Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 17
 MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1999 enmng 17 t- I P- ■ F w í Háskólabíó - Myrkrahöfðinginn: ★★★ Stríðsmaður guðs Síra Jón (Hilmir Snær Guðnason) þvingar feðgana Pái eldri (Jón Sigur- björnsson) og Pál yngri (Jón Tryggvason) til að játa á sig galdra. Prestssfrú- in Þórkatla (Guðrún Kristín Magnúsdóttir) fylgist með. Fortíðin hefur löngum verið Hrafni Gunnlaugssyni hugleikin og allt frá því hann gerði Hrafninn flýgur hafa hans stærstu kvikmyndir tengst fom- um umbrotatimum og sagt sögur af hetjum og skúrkum á áhrifamikinn hátt þegar vel hefur tekist til. Hrafn- inn flýgur var fyrsta kvikmynd Hrafns þar sem hann tókst á við bar- áttu góðs og ills til forna og eftir fylgdu I skugga hrafnsins og Hvíti víkingurinn, myndir sem ekki voru eins vel heppnaðar en báru sterk höf- undareinkenni Hrafns. Eins má segja að Böðullinn og skækjan falli í þenn- an flokk kvikmynda hans. Það er samt ekki fyrr en nú með Myrkra- höfðingjanum að Hrafn nær að upp- fylla þær væntingar sem gerðar vom til hans eftir Hrafninn flýgur. í Myrkrahöfðingjanum er sögð píslar- saga síra Jóns Magnússonar sem uppi var á sautjándu öld, mögnuð saga um mannlegan breyskleika, hatur, girnd, grimmd og síðast en ekki síst hvemig trúin getur afvegaleitt menn. Hrafn hefur haft þor og dug til að gera kvikmynd við verstu aðstæður sem hugsanlegar eru hér á landi, um miðjan frostkaldan vetur þegar vind- urinn gnauðar og kuldinn smýgur í gegnum allan fatnað. Með því að kvik- mynda Myrkrahöfðingjann í eðlilegu umhverfi sögunnar verður öll um- gjörðin sannfærandi, í senn fráhindr- andi og heillandi. Kvikmyndir Hilmar Karlsson í þessari hrjóstrugu veröld kynn- umst við hugsjónamanninum síra Jóni Magnússyni (Hilmi Snæ Guðna- syni), áköfum guðsmanni sem fær ekki aðeins prestakall strax að loknu námi heldur fylgir ekkja fyrri prests, Þórkatla (Guðrún Kristín Magnús- dóttir), í kaupbæti. Ekkjan hefur not- að tímann vel á milli eiginmanna og þegar Jón kemur á vettvang er sukk- að í kirkjunni undir stjóm prestsfrú- arinnar. Þá staðreynd kemur Jón ekki auga á en leggur i einelti feðga sem hann sakar um spillingu og galdra og heimtar af sýslumanni að þeir verði brenndir á báli. Trúarofstæki Jóns, sem smátt og smátt eykst, má rekja tii holdlegra hugsana hans þar sem i hlut á Þuríð- ur (Sara Dögg Ásgeirsdóttir), vinnu- kona á prestssetrinu og dóttir og syst- ir hinna dæmdu manna. Trúarofstæk- ið og gimdin fara illa saman og vopn- in snúast í höndum Jóns. Sagan sem sögð er í Myrkrahöfð- ingjanum er fyrst og fremst hugverk Hrafns Gunnlaugssonar og hefur hon- um tekist vel upp sem sögumanni. Myndin kafar djúpt í mannssálina, að visu bara eins manns, síra Jóns, en í þeirri sál takast á andskotinn og guð. Hvort er Jón stríðsmaður guðs eða út- sendari andskotans? í lokin hallast hann sjálfur að því síðamefnda eftir áralanga baráttu við hin myrku öfl. Þungamiðja myndarinnar er síra Jón. Hilmir Snær Guðnason er magn- aður í hlutverkinu og er ég ekki frá því að ný kvikmyndastjarna hafi fæðst. Hilmir Snær er ekki aðeins góður leikari, hann hefur mikla út- geislun og Myrkrahöfðinginn er alltaf áhrifamest þegar hann er í mynd. Hlutverkið krefst mikils og Hilmir Snær hefur á valdi sínu allt sem til þarf. Annað aðalhlutverkið er Þuríð- ur. Sara Dögg Ásgeirsdóttir hefur út- litið en vantar reynslu. Sem fyrr legg- ur Hrafn mikið upp úr útliti persóna sinna og velur í hlutverkin sam- kvæmt þvi og þá er ekki spurt um bakgrunninn i leiklistinni. Þetta tekst hér sérstaklega vel þegar hlutverkin eru lítil og svipmikil og oftast gróf andlit verða eftirminnileg. Ákveðin veikleikamerki koma þó fram í ein- staka hlutverkunum. Guðrún Kristin Magnúsdóttir og Hallgrímur H. Helga- son í hlutverkum prestsfrúarinnar og sýslumannsins hefðu til að mynda mátt sýna meiri dýpt í leik sínum. Aftur á móti eru góð tilþrif í leik Jóns Sigurbjömssonar og Jóns Tryggva- sonar sem leika hina dæmdu feðga. Tæknilega er Myrkrahöfðinginn mjög vel gerð mynd. Kvikmyndataka Ara Kristinssonar er frábær, sviðs- myndin er í góðu samræmi við hrika- lega náttúruna og náttúruöflin og tón- listarval Hrafns fellur vel að mynd- inni. Hrafn hefur greinilega kraflst mikils af sínu fólki og fengið það sem beðið var um, og þegar upp er staðið er Myrkrahöfðinginn sterkt og áhrifa- mikið drama. Leikstjórn og klipping: Hrafn Gunnlaugsson. Handrit: Bo Jons- son, Hrafn Gunnlaugsson og Þór- arinn Eldjárn. Kvikmyndataka: Ari Kristinsson. Hljóðhönnun: Kjartan Kjartansson. Heildarútlit leik- myndar: Hrafn Gunnlaugsson. Listræn ráðgjöf Odd Nerdrum. SICRÆNA Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn eðaltré, í hæsta gæðaflokki og prýða pau nú mörg hundruð íslensk heimili. ?* 10 ára ábyrgð t* Eldtraust t* 10 stærðir, 90 - 370 cm ?* Þarfekki að vökva t* Stálfótur fylgir t* íslenskar leiðbeiningar t* Ekkert barr að ryksuga t* Traustur söluaðili <•* Truflar ekki stofublómin t* Skynsamleg fjárfesting CÍU„4('iðltf1-' BANDALAG ÍSLENSKBA SKÁTA Sófar • stólar • Alma Clara 184.000,- kr. Sófi og 2 stólar. svefnsófar höfðatúni 12 105 reykjavík sími 552 6200 552 5757

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.