Dagblaðið Vísir - DV - 29.11.1999, Blaðsíða 34
46
MÁNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1999
Sviðsljós
Salma skemmtir
hermönnunum
Bandarískir hermenn á Balk-
anskaga fengu góða konu i
heimsókn um helgina, enga aðra
en hina kynþokkafullu Sölmu
Hayek, kvikmyndaleikkonu frá
Mexikó. Salma vildi miklu frek-
ar snæða kalkúnann með þeim
en fjölskyldunni heima. „Strák-
amir í hemum eru ekki metnir
að verðleikum. Þess vegna lang-
ar mig til að taka þátt i hátíðar-
höldum þeirra og sýna þeim
samúð,“ sagði hin fagra Salma
áður en hún lagði upp í langferð-
ina yfir Atlantsála. Og næsta
víst er að hermennimir tóku
henni fagnandi.
Sting búinn að
aflýsa hátíðinni
Breski kennarinn og poppar-
inn Sting hefur ákveðið að aflýsa
mikilli nýárshátið sem hann ætl-
aði aö standa fyrir i New York
við árþúsundamót. Með honum
áttu að koma fram þau Aretha
Franklin og Andrea Bocelli.
Miðasalan varð langt um minni
en áætlanir gerðu ráð fyrir og
því ekki um annað að ræða en
að hætta við allt saman. Poppar-
arnir ætluðu nefnilega að rukka
um allt að tvö hundruð þúsund í
aðgangseyri. Það var meira en
margur vildi punga út.
Ösku popparaus dreift í Tíbet
Tveimur árum eftir að ástralski
popparinn Michael Hutchence
svipti sig lífi á hótelherbergi í Sydn-
ey hefur afganginum af ösku hans
verið dreift um víðan völl austur í
Tíbet.
Aðstandendur popparans létu
skipta ösku hann í fimm hluta.
Paula Yates, bresk eiginkona hans,
fékk eina krukku, pabbi Michaels
fékk aðra, mamma hans og hálfsyst-
ur fengu eina hvor.
En öskunni úr þeirri síðustu var
sem sé komið fyrir í Tíbet. Það var
bróðir popparans sem leiddi athöfn-
ina í siðustu viku. Bróðirinn segir
að nú geti sál popparans fengið að
hvíla í friði.
Mamma Jenni-
fer gefur út bók
Sjónvarpspían Jennifer Ani-
ston hefur ekki talað við móður
sína frá því mútta opnaði hug
sinn og hjarta i slúðurpressunni
fyrir þremur árum. Nú hefur
mamma gamla bætt um betur og
skrifað bók sem heitir þvi yndis-
lega nafni Móðir og dóttir og vin-
ir. „Ég er ánægð með að hafa
skrifað bókina," segir mamma.
Þetta var krefjandi verk, tók heil
þrjú ár. „Ég vona að sagan hjálpi
ungum konum og mæðrum
þeirra að leysa vandamál sín.“
Alexandia vill
fleiri börn í bú
Alexandra prinsessa ætlar
ekki að láta staðar numið við
eitt barn, úr því hún er á annað
borð byrjuð. „Við ætlum að eign-
ast fleiri börn. Ef ekki væri
nema fyrir það að það er ekki
hollt einkabami að vera mið-
punktur allrar athygli foreldra
sinna," segir prinsessan í hjart-
næmu viötali við hið danska
Billed Bladet. Fjögur ár eru nú
frá því Alexandra gekk að eiga
Jóakim prins Danmerkurdrottn-
ingarson og verður ekki annað
séð en þau séu jafnástfangin og
þá. Hvernig má annað vera,
frumburðurinn ekki nema nokk-
urra mánaða og nýskírður.
Catherine Zeta-Jones segir frá:
Bara gömul sál
í ungum líkama
Þá vitum við hvers vegna
Catherine Zeta-Jones lét heillast af
kynlífsfiklinum Michael Douglas.
„Ég er bara gömul sál í ungum lík-
ama,“ segir hin þrítuga Catherine í
viðtali við sænska Aftonbladet.
Michael er 55 ára. Þau eru bæði
kvikmyndastjömur að atvinnu.
Og hún heldur áfram: „Allt frá
fæðingu hef ég verið veik fyrir eldri
mönnum."
Þar kann að vera fundin skýring-
in á þvi hvers vegna svo vel hefur
fariö á með henni og mótleikurum
hennar á hvíta tjaldinu, þeim eldri
að minnsta kosti. Margir minnast
slúðursagnanna um Kötu litlu og
skoska sjarmörinn Sean Connery.
Þau léku saman í myndinni Entrap-
ment og persónurnar foru upp í
rúm, ef minnið svíkur ekki. Samt
ekki svo í alvörunni.
„Hvað hefur aldurinn með ástina
að gera?“ spyr leikkonan frá Wales
sem hefur nú hreiðraö um sig í
Hollywood, sólbrún og sæt eftir frí
með Mikka í glæsivillu hans á Mall-
orca. „Það er ekki hægt að setja
neinar reglur um að hverjum mað-
ur laðast. Þá afstöðu hef ég að
minnsta kosti alltaf haft.“
Kata segir í viðtalinu við sænska
blaðamanninn að margir telji að
hún hafi skyndilega orðið fræg,
Catherine Zeta-Jones er hrifinn af sér eldri mönnum og er hreint ekkert feim-
in við að viðurkenna það fyrir heimsbyggðinni gjörvallri.
bara svona upp úr þurru. „En ég
byrjaði reyndar í bransanum þegar
ég var fimmtán ára sem leikari
heima í Wales. Mér finnst þetta því
ekki hafa gengið neitt sérstaklega
hratt fyrir sig,“ segir hún. Efst á
óskalistanum um þessar mundir er
að leika í kvikmynd á móti unnust-
anum Michael Douglas.
„Við viljum vinna saman. Það
væri ágæt leið til að geta verið sam-
an,“ segir leikkonan og brosir
leyndardómsfull þegar hún er spurð
hvort demantshringurinn á ftngri
hennar sé trúlofunarhringur.
„Ég er mjög hrifin af skartgrip-
um. Þegar ég dey ætla ég að snúa
aftur sem demantur," segir
Catherine Zeta Jones. Ætli hún sé
bara ekki þegar einn slíkur.
INN í NÝJA ÖLD
BORGARDEKK
Borgartún 36
Sími 568-8220
Spænski hjartaknúsarinn Enrique Iglesias Juliosson tók lagið í plötuverslun
í Hollywood fyrir helgi þegar hann kynnti nýja plötu sína. Hann notaði tæki-
færið og söng fyrir hana Velkyz Palomino.