Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000
31
Helgarblað
Ekkert varöandi kynlífiö er
okkur óviökomandi.
V-nal
Cream
for legs and feet
V-nalvinnuf
V nal lettif
Far beautifui. smooth
and heaJthy legs
Fæst I Apótekinu, Lyfju, Lyf og heilsu og apótekum landsins.
Troöfull búö af spennandi
unaösvörum ástalífsins
fyrir dömur og herra.
Opiö
nán.-fös, 10-18 _ , ,
laug.10-1B fÖJ
Fákaferti 9 • S, 553 1300
Utsala, utsala
Bára bleika hefur auglýst útsölu í verslun sinni. Allt á að seljast, bæði lager sem innanstokksmunir. „ Tískan í dag er meira fyrir þær kornungu enda
finnst mér verslanir hér í bæ ekki hugsa nógu vel um konurnar heldur aðeins ungu stúlkurnar, “ segir Bára sem hefur sérhæft sig í sölu
á klassískum fatnaði fyrir konur í 50 ár.
Bára Sigurjónsdóttir hefur rekið bleikustu verslun landsins í tæpa hálfa öld:
Fimmtíu ár í fatabransanum
Bleikur í uppáhaldi
Bára segir aö bleikur sé þægilegur litur
sem klæðir flestar konur vel.
Sér ekki eftir neinu
Síðan Bára auglýsti útsöluna
fyrir þremur vikum síðan hef-
ur heldur betur verið nóg að
gera i versluninni. Planið er
ekki bara að selja allan
fatalagerinn heldur einnig inn-
anstokksmunina eins og þeir
leggja sig.
„Það er mikið af speglum,
ljósakrónum og öðrum antik-
munum frá Ítalíu, Frakklandi
og Danmörku sem við erum að
selja,“ segir Bára og bendir í
kringum sig. Henni þykir greini-
lega vænt um alla þessa hluti.
Hún hefur gengið undir nafninu
Bára bleika og rekið kvenfataversl-
un á Hverfisgötunni í tæp 50 ár. Nú
hefur verslunarkonan Bára Sigur-
jónsdóttir hins vegar ákveðið að
hætta verslunarrekstri og auglýsir
útsölu í bleikustu verslun landsins.
„Mér finnst vera kominn tíma á
það að hætta eins og þú getur rétt
ímyndað þér eftir tæp 50 ár í brans-
anum. Það er timi til kominn að
sinna börnum og bamabörnum. Þú
rekur nefnilega ekki svona fyrir-
tæki nema fórna einhverju í stað-
inn. Og þar sem ég er orðin þetta
fullorðin ætla ég að reyna að nota
tímann í hluti sem mig hefur lengi
langað til þess að gera,“ segir Bára.
Fiskur dag eftir dag
Bára sem er nýflutt í Hafnarfjörð-
inn, fæðingarbæ sinn, hefur engar
áhyggjur af því að henni eigi eftir
að leiðast þegar hún lokar verslun-
inni endanlega.
„Mér leiðist aldrei einni. Það er
svo gaman að lifa, lífið er svo dá-
samlegt. Ég hef alltaf nóg að gera og
skemmti mér alltaf, ég hlýt að vera
svona skemmtileg," hlær Bára og
aðstoðarstúlkur hennar í verslun-
inni taka undir.
„Ef fleiri hefðu sama lífsviðhorf
og Bára myndi fólk eldast mun bet-
ur,“ skýtur aðstoðarstúlkan Ema
inn í en engum dylst að Bára ber
sín 78 ár óvenju vel.
skyndibitastaður
til sölu
18 lítra og 800 watta, nettur örbylgjuofn býðst nú á góðu verði.
Fínn í upphitun, prýðilegur í samlokugerð.góður fyrir ýmsa
smárétti og pottþéttur poppari. Staðsetning er mjög miðsvæðis
og opnunartími sveigjanlegur.
Verði þér að góðu
^ 12*900
„Ég hef alltaf verið afskaplega
heilsuhraust. Ég tek engin vítamín
en aftur á móti borða ég mikið af
fiski,“ segir Bára og gefur ekki
meira upp varðandi leyndarmálið á
bak við sitt góða útlit.
Alltaf veriö með gott starfs-
fólk
Á þessum 50 ámm, sem verslunin
hefur starfað, hafa ýmsar tísku-
sveiflur verið í gangi en Bára hefur
þó aðallega haldið sig við klassísk-
an fatnað frá Ameríku. „Ég hef
voðalega gaman að því þegar hingað
koma konur sem segjast hafa keypt
kjól hjá mér fyrir 15 árum sem þær
eiga og nota enn og fmnst alltaf jafn-
góður,“ segir Bára sem kann alls
ekki illa við viðurnefnið Bára
bleika.
„Þaö er tilkomið út af litnum á
versluninni. Ég féll fyrir þessum lit
fyrir fjöldamörgum árum og lét
mála verslunina í honum bæði að
utan sem innan. Þetta er þægilegur
litur, góður bakgrunnur og klæðir
líka flestaflar konur vel,“ segir Bára
sem sjálf hefur gengið mikið í
bleiku gegnum tíðina.
En hver er galdurinn á bak við vel
lukkaðan verslunarrekstur?
„Ég hef fyrst og fremst alltaf haft
afskaplega gott starfsfólk. Ég hef
verið með afgreiðslustúlkur sem
hafa verið hér i 20 til 25 ár. Við tök-
um afltaf afskaplega vel á móti við-
skiptavininum og reynum að
skapa þannig stemningu að
honum líði vel þegar hann
kemur inn, hvort sem bara er
verið að skoða eða ekki. Al-
mennileg þjónusta er vand-
fundin hér í Reykjavík enda er
þjónustulund ekki í lundarfari
íslendinga. Svo gengur enginn
atvinnurekstur ef þú ert ekki
að fylgjast með því sjálf, sama
hversu gott starfsfólk þú ert
með. Eigandinn er alltaf lífið
og sálin í rekstrinum," upplýs-
ir Bára.
2800
www.ormsson.is
sHARP
Hvaða hlut muntu sjá mest eftir?
„Engum. Þegar maður er búinn
að taka svona ákvörðun þá sér mað-
ur ekki eftir neinu, það er svo
margt annað sem bíður min,“ segir
Bára að lokum. -snæ
í...
afi l