Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Blaðsíða 19
JL*V LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999
19
Madonna
alltaf að
klúðra
Kvikmyndaleikstjórinn Wes
Craven hefur loksins rolað því út
úr sér hvers vegna hann og töfra-
bomban Madonna hafa slitið sam-
starfi um nýju kvikmyndina
hans, Music of the Heart. Hann
neitar að vísu að hafa hótað því
að hætta við myndina nema
Madonna yrði rekin og heldur þvi
fram að þau hafi skilið í mestu
vinsemd. Þau hafi aðeins verið
ósammála um eitt smáatriði, þ.e.
hvemig myndin yrði gerð.
Kvikmyndin er byggð á reynslu
konu sem kenndi börninn í fá-
tækrahverfi á fiðlu. Madonna
vildi láta endurskrifa handritið
og beina sjónum að samskiptum
við fullorðið fólk en það þarf
varla að koma á óvart að Craven
var því algerlega ósammála. „Ég
sá að þetta myndi ekki ganga með
Madonnu," segir hann. „Þetta var
sameiginleg ákvörðun. Við töluð-
um saman í mestu vinsemd og
virðingu fyrir skoðunum hvort
annars."
Brotthvarf Madonnu skildi eft-
ir sig autt sæti aðalpersónunnar í
myndinni þangað til Meryl Streep
tók það að sér á síðustu stundu.
Nú þegar er farið að veðja á að
Meryl fái óskarinn fyrir þetta
hlutverk. Hins vegar efast menn
um að Madonnu hefði tekist það
þótt hún hefði. verið til friðs og
leikið eftir því handriti sem leik-
stjórinn valdi.
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur og Eiríkur Smith myndlistarmaður eru
standandi. í sófanum sitja Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður, Harpa
Björnsdóttir sýningarstjóri og Hafdís Helgadóttir myndlistarmaður.
nsx
3-Diska geislaspilan - Super T-BASSI - Hægt er að tengja
myndbandstæki við stæðuna - Tónjafnari með
ROCK - POP - JAZZ - 12 + 12 W RMS magnari - Al
leiðsögukerfi með Ijósum -32 stöðva minni á útvarpi,
klukka, timer og svefnrofi - Tvöfalt segulband - Fjarstýring
- Segulvarðir hljómmiklir hátalarar.
HSX-S555
3-Diska geislaspilan -37 + 37 + 12 + 12W RMS magnari
með surround kerfi - SUPER T-BASSI - Hægt er að tengja
myndbandstæki við stæðuna - Innibyggður Subwoofer í
hátölörum - tónjafnari með ROCK - POP - CLASSIC -
Jog fyrir tónstillingar og lagaleitun. á geislaspilara - Al
leiðsögukerfi með Ijósum - 32 stöðva minni á útvarpi,
klukka, timer og svefnrofi - Tvöfalt segulband - Fullkomin
fjarstýring fyrir allar aðgerðir - Tengi fyrir aukabassahátalara
( SUPER WOOFER ) - Segulvarðir hátalarar.
Vio erum í Jólahöllinni
Eiríkur Smith situr fyrir svörum á Sjónþingi
Náttúran alltaf með
I tilefni af opnun yfirlitssýning-
ar á verkum Eiríks Smith í
Gerðubergi í dag verður efnt til
Sjónþings með myndlistarmann-
inum klukkan 13.30. Eiríkur
Smith er fæddur árið 1925 og á að
baki litríkan feril sem myndlist-
armaður. Elstu verkin á sýning-
unni, sem ekki sjást oft, eru frá
lokum sjötta áratugarins, en þá
fékkst Eiríkur við að mála strang-
flatargeómetríu í anda frönsku
abstraklistamannanna. Síðan
færði hann sig yfir í lýriska
abstrakt áður en hann fór að fást
við margs konar raunsæi, sem
skipta má niður í nokkur ólík, að-
skilin tímabil.
Sumir hafa gagnrýnt Eirík fyr-
ir þetta meinta flökt hans og telja
það merki um listamaðurinn hafi
hlaupið á eftir tískustraumum.
Harpa Bjömsdóttir sýningarstjóri
þvertekur fyrir að það sé rétt og
fullyrðir líka að Eiríki standi á
sama um slíkar ásakanir. „Hann
hefur alveg ráðið ferðinni sjálfir í
sinni myndlist og hefur óhikað
notað þær tjáningaraðferðir sem
honum hefur þótt henta sér best á
hverjum tíma,“ segir Harpa. „Ei-
ríkur hefur mjög ákveðnar skoð-
anir á myndlist. Hann er sann-
færður um að hún eigi að lúta
sjónrænum lögmálum og að slík
upplifun sé höfuðatriði, en ekki
tilvísanir út fyrir málverkið.“
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð-
ingur, sem kemur til með að stýra
umræðunum á Sjónþinginu, segir
að þrátt fyrir að Eiríkur hafl oft
verið fljótur að skipta um aðferð-
ir og snúa baki við því gamla,
megi finna rauðan þráð sem
gangi í gegnum öll verk hans.
„Rauði þráðurinn em tengsl Ei-
riks við náttúruna. Það er sama
hvernig veröldin veltist, hann
hefur alltaf náttúmna með. Eirík-
ur aðhyllist ákveðna dulhyggju og
mystík. Hann er sannfærður um
að það séu einhver öfl að verki i
náttúrunni, ekki ósvipað Kjar-
val,“ segir Aðalsteinn og efast
ekki um að Eiríkur eigi eftir að
ræða þetta allt saman í dag. Spyrl-
ar á Sjónþinginu verða myndlist-
armennirnir Daði Guðbjörnsson
og Hafdís Helgadóttir.
-MEÓ