Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Síða 46
54
-+
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
Helgarblað
x>v
Hellir Kokopellis
Eins og sjá má er hellirinn bjartur
og í alla staöi hinn vistlegasti
Óhefðbundinn gisti-
staður í Nýja-Mexíkó:
* Helli
breytt í
hótelsvítu
Eigi menn leið um Nýja-Mexíkó í
sumar og séu orðnir þreyttir á hefð-
bundnum hótelum geta þeir reynt
nýstárlegan gististað rétt utan við
borgina Farmington. Um er að ræða
helli úr sandsteini sem jarðfræðing-
urinn Bruce Black lét breyta í einn-
ar svítu „hótel“ fyrir nokkrum
árum. Hellirinn sem kenndur er við
Kokopelli, guð hamingju í trú
Navajo-indíána, er allur hinn glæsi-
legasti. í honum miðjum er stór
^•ftringlaga setustofa og út frá henni
liggja tvö herbergi. Gólf eru teppa-
lögð sem myndar skemmtilega and-
stæðu við hrjúfan sandsteininn á
veggjum og gólfí. Húsgögn er í hefð-
bundnum stíl Suðvesturrikjanna en
þar að auki er hellirinn prýddur
listaverkum og handverki Navajo-
indíána. Eins og góðri svítu sæmir
er hellirinn búinn öllum helstu
þægindum, svo sem ískáp, nudd-
potti, eldstæði og risastóru rúmi og
þarf því ekki að væsa um mann inni
nöturlegu berginu.
(Byggt á National
Geographic Traveler)
Stærsta tjald landslns
Markaöur verður haldinn í þessu stærsta tjaldi landsins síöar á mánuöinum.
Ferðaþjónustan Lónkot við Málmeyjarsund:
Gullni þríhyrningurinn
og heiðin sumarhátíð
Tequila-
hraðlestin
Tequila Express flytur hundruð
Tequila-þyrstra farþega til bæjarins
Tequila í Mexíkó í hverri viku.
Ferðirnar hófust fyrir tveimur
árum og hafa notið gríðarlegra vin-
sælda. „Verið velkomin í lest vin-
áttu og gleði“ er sagt við farþegana
um leið og þeir koma um borð í lest-
ina og eftir 20 mínútur er farið að
veita drykkinn görótta, Tequila,
_^sem er þjóðardrykkur í Mexíkó.
Lagt er upp frá bænum Guadala-
jara og farin 60 km leið til TequOa.
Skemmtidagskrá er haldið uppi
báðar leiðir en sagt er að þegar lest-
in nálgast aftur brautarstöðina í
Gualdalajara hafi partístemningin
dofnað og timburmenn famir að
segja til sín meðal farþega.
Miðinn kostar 50 dollara og er
Tequila eins og hver getur innibyrt
innifalið í miðaverðinu og einnig
hádegisverður í bænum Tequila.
í hverja ferð komast 272 farþegar
og drekka þeir að meðaltali 72 flösk-
ur af Tequila i hverri ferð. Rúmlega
14.000 ferðamenn munu ferðast með
lestinni árlega.
*-------------------------
Nettengd hót-
elherbergi
Intemetnotkun hefur aukíst gífur-
lega á undanförnum ámm og nú er
svo komið að stærri og fínni hótel í
Bandaríkjunum hafa tekið upp á því
að bjóða upp á Intemettengingu á
herbergjum sínum. Er það gert til að
koma til móts við þarfir hótelgesta
en æ fleiri þeirra flnnst slíka þjón-
ustu hafa skort á hótelum hingað til.
Samkvæmt könnun sem gerð var í
fyBandaríkjunum myndu 59 % þeirra
sem ferðast í viðskiptaerindum kjósa
að hafa nettengda tölvu í hverju her-
bergi. Þó að fá hótel séu svo vel tækj-
um búin geta gestir tengt fartölvur
sínar Netinu á mörgum þeirra.
Tenglamir era gjaman byggðir inn í
síma eða borðlampa hótelherbergj-
, anna en sums staöar má einnig frnna
•--*þá í veitingasölum og jafnvel við
sundlaugabakka hótela.
Eyjasiglingar á Skagafirði eru
meðal spennandi nýjunga sem
Ferðaþjónustan Lónkot býður ferða-
fólki f sumar. Siglingar hafa þó ver-
ið stundaðar frá staðnum en í sum-
ar verður fjölbreytni ferðanna meiri
en áður. Að sögn Ólafs Jónssonar í
Lónkoti verða þrenns konar ferðir í
boði og ber fyrst að nefna Gullna
þríhyminginn en það er fjögurra
stunda sigling þar sem siglt er hjá
Þórðarhöfða, þaðan í Drangey þar
sem ferðafólk fer í land og að lokum
er farið í Málmey. „Náttúrufegurð
er afar mikil á þessum slóðum og ef
heppnin er með er aldrei að vita
nema farþegar sjái hvali í ferðinni.
Fuglalíf er mikið og fjölbreytt auk
þess sem náttúrulifsskoðun almennt
í eyjunum er mjög skemmtileg,"
segir Ólafur um siglingamar.
Einnig er hægt að fara í styttri
siglingar til annað hvort Málmeyjar
eða Drangeyjar.
Sjónarspil
Dagskráin í Lónkoti í sumar er
fjölbreytt sem endranær og hver at-
burðurinn mun reka anan. Um
hvítasunnuhelgina munu Ásatrúar-
menn staldra við i Lónkoti og halda
sumarhátíð að heiðnum sið. „Þeir
eru á hringferð um landið og ætla
að heiðra okkur með heimsókn á
hvítasunnudag. Þeir munu kveikja
elda í tilefni árþúsundamótanna og
setja niður geysistóran stuðlabergs-
stein sem helgaður verður land-
námi hér i Lónkoti. Við búum svo
vel að hér er eitt elsta landnám
landsins en það var Þórður Bjarnar-
son sem nam hér land um 900 og við
hann er Þórðarhöfði kenndur.
Ef vonir standa til verður þetta
heilmikið sjónarspil hjá þeim ása-
trúarmönnum og svo endum við
kvöldið eins og sannir íslendingar
og efnum til dansleikjar," segir
Ólafur.
Hefðbundin ferðaþjónusta er rek-
in í Lónkoti og þar er auk tjald-
stæða að finna til dæmis sveitagist-
ingu í uppgerðum fjárhúsum. Á
staðnum er að fmna gallerí kennt
við flakkarann Sölva Helgason og
þar eru haldnar listsýningar yfir
sumartímann. í sumar er m.a. ráð-
gert að halda sýningar á verkum Lár, Sigurrósar Stefánsdóttur, svo
Ragnheiðar Jónsdóttur, Ragnars eitthvað sé nefnt.
Helgir staðir eru vinsælir í ár:
Aldrei fleiri pílagrímar
- 2000 ár frá fæðingu frelsarans
í tilefni þess að 2000 ár eru liðin
frá fæðingu Krists munu kristnir
menn flykkjast á helga staði viða
um heim í sumar. Jóhaimes Páll
páfi hefur sjálfur hvatt kaþólikka til
að minnast tímamótanna með því
að leggjast í pilagrímsferð eða aðra
andlega reisu og er búist við því að
milljónir svari kalli hans. Vegna yf-
irvofandi aukningar phagríma hafa
yfirvöld á helgum stöðum um Eillan
heim tekið við sér og lagt út í víð-
tækar framkvæmdir. Byggingar og
minnismerki Vatíkansins hafa til
dæmis fengið andlitslyftingu og
ýmis söfn í Róm sem hafa verið
lengi lokuð hafa opnað dyr sínar á
ný. Þá eru nýyfirstaðnar endurbæt-
ur á freskunum í lofti basiliku
heilags Fransiskusar í borginni
Ferðamenn við Péturskirkjuna í Róm
Yfirvöld í Rómaborg búast viö gífurlegri aukningu pílagríma í ár og hafa því
gert viöeigandi ráöstafanir.
Assisi á Ítalíu, en þær skemmdust
mikið í jarðskjálfta fyrir tveimur
árum.
Ekki er undirbúningurinn minni
í ísrael en þar er búist við að fjöldi
pílagríma muni slá öll met í ár. Nú
þegar hefur orðið 12% aukning
ferðamanna og eru 60% þeirra
kristnir menn sem vilja heimsækja
staðina þar sem frelsarinn lifði og
starfaöi. Alls er búist við að um 13
milljón gestir sæki landið helga
heim á timabilinu frá desember 1999
til janúar 2001. Miklum fjármunum
hefur verið variö í uppbyggingar-
starf, meðal annars í Nasaret,
heimaborg Jesú, auk þess sem hót-
elherbergjum um allt land hefur
verið fjölgað til muna.
-EÖJ
4