Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Blaðsíða 23
23
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Þórarinn Eldjárn sætti ofsóknum út af
fyrsta reiðhjóli sínu:
Möwehjólin
þóttu ekki fín
- segir skáldið sem orti á sínum tíma kvæði
um þessa sérstöku reiðhjólategund
Þórarinn hefur ekki sætt neinum ofsóknum vegna Mongoosehjólsins síns
en sömu sögu er ekki aö segja þegar hann átti relðhjól af Möwegerö.
„Möwehjólin voru ekki hátt skrif-
uð á sínum tíma. Það þótti mun finna
að eiga DBS eða Hopperhjól," segir
Þórarinn Eldjám um sitt fýrsta reið-
hjól af Möwetegund sem hann eign-
aðist 7 ára gamall.
Möwehjólin eru mörgum íslend-
ingum vel kunn en þau komu hingað
til lands frá Austur-Þýskalandi á 6.
áratugnum. Þau voru ódýrari en önn-
ur hjól en þóttu léleg og ryðguðu
fljótt.
„Þau gátu enst vel ef maður fór vel
með þau, hafði þau inni á nætumar
og þess háttar,“ segir Þórarinn sem
minnist þess að hjólin hafi þótt af-
skaplega hallærisleg fyrir það hversu
breið dekkin á þeim voru.
Stoliö hjól í Svíþjóð
Þórarinn var búinn að læra að
hjóla þegar hann fékk Möwehjólið en
þar sem hjólið var keypt vel við vöxt
þá hjólaði hann fyrst í stað á því und-
ir slánni. Þórarinn átti hjólið alveg
fram að 16 ára aldri en þá hætti hann
að hjóla þar sem það þótt mjög ófint
að hjóla á menntaskólaárum hans.
„Það vom bara gamalmenni, börn
og sérvitringar sem þá vom á hjóli,“
minnist Þórarinn.
Eftir menntaskólanám, eða árið
1969, hélt Þórarinn til náms til Sví-
þjóðar og þar byrjaði hann aftur að
hjóla í námsmannabænum Lundi.
„Þetta er mikill reiðhjólabær og
þar var mjög einfalt að eignast reið-
hjól því maður einfaldlega stal þeim.
í reiðhjólaskýlum var oft hægt að
finna yfirgefin reiðhjól og ef maður
sá eitt sem greinilega átti engan eig-
anda þá bara tók maður það og skipti
um lás. Þetta var meira og minna
viðurkennd aðferð," útskýrir Þórar-
inn. Fyrir utan þau hjól sem Þórar-
inn átti í Svíþjóð fékk hann sér kín-
verskt reiðhjól þegar hann bjó í Bret-
landi en í dag brunar hann hins veg-
ar stoltur um miðbæinn á Mongoose-
íjallahjóli enda er það alls ekki leng-
ur hallærislegt að vera á reiðhjóli.
Skömm að Möwe
Af öllum þessum reiðhjólum er
það samt hans fyrsta reiðhjól,
Möwereiðhjólið, sem er honum kær-
ast og minnisstæðast. í fyrstu ljóða-
bók hans er meira að segja að fmna
heillangt kvæði um hjólið sem til-
einkað er fórnarlömbum Möwe-
ofsóknanna á Islandi. í kvæðinu lýs-
ir Þórarinn því hvemig hann fékk
hjólið, hvemig honum var strítt á því
og hvemig hann svo reyndi að breyta
því með málningu svo það sæist ekki
að hjólið væri Möwe. „Það þótti
skammarlegt að vera á Möwehjóli,
það þótti ekki nógu flott,“ segir Þór-
arinn.
Fyrir utan Möwekvæðið hefur Þór-
arinn einnig ort kvæði um óhöpp á
reiðhjóli og skrifað smásögu um
mann sem stelur óvart reiðhjóli. Þór-
arinn er þó síður en svo fanatískur
reiðhjólaunnandi þó honum finnist
fint að skjótast á hjólinu til og frá
vinnu og skreppa í hjólatúra með
fjölskyldunni. „í gegnum tíðina hitti
ég stundum fólk sem horfir þannig á
mig að ég sé strax i augunum á því
að við þekkjumst. Þetta em gamlir
Möweeigendur sem lesið hafa kvæðið
og skilja út á hvað þetta gekk,“ segir
Þórarinn sem er ekkert á leiðinni að
mála yfir Mongoosemerkið á reið-
hjólinu sínu. -snæ
Möwe-
kvæði
eftir Þórarin Eldjárn
(tileinkað fórnarlömb'
um Möweofsóknanna
á íslandi)
Ó reióhjól best, þú rennur utan stans
jafnrennilegt aó aftan sem aó framan.
Þú varst stolt hins þýska verkamanns
sem þreyttum höndum skrúfaói þig saman.
Ættjöró þín var ótal meinum hrjáó,
af þeim sökum hlaustu úr landi aó fara.
Sjá hér þín örlög; utangarðs og smáó
í auóvaldslandi köldu á noröurhjara.
í landi þessu, létta mjúka hjól,
þú lentir brátt í minum ungu höndum.
Égfylltist gleói er fékk ég þig um jól
ogfegurð þin var svört meó hvítum röndum.
Vió ókum saman yfir hvaó sem var,'
enginn tálmi sá vió þínu drifi.
Þýður gangur þinn af öllum bar,
því skal ég aldrei gleyma meóan lifi.
Og þá wr ekki vont aó vera til,
um veröldina lióum við í draumi.
En óvinurinn beið á bakvió þil
og brýndi klœmar ótt og títt í laumi.
Sw spratt hann fram og spottaði þig, hjól,
sparkaði i þig, jós þig nöfhum Ijótum:
„möwedrusla" „drasl og skrapatól“
„dekkin rióa“ „sœtiö meióir scrotum".
Og áróóurinn undirlagói mig,
auóvaldslygin spillti hjarta mínu:
Eins og fantur flekkaói ég þig
ogfyrirgerói öllu trausti þínu.
Ég málaði þig blátt og breytti um hnakk
og bœtti síóan enn um fólskuverkió:
Ég dró úr pússi mínu rótsterkt lakk
og lakkaói yfir stolt þitu vörumerkið.
Þú týndir öllu, eóli þínu firrt,
úr þér streymdi lífsnautnin og safinn.
Þú misstir heilsu, geróist stíft og stirt,
þín stóra sál var bœói dauó og grafin.
Þannig fer ef vilji manns er veill,
vönkuó lundin allt hió rétta svíkur.
Þaó er best aó vera hreinn og heill,
í hug og verki traustu bjargi líkur.
Þió skelfið mig ei lengur hœtishót,
heimsku þý sem alla gleói stýfió.
Ég hef ióraóst, ég skal gera bót,
ég skal renna á Möuie gegnum lífió.
Daewoo Lanos SX 1600 04/98.
ekinn 22 þús. km, rauður, 5 g., abs, cd.
Suzuki Baleno GLX 1600 11/96,
ekinn 33 þus. km, vínrauður, 5 g..
Verð 1.050.000 Tjjboð 950.000
Verð 850.000 THboð 725.000
iToyota Hllux D/C Bensín 07/93,
ekmn 112 þús. km, grænn, 5 g.. 35” dekk,
[plasthús
Verð 1.450.000 Tilboð 1.250.000
ÍToyota Carina E 20Ö0Ö9/94 ( 95),
ekinn 138 þús. km. rauður, 5 g..
Verö 800.000 TilbpðMO.QOO
llsuzu Trooper 3.0 Diesel 06/99,
ekinn 20 þús. km, blár, 5 g . 35’ breyttur,
leður o.fl..
Toyota Avensls Sol 1600 07/99,
ekinn 9 þús. km, rauður, 5 g„ hiaðinn
aukabúnaöi.
Verð 1.820.000
BÍLASALAN
Wv Jyifl
11 I
I lauiu Troopor 2.6 01/93, jjekinn 136 þús. km, blár. ssk.. jjverð 780.000 Tilboð 650.000 MMCLancör"4x4tl8/9Í ekinn 123 þús. km, hvítur, 5 g.. Verð 750.000 Tilboð 650.000 :: Imusso Grand Luxo TDI 10/98 (*99), Hiekinn 30 þús. km. vinrauöur, 5 g., abs, Mspólvöm, 31 ’ dekk o.fl.. H Verð 2.600.000 Tilboð 2.430.000
. crr • ^
■
gToyota Carina E 1600 07/97 (‘98), Nissan Sunny LX 1400 04/95, H?jDaewoo Lanos Hurricanc 01/99,
Bekinn 51 þús. km. blár, 5 g.. ekinn 108 þús. km, grænn, 5 g., cd. Hjekinn 40 þús. km. vinrauöur, 5 g.. abs.
HJálfelgur, spoileraro.fi..
JVerð 1.270 000 Tilboö 1.170.000 Verð 680.000 Tilboö 550.000 Hverö 1.450 000 Tilboð 1.350.000