Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1999 Fréttir Stuttar fréttir i>v Fyrrum mágkona prófessorsins hneyksluð vegna útvarpserindis: Getur kært Jón Steinar - segir formaður Lögmannafélagsins „Mér er einfaldlega spurn hvort lögmönnum sé heimilt að ræða í útvarpi um trúnaðargögn úr Hæstarétti sem öðrum eru ekki að- gengileg," sagði Ólöf Valdimars- dóttir, fyrrum mágkona prófessors- ins sem nýverið var sýknaður í Hæstarétti vegna ákæru um kyn- ferðislegt ofbeldi gagnvart dóttur sinni. „Getur maöur átt von á þessu í framtíðinni úr Hæsta- rétti?“ spurði Ólöf eftir að hafa hlýtt á klukkustundarerindi Jóns Steinar Gunnlaugssonar, lög- manns prófessorsins, á Bylgjunni í gærdag en þar reifaði Jón Steinar ýmsa þætti prófessorsmálsins eftir að Ríkisútvarpið hafði neitað hon- um um tíma í miðlum sínum til þess. „Ég nefni sem dæmi að Jón Steinar vitnar í bréf sem dóttirin skrifaði föður sinum. Þetta bréf hafa ekki aðrir séð. Annars kom ekkert fram í erindi lögmannsins sem varpar nýju ljósi á málið. Ef Jón Steinar vill halda áfram þess- um málflutningi á opinberum vett- vangi þá eru ennþá til staðar vitni og atburðir sem ekki hafa enn komið fram i dagsljósið; upplýsing- ar sem mundu renna styrkum stoðum undir trúverðugleika stúlkunnar," sagði Ólöf. Ólöf Valdimarsdóttir. Að sögn Jakobs Möllers, for- manns Lögmannafélagsins, hefur ekkert erindi borist félaginu vegna framgöngu Jóns Steinar í prófess- orsmálinu: „Ég hef það ekki staðfest en hef heyrt að Jón Steinar hafi í þessu máli vitnað í gögn sem komið hafi fram í lokuöu þinghaldi. Ef ein- hver telur sig hafa vissu fyrir því á sá hinn sami að snúa sér til lög- reglunnar og kæra Jón Steinar fyr- ir að hafa brotið gegn ákvæðum um meðferð opinberra mála,“ sagði Jakob Möller, formaður Lög- mannafélagsins. -EIR Skotiö að húsi ráðherra Skotið var að húsi félagsmálaráð- herra, Páls Péturssonar, og Sigrún- ar Magnúsdóttur borgarfulltrúa fyrr í haust. Lögreglan telur að krakkar hafi beint einhvers konar skotvopni að húsinu. Enginn varð var við göt á rúðum fyrr en síðar. „Við vitum ekkert um þessi skot en þeim var ekki beint að okkar rúðum. Roskin kona tók eftir að göt voru komin á rúðu. Lögreglan taldi að krakkar hefðu verið að flflast uppi á bílskúrsþaki. Skotið fór að- eins í gegnum ytri rúðuna. Síðar kom í ljós að líka hafði verið skotið á kjallaraglugga," sagði Páll Péturs- son félagsmálaráðherra. „Áreiðanlega var þetta ekkert persónulegt gegn mér, enginn vill leggja mig að velli," sagði ráðherr- ann og hló við. -JBP Landris og aukin virkni „Þetta er örugglega hveravatn sem er að safnast fyrir í kötlunum undir jöklinum og þegar það brýst fram verður það til að valda auk- inni leiðni í vatninu í ánum og oft fylgir rennslisaukning með aukinni leiðni," sagði Magnús Tumi Guð- mundsson jarðeðlisfræðingur við DV í gær. Magnús Tumi sagði að þessi aukna leiðni nú þyrfti ekki að vera fyrirboði um að eitthvað meira væri í gangi. Hins vegar væri ljóst að jarðhiti i Mýr- dalsjökli hefði auk- ist mikið um og eft- ir umbrotin í sum- ar. „Það er ekkert sem bendir til þess að farið sé að draga úr því aftur, við höfum ekki séð nein merki um það enn þá,“ sagði Magnús Tumi. Hann segir að jarðskjálftavirkni undir Mýr- dalsjökli sé í góðu meðallagi miðað við árstíðabundnar jarðhræringar sem eru undir jöklinum og hreyf- ingamar séu mestar undir vestan- verðum jöklinum. „Það er hins veg- ar töluverð virkni undir Eyjafjalla- jökli, meiri en venjulega," sagði Magnús Tumi. Jarðvísindamenn hafa mælt land- ris við Eyjafjallajökul sem þykir vísbending um að þar séu umbrot í gangi. Vöktun Eyjafjallajökuls er með öðrum hætti en Mýrdalsjökuls, þar valda allt aðrar landfræðilegar aðstæður því að ekki er hægt að vera með sama viðbúnað og við Mýrdalsjökul. -NH Harður árekstur varð á mótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar um miðnætti á laugardagskvöid. Ekki urðu slys á mönnum en bílarnir, sem báðir eru mikið skemmdir, voru fluttir á brott með kranabíl. Fjörutíu mínútum síðar varð svo annar árekstur á sömu gatnamótum. DV-mynd HH Bónus-menn missa trúna á jólaauglýsingar: Ætla aö gefa peningana „Ég er búinn að missa trúna á gildi auglýsingaflóðsins fyrir jólin og hef því ákveðið að skera niður auglýsingar Bónuss í sjónvarpi um helming fyrir þessi jól og gefa pen- ingana þess í stað þeim sem sannan- lega þurfa á þeim að halda," sagði Guðmundur Marteinsson, fram- kvæmdastjóri Bónuss, sem var bú- inn að leggja fé til hliðar í allt sum- ar og fram á haust til að nota í aug- lýsingar fyrir jólin. „Þetta eru nokkrar milljónir sem ég ætla að deila út á milli Mæðrastyrksnefnd- ar, Byrgisins og Móöur Theresu- systra í Seljahverfi í Breiðholti. Að vandlega athuguðu máli segist Guðmundur Marteinsson hafa kom- ist að því að líklega væru þeir fáir sem hefðu úthald til að sitja yfir löngum auglýsingatímum sjón- varpsstöðvanna fyrir jólin, hvað þá að lesa alla þá bæklinga og auglýs- ingapésa sem dælt væri inn um bréfalúgur fólks: „Það er skynsemin ein sem segir mér að peningunum sé betur varið í annað og ég held að allir hljóti að vera mér sammála í hjarta sínu,“ sagði Guðmundur Marteinsson, framkvæmdastjóri Bónuss. -EIR Guðmundur Marteinsson beinir auglýsingapeningum Bónus inn á nýjar brautir. Aukning á alnæmi Alnæmi breiðist nú hraðar út hér á landi en áður og greinist nú einn smitað- ur íslendingur i hverjum mán- uði. Haraldur Briem sótt- varnalæknir segir að alnæm- issmit einskorðist alls ekki við ákveðna hópa í samfélaginu. Stöð 2 sagði frá þessu. Blankir kirkjugarðar Undanfarið hefur stjórn Kirkju- garðasambands íslands unnið að því aö fá bætta tekjuskeröingu sem stjórnin segir garðana hafa orðið fyrir árin 1990 til 1996. For- maður sambandsins segir nauð- synlegt að hækka tekjur kirkju- garða um 20%. Mbl. sagði frá. Vilja rifta samningi Stálsmiðjan í Reykjavík hefur farið fram á riftun samnings vegna kaupa fyrirtækisins á vélbúnaði i nýju Hríseyjarferjuna. Mikil seink- un hefur orðið á afhendingu skips- ins vegna bilunar í búnaði sem keyptur var frá dönsku fyrirtæki. Morgunblaðið sagði frá. Einar Rafn formaður Aðalfundur samtakanna Afl fyr- ir Austurland var haldinn í gær. Þar var Einar Rafn Har- aldsson endur- kjörinn formað- ur. Fundurinn hvetur stjórn- völd til að hvika í engu frá þeirri fyrirætlun sinni að byggja Fljótsdalsvirkjun og ál- ver á Reyðarfírði í framhaldi af því. RÍJV sagði frá þessu. Sól-Víking vill kaupa Sól-Víking hefur hug á að eign- ast allt að helmingshlut í Mjólkur- samlagi Kaupfélags Vestur-Hún- vetninga á Hvammstanga. Bænd- ur i héraðinu vilja margir kanna hvað fyrirtækið hefur að bjóða og telja það mögulega geta tryggt rekstur samlagsins til lengri tíma. RÚV sagði frá þessu. Fjárfest í tölvufyrirtæki Fjárfestar hafa keypt hlut í tölvufyrirtækinu Ensim fyrir um 1,5 milljarða að undanfomu en yf- irhönnuður og einn aðaleigenda fyrirtækisins er íslenskur tölvun- arfræðingur. Fyrirtækið er í Kís- ildalnum í Bandaríkjunum. Morg- unblaðið sagði frá þessu. íslendingar í Kosovo Tíu íslendingar starfa nú í Kosovo-héraði á vegum alþjóða- stofnana við uppbyggingu eftir þjóöernisofsóknir Serba fyrr á ár- inu. Fyrirhugað er að fjölga ís- lenskum starfsmönnum í hérað- inu á næstu mánuðum. Ástand er víða mjög bágborið í héraöinu. RÚV sagði frá. Ákvörðun aldraðra Sex af hverjum tíu öldruðum segjast hafa ákveðið sjálfir að flytja á vistheimili. Helmingur aldraðra hefði kosið að búa lengur heima hjá sér og fjórðungur þeirra sem flytur á vistheimili lítur ekki á það sem heimili sitt. Þetta kemur fram í könnun um hvort sjálfsákvörðun- arréttur aldraðra á vistheimilum sé virtur. RÚV sagði frá. Líftæknisjóræningi Stærsti gagnagrunnur heims með erfðaupp- lýsingum 500.000 manna er nú í smíðum í Bretlandi. Fin- ancial Times segir að þeir sem standi að grunninum leggi allt kapp á að komast hjá jafn harðvítugum deilum og orðið hafa á íslandi. Blaðið segir andstæðinga Kára Stefánssonar líta á hann sem eins konar líftæknisjóræningja. Stöð 2 sagði frá þessu. -KJA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.