Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.1999, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 13. NÓVEMBER 1999 T>V jport Ég er óumdeildur heimsmeistari" - Evander Holyfield og Lennox Lewis berjast í hringnum í nótt Hvernig sem allt fer í nótt verða þeir Lennox Lewis og Evander Holyfield engir fátæklingar eftir bardagann. Hvor um sig fær á annan milljarð króna fyrir ómakið. Reuter fimm breytingar__________________________ Evander Holyfield frá Bandaríkj- unum og Lennox Lewis frá Bret- landi berjast í nótt um heimsmeist- aratitilinn í þungavigt hnefaleika. Þetta er annar bardagi þeirra um titilinn en í mars sL vor lyktaði slag þeirra með jafntefli og var sú niður- staða vægast sagt umdeild. „Fólk er stöðugt að segja mér að ég sé hinn eini sanni heimsmeist- ari. Ég veit að ég vann bardagann í mars og aö úrskurður dómaranna vár rangur. Ég er óumdeildur heimsmeistari,“ segir Lewis og virð- ist vera mjög góður með sig eins og hnefaleikara er háttur. Þyngri og stærri en er það nógr Sjálfstrausti Lennox Lewis virð- ast engin takmörk sett síðustu dag- ana. Hann hefur talað eins og það verði formsatriði að ganga frá Holyfield. Þjálfari Lewis og fyrrverandi þjálfari Holyfields, Em- anuel Steward, er ekki ánægður með þetta hugarfar Bretans. Reynd- ar eru nokkuð margir á þeirri skoð- un að gleði Lewis með sjálfan sig geti orðið honum að falli. „Ef að Holyfield heldur að hann hafi unnið í nótt er hann einfaldlega vitlaus. Það getur enginn talað svona fyrirfram,“ segir Lewis. Margar tölur óhagstæð- ar Holyfield Holyfield hefur lika verið kok- hraustur og enginn eftirbátur Lewis í þeim efnum. Hann hefur þó að margra mati frekar efni á því að tala digurbarkalega en Lewis. Holyfield er mikill refur og gefst aldrei upp. Hann hefur mikla reynslu en óneitanlega eru margar tölulegar staðreyndir honum í óhag fyrir bardagann í nótt. Lewis er 8 sentímetnnn hærri en Holyfield. Lewis er 11,3 kílóum þyngri og armlengd Bretans er tæp- um 18 sentímetrum meiri en Holyfi- elds. Þá er Lewis þremur árum yngri en Holyfield. Allt er þetta Lewis í hag. Hreyfanleiki og beittar árásir eina vonin Ef Holyfield á að eiga möguleika gegn Lewis er eins gott fyrir hann að vera mjög hreyfanlegur með höf- uðið og beita snöggum árásum, „komast inn í Lewis“ eins og það er orðað í hnefaleikunum. Mun lengri faðmur Lewis ætti að gefa honum kost á beittum stungum og þyngri höggum. Hreyfanleiki er því líklega lykilorðið aö sigri Holyfields en þolinmæði og stungur lykillinn að sigri Lewis. „Ég barðist illa í mars. Það var ekki vegna aldursins, alls ekki. Ég einfaldlega stóð mig illa. Ég verð mun betri í þessum bardaga," segir Holyfield sem er 37 ára en Lewis er 34 ára. „Aldur minn skiptir ekki máli. Þvert á móti er ég reynslunni ríkari og ég er mun klókari hnefaleika- maður í dag en ég var fyrir nokkrum árum,“ segir Holyfield. „Holyfield slær ekki andstæðing sinn niður með einu höggi. Til þess þarf hann 15 góð högg og hann fær ekki svo mörg tækifæri gegn mér. Ég mun sýna honum í tvo heim- ana,“ segir Lewis. Hvor um sig fá þeir einn milljarð og 50 milljónir króna fyrir bardag- ann í nótt. -SK Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum ver- ið breytt. Finnir þú þessi fimm at- riði skaltu merkja við þau meö krossi á myndinni til hægri og senda okk- ur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigur- vegaranna. 1. verðlaun: United-sími með símanúmerabirti frá Sjónvarpsmiðstöðinni, Síðumúla 2, að verðmæti kr. 6.990. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1570, Sekur eftir Scott Turow og Kólibrísúpan eftir David Parry og Patrick Withrow. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 541 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Finnur þú fimm breytingar? 541 Þú snapar ekkert far hjá mér með svona leikaraskap, dóninn þinn. Nafn: _ Heimili: Vinningshafar fyrir getraun númer 539 eru: 1. verðlaun: Birgir Ingibergsson, Arnarsmára 12, 200 Kópavogi. 2. verðlaun: Anna M. Sigurðardóttir. Látraseli 5. 109 Reykjavík. BRETLAND SKÁLDSÖGUR - KIUUR: 1. Tom Clancy: Rainbow Six. 2. Danielle Steel: The Klone and I. 3. Dick Francis: Reld of Tlíirteen. 4. Ruth Rendell: A Sight for Sore Eyes. 5. Sebastlan Faulks: Charlotte Grey. 6. James Patterson: When the Wind Blows. 7. Elvi Rhodes: Spring Music. 8. Charlotte Blngham: The Kissing Garden. 9. Nicholas Evans: The Loop. 10. Jane Green: Mr Maybe. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Amanda Foreman: Georgina, Duchess of Devonshire. 2. Chris Stewart: Driving over Lemons. 3. Tony Adams o.fl.: Addicted. 4. Anthony Beevor: Stalingrad. 5. Frank McCourt: Angela’s Ashes. 6. Bill Bryson: Notes from a Small Island. 7. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 8. Rlchard Branson: Losing My Virginity. 9. Simon Wlnchester: The Surgeon of Crowthorne. 10. Tony Hawks: Around Ireland with a Fridge. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Dick Francls: Second Wind. 2. Thomas Harrls: Hannibal. 3. Danielle Steel: Granny Dan. 4. Roddy Doyle: A Star Called Henry. 5. Penny Vincenzl: Almost a Crime. 6. Ruth Rendell: Harm Done. 7. lain Banks: The Business. 8. Jill Cooper: Score! 9. Kathy Relchs: Death Du Jour. 10. Ellzabeth George: In Pursuit of the Proper Sinner. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Alex Ferguson: Managing My Life. 2. John Humphrys: Devil’s Advocate. 3. Slmon Slngh: The Code Book. 4. Bob Howitt: Graham Henry; Supercoach. 5. Brlan Keenan o.fl.: Between Extremes. 6. Lenny McLean: The Guv'nor. ( Byggt á The Sunday Times) BANDARÍKIN SKÁLDSÖGUR - KILJUR: 1. Anlta Shreve: The Pilot’s Wife. 2. Tom Clancy: Rainbow Six. 3. Penelope Fitzgerald: The Blue Flower. 4. Arthur Golden: Memoirs of a Geisha. 5 Judy Blume: Summer Sisters. 6. Patricla Cornwell: Point of Origin. 7. Rebecca Wells: Divine Secrets of the Ya-Ya Sisterhood. 8. Margaret Truman: Murder at Watergate. 9. Sidney Sheldon: Tell Me Your Dreams. 10. Taml Hoag: Stili Waters. RIT ALM. EÐLIS - KIUUR: 1. Robert C. Atkins: Dr. Atkins’ New Diet Revolution. 2. Frank McCourt: Angela's Ashes. 3. John Berendt: Midnight in the Garden of Good and Evil. 4. Mlchael R. Eades o.fl.: Protein Power. 5. John E. Sarno: Healing Back Pain. 6. Jared Dlamond: Guns, Germs and Steel. 7. Sebastlan Junger: The Perfect Storm. 8. Adeline Yen Mah: Falllng Leaves 9. Wllllam L. Ury: Getting Past No. 10. Gary Zukav: The Seat of the Soul. INNBUNDNAR SKÁLDSÖGUR: 1. Patrlcla Cornwell: Black Notice 2. Thomas Harrls: Hannibal. 3. Mellssa Bank: The Girl's Guide to Hunting and Fishing 4. Jeffery Deaver: The Devil's Teardrop. 5. Tim F. LaHaye: Assasins. 6. Catherine Coulter: The Edge. INNBUNDIN RIT ALM. EÐLIS: 1. Suzanne Somers: Suzanne Somers'Get Skinny on Fabulous Food. 2. Mitch Albom: Tuesdays with Morrie. 3. Christopher Andersen: Bill and Hillary: The Marriage 4. Bill Phllips: Body for Life. 5. H. Leighton Steward o.fl: Sugar Busters. 6. Sally Bedell Smlth: Diana, in Search of Herself. ( Byggt á The Washlngton Post)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.