Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2000, Síða 59
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 2000
I>v
Tilvera
67
Steina Vasulka sýnir í Ljósaklifi:
Nærvera guðs í
hrauni og mosa
í dag opnar listakonan Steina Va-
sulka fyrstu sýninguna í nýjum sýn-
ingarsal sem nefnist Ljósaklif og er
að finna á vernduðu hraunsvæði
við sjóinn vestast í Hafnarfirði. Það
eru hjónin og listamennimir Einar
Már Guðvarðarson og Susanne
Christensen sem standa að hinni
nýju sýningaraðstöðu en sjálf búa
þau á Ljósaklifi.
Hraun og mosi nefnist verkið sem
Steina sýnir og er það sérstaklega
unnið með sýningarrýmið í huga. í
verkinu túlkar Steina á áhrifaríkan
hátt, með samspili myndmáls og
tónlistar, árstíðir og tímavíddir
hraunsins. Sjáif mun Steina hafa
haft á orði: „Ef guð er alls staðar er
nærvera hans vissulega áþreifanleg-
ust í hrauni og mosa.“
Að sögn Einars Más er sýning
Steinu fyrsta sumarstarfsemi
Ljósaklifs. Náttúran umhverfis
Ljósaklif verður leiðandi í listsýn-
ingum i Ljósaklifi og náttúran sem
listrænt rannsóknar- og viðfangs-
efni verður í fyrirrúmi.
Áhugasamir um dagskrá
Ljósaklifs geta skoðað slóðina
www.lightcliff-art.is á Netinu en
þess má geta að næsta sýning í
Ljósaklifi verður unnin af fjórum
japönskum listamönnum sem koma
hingað til lands í tilefni menninga-
borgarársins.
Magnaö umhverfi Ljósaklifs
Listsýningar í hinu nýja rými veröa unnar út frá stórbrotinni náttúru svæöisins.
Ný leikgerð Café Teatret á sögu Einars Más Guðmundssonar
verður sýnd á Listahátíð:
Englarnir á dönsku
Þröngur heimur
Henrik Prip í hlutverki Páts / uppfærslu Café Teatret á Englum alheimsins.
Ný leikgerð Café Teatret á sögu
Einars Más Guðmundssonar verður
sýnd á Listahátíð í Reykjavík. Verk-
ið verður sýnt á Smíðaverkstæði
Þjóðleikhússins og verða fjórar sýn-
ingar, 3., 4., 5. og 6. júni og hefjast
allar kl. 20.30.
CaféTeatret er lítið en metnaðar-
fullt leikhús í miðborg Kaupmanna-
hafnar sem þekkt er fyrir nýstárleg-
ar sýningar. Þar var í september
1999 frumsýndur einleikurinn
Englar alheimsins undir leikstjóm
Ditte Marie Bjerg og höfðu hún og
leikarinn Henrik Prip gert leikgerð-
ina upp úr skáldsögu Einars Más
Guðmundssonar sem hlaut Bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
1995. Leikmyndin er eftir Jesper
Comeliussen sem hefur undanfarin
ár gert margar rómaðar leikmyndir
víða um Norðurlönd, meðal annars
fyrir Konunglega leikhúsið í Kaup-
mannahöfn. Gekk sýningin á
Englum alheimsins í Café Teatret
fyrir fullu húsi þann tíma sem
henni var markaður og komust
færri áhorfendur að en vildu.
Sýningin hlaut mjög góða dóma
gagnrýnenda og hrifust þeir af
áhrifamiklum texta Einars Más,
haganlega skrifaðri leikgerðinni,
leikmyndinni og síðast en ekki síst
sterkum leik Henriks Prips sem
túlkar hinn harmræna en jafnframt
mannmarga heim Páls Ólafssonar.
Sýningin er styrkt af Máli og
menningu, Dansk Kultur Institut og
Teater og dans i Norden.
Hátíö hafsins í Reykjavíkurhöfn:
Litríkur hafnar- og sjómannadagur
Hátíð hafsins
Þaö veröur mikiö um dýröir í Reykjavíkurhöfn í dag og á
morgun þegar hafnardagurinn og sjómannadagurinn veröa
haldnir hátíölegir.
Hátíð hafsins er haldin há-
tíðleg annað árið í röð i dag
og á morgun. Fjölbreytt dag-
skrá er báða dagana á Mið-
bakkanum í gömlu höfninni.
Tilgangur hátíðarinnar er að
minna á gildi sjómennsku,
sjávarútvegs, hafnarstarfsemi
borgarinnar og hinna sterku
tengsla íslendinga við hafið.
í dag er meðal viðburða
dorgveiðikeppni, íslandsmót í
handflökun, skemmtisigling
með skólaskipinu Sæbjörgu og björg-
unartækjasýning. Sjómannadagurinn
á sunnudag er með hefðbundnu sniði
- minningarathöfn kl. 10 í Fossvogs-
kirkjugarði og formleg hátiðahöld á
Miðbakkanum kl. 14, með ávarpi sjáv-
arútvegsráðherra íslands og sjávarút-
vegsráðherra Færeyja sem er sérstak-
ur heiðursgestur. Fjölskyldudagskrá
hefst klukkutíma síðar. Fjöldi stotn-
ana, félaga, skóla og fyrir-
tækja kynna starfsemi
sína í tjöldum á hafnar-
svæðinu báða dagana.
Skip fáránleikans, með 11
listamenn um borð, eins
konar tímalaust leikhús,
er með sýningar báða dag-
ana, kl. 15 og 20. Sýningar
tengdar hafinu eru í
Listasafni Reykjavíkur,
Þjóðarbókhlöðunni, Sjó-
minjasafni íslands, Sjó-
minja- og smiðjumunasafni Jósafats
Hinrikssonar í Skútuvogi og einnig er
gamla Aðalbjörgin til sýnis á Mið-
bakkanum. -HH
Önnur umferð íslandsmeistaramótsins
í torfæru verður haldin í Jósefsdal
24. júní 2000.
Skráning er hafin.
Upplýsingar í síma 862 6450.
íslenskar Akstursfþróttir
JEPPAKLJÚBBUR
REYKJAVÍKUR,
i
ratuga
J
í gerð einangrunaigleis fyrir
íslenskar aðstæður.
Glerboigargler er framleitt undir gæðaeftirliti
Rannsóknastofiiunar byggingariðnaðarins.
GLERBORG
Dalshraum 5 220 Hafnarfirði Sími 565 0000
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðift kl. 20.00:
LANDKRABBINN
eftir Ragnar Arnalds
í kvöld lau. 3/6, miö. 7/6, næst síöasta
sýnlng, miö. 14/6, slöasta sýning.
GLANNI GLÆPUR í LATA-
BÆ
eftir Magnús Scheving og Sigurð
Sigurjónsson
Sun. 4/6 kl. 14, nokkur sæti laus og sun.
18/6 kl. 14. Síöustu sýningar leikársins.
Sföustu sýningar leikársins.
KOMDU NÆR
eftir Patrick Marber
Sun. 4/6, næst síöasta sýning og fös.
9/6, slöasta sýning.
Svningin er hvorki við hæfi barna né
viðkvæmra.
DRAUMURA
JÓNSMESSUNÓTT
eftir William Shakespeare
Fim. 8/6, nokkur sæti laus, fim. 15/6.
Síöustu sýningar leikársins.
LUIa §viQM> M, gQ,3Q;
HÆGAN, ELEKTRA
eftir Hrafnhildi Hagalín
Guömundsdóttur
f kvöld lau. 3/6, örfá sæti laus og sun.
4/6, uppselt, aukasýning miö. 7/6.
Síöustu sýningar.
Miöasalan er opin mán.-þri. kl.
13-18, miö.-sun. kl. 13-20.
Símapantanir frá kl. 10 virka daga.
S. 551 1200
thorey@theatre.is
Smáauglýsingar
ertu aö kaupa
eöa selja?
550 5000