Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 44
Vinningstölur laugardaginn: 27.11.’! : 2 21 Vinningar Fjðldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 5 af 5 0 17.788.930 2. 4 af S+SýS 6 117.290 3. 4 af 5 121 10.030 4. 3 af 5 4.660 600 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. Jákertölur vikunnar: 9 1 550 5555 MANUDAGUR 29. NOVEMBER 1999 SigluQörður: Fíkniefni voru gerð upptæk Lögreglan á Siglufiröi handtók ungan mann á laugardagskvöldið vegna gruns um fikniefnamisferli. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var hinn grunaöi aðkomumaður og hafði komið með skipi sem lá í höfn um helgina. í fórum mannsins fund- ust fikniefni sem talið er að séu kókaín og hass. Lögreglan á Sigluflrði naut dyggr- ar aðstoðar ríkislögreglustjóra við að upplýsa málið og fékk meðal ann- ars sendan leitarhund úr Reykjavík. Þá kom lögreglan á Sauðárkróki einnig að málinu. Ekki hefur verið gefið upp hversu mikið af fíkniefnum var á ferðýjpi en málið telst upplýst. -aþ Akranes: Landasalar gripnir Brotist inn í Aðfaranótt sunnudagsins var brotist inn í tvær fataverslanir í miðborginni. Annars vegar var brotist inn í tískuverslunina MKM viö Týsgötu þar sem þjófamir höfðu á brott með sér fatnað sem metinn er á á aðra milljón króna. Seinna innbrotið var minna í sniðum en brotist var inn í verslun Guðsteins Eyjólfssonar við Lauga- veg. Þjófarnir höfðu á brott með sér skiptimynt en í gærkvöld var ekki ljóst hvort einhverju af fatnaöi var einnig stolið. Hvorugt málið var upplýst í gærkvöld en að sögn lög- reglu er unnið að rannsókn þeirra. -aþ EG VBRÐ BARA AÐ SEGJA PAÐ\ Kaffi Thomsen: Uðaði maze áfólk Lögregla var kvödd að veitinga- húsinu Kafii Thomsen á fjórða tím- anum á sunnudagsmorgun. Mála- vextir voru þeir að maður nokkur hóf að úða maze yfir dyraverði og gesti. Að sögn lögreglu hafði maður- inn haft í hyggju að yfirgefa veit- ingahúsið en krafðist endurgreiðslu við dyrnar. Þegar það gekk ekki eft- ir reiddist hann og hóf að sprauta mazeúðanum í allar áttir. Hann hljóp síðan á brott en starfsfólk Thomsens var snarara í snúningu og hljóp þrjótinn uppi. Maðurinn var handtekinn og lát- inn gista fangageymslur. Rýma þurfti veitingahúsiö um stundarsak- ir á meðan hreinsun stóð yfir. Hvorki starfsfólki né gestum varð meint af úðanum en lögum sam- kvæmt er óheimilt að eiga og nota slíkan úða hér á landi. Maðurinn verður kærður í dag, að sögn Jó- hanns Dags Bjömssonar yfirdyra- varðar. -aþ Björn Bjarnason menntamálaráðherra þiggur poppkorn úr hendi þingmannsins Össurar Skarphéðinssonar skömmu fyrir frumsýningu Myrkrahöfðingja Hrafns Gunnlaugssonar á föstudagskvöldið. Við hlið Össurar situr Gísli Örn Lárusson. Sjá gagnrýni um Myrkrahöfðingjann á bls. 17. Samkvæmisdansar: Tvöfaldur sigur Lögreglan á Akranesi handtók tvo pilta um tvítugt um helgina en þeir voru gripnir glóðvolgir með töluvert af landa i bil sem þeir höfðu til umráða. Piltamir, sem em heimamenn, voru að sögn lögreglu nýkomnir til bæjarins eftir ferð í höfuðstaðinn þegar lögregla stöðv- aði bíl þeirra. í bílnum fundust um 20 lítrar af landa og vist þykir að þeir hafi ætlað að koma áfenginu í verð í bænum. Piltamir hafa ekki komið við sögu lögreglu áður. -aþ World Wildlife Fund fundar meö Norsk Hydro: Hafnar Steingrími - ekki svo hættulegur segir fyrrverandi forsætisráðherra „Mér finnst þetta nú hálfkjánalegt af forráða- inönnum Norsk Hydro að hafna okkur á þenn- an hátt. Við erum ekki svona hættulegir,“ sagði Steingrímur Her- marmsson, fyrrverandi forsætisráðherra, eftir að forráðamenn Norsk Hydro höfðu neitað að hann sæti fund sem náttúravemdarsamtök- in World Wildlife Fund höfðu óskað eftir með stjórnendum Norsk Hydro vegna Eyjabakka- svæðisins og væntan- legra virkjunarfram- kvæmda á Austurlandi. Auk Steingríms var ráð- gert að Ámi Finnsson, fram- kvæmdastjóri Náttúruvemdarsam- Steingrímur Hermanns- son - óæskilegur í höf- uðstöðvum Hydro. Norsk „Þeir vilja bersýni- lega ekki heyra raddir íslenskra umhverfis- sinna. Ég er tilbúinn með ýmsar spumingar handa þeim varðandi virkj unarframkvæmd- irnar og hefði verið meira en til í að fara,“ sagði Steingrímur Her- mannsson í gærkvöld. „Ég hef skráð nafn mitt undir mótmælaskjal vegna málsins en hræddur er ég um að búið sé aö ákveða að keyra málið í gegn á Al- þingi án þess að um- hvérfismat fari fram.“ - Getur þú ekki haft áhrif á „uppeldissyni" umhverfissóði," sagði Steingrímur Hermannsson, fyrrverandi forsætis- ráðherra. -EIR Tvö íslensk pör báru sigur úr být- um á Norðurlandameistaramótinu i samkvæmisdönsum sem haldið var í Hróarskeldu um helgina. Hilmir Jensson og Ragnheiður Eiríksdótt- ir, sem kepptu í flokki 14 til 15 ára, unnu til gullverðlauna og sömuleið- is ísak Halldórsson og Helga Dögg Helgadóttir, en þau kepptu í flokki 16 til 18 ára. Auk þess hlutu Hrafn Hjartarson og Helga Bjömsdóttir silfurverð- laun í flokki 12 til 13 ára og brons- verðlaun féllu í skaut Grétars Ali Khan og Jóhönnu Bertu Bemburg. Kirkjudeilan í Holti: Presturinn falskur - segir meöhjálparinn taka íslands, sæti fundinn. Fundur- inn verður að öllum líkindum hald- inn á morgun í höfuðstöðvum Norsk Hydro í Noregi og þá án þeirra Steingríms og Áma. þina í ríkisstjóminni? „Þegar kafteinninn er farinn úr brúnni á hann ekki að vera að flækjast þar fyrir. Ég er ekki á móti virkjunum en ég vil að fram fari umhverfismat. Á nýrri öld mun hreinlega verða hættulegt að vera „Ég held að það sé ekki hægt að kæra prestinn því hann er svo falskur að hann segir eitt í dag og annað á morgun. Ég hef verið meðhjálpari hjá honum og þó oft hafi verið fátt í mess- um í Holti þá höfum við hjónin alltaf mætt. Og svo brigslar hann okkur um geðsýki," sagði Magnús Guðmunds- son, bóndi í Tröð í Önundarfirði, um sóknarprest sinn, séra Gunnar Bjömsson í Holti. Magnús kemur við sögu í greinargerð sem séra Gunnar sendi prófasti sínum fyrir skemmstu en þar segir meðal annars um Magn- ús í Tröð og eiginkonu hans:...Kona hans er af góðu fólki í Mývatnssveit, en mun löngum hafa leiðst hér í fjalla- þröng hins vestfirska skammdegis og enda átt við geðrænan vanda að striða. Sjálfur hefur Magnús reyndar lagst á sjúkrahús vegna þunglyndis." Magnús Guðmundsson, bóndi í Tröð og meðhjálpari séra Gunnars, segir erfitt að sitja undir orðum sem þessum en hann sé seinþreyttur til vandræða: „Ég hef lítinn áhuga á að starfa með presti sem skrifar svona um mig og mína. Helst vildi ég sjá annan prest hér fyrir jólin ef sættir nást ekki. En það er erfitt að ná sátt- um við falska menn,“ sagði Magnús í Tröð og átti eins von á að organistinn væri einnig á fórum úr faðmi séra Gunnars. -EIR Veðrið á morgun: Norðanátt og snjókoma Norðanátt verður um land allt á morgun snjókoma eða élja- gangur um norðanvert landið en víðast úrkomulaust syðra. Veðrið í dag er á bls. 53. Jólakort NYfAR yi VIDDIR Sími 569 4000 Hafnarbraut 23, Kóp. Í Í i í i i i i i i i i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.