Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 Fréttir DV Vítahringur ofbeldis og ótta heldur íbúum Kólumbíu í heljargreipum: Byssur um allt og börn komin í skotheld vesti Ráðíst gegn eiturlyfjakóngum Kólumbískur fikniefnalögreglumadur gefur flugmanni Black Hawk þyrlu leiöbeiningar eftir aö ráöist haföi veriö til at- lögu gegn kókaínverksmiöju rétt hjá borginni Catatumbo í Kólumbíu noröaustanveröri. „Hver einasti Kólumbíubúi er hræddur, jafnvel börnin.“ Þannig lýsir Alberto Villamizar, fyrrum þingmaður og diplómat, ástandinu í heimalandi sínu, Suður- Ameríkuríkinu Kólumbíu, í viðtali við fréttaritara bandaríska dag- blaðsins Miami Herald. Og íbúar Kólumbíu hafa fyllstu ástæðu til að óttast um líf sitt. Tíðni morða er þar tíu sinnum meiri en í Bandaríkjunum. Á tuttugu mínútna fresti, að meðaltali, fellur Kól- umbíumaður fyrir morðingja hendi, eða tæplega sjötíu manns á hverjum sólarhring. Fjöldamorð eru framin þar tvisvar eða þrisvar í viku. Enda segir fréttaritari Miami Herald að byssur séu hvarvetna og jafnvel sé farið að selja skothelda jakka fyrir bömin. Og mannrán eru nær dag- legt brauð. Aöeins ilit verra Já, vítahringur ofbeldis og ótta heldur landsmönnum í heljargreip- um. Og það sem verra er, hver ein- asta tilraun til að lækna þetta mikla þjóðarmein hefur aðeins gert illt verra, hingað til að minnsta kosti. Kólumbíumenn gera sér þó vonir um að betri tíð sé í vændum. Bill Clinton Bandaríkjaforseti kom þangað í eins dags heimsókn um síðustu mánaðamót (ráðgjafar hans töldu ástandið í Kólumbíu svo hættulegt að ekki væri forsvaran- iegt að voldugasti maður heims gisti þar, ekki svo mikið sem eina nótt) og lofaði þeim sem svarar eitt hundrað milljörðum íslenskra króna til að berjast gegn óvinunum tveimur: skæruliðum og eiturlyfja- bröskurum. Langmestur hluti þess fjár rennur til kólumbíska hersins. Framlag Bandaríkjamanna er ekki nema tæpur fimmtungur þess flár sem stjómvöld í Kólumbíu, með Andres Pastrana forseta í broddi fylkingar, ætla að leggja í baráttuna gegn skæruliða- og eiturlyfjabölinu. Styðja Kanann Mikill meirihluti kólumbísku þjóðarinnar er hlynntur aðstoð Bandaríkjamanna. Landsmenn eru tilbúnir til að sætta sig við veru bandarískra hermanna í landinu, og rúmur helmingur segist jafnvel fylgjandi bandarískri innrás ef það gæti orðið til að koma á langþráð- um friði í landinu. Ekki má þó gleyma hinum, þótt í minnihluta séu, sem eru algjörlega andvígir aðstoð bandariskra stjórn- valda og líta á hana sem heims- valdastefnu af þeirra hálfu. Náms- menn efndu til mótmæla víða um Kólumbíu í tilefni heimsóknar Clintons á dögunum og skæruliðar heilsuðu honum með fjölda árása. Clinton lofaðí Kólumbíumönnum hins vegar aðstoðin bæri ekki vott um heimsvaldastefnu af hálfu stjómvalda í Washington og hann lofaði enn fremur því að bandarísk- ir hermenn myndu ekki sökkva í stríðsfen eins og gerðist í Víetnam fyrir þremur áratugum, eða svo. Glórulaust ofbeldi Átökin milli stjómarhersins og skæruliða eru ekki ný af nálinni í Kólumbíu. Þau má rekja allt aftur til sjötta áratugarins, eftir borgara- styrjöldina sem þarlendir kalla La Violencia, eða ofbeldisárin. Allar götur síðan hefur ofbeldið aðeins magnast með hverju árinu sem líð- ur og er nú gjörsamlega glórulaust, að mati þeirra sem til þekkja. Það sem hóf göngu síðan sem einhvers konar vinstrisinnuð mótmælahreyf- ing er nú orðið að sjúklegri baráttu um eiturlyf, völd, milljarða dollara, hefnd og hreina mannvonsku, að því er best verður séð. Talið er að stærsti skæruliðahóp- urinn, FARC, hafi fimmtán til þús- und menn undir vopnum, aðallega ómenntaða unglinga úr sveitum landsins. Annar hópur skæruliða, ELN, hefur einhverjar þúsundir manna innan sinna vébanda og sömuleiðis vígasveitir hægrimanna. Kólumbíski herinn er nánast úr leik í meira en helmingi landsins. Skæruliðar hcifa auðgast á fjár- kúgun, mannránum og á því að halda hliflskildi yfir eiturlyfjabar- ónum. Vígasveitir hægrimanna eru einnig flæktar í eiturlyfjasöluna. Engin rómantík hér „Þetta eru ekki neinir voteygir rómantíkerar sem hafa velferð kól- umbísku þjóðarinnar að leiðar- ljósi,“ sagði William Cohen, land- varnaráðherra Bandaríkjanna, í apríl þegar hann mælti fyrir hundr- að milljarða króna aðstoðinni við kólumbísk stjómvöld. Kólumbía er helsta framleiðslu- land kókaíns í heiminum, 520 tonn á síðasta ári, að sögn bandarísku leyniþjónustunnar CIA, og hin síðari ár hefur framleiðsla heróins færst mjög í aukana. Er nú svo komið að meirihluti heróíns á götum Banda- ríkjanna kemur frá Kólumbíu. Geta ekki hætt Fréttaskýrendur segja margir hverjir að þátttakendur í stríðsátök- unum í Kólumbíu hvorki vilji né geti hætt. Fjármunirnir sem um er aö tefla í eiturlyfjasölunni hafa lengi gegnsýrt kólumbískt þjóðlíf og spillt embættismönnum allt inn í þingsalina. Dómstólar landsins starfa ekki heldur sem skyldi af sömu ástæðu. I helstu stórborgum landsins, Bogota, Medellin og Cali, er morð algengasta dánarorsökin. Það var ekki fyrr en á tíunda ára- tugnum sem Kólumbíumenn gerðu sér raunverulega grein fyrir um- fangi vandans sem við var að glíma. Eiturlyfjaforinginn Pablo Escobar frá Medellin hélt uppi eigin her í upphafi áratugarins og efndi til sprengjuherferðar gegn ríkisvald- inu til að fá hnekkt lögum um að framselja mætti eiturlyfjasala til Bandaríkjanna. Escobar tókst ætlunarverk sitt en honum varð þó ekki langra lífdaga auðið. Eiturlyfjakóngurinn féll í skotbardaga við lögreglu árið 1992. Bjartsýni með Pastrana Kólumbíumenn fylltust bjartsýni þegar Andres Pastrana var kjörinn forseti fyrir tveimur árum. Það bjartsýniskast stóð þó stutt yfir. Pastrana hafði lofað að ná friðar- samningum við skæruliða og víga- sveitir hægrimanna. Honum tókst meira að segja að lokka foringja þeirra út úr frumskóginum eða ofan af fjöllum til viðræðna, til dæmis í Þýskalandi. Vonir manna um frið urðu þó að engu áður en langt um leið. Stríð- andi fylkingar hafa hert baráttu sína til mikilla muna síðustu miss- erin, hugsanlega til að styrkja stöðu sína þegar samningaviðræður um frið hefjast af einhverri alvöru. Op- inberlega eru friðarviðræður enn í gangi en ekkert er talað saman. Hin raunverulegu völd Kólumbíska sjónvarpsstöðin Canal Caracol lét gera skoðana- könnun í júlí þar sem þátttakendur voru spurðir hver hefði mest völd í Kólumbíu um þessar mundir, að mati þeirra. Svörin komu kannski ekki á óvart. Valdamesti maðurinn, að mati 46 prósenta aðspurðra, er Manuel Marulanda, eða Skyttan, eins og hann er líka kallaður, for- ingi FARC skæruliðasamtakanna. Bandarísk stjórnvöld urðu í öðru sæti, með 31 prósent atkvæða. Að- eins tíu prósent töldu að réttkjörinn forseti Kólumbíu, Andres Pastrana, hefði þar mest völd. Fjöldi á flótta Styrjaldarátökin í Kólumbíu hafa orðið til þess að mikill fjöldi manna hefur þurft að yfirgefa heimili sín. Tölur eru á reiki um hversu margir þeir eru. Stjóm Pastrana segir að þrjú hundruð þúsund manns hafl lagt á flótta á undanfórnum árum en bandarísk flóttamannasamtök segja að flóttamenn séu 1,8 milljón- ir. Kirkjunnar menn í Kólumbíu hafa reynt að gera sér grein fyrir ástandinu og þeir telja að hálf millj- ón manna sé á flótta, þótt þeir játi að enginn viti það með vissu. „Enginn hefur tölurnar á reiðum höndum,“ segir Nel H. Beltran, kaþ- ólski biskupinn í borginni Sincelejo í héraði Sucre. „Það sem við vitum þó er að ástandið er mjög slæmt. Það sundrar íjölskyldum, veldur hræðilegu álagi og brennimerkir. Þetta er erfiðasta vandamálið sem við er að glíma í Kólumbíu núna.“ Byggt á Miami Herald, Jyllands- Posten, Washington Post, Boston Globe, o.fl. Brosmildir forsetar Vel fór á meö þeim Bill Clinton Bandaríkjaforseta og Andres Pastrana Kól- umóíuforseta í heimsókn Clintons til borgarinnar Cartagena i ágústlok. Clint- on kom færandi hendi, meö eitt hundraö milljarða króna gegn eiturkóngum. Bandaríkjaforseta mótmælt Þótt meirihluti íbúa Kólumbíu sé hlynntur aöstoö Bandarikjanna i baráttunni gegn eiturlyfjaframleiöendum og skæruliöum uröu margir til að mótmæla heimsókn Clintons forseta til Kólumbíu um síöustu mánaöamót.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.