Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Side 16
16 LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000 Helgarblað DV Michael Jackson, söngvari og barnavinur Micahel hefur samþykkt aö koma fram á ráöstefnu um velferö barna í Oxford. Leyfið börn- unum að koma til mín Michael Jackson, hinn ljóslitaði söngvari og barnavinur, hefur verið valinn sem einn fyrirlesara eða ræðumanna á ráðstefnu í Oxford um velferð bama. Það er ekki ljóst á þessu stigi málsins um hvað er- indi Jacksons á að íjalla en barna- vini beggja vegna Atlantsála setti hljóða við þessi tíðindi. Ástæðurnar eru auðvitað siend- urteknar ásakanir á hendur Jacksons um að hann sé hændari að bömum en góðu hófl gegnir. Skemmst er þess að minnast þegar væntanleg ákæra á hendur honum fyrir ósæmilegt athæfi með ungum dreng var þögguð niður með dóm- sátt fyrir nokkrum árum. Michael á sjálfur tvö börn með fyrrverandi hjúkrunarkonu sinni en þau eru nú skilin og hún mun hafa samþykkt að eftirláta honum allt forræði bamanna. í fylgd með Jackson á ráðstefn- unni verður sérstakur rabbíni og ráðgjafi hans en upp á síðkastið hef- ur Jackson notið sérstakrar leið- sagnar hans í andlegum efnum. Þannig er endanlegt lokatakmark Michaels smátt og smátt að koma í ljós. Hann lætur ekki bjóða sér að vera syngjandi svertingjadrengur alla ævi. Hann er búinn að láta breyta sér þannig að hann lítur út eins og hvít miðaldra kona en nú vitum við að hann vill að auki vera gyðingakona. Tíkin Týra þenur raddböndin: Italskur óperuhund- ur sem dáir Kristján Jóhannsson Og svo á að hætta að ausa peningum í þessa andskotans negra. Ef þeir eru svangir geta þeir bara étið hver annan einsog þeir hafa alltaf gert. Það eiga bara allir að hafa sama sénsinn. Nú voru þær konan mín og frænka hennar - frænkur Gríms - orðnar afar þungbúnar svo ekki sé nú meira sagt og famar að gera sig líklegar til að leggja hendur á Grím frænda sinn. Þá sagði frænka konunnar minnar við konuna mína: Æ, taktu ekki mark á honum. Hann er bara fullur. Ég hugsaði sem svo: Það held ég að Norsaramir og Grímur hafi ástæðu tií að vera pöddublindir í nokkur missiri þegar Carl Hagen er orðinn forsætis- ráðherra Noregs. Þá er nú tilefnið fyrir hendi. Þó að ég sé alveg pollklár á því að brenni- vínsþorstinn í Grími stafar eingöngu af því hvað hann er vínhneigður. Flosi eru í ættinni. Móðir hennar var „leikkona" sem lék á sínum tíma aðalhlutverkið í islenskri sjón- varpsmynd þannig að Týra á ekki langt að sækja hæfileikana. Hún syngur þó alls ekki nema með undirleik og gerir góðan greinar- mun á lögum og syngur því mis- munandi eftir því hvaða lag er verið að spila hverju sinni. Fyrir utan sönginn er Týra með sannkallaða bíladellu og unir sér hvergi betur en i bíl. Hún fer alltaf með Ólafi i vinnuna og fmnst fínt að sitja í bílnum á með- an hann sinnir sínum skyldustörf- um. ítölsk í fyrra lífi „Ég held að Týra hafi verið ítölsk prímadonna í fyrra lífi því hún elskar ekki bara óperur og aríur heldur allt sem ítalskt er,“ segir Matthildur og nefnir sem dæmi að þegar ítalska fótboltaaug- lýsingin birtist á sjónvarpsskján- um taki hún undir. „Hún er líka sjúk í ítalskan mat og borðar meira að segja grænmetisla- sagna,“ upplýsir húsmóðirin. Það ailra besta sem Týra fær er þó sviðasulta og lifrarpylsa og ef tekið er utan af lifrarpylsu í hús- inu rennur hún á lyktina á tveim- ur sekúndum. -snæ Söngglaður hundur Þaö eru ekki margir hundar sem hafa eins mikla unun af söng Krlst- jáns Jóhannssonar og Týra. Ef hún heyrir í honum í útvarpinu sperrir hún eyrun, hallar undir flatt og tekur svo duglega undir. Frá heimili Ólafs Snorra- sonar og Matt- hildar Einars- dóttur á Selfossi berast ein- kennileg hljóð og það ekki í fyrsta sinn. Heimilis- hundurinn Týra hefur stillt sér upp úti á miöju gólfi meö þanin radd- bönd og syngur hástöfum með lag- inu O sole mio sem líður út úr há- tölurum geislaspilarans. Filar ekki popp „Mér dauðbrá þegar hún hóf upp raust sína í fyrsta skipti. Ég vissi hreinlega ekki hvað gekk eig- inlega á,“ segir Matthildur, hús- freyjan á heimilinu, en Týra byrj- aði ung að syngja. Núna er Týra flmm ára og syngur enn af fullum krafti. „Hún er hrifnust af óperum og aríum en er ekkert fyrir poppið,“ útskýrir Matthildur. Ef kveikt er á útvarpinu eða sjónvarpinu og þar er verið að spila tónlist sem er Týru að skapi tekur hún umsvifa- laust undir. „Hún tekur einnig undir ef ég syng lagið: Undir dalanna sól,“ segir Ólafur og hlær. Þrátt fyrir að Týra hafi gaman af því að syngja er hún með vott af sviðsskrekk og fer oft hjá sér ef gestir eru i heimsókn og neitar þá að syngja. Þó bregst það ekki að Týra tekur undir ef geisladiskur með Kristjáni Jóhannssyni er sett- ur á fóninn en Kristján er í miklu uppáhaldi hjá henni. Með bíladellu Týra er blanda af border collie og terrier og listrænir hæflleikar 'Ttr Carl Hagen Ég held að hann Grímur frændi konunnar minnar hafi aldrei á sinni blautu ævi drukk- ið brennivín að tilefnislausu. Sannleikurinn er sá að það fór heldur lítið fyrir Grími allt síðastliðið ár og hans nán- ustu fóru að gera því skóna að Grímur hefði ekki lengur neina ástæðu til að drekka. Og einsog ég sagði áðan hefur Grímur aldrei smakkað brennivín að tilefnislausu og er þó búinn að vera fullur alla ævi. Svo hvellsprakk þessi tápmikli túramaður á miðju sumri og ekki vantaði tilefnið. Ástæðuna til að taka tappa úr flösku. Það kom semsagt í fréttunum að Framfara- flokkurinn, með Carl Hagen í fararbroddi, væri á góðum vegi með að verða stærsti stjórnmálaflokkurinn í Noregi, en Carl Hagen er afar andfélagslega sinnaður og á móti þeim sem ekki eru eins á litinn og hann og Grímur frændi. Og síðan er Grímur búinn að vera i gleðivímu pöddublindur, óalandi og óferjandi vikum saman. Allt Carl Hagen að kenna. Stundum ræða aðstandendur Gríms það af miklum alvöruþunga hversvegna í ósköpun- um maöurinn sé svona ofboðslega sólginn í brennivín og sýnist hveijum sitt í því efni. Fólkiö hans er flest þeirrar meiningar að brennivínsþorsti Gríms stafi af því að hann var sem ungur maður leynilega trúlofaður innanbúðardömu í álnavöruverslun, eða taldi sig að minnsta kosti vera það, og vissi ekki betur en að trúlofunin væri gagnkvæm. Reiðarslagið dundi svo yfir Grím þegar hin heittelskaða tjáði honum að hún væri ólétt eftir annan kokk á Lagarfossi. Það var ekki að sökum að spyrja. Grímur drakk sleitulaust næstu þrettán árin en þá var hann lagður inn meö spnmginn botn- langa og smakkaði ekki áfengi í þijár vikur, en byrjaði þá strax aftur og hafði til þess fjöl- margar ástæður að dómi flestra. Ég hef hinsvegar alltaf haldið því fram að Grímur drekki brennivín dægrin löng af því hann er fyflibytta. Hvemig sem nú á þvi stendur hefur sem- sagt varla ranniö af Grími síðan álnavöru- daman stakk hann af. Raunar minnist ég þess ekki að Grímur hafi nokkurn tímann drukkið að ástæðulausu. Stundum hefur hann veriö ölóður vikum saman útaf vinnuálagi og síðan á skallanum næsta tímabil útaf því að hafa misst vinnuna. Nema nú er Grímur semsagt búinn að vera í gleðivímu síðan hann frétti um sigurför Carls Hagen og Framfaraflokksins í Noregi. Svo var það í gær að Grimur kom í kurt- eisisheimsókn. Það vildi svo vel til að frænka hans ein var stödd hjá okkur, semsagt ein af þeim sem vita að Grímur drekkur ekki að ástæðulausu. Hún tók svo til orða: - Hversvegna í ósköpunum hættirðu ekki þessu fylliríi? Að mínum dómi hefði eðlilegasta svarið við þessu verið: - Af því ég er svo drykkfelldur. En það er nú eitthvað annað. Hann er sem- sagt þessa dagana að fagna því að Carl Hagen er að taka yfir í Noregi. Og í miðri gleðivímunni spratt Grímur upp, lamdi í borðið svo glamraði í mávastefl- inu og öskraði: - Það vantar Framfaraflokk á íslandi - flokk sem stemmir stigu við framgangi þess- ara andskotans sníkjudýra sem liggja uppá þjóðinni. - Það á að hætta að sauma púða undir rassgatið á einstæðum mæðrum sem liggja uppí sóffa og unga út krógum með hinum og þessum og láta þjóðfélagið punga út stórfé í styrki og meðlög. Þær geta bara séð fyrir sínum bömum sjálfar ef þær vilja alltaf vera að láta bama sig. Og svo bætti hann við: - Það ætti að stofna flokk á íslandi sem berst fyrir því sama og Framfaraflokkurinn í Noregi, að gefa öllum í þjóðfélaginu sama sénsinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.