæmdastjóra Listaskóla
íslands og vilji fyrir bragðið sigla
lygnan sjó, líkt og formaður
Leikfélagsins hefur kosið að gera.
Það sér ekki fyrir endann á
átökunum í Borgarleikhúsinu. Á
leikhúsmáli væri það orðað sem svo
að nú væri hlé. Þá hvílast menn og
bíða seinni þáttar. Það býst enginn
við að Þórhildur Þorleifsdóttir leggi
upp laupana þrátt fyrir tímabundið
mótlæti, enda af Núpakotsætt sem
er þekkt fyrir kvenskörunga sem
létu hlýða sér þegar þær skipuðu
fyrir svo háum rómi að fuglar flugu
úr túni. Gagnrýnin á
leikhússtjórann felst í því að
Þórhildur stjómi með yfirgangi og
frekju og vegna hræðslu við að
missa vinnuna og fá ekkert annað í
staðinn sé starfsfólkið óttaslegið.
Mitt í óttanum liggur hins vegar sú
staðreynd að stígandi hefur verið í
aðsókn að Borgarleikhúsinu eftir að
Þórhildur Þorleifsdóttir settist þar
við stjórnvölinn. Á leikárinu
1996-1997 vom gestir
Borgarleikhússins tæplega 57
þúsund talsins. Þar af sóttu um 26
þúsund sýningar sem leikhúsið
Hafliði Arngrímsson - braut ísinn.
sjálft stóð alfarið að. Ári síðar var
heildargestafjöldi 77 þúsund og þar
af komu 55 þúsund á sýningar sem
alfarið voru skipulagðar og á
ábyrgð leikhússtjórans.
Arnar Jónsson, leikari og
eiginmaður Þórhildar leikhússtjóra
um áratugaskeið, vill ekki tjá sig
um skapferli og lundarfar
eiginkonu sinnar þegar hann er
beðinn um það. Hann hlær bara,
segir þetta storm í vatnsglasi og veit
að frúin klárar sig. Sama á hverju
gengur. Líka eftir hlé.