Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Side 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Side 24
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999 IjV Svo gæti farið að sænska landslið- ið á heimsmeistaramótinu í Þýska- landi verði skipað íslendingum að meirihluta. Til að eiga keppnisrétt í sænsku landsliði þurfa íslenskir knapar að hafa búið í Svíþjóð undan- farin fjögur ár og það hafa Hreggvið- ur Eyvindsson, Sveinn Hauksson, Magnús Skúlason og Guðni Jónsson allir gert. Þeir hafa verið að gera það gott í úrtökum i Svíþjóð á undanfóm- um vikum og keppa flestir á stóðhest- um. Þeir eru allir í fararbroddi þeirra sem eiga mestan möguleika á landsliðssæti eins og staðan er nú eft- ir fyrstu úrtökurnar. Auk þeirra eru fleiri íslenskir knapar í startholun- um. Knaparnir era einnig gjaldgeng- ir í íslenska landsliðið ef Sigurður Sæmundsson landsliðseinvaldur tel- ur þá auka styrk íslenska liðsins. Guðni Jónsson sló í gegn á úrtöku nýlega á stóðhestinum Álmi frá Lækjarmóti á meistaramóti hesta- manna á vesturströndinni, en það mót var opið öllum knöpum vegna úrtökunnar. Hann sigraði í flmm- gangi og slaktaumatölti og varð þriðji í gæðingaskeiði. Guðni hefur verið við nám í Lundi undanfarin ár og árangur hans kom töluvert á óvart í Svíþjóð. Þegar hann var hér á landi keppti hann töluvert í flmmgangsgreinunum svo hann þekkir vel til þeirrar greinar, en ekki var búist við honum og Álmi svo sterkum. Gæðingaskeiðið var íþrótt íslend- inga því þar sigraði Magnús Skúla- son á Dug frá Minni-Borg, Reynir Örn Pálmason var annar á Eldi, Guðni þriðji á Álmi frá Lækjarmóti og Jóhann Friðgeirsson fimmti á Herjari. Göran Montan sigraði í tölti á Þráni. Hreggviður Eyvindsson hefur keppt á stóðhestinum Kjarna frá Kálfsstöðum undanfarin ár í fjór- gangsgreinunum og er kominn með annan stóðhest, Flipa frá Österáker, og keppir á honum í fimmgangi. Magnús Skúfason er með tvo hesta, stóðhestinn Dug frá Minni- Borg og Örvar frá Stykkishólmi, og keppir í fimmgangsgreinunum. Sveinn Hauksson hefur keppt í fjórgangsgreinunum á stóðhestinum Hrímni frá Ödmárden og í fimm- gangsgreinunum á stóðhestinum Frama frá Haringe. -E J Magnús Skúlason er einn þeirra islendinga sem eiga möguleika á sæti í sænska hestaíþróttalandsliöinu Spenna magnast vegna úrtökunnar Dagskrá fyrri hluta úrtökunnar fyrir heimsmeistaramótið í Rieden í Þýskalandi 1. til 8. ágúst hefur ver- ið ákveðin. Keppt verður á félagssvæði Gusts í Kópavogi og hefst keppni miðviku- daginn 16. júní klukkan 10 með fimmgangi. Klukkan 13 verður fjór- gangur, klukkan 15.30 gæðingaskeið og klukkan 17 fimiæfingar. Þjóðhátiðardaginn 17. júní hefst keppni klukkan 10 með slaktauma- tölti, kl. 13 hefst tölt og klukkan 15 verða tveir sprettir í 250 metra skeiði. Vaidir verða fimm knapar á úr- tökunni en Sigurður Sæmundsson landsliðseinvaldur velur tvo knapa. Á síðasta heimsmeistaramóti hlutu fjórir knapar fimm gullverð- laun, sem er langbesti árangur ís- lenska landsliðstns til þessa og eiga fjórir knapanna rétt á að verja titil sinn á sama hesti. Óljóst er hvort af því verður en ef svo fer verða ellefu knapar í lands- liðinu. Dagskrá síðari dagsins verður ákveðin þegar ljóst er hve margir knapar fara í síðari umferð. Skráning fyrir mótið hófst föstu- daginn 28. maí en lýkur mánudag- inn 7. júní. Búist er við því að flestir af fremstu knöpum landsins mæti með jóa sína í Kópavoginn því til mikils er að vinna. -EJ Leikskólar Reykjavíkur Dagvist barna verður Leikskólar Reykjavíkur Þann 1. júní breytist nafn Dagvistar barna í Leikskóla Reykjavíkur. Borgarráð Reykjavíkur staðfesti nýverið nýja samþykkt fyrir stjórn Dagvistar barna sem eftir breytingu heitir leikskólaráð Reykjavíkur. Leikskólaráð fer nú með málefni Leikskóla Reykjavíkur í umboði borgarráðs með vísan til laga um leikskóla frá árinu 1994. í lögunum kemur fram að fyrsta skólastigið í skólakerfinu heitir leikskóli og er fyrir börn undir skólaskyldualdri. í kjölfar ákvörðunar borgarráðs breytist nafn Dagvistar barna í Leikskólar Reykjavíkur. Vakin er athygli á því að starfsemi stofnunarinnar helst óbreytt og munu Leikskólar Reykjavíkur áfram stuðla að uppbyggingu uppeldis og menntunar fyrir yngstu börnin og veita þeim og foreldrum þeirra fyrsta flokks þjónustu á faglegum grunni. Skrifstofa Leikskóla Reykjavíkur er til húsa í Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík sími 563 5800 Tölvupóstur leikskólar@rvk.is Ur heimi hestamanna 75 knapar sóttu um fararleyfi í Reykjanesferð Fáks en ferðanefndin þurfti að skera niður og voru valdir í ferðina 50 knapar sem eru félagar í Fáki. Fyrir tveimur árum var ákveðið algjört áfengisbann á dag- inn í ferðum Fáks og hefur það gef- ist vel. Fáksmenn stefna í fjölskylduferð við Leirabakka föstudaginn 14. júli til sunnudags 16. júlí. Ekið verður með hestana að Leirubakka og geta menn veriö með einn hest eða tvo að vild. Ferðir verða miðaðar við hestafjöida. Bændasamtök íslands hafa gert breytingar á heimasíðu sinni varð- andi hrossarækt. Auk Veraldar- fengs geta hestamenn nálgast upp- lýsingar um íslenska hestinn víðar. Veraldarvefurinn er tengisíða við gagnagrunn Bændasamtaka íslands um íslenska hestinn og verður grunnurinn uppfærður reglulega eftir kynbótasýningar í sumar. Slóðin er www.bondi.is/fengur Lengsta ferð Fáksmanna þetta sumarið verður níu daga ferð úr Borgarfirði í Dalina og tilbaka um verslunarmannahelgina. Ferðalag- inu lýkur með reiðtúr um Löngu- Cörur. Ekið verður með hestana í Borg- arfjörðinn í upphafi ferðalags. Aðgangur að gagnagrunni Bændasamtaka á Internetinu kostar 1.900 kr. fyrir 3 mánuði, 3.000 kr. fyrir sex mánuði og 5.500 kr. fyrir 12 ánuði en eigendur Islandsfengs fá ókeypis áskrift. Reynt verður að birta dóma á kynbótasýningum samdægurs og sýningarskrá verður birt á vefnum svo hægt verður að sjá hvaða hross er verið að sýna. Félagar í Sörla í Hafnarfirði vilja laga velli sína. Hringvöllurinn og skeiðbrautin era heldur að gefa eft- ir og nú á að ræða við bæjarstjóm- ina á næstu vikum um endurbætur á völlum. Hestamenn í Sörla hafa verið að hopa undan íbúðarbyggð og hafa fært sig nær Kaldárseli með hest- hús. -EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.