Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 ijV
méttir_____________________________________________________
Eitt af þrettán kjúklingabúum sem eru laus við campylobacter:
Brynvarið eldishús
„Það sem skiptir langmestu máli
er húsið sjálft. Það þarf að vera
meindýrahelt að mínu mati,“ segir
Logi Jónsson, kjúklingabóndi að
Selvangi í Mosfellsbæ. Hann rekur
eitt þrettán kjúklingabúa sem
campylobactermengun hefur ekki
greinst í, samkvæmt skýrslu fagað-
ila til umhverfisráðherra.
Logi rekur lítið bú og telur það
skipta miklu máli. „Þessi litlu bú,
eins og ég er með, þar sem er bara
eitt hús og einn fuglahópur á staðn-
um í senn, eru miklu auðveldari að
þessi leytinu. Maðurinn ber stærst-
an hluta af þessu á milli eldishúsa.
Ef ekki er farið eftir ströngum regl-
um varðandi umgengni stóreykst
hættan."
Eldishúsið að Selvangi er steypt í
hólf og gólf. „Þá kemst ekkert nag-
dýr inn,“ segir Logi. „Það sem mað-
urinn ber ekki á milli, það bera þau.
Þótt búið sé að þrífa hús rækilega
- segir Logi Jónsson kjúklingabóndi
Logi við eldishúsið sem hann segir vera „brynvarið". Steyptir veggir, steypt þak og
járnhurðir: minna dugi ekki. DV-mynd E.ÓI.
þá dugir það skammt ef mús kemur
úr næsta húsi og ber með sér smit.
Mengunin getur orðið nær hundrað
prósent áður en fuglinum er slátr-
að.“
Logi segir að víða séu notuð stál-
grindarhús til kjúklingaræktar hér,
mörg hver orðin gömul. Meindýr
hafi e.t.v. möguleika á að skríða
milli báranna í húsunum og jafnvel
upp á loft. Sterkasti leikurinn gegn
campylobacter og salmonellu væri
að leggja slík hús alveg af, eins og
víða hefur verið gert erlendis.
Sjálfur segir hann sitt hús „bryn-
varið“, steinsteypt eins og áður
sagði og með jámhurðum.
Logi segist láta eldishúsið standa
autt í 2-3 vikur milii hópa. Hann
passi upp á að það sé þurrt og
hreint. Þá drepist bakteríur og skor-
dýr sem kunni að vera í húsinu.
-JSS
Bænastund
fyrir fiugtak
„Það var alltaf farið með bæn
áður en tekið var á loft,“ sagði Bryn-
hildur Ólafsdóttir, fyrrum flugfreyja
Atlanta, sem starfað hefur með eg-
ypskum flugmönnum.
Bæn afleysingaflugmannsins í
flugvélinni frá EgyptAir, sem fórst
31. október síðastliðinn út af austur-
strönd Ameriku, er brennidepiUinn
í rannsókn sem
nú stendur yfir
á flugslysinu.
Menn greinir á
um ástæður
hinstu orða flug-
mannsins, sem
voru „ég fel mig
guði á vald“.
Þetta sagði flug-
maðurinn rétt
áður en sjálf-
stýringin var
tekin úr sambandi. Bandarískir
rannsóknarmenn telja að hann hafi
með þessum orðum viljað fyrirfara
sér og áhöfninni en talsmenn eg-
ypskra yfirvalda segja þetta orðatil-
tæki eins og hvert annað. Þó er deilt
um hvort þetta sé rétt þýðing úr ar-
abísku enda getur hvert orð haft svo
margar merkingar.
Brynhildur, sem starfaði í píla-
grímaflugi fyrir nokkrum árum,
sagði aðspurð að þetta væri bæn um
að allt gengi vel.
„Bænin hjá múslímum er mun
stærri hluti af lífi fólks en gerist hjá
Vesturlandabúum," sagði Bryndís.
-hól
Brynhiidur
Ólafsdóttir.
Sigurður Gizurarson hæstaréttarlögmaður var glaðbeittur er hann sneri til réttar eftir hádegishlé í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Sigurður hefur stefnt ríkinu til greiðslu bóta fyrir að Þorsteinn Pálsson, þáverandi dómsmálaráð-
herra, hafi með ólögmætum hætti flæmt hann úr embætti sýslumanns á Akranesi árið 1998. DV-mynd E.ÓI.
Nýjasti fanginn í stóra fíkniefnamálinu tekinn á videoleigu:
Lausaganga gæsluvarðhaldsfanga
- flestir hafa játað og kærur verða gefnar út fljótlega
f 1« f f I «1 •4 3 f ■
. < \ >/ i X f \
Enn einn BMW-inn hefur bæst við bflaflotann í stóra fíkniefnamálinu.
Rannsókn stóra fíkniefnamálsins
er nú á lokastigi og má búast við að
ákærur verði gefnar út á suma af
sakbomingunum innan tveggja
vikna. Hátt í tveir tugir manna eru
grunaðir um aðild að málinu og
sitja ellefu þeirra í gæsluvarðhaldi.
Búast má viö að ákærur verði gefn-
ar út á alla þessa menn fljótlega og
a.m.k. er talið öruggt að allir sem
sætt hafa gæsluvarðhaldi verði
ákærðir.
Játningar flestra gæsluvarðhalds-
fanganna munu liggja fyrir og fjórir
þeirra sem enn eru í haldi eru í svo-
kallaðri lausagæslu á Litla-Hrauni
sem þýðir að þeir eru eins og hverj-
ir aðrir fangar á staðnum. Þrír
þeirra mega til að mynda fá heim-
sóknir, símtöl og skiptast á bréfum
við hvem sem vera vill. Þótt rann-
sóknarhagsmunir krefiist ekki
frekara varðhalds yfir þeim félögum
eru þeir hins vegar enn hafðir í
haldi vegna almannahagsmuna og
munu verða þar til dómur er geng-
inn í málinu.
Nýjasti gæsluvaröhaldsfanginn,
23 ára gamall BMW-eigandi úr Ár-
bænum, sem var úrskurðaður í
varðhald á fimmtudagskvöld, kærði
þann úrskurð í gær til Hæstaréttar
en óljóst er hvort kæra hans verður
tekin fyrir fyrr en eftir helgi. Hann
er þrettándi maðurinn sem settur
hefur verið í gæsluvarðhald en tveir
hafa veriö látnir lausir.
Sjónarvottur að handtöku þrett-
ánda mannsins segist hafa séð hann
í glæsibíl sinum, BMW 750iA, utan
við Vídeóheima við Fákafen seint á
miðvikudagskvöld. Hann segir
BMW-inn skyndilega hafa verið
innilokaðan af bílum lögreglunnar
sem svipti upp bílhurðinni og hand-
jámaði manninn. Hann var síðan
fluttur á braut og sömuleiðis billinn
sem lagt var hald á í þágu rann-
sóknarinnar.
Samkvæmt heimildum DV er alls
ekki útilokað að fleiri verði hand-
teknir vegna málsins. -GAR
Istuttar fréttir
Samið um þorskkvóta
Rússar og Norðmenn hafa komist
að samkomulagi um þorskkvóta í
Barentshafi fyrir næsta ár eftir lang-
ar og erfíðar viðræður. Kvótinn verð-
ur um 390 þúsund tonn sem er 90 þús-
und tonna minnkun ffá þessu ári en
í er samt fjórfalt meira en fiskifræð-
J ingar hafa mælt með. Hlutur íslend-
i inga i kvótanum verður um 8 þúsund
j tonn. RÚV greindi frá.
Nektardans
Páll Pétursson
hefur lagt fram
J frumvarp um breyt-
J ingu á lögum um at-
vinnuréttindi útlend-
| inga. 14. grein lag-
anna er breytt,
j þannig að ráöherra
f getur sett reglur sem skilgreina nánar
j hvaða hópa skuli flokka sem lista-
j menn. Þannig yrði kleift aö útiloka
nektardansmeyjar frá hópi hstamanna.
Deilur í borgarstjórn
Sjálfstæðismenn deildu hart á borg-
j arfúlltrúa R-Ustans á borgarstjómar-
! fúndi í gærkvöld. Þeir telja að sú að-
| ferð að bjóða út byggingarrétt á lóðum
í Grafarholtshverfi muni leiða til
j hærra fasteignaverðs. Byggingarrétt-
j ur er þannig boðinn út og seldur hæst-
% bjóðanda.
Handtökur á Spáni
Fíkniefnalögreglan á Spáni handtók
s í gær menn sem taldir em tengjast til-
| raun nokkurra islendinga til innflutn-
I ings á 30 kg af hassi til landsins. Ekki
1 er enn vitað hvort mennimir verða
| settir í gæsluvarð Bylgjan greindi frá.
Yflr 60 þúsund í leigu
Hagstofa Islands gerði í mars 1999
5 umfangsmikla könnun á húsaleigu
j meðal 700 leigjenda. Meðalhúsaleiga í
j könnuninni var tæplega 31 þúsund
j krónur á mánuði í mars 1999. Um 20%
* leigjenda greiddu 2(L30 þúsund á mán-
j uði, rúmlega 32% 30-40 þúsund og
119% 40-50 þúsund á mánuði. 2% leigj-
j enda greiddu leigu yffr 60 þúsund
j krónum á mánuði.
SUS fagnar sölu á FBA
Samband ungra
sjálfstæðismanna
fagnar því að loksins
hafi hlutur rikisins í
FBA veriö seldur.
Þeir vilja þó ekki láta
j þar við sitja og skora
I á rikisstjóm Davíðs
Oddssonar að hefja strax sölu á hlut rík-
| isins í viðskiptabönkunum.
Sögulegt hámark
Viðskipti á Verðbréfaþingi í gær
Í námu alls 493 m.kr., mest með hluta-
j bréf fyrir 313 m.kr. Með bréf einstakra
j félaga vom mest viðskipti með bréf
j Flugleiða fyrir 107 m.kr. og hækkaði
j gengi þeirra um 4,5% dag. Úrvalsvísi-
< talan hækkaði um 0,95% í dag og er
1.453 stig. Þetta er hæsta gildi vísitöl-
unnar frá upphafi og hefur hún nú
j hækkaö um rúm 32% frá áramótum.
j Viðskiptablaðið greindi frá.
Sæplast tll S-Ameríku
Sæplast hf. hyggst
halda áfram að hasla
sér vöU í ijárfesting-
| um erlendis. „Það er
? stefna félagsins að
j vaxa á erlendri
grundu. Viö erum
? gíraðir inn á það og
■ : höfúm margoft fariö yflr þá stefriu
f: innan stjómar felagsins," sagði Stein-
f; þór ólafsson framkvæmdasfióri í sam-
tali við Viðskiptablaöið.
Minna framboð dóps
i Lögreglan í Reykjavík telur að fram-
; boö á flkniefhum hafi minnkað á mark-
j aönum að undanfómu þótt árangur
J hennar í stóm flkniefnmálunum hafi
j ekki ráðið úrslitum. Mbl.is greindi frá.
: Fjölgun öfrjósemisaögeröa
j Tala karla sem fara í ófijósemisað-
I gerðir hérlendis hefur riflega sexfald-
| ast á seinustu saufián árum, eða frá
j árinu 1981, en þá vom þeir 23 talsins.
Samkvæmt bráðabirgðatölum frá Hag-
| stofu íslands fóm hins vegar 145 karl-
j ar í ófrjósemisaðgerð í fyrra. Aukning-
* in hefúr orðið langmest seinustu flmm
I ár eða tæplega 20% fiölgun aðgerða að
j meðaltali á ári frá 1993. Tæplega þús-
I und karlar hafa gengist undir þessa
í aðgerð á timabilinu. -ÞA
ekkilist