Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 20.11.1999, Síða 11
H>"V LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1999 11 dansa var hentugt að kæla sig ör- lítið á barnum, skammt frá strengjasveitinni. Vera kann að mjööurinn í bæheimskum krist- alsglösunum hafl runnið fullljúf- lega. Ég fann mig að minnsta kosti, svo óvenjulegt sem það er, knúinn til þess að bjóða upp í suð- rænan dans saumaklúbbssystur konunnar. Saumaklúbbssystirin var í síð- kjól sem þyrlaðist vel. Ég nýtti mér þá eiginleika kjólsins, sem og danskunnáttu konunnar. Hún snerist því ekki aðeins í dansin- um heldur voru viðhafðir auka- snúningar þar sem dansfélagi minn, saumaklúbssystirin, snar- snerist kringum sjálfa sig móti léttri sveiflu minni. Þvílíkar krúsidúllur sjást aðeins meðal for- framaðra danspara, sýningarfólks sem hefur atvinnu af list sinni. Svo taldi ég að minnsta kosti. Meint aðdáun / sf « -r" handan við dansgólfið. Þegar loks kom að dansinum var sá fyrstur yfir gólfið sem beið í hlaupastell- ingunni. Hann var raunar kominn út á mitt gólf þegar rásmerkið var gefið. Piltinum til happs hafnaði daman ekki dansinum og saman svifu þau út á gólfið. Allt paraðist vel svo sýn- ingin gat hafist. Jónas Haraldsson Strengjasveit lék fyrir dansi. Karl- ar voru i sínu fínasta pússi og konur skrýddust síðkjólum. Við hjónin höfðum stigið nokkra dansa. Konan tók því með jafnað- argeði þótt eiginmaðurinn færi nokkrum sinnum út af sporinu enda vön sínum manni. Milli Skyndilega hafði myndast hringur í kringum okkur - fólk sem hélst í hendur og dillaði sér eftir töktum strengjasveitarinnar. Mér fannst það eðlilegt miðað við aðstæður. Þama var komið sýn- ingaratriði og aðdáendur söfnuð- ust saman og nutu listarinnar. Saumaklúbbssystirin kunni jú nokkuð fyrir sér í dansi og ég, studdur innihaldi bæheimsku kristalsglasanna, þyrlaði upp síð- kjól hennar. Með því sté ég þau dansspor sem ég taldi við eiga, sambland sömbu og ensks vals, auk heimatilbúinna spora. Hring- snúningur dömunnar kom í veg fyrir að ég træði henni um tær í óræðri dansblöndu minni. Að sýningardansinsum loknum hneigði ég mig glæsilega og leiddi saumaklúbbssysturina til sætis. Sprettharðir herrar Þá, eins og nú, treystu strák- arnir á viðbragðsflýtinn. Þeir spretthörðustu í gamla skáta- bragganum náðu hinni útvöldu. Það var handagangur í öskjunni, menn hlupu saman og jafnvel á dömumar. Allt leystist þó farsæl- lega. Hið sama var uppi á teningn- um nú. Dansáhugi var mikill í tíu ára bekkjunum tveimur, eða með- al fimmtubekkinga eins og það heitir á grunnskólamáli. Svo heppilega vildi til að herramir voru jafnmargir dömunum. Það vill stundum gerast að piltar, í vanþroska karlkyns- ins, koma sér hjá danskúnstinni en svo var ekki í þetta sinn. Það var því maður á mann eða pilt- ur á stúlku. Danskennarinn lék sér svo- lítið að áhuga spretthörðu sveinanna og lét sem komið væri að dansi. Þeir áköf- ustu þjófstörtuðu því að minnsta kosti tvisvar. Dömumar biðu hins vegar prúðar anum, sællar minningar. Því stóð ég mig eftir atvik- um og dóttir mín kvartaði ekki þeg- ar ég leiddi hana til sætis að dansi lokn- um og hneigði mig svo sem bar. í þyrilkjól Mér fannst konan mín horfa svolítið sposk á mig rétt á meðan ég vandaði vals- og sambasporin. Vera kann aö henni hafi, rétt si svona, flogið í hug síðasta dansæf- ing mín eða sýning öllu heldur. Það var á dögun- um á erlendri grand í finu boði. Danssalur- inn, í virðulegu evrópsku höfð- ingjasetri, var fallegur, vel skreyttur og hátt til lofts. „8allroom"-dans Strákarnir voru í startstöðu og sá ákafasti stillti sér upp eins og hundrað metra hlaupari. Þeir voru búnir að velja sér stúlku og treystu á viðbragðsflýtinn. Gutt- arnir höfðu sett sér markmið og því ætluðu þeir að ná. Trúir eðli sínu gáfu þeir ekkert eftir. Svein- arnir voru ekki háir í loftinu, enda aðeins tíu ára. Stúlkumar, jafnöldrur þeirra, vora margar heldur hærri vexti. Það var spenna í lofti, jafnt hjá börnunum sem áhorfendum. For- eldrar dansaranna og systkini voru mætt á sýningu og áfanga- próf tíu ára hópsins. Danskennar- inn raðaði drengjum og stúlkum sitt hvorum megin í salnum að gömlum og góðum sið. Herranna beið síðan að bjóða dömunum upp, „likt og í Gúttó“, sagði dans- kennarinn. Þótt foreldrar barn- anna væru á ýmsum aldri má þó fullyrða að enginn þeirra þekkti Gúttó, nema af afspum. Ekki heldur danskennarinn, enn á góðum aldri. Pistilskrifarinn mundi þó, án þess að hafa orð á því í þessum hópi, að svona lærði hann að dansa, í gamla skátaheimilinu við Snorrabraut, fyrir margt löngu. Enskur vals og samba Bömin sýndu það að þau höfðu lært ýmislegt þessa haustmánuði. Raunar byggðu þau á góðri undir- stöðu þvi sami danskennari hafði æft með þeim taktinn með hléum frá því þau voru sex ára. Þau dönsuðu polka, vals og sömbu en mest var fjörið í mambó nokkrum, númer fimm. Hann var nýtískulegri en fyrri dansarnir og átti greinilega hug bamanna. Lag- ið var enda fjörugt og fint. En danskennarinn var ekki all- ur þar sem hann var séður. Sú góða kona gaf áhorfendum, sem höfðu komið sér vel fyrir, ekki grið. Þeir voru, allir sem einn, dregnir fram á gólfið. Nú bar þeim að sýna en „Af hverju varstu að troða þér inn í miðjan danshringinn hjá fólkinu?" spurði konan min þegar ég settist. „Sástu ekki að þetta voru ættingjar og vinir sem voru að dansa hringdans? Þú snerist eins og skopparakringla inn á milli svo fólkið átti fótum fjör að launa. Það vildi til að þú ruddir engum um koll.“ Það var sýnilega mismunandi túlkun á dansatriðinu svo ég kaus að ræða það ekki nánar. Það var mér hins vegar nokkur uppreisn þegar saumaklúbbssystirin minntist þess, heimkomin frá aðalssetrinu, að hámark kvöldsins hefði verið svokallað- „ballroom“-dans sem hún sýndi með augljósum fagmanni, manni með mikla tilfinningu fyr- ir dansi, taktfostum, fótvissum og öruggum herra. Það var þessi uppörvun sauma- klúbbssysturinnar og meintir aðdáendur í aöalssetrinu sem gerðu það að ég gekk sæmi- lega öruggur til sömbunnar með dóttur minni á dans- sýningunni. Við ákveðin og alveg sérstök tækifæri vissi ég að djúpt innra með mér leyndist suðræn danstilfinning. Kúnstin gamla úr skátabragganum braust fram, ekkert hliðar saman hliðar staut heldur sveifla og dýfa. „Ballroom“-dans, ég hafði sett nafnið á minnið. bömin máttu dæma. Sem betur fer voru þau væg í dómum um fótafimi foreldranna. Þau tóku því líka vel þegar danskennarinn lagði til að foreldrar dönsuðu við börnin sín. Þar kom sér vel að þau eru enn ekki nema tíu ára. Táningar hefðu ekki heimilað slíkan gjöming. Ég bauð dóttur minni upp með tignarlegri hneigingu og hún svaraði að lærðum hætti þess sem var um það bil að útskrifast með brons í dansi. Ég hef, svo sem minn betri helmingur getur bor- ið, aldrei verið sér- lega sterk- ur i flóknari suðrænum döns- um. Það vildi mér samt til happs þessa stund á dansgólfinu að danskennarinn bað um enskan vals og sömbu. Þessi spor eru þau einu sem ég man úr skátabragg-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.