Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 53
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000
61
I>V
Tilvera
Ólympíumótið í Maastricht 2000:
ísland komst í
átta liða úrslit
Myndasögur
íslenska landsliðið í bridge lauk
keppni á Ólympíumótinu i
Maastricht er það tapaði fyrir lands-
liði Pólverja með nokkrum mun í
átta liða úrslitum mótsins. Að sögn
fyrirliðans, Guðmundar Páls Arnar-
sonar, var frammistaða landsliðsins
mjög góð og fór reyndar fram úr
hans björtustu vonum.
Pólverjarnir voru búnir að bíða
lengi eftir því að hefna ófaranna frá
því í Japan 1991, þegar íslendingar
unnu þá í úrslitaleik um heims-
meistaratitilinn og Bermúda-skál-
ina. Þeir gerðu nánast út um leik-
inn í fyrstu 16 spilunum, sem þeir
unnu 68-4.
Eins og kunnugt er af fréttum
náði ísland fjórða sæti i sínum riðli
og þar með sæti í 16 liða úrslitum.
Sveitin skoraöi 313 stig eða að með-
altali 18,41 stig í leik. í 16 liða úr-
slitum spiluðu þeir við sterkt lið
Hollendinga sem þeir unnu með
glæsibrag. Glæsileg frammistaða
islenska landsliðsins og vonandi
byrjun frekari afreka i náinni
framtíð.
Þegar þetta er skrifað er einvígi
um ólympíumeistaratitilinn nýhafið
en það eru Ítalía og Pólland sem
spila í opna flokknum og Bandarik-
in og Kanada í kvennaflokki. ítalir
unnu Englendinga í öðrum undan-
úrslitaleiknum, meðan Pólland valt-
aði yfir Bandaríkjamenn. Allt stefn-
ir því í mjög spennandi úrslitaleik
og erfitt að spá um úrslit. Pólverjar
virðast samt í miklu stuði en það er
við ramman reip að draga þar sem
ítalir eru.
ísland spilaði við Kína í þriðju
umferð riðlakeppninnar en bæði
þessi lönd voru talin eiga möguleika
á sextán liða úrslitasæti. Mótsblaðið
fylgdist með leiknum og við skulum
skoða eitt spil með þeim.
V/Allir * 1098752
V 4
♦ 3
4 D8632
4 G6
«f A1082
4 A985
4 954
N
V A
S
4 AD4
«* DG5
4 KDG642
4 7
4 K3
«4 K9763
♦ 107
4 AKGIO
í opna salnum sátu n-s Wang og
Zhuang en a-v Þorlákur og Matthí-
as.
Sagnir gengu þannig:
SUÐUR VESTUR NORÐUR AUSTUR
1 *» pass pass 3 4
pass 3 grönd pass pass
pass
Þetta er ekki mjög glæsilegur
lokasamningur en Matthías var í
töluverðum vanda. Hann vissi ekki
að fimm tíglar væru svo góður
samningur eins og raun bar vitni.
Þegar Wang hins vegar spilaði út
hjartaeinspilinu voru 11 slagir upp-
Stefán
Guðjohnsen
skrifar um bridge
lagðir og Matthias var nokkuð
ánægður með sinn hlut.
í lokaða salnum voru Aðalsteinn
og Sverrir að hefja sinn fyrsta leik í
mótinu og það er ávallt dálítið
erfitt. Andstæðingar þeirra voru
Dai og Shi. Það var meira fjör í
sögnunum núna:
SUÐUR VESTUR NORÐUR AUSTUR
1 * pass 2 v* 3 tíglar
pass 3 grönd pass pass
dobl pass pass redobl
pass pass pass
* Yfirfærsla í spaða.
Tuttugu og sex impar ultu nú á
útspili Aðalsteins og því miður spil-
aði hann út hjarta. Það voru 11 slag-
ir til Kínverjanna sem skrifuðu 1200
í sinn dálk og 12 impa.
Dobl Sverris er nokkuð vafasamt,
jafnvel þótt hann hafi talið að það
væri beiðni um laufútspil. Þetta er
hins vegar staða sem er órædd hjá
mörgum pörum og mér er næst að
halda að svo hafi einnig verið hér.
Alla vega taldi Aðalsteinn að þetta
væri beiðni um hjartaútspil og ég er
alveg sammála því. Hins vegar kem-
ur til greina að nota þetta sem
beiðni um útspil í þriðja lit, þegar
menn hafa meldað tvo og Sverrir
hefur áreiðanlega vonast eftir því.
Þessi leikur var ekki mjög vel
spilaður en engu að siður vann ís-
land leikinn 18-12 og var komið á
fljúgandi ferð í sextán liða úrslit.
Myndgátan
'Nú er ég búinn að reikna út hversu mörg • -
sandkorn eru i öllum. heiminum. Sólveig. ,
Þau eru V34öCj3.8ól.Ooo ooo ooo ooo ooo ooo
J^"
Hamingjan sanna!
Það er eins gott að ég
komist strax til hans.
Heynói strákar! Er ykkur sama þótt ég
spilí mig i gegn?