Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000
11
DV
Skoðun
Skoðanir annarra
Það er komin grind
Þekkt er ýmis skringileg hegðan
spendýra og þó einkum fugla við
pörun. Karldýrin grípa þá til undar-
legustu kúnsta til þess að ganga i
augun á kvendýrunum, auk þeirra
sérkenna sem náttúran sjálf hefur
skapað þeim. Karlfuglar eru til
dæmis oft mun skrautlegri en kven-
fuglar sömu tegundar, litskrúðugir
og fjaðramiklir. Þessu finirli sínu,
hoppi margvíslegu, sem og meint-
um flflalátum, beita þeir óspart til
þess að ganga í augun á litlausari
en eftirsóttum kvensunum.
Ekki allt gáfulegt
í mannheimi gerist einnig margt
í þessa veru þótt kvendýrið sé alla
jafna heldur skrautlegra en karldýr-
ið. Það þarf ekki atferlisfræðinga til
svo greina megi hina undarlegustu
hegðan ungra karla í návist jafn-
aldra sinna af kvenkyni. Þeim dett-
ur ýmislegt í hug og ekki allt gáfu-
legt til þess að vekja athygli á sér.
Þeir hafa hvorki kamb né litskrúð-
ugar fjaðrir og verða því að beita
öðru til þess að ná árangri. Því
reyna ungir menn til dæmis ýmsar
hárkúnstir, lita hár sitt, láta það
vaxa frjálslega eða klippa það jafn-
vel allt af. Sumir láta sér vaxa skegg
en öörum reynist það örðugt fyrir
æsku- og skeggleysissakir.
Til er það að ungsveinar í þessari
stöðu drekki frá sér ráð og rænu í
þeirri von að á ákveðnu stigi ölvun-
arinnar vaxi þeim kjarkur og þor til
þess að fara á fjörur við eðla meyj-
ar. Vafasamt er þó að mæla með að-
ferðinni því ofurölvi sveinar vekja
annaðhvort viðbjóð meyjanna eða í
mesta lagi meðaumkun. Það er ekki
það sem stefnt er að.
Prýði sem eftir er tekið
Þá kann það að vera árangursríkt
að beita því sem aðskilur kynin.
Karlkynið er að jafnaði líkamlega
sterkara en kvenkynið. Þessari
staðreynd hafa strákar frá önd-
verðu beitt til þess að reyna að
ganga í augun á stelpunum. Slags-
mál eru alþekktur máti og krafta-
della ýmiss konar. Eflaust hafa
sumir þeirra tilburða litil áhrif á
kvenfólkið en þó kann það að hrífa
berjist menn beinlínis vegna stúlku.
Þá er hugsanlegt að sigurvegarinn
nái að hjartarótum drauma-
prinsessunnar. Það er að minnsta
kosti venjan í dýraríkinu að sá
sterki hreppir hnossið.
Enn er það eitt sem vænlegt hef-
ur þótt. Það er dugnaður og hörð
framganga við störf þar sem reynir
á líkamlegan styrk. Dæmi þess geta
verið margs konar: barátta við stóð,
fé í réttum, sjómennska og fleira
sem herðir menn af átökum. Tækni-
vætt nútímasamfélagið hefur að
vísu dregið úr möguleikum
hraustra sveina á þessu sviði. Þar
hafa menn þó fundið ráð, til dæmis
í líkams- og vaxtarrækt af fjöl-
breytilegasta toga. Stæltir brjóst-,
kvið- og upphandleggsvöðvar eru
prýði sem eftir er tekið.
Þorpið iðaði
Pistilskrifari varð óvænt vitni að
sýningu á dögunum þar sem reyndi
á karlmennsku og þor og um leið
aðdáun kvenna. Enginn sagði neitt
en látbragðið var augljóst. Það var
morgunn í "færeyska bænum
Klakksvík. Þangað vorum við hjón
komin með ellefu ára dóttur okkar,
Ég stökk hins vegar til
með heimilismyndavél-
ina og myndaði í gríð og
erg. Konan, önnum kafin
við að vemda barnið frá
Ijótleika tilverunnar,
spurði þó hvort ég vœri
kominn á samning hjá
Dimmalætting eða Sósí-
alnum um leið og hún
minnti migá að vél þessi
vœri til heimilisbrúks.
í stuttu stoppi, til þess að kynnast
Færeyingum og Færeyjum í fyrstu
ferð okkar þangað. Við áttum ekki
von á neinu sérstöku nema náttúru-
fegurð eyjanna og þægilegu viðmóti
íbúanna. Eftir næturgistingu geng-
um við um götur kaupstaðarins,
heimsóttum stóra og glæsilega
syntu hratt og beint í opinn dauð-
ann. Þeir lyftu sér úr sjó svo skein
á svört bök og bakugga. Dóttir okk-
ar, vön myndum af Keikó og höfr-
ungum í kvikmyndum, hreifst af
fallegum dýrunum. Móðir hennar
ákvað að snúa henni frá blóðbaðinu
sem blasti við.
Blóðrauður sjór
Ég stökk hins vegar til með heim-
ilismyndavélina og myndaði í gríð
og erg. Konan, önnum kafin við að
vernda barnið frá ljótleika tilver-
unnar, spurði þó hvort ég væri
kominn á samning hjá Dimmalætt-
ing eða Sósíalnum um leið og hún
minnti mig á að vél þessi væri til
heimilisbrúks. Ég svaraði því engu
því strákarnir voru rétt í þessu að
reka fyrstu dýrin á land. Þeir ýmist
stukku frá borði eða landmenn óðu
út i, kræktu í dýrin eða bundu með
kaðli og drógu í land. Þar voru höfð
snör handtök, skorið þvert yflr önd-
unarop dýrsins og sveðju stungið í
það. Hvert dýr var drepið með einni
stungu en hjartað dældi blóði svo
það spýttist reglulega úr sárinu.
Sjórinn litaðist blóðrauður.
Þanið brjóst og sperrt stél
Allt þetta tók undrastuttan tíma.
Á skammri stundu lágu tugir hvala
skomir í fjörunni. Blóðugir og
blautir strákar á öllum aldri tóku
saman tólin, slíðruðu sverð sín og
litu upp. Það var þá sem þeir inn-
heimtu það sem þeir áttu. Þeir
horfðust í augu við konurnar sem
höfðu fylgst með. Aðdáunin leyndi
sér ekki. Það sást á göngulagi pilt-
anna upp úr fjörunni að erfiðið
hafði borgað sig. Brjóstið var þanið
og stélið sperrt. Kátastir voru þeir
sem helltu sjó úr stígvélum, struku
blóð af buxum og peysu en leyfðu
blóðinu að storkna á andliti. Það
var merki hreystinnar. Konur sem
komust ekki á vettvang vegna
skyldustarfa fylgdust engu að síður
með. Bankastúlkumar héngu bein-
línis út um gluggana til þess að sjá
hetjurnar. Náttúran er söm við sig.
Vextimir hafa væntanlega verið
færðir inn síðar.
SÞ taki þátt í stríöi
„Fyrrverandi utanríkisráðherra
Alsírs, Lakhdar Brahimi, kynnti ný-
lega á vegum Kofls Annans skýrslu
um friðarstörf Sameinuðu þjóðanna,
SÞ. í henni eru staðfest grundvall-
armistök við fjölda aðgerða. Brahimi
leggur ekki til að Sameinuðu þjóðirn-
ar hætti friðarstörfum sínum. Það er
heldur ekki mat hans að Öryggisráð-
ið og framkvæmdastjórnin eigi að
láta NATO, Afríkulönd eða samtök á
viðkomandi svæðum sjá um hernað-
araðgerðir þegar friðargæsluliðar
eiga á hættu að mæta vopnuðum að-
ilum. SÞ eiga að taka snemma þátt í
lausn deilna. Takist ekki að leysa
þær með umræðum á hersveit á veg-
um SÞ að grípa inn í.“
Úr forystugrein Aftonbladet 6.
september
kirkjuna og skoðuðum rólegt mann-
lífið. Staðurinn minnti á austfirskt
sjávarpláss við lygnan fjarðarbotn,
umlukinn háum fjöllum. Þá fór
skyndilega allt af stað. Það var sem
þorpið iðaði. Fréttin barst sem eld-
ur í sinu. Það var að koma grind.
í opinn dauðann
Það er aldalöng hefð fyrir grind-
hvaladrápi Færeyinga. Þeir fmna
hvalavöðurnar út af eyjunum og
reka þær inn á flrðina og skera
hvalina í fjöruborðinu. Við höfum
séð myndir af þessu og heyrt gagn-
rýnisraddir gegn miskunnarlausu
drápinu. Síðast í sumar barðist sá
alræmdi hvalfriðunarsinni Paul
Watson harkalega gegn þessu drápi
nágranna okkar. Færeyingar vísa
allri gagnrýni út í hafsauga. Með
veiðunum séu þeir að nýta auðlind-
ir sínar og fyrir þeim sé löng hefð.
Þá sé skipting aflans háð ströngum
reglum svo hver íbúi fái sitt.
Við hugsuðum þó lítt um Watson
og félaga þegar vænta mátti grind-
arinnar. Spennan náði sömu tökum
á okkur og innfæddum. Tilviljun
ein réð því að við urðum vitni að
frægri en umdeildri veiðiaðferð
Færeyinga. Fólkið þusti niður að
sjó og horfði til hafs. Við lika. Eftir
skamma stund sást til fjölda báta á
hraðri siglingu inn fjörðinn. Þeir
mynduðu girðingu stranda á milli
þar sem þeir ráku grindhvalavöð-
una á undan sér. Smáhvalirnir
Vollebæk rétti maðurinn
„Knut Volle-
bæk er eins og
skapaður fyrir
störf í alþjóða-
stofnunum. Fáir
standa honum á
sporði á alþjóða-
vettvangi vegna
tungumálakunn-
áttu hans,
diplómatískrar
reynslu, atorku og hæflleika til að
umgangast fólk með alls kyns bak-
grunn. Þess vegna er hann fyrirtaks
frambjóðandi sem yfirmaður flótta-
mannastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna. Sérstaklega vegna þess að í við-
bót við aðra hæfni sína býr hann yf-
ir því sem nauðsynlegast er fyrir
svona starf: brennandi áhuga á þess
lags mannúðarstörfum.“
Úr forystugrein Aftenposten 6.
september.
Nú er nóg komið
„Frammistaða ríkisstjórnarinnar
vegna reiðarinnar yfir eldsneytis-
verðinu vekur undrun af því að hún
gaf mikið eftir án þess að fá mikið í
staðinn. Tilslakanirnar sem fiski-
mennirnir fengu gátu ekki annað en
hvatt aðra til að hafa uppi kröfur, á
sama tíma og stjórnin eyddi púðri
sínu í að afnema bifreiðaskattinn.
Þessi aðgerð, sem er bæði dýr og
óréttlát og erflð fyrir Græningja að
kyngja, gat ekki leitt til annars en að
þeir brygðust ókvæða við öðrum til-
slökunum. Þegar allt kemur til alls er
í þeirra augum nóg komið þegar
komið er nóg. En ástæðurnar fyrir
því að hafna of mikilli lækkun skatta
á eldsneyti eru ekki bara vistfræði-
legar. Slík lækkun myndi verða til
þess að olíuframleiðendur héldu í
malthusíska stefnu sína um lítið
framboð á olíu og þess vegna dýra.“
Úr forystugrein Libération 7.
september.
Lögleysa í Evrópu
„Serbía hefur í rúman áratug ver-
ið alvarlegt vandamál í Evrópu og
það er eins og
vandamálið versni
samtímis því sem
önnur skúrkariki
eins og Irak, Kúba
og Norður-Kórea
reyna af veikum
mætti að bæta sig.
Að undanfórnu
hefur lögleysan
verið áberandi fyrir kosningarnar
sem haldnar verða 24. september
næstkomandi. Óupplýst hryðju-
verkamorð, handtökur og ósann-
gjarnar refsingar fyrir smávægilegar
pólítískar syndir hafa valdið ótta og
öngþveiti. í sjálfu sér er þetta ekkert
nýtt. Slobodan Milosevic Júgóslavíu-
forseti hefur beitt þessum vopnum til
að halda sér við völd. Orðrómur er á
kreiki um að Milosevic og menn
hans séu að koma sér upp lager af
gíslum sem hann geti skipt á fyrir
fangana í stríðsglæpafangelsi Sam-
einuðu þjóðanna í Haag. Það óþægi-
lega og ótrúlega er auðvitað að þetta
skuli eiga sér stað í Evrópu nútím-
ans, í landi sem Evrópusambandið
viðurkennir og sem enn á sæti í Sam-
einuðu þjóðunum."
Úr forystugrein Jyllands-Posten
4. september