Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
DV
Fréttir
Þingflokkur Samfylkingar fundaði á ísafirði: ^
Frystihúsalaus Isa-
fjörður einkennilegur
Þingmenn auka prótínin
Á ferö sinni um ísafjörö kynntust þingmenn Samfylkingar nýrri framleiöslu-
grein Mjólkurstöövarinnar á ísafiröi, prótíndrykk sem þeir þar kalla Skvísur.
Þingmenn rómuöu mjög drykk þennan ogjuku á prótínin svo um munaöi.
DV, iSAFIRÐI:
Kristjáni Möller, þingmanni Sam-
fylkingarinnar, fannst það ein-
kennilegt að sjá að á ísafirði væri
ekki lengur eitt einasta frystihús
starfandi. Þingmaðurinn sótti ísfirð-
inga heim ásamt þingflokki Sam-
fylkingarinnar í vikunni. Bærinn
skartaði sínu fegursta, farið var í
skoöunarferðir í fyrirtæki og stofn-
anir og eftir vel heppnaðan dag var
haldinn opinn fundur á Hótel ísa-
firði og var hann vel sóttur af
heimamönnum.
Á fundinum var farið yfir fjöl-
mörg þau mál sem mest brenna á
landsbyggðarfólki, atvinnumál og
fólksfækkun. í máli Kristjáns Möll-
ers kom fram að hann teldi að höf-
uöatvinnuvegir landsbyggðarinnar
hefðu verið teknir af henni, þ.e.
sjávarútvegur og landbúnaður, allt
annað væri frjálst og undanþegið
kvóta. Kristján sagði það sláandi að
sjá aö á Isafirði væri ekki lengur
eitt einasta frystihús starfandi en
gladdist jafnframt yflr þeim fyrir-
tækjum sem væru hér og héldu uppi
atvinnu þó rekstrarskilyrði væru
þeim ekki beint hagstæð.
Fram kom að ísfirðingar vilja fá
að sitja við sama borð og aðrir en
gera það ekki á meðan flutnings- og
fjarskiptakostnaður er hærri til
landsbyggðarinnar. Á fundinum
kom einnig fram að fasteignagjöld
húsa á landsbyggðinni þyrftu að
vera í samræmi við söluverð eigna
en ekki reiknast eftir matsverði
húseigna á höfuðborgasvæðinu.
Ejörugar umræður og margar
góðar hugmyndir voru viðraðar á
fundinum. Svanhildur Þórðardóttir
kaupmaður taldi að menn einblíndu
um of á fiskveiðar. Unga fólkið vildi
ekki vinna þessi störf og það hefði
sýnt sig að þau hefðu verið mönnuð
að stærstum hluta með erlendu
vinnuafli. Hátækniiðnaður væri
það sem koma skal og fullt af ungu
hámenntuðu fólki myndi vera tilbú-
ið að flytja út á landsbyggðina ef því
væru sköpuð skilyrði til að vinna
sína vinnu þar.
Ef fjarskipta- og flutningskostnað-
ur væri jafnaður stæði landsbyggð-
in jafnt og aðrir landshlutar en rík-
ið drægi lappirnar i þessum málum.
-KS
Sumarið er
að koma
PV, SELFQSSI:_________
Það er sannarlega að veröa sæl-
legt um að lítast sunnanlands, garð-
ar grænka dag frá degi og trén
skrýðast laufum sínum. Garðeig-
endur eru famir að viðra sláttuvél-
ar sínar og verða í kappi við ný-
græðinginn næstu mánuði. Sumar-
ið er því komið inn fyrir þröskuld-
inn og fyllir hug og land sól og bjart-
sýni. -NH
Lífskrafturinn
Þessi litla snót var aö skoöa lauf-
þlööin sem eru sem óöast aö
springa út á sunnlenskum trjám.
Umferðaróhapp
Engin slys urðu á fólki þegar öku-
maður missti stjóm á bíl sínum á
Kúðafljótsbrú á Suðurlandsvegi á
fimmtudag. Lögreglan í Vík segir að
bíllinn hafi farið á flot, lent ut£m i
handriðum brúarinnar og gjöreyði-
lagst. Mikill snjór var á brúnni í
gær. -ÓRV
Krani í háspennu-
línur
Byggingarkrani rakst í háspennu-
línur í morgun við Mel í Melasveit.
Engin slys urðu á fólki og tjónið er
talið óverulegt. Verið er að byggja
svinabú þama. -ÓRV
DV-MYNDIR KOLBRÚN
Harkan sex
Hér eru þingmenn Samfylkingar í fyrirtæki þar sem harkan ræöur, 3X Stáli,
ásamt framkvæmdastjóranum, Jóhanni Jónassyni.
MAT Á UMHVERFISÁHRIFUM
Opið hús á Nesjavöllum sunnudaginn 4.júní 2000.
Milli kl. 10 og 18.
Orkuveita Reykjavíkur áformar að stækka rafstöð Nesjavallavirkjunar úr 76 MW
í 90 MW. Þessi stækkun er nefnd áfangi 4b. Framkvæmdin fellur undir
5.grein nýsettra laga frá Alþingi um mat á umhverfisáhrifum. Samkvæmt þeim
lögum skal almenningi boð ið að kynna sér matsáætlun áður en matsskýrsla er
lögð fram og koma með ábendingar eða gera athugasemdir við fyrirhugað mat. ö
Orkuveita Reykjavíkur býður almenningi að koma og kynna sér áætlun um mat á °
umhverfisáhrifum Nesjavallavirkjunar, áfanga 4b, og hinar fyrirhuguðu
framkvæmdir sunnudaginn 4.júní nk. milli kl.10 og 18. Tekið er á móti fólki -
í gestaskála, þar sem áætlunin mun liggja frammi. *
Þeir sem ekki eiga heimangengt geta kynnt sér áætlunina á heimasíðu *
Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns, sem hefur slóðina www.vgk.is, og
komið ábendingum sínum á framfæri þar. -
Orkuveita Reykjavíkur
Orkuveita
Reykjavíkur
Sandkorn
i. UniSjón:
Gylfi Kristjánsson
netfang: sandkorn@ff.ls
Ekki benda á mig
Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, fór létt með að af-
jreiða viðtöl í kjöl-
Far dóms Hæstarétt-
ar þar sem Ragn-
hildur Vigfúsdótt-
ir, fyrrum jafnrétt-
is- og fræðslufull-
trúi Akureyrarbæj-
ar, vann mál gegn
Akureyrarbæ.
Ragnhildur taldi að
henni hefðu verið skömmtuð lægri
laun en karlmaður í sambærilegri
stöðu hjá bænum hafði. Kristján
Þór sagði þaö ekki beint en fór
skemmtilega í kringum það aö þeir
atburðir sem kærðir voru áttu sér
stað á tíma fyrrverandi bæjarstjóm-
ar. Hann sagði eitthvað á þá leið að
þetta væri gamalt mál og gott væri
að botn væri í það kominn, en það
sem hann sagði í raun og veru var
að sjálfstæðismenn voru í minni-
hluta í bæjarstjórninni þegar þetta
gerðist og réðu því ekki ferðinni í
launamálum frekar en öðru.
junun ■ vdllUd
íslendingar
furða sig stundum
á því að erlendir
menn geti heitið
nöfnum eins og
London og Was-
hington, svo eitt-
hvað sé nefht. ís-
lensk nöfn geta
einnig komið '
skemmtilega á óvart, eins og t.d.
nafn klifurmannsins Jökuls Berg-
manns, en sá hefur að undanfornu
glímt við að klífa ísaðan norðurvegg
fjallsins Matterhoms. Þetta leiðir
reyndar hugann að nafni Sigur-
jóns Bláfelds sem er ráðunautur í
loðdýrarækt. Þá muna margir Ak-
ureyringar enn þegar Vörður
Traustason, núverandi forstöðu-
maður Hvítasunnusafnaðarins í
Reykjavík, sprangaði um götur Ak-
ureyrar sem vörður laganna.
Sér hann?
Ari Trausti Guðmundsson fer
prýðilega að þegar hann flytur veð-
urfregnir á Stöð 2,
en þó segir hann
ávallt einn ákveð-
inn hlut sem kemur
einkennilega fyrir
eyra. Hann kemur
fyrst inn í frétta-
tímann skömmu
eftir klukkan 19,
flytur þá stutt
„ávarp“ og segist segist síðan „sjá“
sjónvarpsáhorfendur skömmu fyrir
klukkan 20. „Sé ykkur þá“ segir
veðurmaðurinn og vitað er að böm
hafa spurt foreldra sína í forundran
hvort hann sjái þau virkilega. Aðrir
sem tala í sjónvarp koma ekki
svona fyrir sig orði, enda sjá áhorf-
endur þá en ekki öfugt.
Enginn áhugi
Forsvarsmenn tónleika poppgoðs-
ins Eltons Johns í Reykjavík full-
yrtu að hann ætti sér enga ósk heit-
ari en að fá að hitta Ólaf Ragnar
Grímsson forseta f
og Dorrit unnustu
hans þegar hann |
kæmi til landsins.
Biðu nú margir I
spenntir og fógn-
uðu þegar forset-1
inn og heitkona I
hans ákváðu að [_
sækja tónleikana.
Heldur versnaði hins vegar í því
þegar popparinn kom til landsins.
Frumlegur fréttahaukur spurði
hann á flugvellinum hvort hann
væri ekki ánægður með að vera
kominn til íslands og Elton varð
auðvitað að játa því. Svo var hann
spurður um áhuga sinn á að hitta
forsetann og svaraði hann því
þannig að hann hefði alls engan
áhuga. Þannig var það nú. Svo
fylgdi í fréttum af tónleikunum að
forsetinn og heitkona hans hefðu
„klappað óspart" á tónleikunum og
að auki heimsótt Elton í búnings-
klefa þar sem kærleikar urðu miid-
ir...