Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 Fréttir_____________________________________py Gert ráð fyrir 120 megavatta virkjun við Búðarháls: Hjákátlegt að ork- an öll fari úr héraði - segir Jónas Jónsson, oddviti Ásahrepps Á Suðurlandi er mesta upp- spretta raforkunnar hér á landi. Þar hefur verið gerð hver stór- virkjunin á fætur annarri. Á Tungnaár-Þjórsársvæðinu er nú orðið net stórra virkjana. Þar eru í dag hagkvæmustu virkjunarkost- imir og fer þar saman mikil vatns- miðlun sem er búið aö koma upp og að vegalagnir og aðrar sam- göngur nýtast þar vel. En þó að Suðurlandið sé fram- leiðslustaður orkunnar er að sama skapi lítið um að unnið sé úr henni í fjórðungnum. Sunnlensk iðnfyrirtæki hafa nýtt sér hana en lítið sem ekkert er um að beinlínis hafi verið byggður upp iðnaður á Suðurlandi gagngert með það fyrir augum að nota orkuna úr sunn- lensku fljótunum. Því er Suður- landið eins konar námubær í fram- leiðslu orkunnar sem fer þaðan í aðra landshluta til nýtingar. Búöarhálsvirkjun Landsvirkjun hélt kynningarfund um Búðarháísvirkjun á Laugalandi í Holtum á þriðjudagskvöldið. Þar var farið yfir frumdrög að hönnun virkjunarinnar, stíflugerð, uppi- stööulón, væntanlegt línustæði frá henni og vegaframkvæmdir. Ráð- gert er að Búðarhálsvirkjun verði byggð neðan við Hrauneyjafoss- virkjun. Með byggingu hennar er verið að virkja síðasta nýtanlega fallið í Tungnaá, milli Þórisvatns og Búrfellsvirkjunar. Við framkvæmd- ina er fyrirhugað að stifla Köldu- kvisl skammt ofan ármótanna við Tungnaá og yfir farveg Sporðöldu- kvíslar þar nokkru ofar. Við það verður til 7 ferkílómetra lón, Sporð- öldulón. Fyrirhugað er að stíflan verði 2300 metra löng og rísi 24 metra þar sem hún verður hæst. Gert er ráð fyrir að frá uppistöðu- lóninu verði aðrennslisskurður að 4 km löngum jarðgöngum í gegnum Búðarháls að stöðvarhúsinu sem verður að mestu leyti grafið í jörð við Sultartangalón. Fallhæðin sem næst við virkjunina er 40 metrar og afl hennar er ráðgert að verði 120 megavött og orkuvinnslugetan 520 gígavattstundir. Viö framkvæmdina er ráðgert að vegur verði lagður aö stöðvarhús- inu yfir Búðarháls og Tungná brúuð nálægt núverandi kláfferju við Hald. Þurfum alltaf að hafa virkjunarkostl tiltæka „Það er ekki vitað enn hvort far- ið verður út í þessa framkvæmd í beinu framhaldi af Vatnsfellsvirkj- un, en það er ýmislegt sem bendir til þess, það eru fyrirtæki sem hafa sýnt áhuga á rafmagni. En það þarf náttúrlega að semja um söluna á rafmagninu og Landsvirkjun þarf alltaf að hafa einhverja virkjunar- kosti tiltæka. Það er alveg sama hvernig virkjanir eru byggðar, þær verða allar að fara í ákveðið ferli áður en til framkvæmda kemur, umhverflsmat og slíkt,“ sagði Ey- steinn Hafberg, verkfræðingur hjá Landsvirkjun. Þó að Búðarháls- virkjun sé síðasta þrepið á milli Þórisvatns og Búrfells er ekki kom- ið að enda nýtingar Tungnár-Þjórs- ársvæðisins í orkuvinnslu. „Það hefur verið talað um Kvislaveitu 6 og virkjunarmöguleika í Þjórsá, Norðlingaölduveitu og reyndar virkjun þar líka. Allt eru þetta hlut- ir sem hafa verið í umræðunni, en það er óvirkjað vatn í Þjórsá niður að Sultartanga. Helstu möguleikam- ir sem hafa verið ræddir að undan- fomu eru að taka hluta af Kvísla- veita 6 og svo við Norðlingaöldu," sagði Eysteinn Hafberg. Sáttur við framkvæmdina en hjákátlegt að öll orkan fari úr héraðT. „Ég tel það mjög athyglisvert að koma þessari virkjun á, þarna er verið að nýta það vatnsmagn sem fyrir er. Hins vegar fer þama tölu- vert land, eða rúmir tveir ferkiló- metrar af grónu landi, undir lónið. Og það verður auðvitað að bæta það,“ sagði Jónas Jónsson, oddviti Ásahrepps, en Ásahreppur á ásamt Djúpárhreppi það land sem Búðar- hálsvirkjun mun standa á og verða mun fyrir því raski sem fram- kvæmdin veldur. Jónas er ánægður með hvernig kynningu framkvæmd- arinnar er háttað. „Ég vil þakka fyr- ir þessa kynningu strax á frumstigi, þannig að menn geti gert athuga- semdir strax við þetta áður en fram- kvæmdin er komin í umhverfismat, það er mikill kostur. Með þessari framkvæmd er náttúrlega verið að nýta þá vatnsmiðlun sem Þórisvatn er, það er verið að nýta það vatn og það fall sem þarna er. Ég tel það mjög skynsamlegt," sagði Jónas. Sunnlendingar búa í mikilli nálægð við allar helstu stórvirkjanir lands- ins. Samt er það svo að mestöll ork- an sem notuð er til iðnaðar og at- vinnuuppbyggingar er flutt í aðra landshluta. Binda heimamenn ein- hverjar vonir við að þetta fari að breytast með frekari uppbyggingu? „Það er auðvitað önnur saga. Sunn- lendingar búa auðvitað við hátt orkuverð, með því hæsta sem er á landinu. Og það er náttúrlega svolít- ið hjákátlegt að framkvæmdimar og orkuvinnslan er að stórum hluta hér á þessu svæði en landshlutinn nýtur ekki góðs af því. Það hefur verið gott samstarf við Landsvirkj- un um þetta og náðst góð samvinna um þessar virkjanir. Þannig að ég Njöröur Helgason blaöamaður tel að það sé skynsamlegt að nýta þessi fallvötn til orkuvinnslunnar, við værum illa stödd annars. Auð- vitað er þetta orðin mikil orkuvera- keðja hér á okkar svæði, en það er auðvitað hagkvæmnin sem ræður,“ sagði Jónas Jónsson, oddviti Ása- hrepps. - Hátt orkuverð hamlar uppbyggingu smáiðnaðar „Við höfum verið að kynna er- lendum íjárfestum stóriðjukosti héma, við höfum tekið á móti aðil- um erlendis frá í samstarfi við MÍR sem er skrifstofa Landsvirkjunar og iðnaðarráðuneytisins. Þeim aðilum sem við höfum tekið á móti höfum við kynnt stóriðjukosti i Þorláks- höfn og við erum stöðugt í því að reyna að stuðla að því að fyrirtækj- um Qölgi héma á Suðurlandi, bæði raforkufrekum fyrirtækjum og öðr- um. Það hlýtur að vera markmið okkar allra hérna á Suðurlandi að reyna að skilja virðisaukann af þeim orkuuppsprettum sem eru héma eftir í fjórðungnum heldur en hann fari eitthvað annað. Auðvitað er þetta sameiginleg auðlind allrar þjóðarinnar en okkur finnst blóðugt að enginn stór notandi skuli koma að orkunni hér,“ sagði Einar Páls- son hjá Atvinnuþróunarsjóði Suður- lands í viðtali við DV. Auk þess sem Atvinnuþróunarsjóður hefur verið að reyna að fá aðila til að byggja upp stóriðju á Suðurlandi hefur ver- ið unnið að því að fjölga og efla smá- fyrirtæki í fjórðungnum. Það er þó ákveðinn þröskuldur í þeim málum því smáfyrirtækin búa við mjög hátt raforkuverð. „Rannsóknir erlendis sýna að oft og tíðum em smærri fyrirtækin traustari grunnur undir atvinnu heldur en stóriðjan. En síðan er á það að líta að raforkan á í sam- keppni við aðra orkugjafa. Við erum búin að vinna mikla undir- búningsvinnu að kjötmjölsverk- smiðju sem á að fara að opna hér í Hraungerðishreppi um ræstu helgi. Þá fórum við í gegnum allt þetta ferli og vildum hafa vistvænan orkugjafa. Við vorum fyrst og fremst að líta til gufunnar því hún nýtist þessari framleiðslu best. Við eyddum hálfu ári í að skoða það dæmi með Orkustofnun og fleiri að- ilum hvort væri hægt að nýta þá gufuorku sem er í Hveragerði. Það tókst ekki, meðal annars vegna skipulagsástæðna, þannig að við urðum frá að hverfa þar. Þá fórum við að skoða möguleika með rafork- una. Þá kom i ljós að við urðum að kaupa hana á taxtaverði frá RARIK. Þá er hún alls ekki samkeppnishæf við olíuna. Hún var samkeppnisfær og vel það ef keypt var ótrygg orka fyrir verksmiðjuna, en þá var um að ræða 15-20 milljóna kostnað fyrir fyrirtækið við að koma sér upp bún- aði til að tengjast og fá að nota ork- una. Og á því féll málið vegna þess að við vorum að kaupa ótrygga orku. Þá þurfti fyrirtækið að standa undir öllum tengikostnaði, setja upp spenna og allt saman. Þegar sá kostnaður var tíndur til varð fjárhagslega hagkvæmasti kosturinn sá að nota svartolíu. Og við erum að keyra verksmiðjuna, nýja fullkomna verksmiðju, með innfluttri svartolíu í staðinn fyrir rafmagn. Þetta þykir okkur mjög sorglegur endir á orkumálum þessa félags," sagði Einar Pálsson. Skipt getur sköpum í rekstri fyr- irtækja að orkan til framleiðslunn- ar fáist á sem hagkvæmustu verði „Það er mjög háð því hve stórt hlutfall orka er í rekstri viðkom- andi fyrirtækis. Þetta er mjög mis- jafnt eftir eðli fyrirtækjanna og ekki hamlandi fyrr en það er orðinn stór gjaldaliður, þá skiptir þetta orðið verulegu máli. Og raforka, fram- leidd úr sunnlenskum fallvötnum, hún er nákvæmlega ofurseld sömu samkeppni um orku og annaö. Og ef hún er ekki samkeppnisfær við aðra orkugjafa þá velja menn auðvitað hagkvæmast kostinn. Eins og stað- an er núna eru menn ekki með það umframframboð af orkunni að það sé farið að há þeim og þeir komnir í þá verðsamkeppni að þeir séu til- neyddir að lækka verðið," sagði Einar Pálsson. Það að orka, framleidd á Suður- landi, sé flutt til annarra landshluta til nýtingar hefur ótvírætt kostnað í for með sér. „Það hlýtur að vera hagkvæmast að nota hana nálægt upprunastað. Þetta þurfa menn að taka með. Eins og staðan er núna hafa byggða- sjónarmið ráðið meiru um uppbygg- ingu stóriðju en þetta. Menn hafa litið á Ámessýsluna, og sérstaklega Árborgarsvæðið, þannig að þetta svæði þurfi ekki á neinu að halda, sé sjálfbært svæði og það þurfi enga byggðapólitík og byggðaaðstoð hér. En við erum ekki sammála því,“ sagði Einar Pálsson hjá Atvinnu- þróunarsjóði Suðurlands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.