Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.1999, Síða 62
>74 tmyndbönd
LAUGARDAGUR 29. MAÍ 1999
MYNDBAjlDA
Rounders
★★
Svæsnir pókerspilarar
Rounders
Mike McDennott (Matt Damon) er laganemi sem stundaöi íjárhættuspil til að
hafa fyrir námi sínu. Eftir að hafa tapað aleigunni fékk kærastan, Jo (Gretchen
Mol), hann til að hætta spilamennskunni. Gekk það allt þar til æskuvinur hans
Lester „Worm“ Murphy (Edward Norton) losnaði úr fangelsi. Ormurinn freistar
nefnilega Mike og áður en hann veit af er hann sokkinn dýpra í leikinn en nokkru
sinni fyrr en Ormurinn hefur sérstakt lag á að koma þeim í vandræði.
Það verður að segjast alveg eins og er að Rounders veldur nokkrum vonbrigð-
um. Með þennan úrvals leikarahóp og spennandi efnivið hefði nú verið hægt að
rífa sig örlítið upp úr hefðbundnum bíó-klisjum. Damon er jafngóður og englafés-
ið á honum gefur til kynna meðan Norton er svartur sauður, lævis og undirförull.
Og þótt Landau og Malkovich séu ávallt heillandi eru þeir fullkomlega „sjálfum"
sér líkir i myndinni. Það er þó ekki laust við að mann langi til að grípa í spil eft-
ir myndina sem er því varla alveg andlaus.
Útgefandi Skífan. Leikstjóri John Dahl. Aðalhlutverk: Matt Damon, Ed-
ward Norton, John Turturro, Gretchen Mol, John Malkovich og Martin
Landau. Bandarísk, 1998. Lengd 116 mín. Bönnuð innan 12.
-bæn
Dead Man on Campus
Hræðileg mynd
Snillingarnir í Hollywood eru búnir að uppgötva ein-
hverja reglu i sumum háskólum um að herbergisfélagar
þeirra sem fremja sjálfsmorð á önninni fái hærri einkunn-
ir en ella. Afleiðingin er sú að nú kemur hver hörmungin
á fætur annarri inn á myndbandaleigumar. Síðast var það
Dead Man’s Curve og nú Dead Man on Campus. Kápan lof-
ar frábærum ungum leikurum, rífandi góðri tónlist og
sprenghlægilegum bröndurum en raunveruleikinn er annar. Leikararnir era hæfi-
leikalaust pakk og myndin með ófyndnari grínmyndum. Tónlistin er reyndar yfir-
leitt þolanleg og einhverjar brosviprar má fá út á persónu þunglynda Bretans, e.k.
Smashing Pumpkins/Kurt Cobain týpu sem er ágæt paródía um amerískt þung-
lyndisrokk. Aðalleikaramir era með því versta sem ég hef séð. Mark-Paul Gossela-
ar virðist alveg sneyddur persónutöfrum, mætti jafnvel segja sneyddur öllum per-
sónuleika yfírleitt. Og í guðanna bænum, vill einhver skjóta þetta skoffin Tom Ev-
erett Scott. Hann komst á kortið þegar Tom Hanks leikstýrði honum í miðlungs-
myndinni That Thing You Do þar sem hann var verstur í miðlungshópi leikara og
stærsta hlutverk hans síðan þá var í varúlfavitleysunni American Werewolf in
Paris. Þetta er hræðileg mynd og ef þið eruð að leita að góðri skemmtun mæli ég
frekar með heimildarmynd um krabbamein í sjónvarpinu.
Útgefandi: CIC myndbönd. Leikstjóri Alan Cohn. Aðalhlutverk: Tom Ever-
ett Scott og Mark-Paul Gosselaar. Bandarísk, 1998. Lengd 91 mín. Öllum
leyfð. -PJ
★★★Á
Your Friends &
Neighbours
Sambönd og aftur sambönd
Þessi stórgóða mynd fjallar um sambönd þriggja ólfkra
para sem að visu taka öll nokkrum breytingum er á líður
myndina. Leiklistarkennarinn Jerry (Ben Stiller) býr með
auglýsingahöfundinum Terri (Catherine Keener) en horfxr
hýru auga til Mary (Amy Brenneman) sem er gift vini hans
Barry (Aaron Eckhart). Vinur þeirra, Cary (Jason Patric),
er aftur á móti mikill kvennabósi, haldinn kvenfyrirlitningu og býr því einsam-
all. Öll hitta þau síðan Cheri (Nastassja Kinski) á listasafninu hennar i mjög vel
útfærðum atriðum. ■
Persónurnar era skemmtilegar, áhugaverðar og ólíkar (þ.e.a.s. að undanskild-
um nöfnunum). Þótt þær séu margar hverjar öfgafullar tapa þær ekki tengslunum
við raunveruleikann nema kannski Cary sem minnir á illmennið sem Aaron Eck-
hart lék í In the Company of Men. Hér er hann aftur á móti í alls óskyldu hlut-
verki og sýnir svo um munar að þar er hæfileikaríkur leikari á ferð. Leikstjóri og
handritshöfundur myndarinnar, Neil LaBute, undirstrikar einnig sína hæfileika
en þetta er fyrsta myndin sem hann leikstýrir eftir framsmíðina In the Company
of Men. Þótt Your Friends & Neighbors hafi ekki hlotið sambærilega athygli er ég
sjálfur á því að hún taki henni fram, og vel það.
Útgefandi Háskólabíó. Leikstóri Neil LaBute. Aðalhlutverk: Amy
Brenneman, Aaron Eckhart, Catherine Keener, Nastassja Kinski, Jason
Patric og Ben Stiller. Bandarísk, 1998. Lengd 99 mín. Bönnuð innan 12.
-bæn
Hana Bi (Skoteldar)
Listræna stefnan
Kvikmyndaleikstjórar i Hong Kong hafa búiö til nýjan
kvikmyndastíl með hasarmyndum sem innihalda svo ýkta |
og yflrgengilega skotbardaga að úr verður ofbeldisballett,
nánast ljóðrænn í framsetningu. Sumum vestrænum gagn-
rýnendum flnnst þessi stíll athyglisverður en þetta telst
alltof mikil lágmenning til að geta talist til alvöra meistara-
verka hjá snobbelítu gagnrýnenda. Hins vegar á upp á pallborðið hjá þeim sú
meinloka austurlenskra leikstjóra sem vilja gera „listrænar" myndir að besta leið-
in sé að hafa þær eins langdregnar og mögulegt er þar sem ein vinsælasta brellan
er að sýna svipbrigðalaust andlit í óratíma þangað til áhorfandann langar til að
kýla það. Eitt helsta vigi vestræns aðdáendaklúbbs þessarar sjálfhverfu og hé-
gómafullu kvikmyndastefnu er kvikmyndahátíðin i Feneyjum. Henni er stjómað
af einhverjum illa gefnum lúöum sem 1995 veittu Gulljónið, einhverri leiðinlegustu
mynd allra tíma, Cyclo. Það er engin tilviljun að Hana Bi hafi hlotið þessi sömu
verðlaun 1997 en báðum er haldið á lofti sem listrænt athyglisverðum útgáfum af
ofbeldismyndum. Hana Bi er þó mun skárri því hún brýtur upp leiðindin af og til
með kaldhæðnislegum ofbeldisatriðum og aðalsöguhetjan er forvitnileg persóna,
e.k. ýkt útgáfa af sterkum og fámálum hetjum bandarlskra ofbeldismynda frá sjö-
unda og áttunda áratugnum, svo sem Dirty Harry og gæjanum úr Death Wish-
myndunum.
Útgefandi Háskólabió. Leikstjóri Takeshi Kitano. Aðalhlutverk Takeshi
Kitano. Japönsk, 1997. Lengd 103 mín. Bönnuð innan 16 ára.
-PJ
Hryllingsmyndir:
Hallaðu þér aftur og njéttu hryllingsins
Þegar ég var 11 eða 12 ára gamall
laumaðist ég með frænda mínum á
An American Werewolf in London.
Við entumst ekki nema svona hálf-
tíma áður en við hrökkluðumst
heim, stjarfir af skelfingu. Þá nótt
leið mér mjög illa og þurfti bæði
ljós og fólk í herberginu hjá mér til
aö sofna. Ég sá myndina löngu síð-
ar og þótti þá lítið til hryllingsins
koma en óhörðnuðum drengnum
var þetta ofraun. Eftir að hafa hleg-
ið duglega að A Nightmare on Elm
Street nokkrum árum síðar komst
ég aö því að hryllingsmyndir væru
of raunveruleikafirrtar til að hægt
væri að láta þær skelfa sig eftir að
maður er búinn að horfa á þær. Þar
með öðlaðist ég þann hæfdeika að
halla mér aftur í stólnum og njóta
hryllingsins. Þær myndir sem
koma við kaunin á mér eru dramat-
ískar myndir sem fjalla um hinn
raunverulega hrylling í daglegu lífi
samtimans - fátækt, heimilisof-
heldi, sjúkdóma og aðra hversdags-
lega mannlega þjáningu.
Hryllingsmyndir ganga út á að
hræða áhorfendann eða láta honum
bregða. Lykillinn að ánægjulegri
reynslu af hryllingsmynd er að láta
hana ekki sitja í sér. Hryllings-
myndir eru aðferð til að upplifa
hræðslu, þenja taugamar og láta
adrenalínið flæða um líkamann án
þess aö setja sig í raunverulega
hættu. Þær eru eins og rússíbana-
ferð en hún getur auðvitað verið of
mikið fyrir þig ef þú ert ekki vanur
þeim og það er auðvitað ekkert
sniðugt ef þig svimar og er óglatt á
eftir.
Uppvaxtarárin
Hryllingssögur hafa alltaf verið
til í einhverju formi og hafa fylgt
kvikmyndunum frá því að þær voru
fundnar upp um síðustu aldamót.
Fyrstu stórvirkin i þeim geira voru
gerð eftir fyrra stríð af þýskum ex-
pressjónistum sem nýttu sér got-
neskar hryllingssögur. Þeirra fræg-
ast er Nosferatu (1922), fyrsta vamp-
írumyndin. Áður höfðu Dr. Jekyll
and Mr. Hyde komist á tjaldið 1908
og Frankenstein 1910. Það var hins
vegar ekki fyrr en 1935 sem fyrsti
varúlfurinn rataði á tjaldið.
Kanamir vora fljótir að taka við
sér i hryllingsmyndum eins og öðr-
um geirum kvikmyndaiðnaðarins
og sköpuðu á þriðja áratugnum
fyrstu hryllingsstjörnuna, Lon
Chaney, sem brá sér í allra kvik-
inda líki. Hann dó árið 1930 en við
tóku Bela Lugosi og Boris Karloff
sem vom helstu stjörnur hryllings-
myndanna næstu tvo áratugina.
Bela Lugosi varð þekktastur fyrir
túlkun sína á Drakúla greifa og Bor-
is Karloff fyrir skrímslið í Franken-
stein. Sögum fer af samkeppni og
ríg þeirra i milli en þeir léku þó
saman í nokkrum myndum. Eina
raunverulega hryliingsstjarnan sem
komið hefur fram síðan þá er
Vincent Price sem lét til sín taka á
sjötta og sjöunda áratugnum.
Milli 1940 og 1960 var farið að
leggja meiri áherslu á siðgæði í
kvikmyndum og fóm hryllings-
myndir að dragast aftur úr öðmm
kvikmyndaformum. Megnið af þeim
vora ódýrar B-myndir, framleiddar
fyrir bílabíó. Myndin sem sneri
þessari þróun við var Psycho (1960).
Þrátt fyrir að gefa meira í skyn en
hún sýndi var hún blóðugri en flest-
ar hryllingsmyndir samtimans.
Hún vann hylli áhorfenda og ekki
síður gagnrýnenda og gerði mikið
til aö afla hryllingsmyndagreininni
virðingu. Sjöunda áratuginn var
hröð framþróun í gerð hryllings-
mynda. Splatter kom fyrst fram í
myndum H.G. Lewis, The Blood Fe-
ast (1963) og 2000 Maniacs (1964).
Sálfræðilegur hryllingur náði
einnig nýjum hæðum, m.a. í mynd
Aliens-serían er ein frægasta hryllingsmyndasería allra tíma. Sigourney Weaver, sem hér er í Alien Ressurrection,
hefur leikið í þeim öllum.
Klassísk myndbönd THX 1138
Frumsmíð
George Lucasar
Þegar Star Wars-æðið hefur nú
eina ferðina enn rokiö upp úr öllu
valdi er við hæfl að hverfa til upp-
hafs ferils George Lucasar sem hlýt-
ur í dag að teljast konungur afþrey-
ingarinnar. Aðrir hasarleikstjórar
verða að leita til hans eigi tækni-
brellur mynda þeirra að vera sæmi-
lega útlítandi. Og hljóðið í kvik-
myndahúsunum verður að vera
THX ef dúndrandi hávaðinn á að
vera áheyrilegur en nafn þessa
ómissandi hljóðkerfis er einmitt
sótt í titil fyrstu myndar Lucasar.
THX 1138 (1970) býr yfir óhugnan-
legri framtíðarsýn sem á lítið skylt
viö ævintýraheim Star Wars-mynd-
anna. Miklu frekar sækir hún upp-
rana sinn til dystópía á borð við
We, Brave New World og Nineteen
Eighty-four. Hvað Hollywood-mynd-
ir varðar held ég að óhætt sé að full-
yrða að engin framtiðarmynd búi
yfir jafnmiklum dranga og viðlíka
vonleysi. Persónumar ganga fyrir
lyQum, vinna fullkomlega vélræn
verk, klæðast hvítum yfirhöfnum
og eru krúnurakaðar. Heimur
þeirra er nær fullkomlega
(svart)hvítur (og fáar litmyndir sem
eru jafnnálægt því að vera svart-
hvítar og THX 1138) og skipulag
hans varðveita lögregluvélmenni.
Aðalpersónurnar era sambýlis-
fólkið THX-1138 (Robert Duvall) og
LUH-3417 (Maggie McOmie) en hin
síðamefnda gerist lagabrjótur með
því að hætta að taka inn lyfin. Sam-
fara því fer hún að öðlast persónu-
legri tilfinningcir í garð sambýlis-
mannsins og sér til þess að hann
hætti einnig að taka inn lyfin. Þau
verða ástfangin og fá útrás fyrir til-
fmningar sínar i kynlífi sem einnig
er bannað. SífeOt erfíðara verður
fyrir þau að hylja glæpi sína þar
sem lyfjaskorturinn veldur einbeit-
ingarleysi í starfi þeirra. Vandræð-
in ná síðan hámarki þegar LUH-
3417 verður ólétt.
Umskipti Lucasar eftir gerð þess-
arar myndar eru hreint með ólík-
indum. Skrefið frá stingandi ádeilu
á samfélagið yfir í innihaldslitla og
nostalgíska leikgleði var stigið með
einni mynd - American Graffiti
(1973). Frá og meö henni hefur
Lucas ekki litiö til baka en THX
1138 kemur í veg fyrir að hægt sé að
stimpla hann sem einungis meist-
ara afþreyingar þótt það sé ekki
slæmur titill í sjálfu sér.
Leikstjóri: George Lucas. Aðal-
hlutverk: Robert Duvall, Maggie
McOmie, Donald Pleasance, Don
Pedro Colley og Ian Wolfe. Banda-
rísk, 1970. Lengd: 95 mín.
Bjöm Ægir Norðfjörð