Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Qupperneq 50
58
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
I>V
Tilvera
SJóbátar
Oasís Family, 2ja manna
Breidd: 67 cm
Lengd: 4,90 m
Efni: Polyethylene (HDPE)
Botn: V-laga
Fylgihlutir: Teygjur fyrir farangur
Oasis er mjög hentugur í stuttar sem langar ferðir, bæði á sjó og
vötnum, og er hannaður með það í huga að hvorki þurfi stýri né
skegg.
Verð: 78.900
Caribe 2, 2ja manna
Breidd: 71 cm
Lengd: 4,61 m
Efni: Polyethylene (HDPE)
Fylgihlutir: Teygjur fyrir farangur, stallur fyrir áttavita og líflína.
Caribe 2 er stööugur og hraðskreiður vegna sérstakrar hönnunar á
botni og kili og ekki þörf á stýri né skeggi.
Verð: 69.800
Mariner:
Breidd: 65 cm
Lengd: 4,40 m
Efni: Fiberglass
Botn: V-laga
Fylgihlutir. Stallur fyrir áttavita og pumpu.
Farangursgeymsla, lok úr fibenglas, hannaður þannig að hvorki þurfi
stýri né skegg.
Verð: 62.300
Navigator:
Breidd: 60 cm
Lengd: 4,61 m
Efni: Polyethylene (HDPE)
Botn: V-laga
Fylgihlutir: Stallur fyrir áttavita og teygjur fyrir farangur.
Geymsluhólf tvö, fremra er 38 litra og það aftara 90 lltra, þarf ekki
stýri né skegg.
Verð: 58.600
Kayak Sport
Sióbáfar - Sfraumvatnsbátar - Kanóar -
Aukahíufir - Sérpanfanir
Sfrauinvafiíisbáter
Mephisto:
Breidd: 64 cm
Lengd: 2,22 m
Þyngd: 16kg
Efni: Polyethylene
Mephisto er hannaður fyrir erfiðleikagráðu 2-5.
Verð: 62.900
Compact:
Breidd: 60 cm
Lengd: 3,54 m
Þyngd: 24 kg
Efni: Polyethylene
Compact er hannaður fyrir erfiðleikagráðu 3-4
Verð: 41.600
Indy:
Burðargeta: 300 kg
Lengd: 4,60 m
Þyngd: 38 kg
Efni: Polyethylene með frauð á milli ytra og innra lags.
Indy er hannaður með mlkinn stöðugleika í huga, er 3ja
sæta, miðsæti má auðveldlega fjariægja, einfaldan búnað
er hægt að fá til að koma fyrir utanborösmótor.
Verð: 77.200
Point K1 S:
Breidd: 57 cm
Lengd: 5,25 m
Efni: Fiberglass
Botn: V-laga
Fylgihlutir: Skegg og lifllna.
Point K1 S er mjög vinsæll meðal ræðara. Ávalur skrokkurinn og
samsetning hans við stillanlegt skeggið gera hann að einstaklega
liprum og þægilegum kajak.
Verð: 149.600
Point K1 R:
Breidd: 57 cm
Lengd: 5,25 m
Efni: Fiberglass
Botn: V-laga
Fylgihlutir: Stýri og liflína
Point K1 R er mjög lipur og hraðskreiður kajak sem skilar slnu vel
við erfiðustu aðstæður og þvf er hann vinsæll meðalkröfuhörðustu
ræðaranna.
Verð: 154.600
fiUfeL’UHeÓUI'
-Hjálmar
- Flotbelgir I stefni og skut
- Björgunarvesti
- Svuntur PVC eða neopran
-Árar
- Aukafestingar og teygjur fyrir farangur
- Festingar fyrir líflínu
- Púði fyrir mjóhrygg
- Vatnsþéttir PVC geymslupokar
- Vatnsþétt PVC-hulstur fyrir GSM/NMT farsima
- Lúffurfyrirárar, PVC eða neopran
- Björgunarlínur
- Yfirbreiösla úr PVC yfir sætisop til varnar ryki og bleytu.
B.J. Trading, heildverslun,
Bíldshöfða 16, bakhús.
Sími 587 1600
Veffang: www.kayak.is
Netfang: bj.trading@kayak.is
Stuttmyndadagar
um helgina
Komin er löng hefö fyrir Stutt-
myndadögum sem Ingibjörg Stefáns-
dóttir leikkona setur kl. 18.20 I dag.
Tjamarbíó verður þó opnað gestum
þegar kl. 17.30. Valdar hafa verið um
þrjátíu íslenskar myndir til þátttöku
í keppninni þar sem veitt eru góð
verðlaun fyrir þrjár bestu myndim-
ar, auk þess sem áhorfendur velja
mynd sem hlýtur sérstök aukaverð-
laun. Það er Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir sem afhendir verðlaunin en
dómnefnd skipa Ólafur H. Torfason
kvikmyndagagnrýnandi, Þorfmnur
Ómarsson, framkvæmdastjóri Kvik-
myndasjóðs íslands, Reynir Lyngdal
kvikmyndagerðarmaöur og Bjöm Æ.
Norðfjörð, kvikmyndagagnrýnandi á
DV.
Auk íslensku myndanna verða
sýndar um tuttugu erlendar myndir
og er mikill fengur að þeim. Þá flytja
þrír kvikmyndagerðarmenn fyrir-
lestra en þeir era Óskar Jónasson
leikstjóri, Sigvaldi J. Kárason klipp-
ari og Ingvar E. Sigurðsson leikari.
Af kynningu á myndunum má ráða
að fjölbreytnin sé í fyrirrúmi, hvort
sem um er að ræða innlendar eða er-
lendar myndir. Allir kvikmyndaá-
hugamenn em að sjálfsögðu hvattir
til að mæta. Það er ekki nema einu
sinni á ári að þeir komast i tæri við
slíkan stuttmyndafjölda. Fram-
kvæmdastjóri Stuttmyndadaga í
Reykjavik er að þessu sinni Rebekka
Sylvía Ragnarsdóttir en þeir Jóhann
Sigmarsson og Júlíus Kemp eru sem
fyrr í stjórn þeirra.
bantJagagnrýrn
B£ AUTIFUL
PEOPLE
Beautiful
People
★ ★Á
Bosnísk
London
Tveir menn koma auga hvor á ann-
an í strætisvagni í London og byrja
umsvifalaust að slást. Þannig byrjar
myndin Beautifúl People sem er eins
konar smásagnasafn þar sem sögum-
ar hafa tengingu 1 Bosníustríðinu.
Mennimir tveir vora nágrannar i
Bosníu og eiga óuppgerðar sakir.
Fyrrverandi hermaður verður ást-
fanginn af hjúkrunarkonu, fréttamað-
ur tekur strlðið inn á sálina og ung
hjón biðja lækni um að drepa bamið
þeirra þvi að konan varð þunguð eft-
ir að vera nauðgað af óvinahermönn-
um. Eina sagan sem lengst af virðist
enga tengingu hafa við Bosníu er af
knattspymubullum á leið á landsleik
en Bosnía á heldur betur eftir að
koma við sögu þar á óvæntan hátt.
Leikstjórinn reynir þama að
koma inn á flest það sem vakið hef-
ur athygli varðandi átökin í gömlu
Júgóslavíu. Þetta eru ágætlega unn-
ar sögur en bæta reyndar litlu við
það sem maður las í blöðunum á sín-
um tíma, fyrir utan ágæta innsýn I
hvemig stríðið snerti breskan al-
menning. Sagan af fótboltabullunum
inniheldur skemmtilega fléttu, þó
ólíkindaleg sé, en hún endar í afar
ótrúverðugri fantasíu um góða eðlið
í mannskepnunni. Það er ýmislegt
athyglisvert að finna I þessari mynd
en hana skortir sterkan heildarsvip.
Útgefandi: Myndform: Leikstjóri: Jasmin
Dizdar. Leikarar: Of margir til aö telja
upp en enginn frægur. Bresk, 1999.
Lengd: 107 mín. Bönnuö innan 16 ára.
-PJ
Myndbnnd
Hrein
hörmung
Það eru fáar myndir alvondar.
Jafnvel í verstu myndum er oftast
eitthvað sem vel er gert, eitthvað sem
hægt er að benda á til að segja sjálf-
um sér að það hafl ekki verið algjör
tímasóun að horfa á myndina. Full
Blast er ein af þessum fáu myndum
sem em eins lélegar og leiðinlegar og
hugsast getur. Það er bókstaflega
ekkert gott við þessa mynd.
Full Blast gerist á einum degi í
næturklúbbi þar sem tónleikar fara
fram um kvöldið. Tvö sett af hand-
rukkurum era á ferli, annað á eftir
einni söngkonunni, hitt á eftir
stráknum sem rekur staðinn. Þar að
auki eru tvö glæpagengi á staðnum
að gera upp sakir.
Upphafsatriðið gefur forsmekkinn
af því sem koma skal með aumkunar-
verðri stælingu á Pulp Fiction.
Myndin spilast eins og illa gefið af-
kvæmi þeirrar myndar og Detroit
Rock City. Handritið er ömurlegt og
ekki ein einasta persóna í myndinni
hið minnsta áhugaverð - eintómar
klisjur á ferðinni.
Hvað leikhópinn varðar þá er
hanh svo lélegur að fyrrverandi
klámstjarnan Traci Lords kemur
ekkert illa út í samanburði við hina
leikarana. Sem betur fer kemur það
afar sjaldan fyrir að maður neyðist
til að sitja undir svona hörmung.
Utgefandi: Skífan. Leikstjórl: Eric Mintz.
Aðalhlutverk: David Carradine og Traci
Lords. Bandarísk, 1997. Lengd: 90 mín.
Bönnuö innan 16 ára. -PJ