Dagblaðið Vísir - DV - 09.09.2000, Page 18
18
LAUGARDAGUR 9. SEPTEMBER 2000
Helgarblað
DV
Fyrsti skóladagurinn:
I skólanum, í skólanum,
er skemmtilegt að vera ...
Skólarnir hafa hringt inn
veturinn og í síðustu viku
hófu rúmlega sextán hundr-
uö 6 ára börn skólagöngu
sína í Reykjavík. DVfylgdi
tvíburasystrunum Rann-
veigu Lind og Sólrúnu Öglu
Bjargardœtrum eftir þegar
þœr hófu sinn fyrsta skóla-
dag í Austurbæjarskóla.
Klukkan er átta 1 risíbúð á
Njálsgötunni. Tvíburasyst-
umar Rannveig Lind og
Sólrún Agla em löngu vaknaðar og
búnar að vekja Björgu mömmu
sína. Þær eru að fara í skólann í
fyrsta sinn í dag og þær ætla sko
ekki að sofa yfir sig. „Við erum
búnar að fara yfir þennan dag í
huganum hundrað sinnum, hvað
maður lærir í skólanum, hvað
kennarinn muni segja og hvernig
maður hagar sér. Þetta er orðin
þeirra uppáhaldssaga," segir Björg
sem segir að systumar séu löngu
famar að spá í hvenær þær fái
hvítu húfurnar.
Glænýjar skólatöskurnar standa
tilbúnar á gólfinu með endurskins-
merkjum sem gljá.
„Þær fengu að velja töskumar
sjálfar," segir Björg og prísar sig
sæla með það að töskurnar sem þær
völdu voru einnig þær ódýrustu.
Það þarf ekki að reka á eftir stelp-
unum við að fara í fötin en það er
annað með morgunverðinn.
„Stelpur, ætlið þið ekki að klára
morgunmatinn,“ kallar mamma
Björg og stelpumar setjast aftur við
matarborðið þegar þær heyra þau
rök að það sé erfitt að læra sé mað-
ur ekki búinn að borða neitt. Síðan
eru tennurnar burstaðar og hárið
greitt.
„Mamma, verð ég að hafa
teygju?" spyr Sólrún í kvörtunar-
tón.
„Já, þið verðið að vera finar
fyrsta skóladaginn," svarar Björg
og setur cindytagl í hárið á þeim
báðum.
„Á maður að senda börn með
eina eða tvær samlokur í nesti í
skólann?" spyr Björg þar sem hún
stendur ráðþrota í eldhúsinu. Hún
er hálfskömmustuleg þar sem hún
gleymdi að gera ráð fyrir nesti
handa stelpunum. Ef íslandspóstur
hefði ekki bankað upp á kvöldið
áður með nestisbox frá Osta- og
smjörsölunni hefði hún örugglega
alveg gleymt því. Mysingur, ostur,
sulta er það sem fer á brauðið og
svo fá stelpumar sína appelsínuna
hvor. „Kannski er hægt að kaupa
safa í skólanum," segir Björg og
laumar krónupeningum í vasann
hjá Rannveigu.
Ekkert Pokémon í skóla-
stofunnl
Loksins er klukkan korter i níu
og hægt að leggja af stað. Það er sól
úti en hálfkalt. Þó spölurinn í skól-
ann sé ekki langur kvarta systum-
ar undan þyngslunum á skólatösk-
unum. Björg reynir að stilla böndin
betur.
Gangamir í Austurbæjarskólan-
um eru fullir af foreldrum og öðrum
bömum sem em einnig með þungar
skólatöskur. Stofa 402, hvar er hún
eiginlega? Allt í einu verður Rann-
veig feimin og grípur í peysuna
hennar mömmu sinnar. „Mamma,
þarft þú nokkuð að fara?“ hvíslar
1) Morgunverður
Þaö er erfítt að læra á fastandi
maga og ef maöur lærir ekki vel
fær maöur aldrei hvítu húfuna ...
2) Clndytagtið sett upp
„Mamma, þarfég að hafa
teygju?“ spyr Sólrún og Björg svar-
ar um hæl aö auövitaö veröi þær
aö vera fínar fyrsta skóladaginn.
3) Nestið smurt
„Á maöur að senda börn meö eina
eða tvær samlokur í skólann?“
spyr mamma Björg sem hefur
aldrei áöur sent börn í skóla.
4) Kemst þe$ta alit fyrir?
Stelpurnar. fengu sjálfar aö velja
sínar skólatöskurog mamma
Björg var fegjnaoþær völdu ekki
þær dýrustu í versluninni.
5) Á leið í skólann
„Mikiö eru þessar skólatöskur
þungar,“ sögöu systurnar þegar
þær voru komnar meö töskurnar á
bakiö. Björg vonaöi aö þær vend-
ust töskunum og fengju ekki
vöövabólgu af skólabókaburöinum
í lok vetrar.
6) I jjgðjMftfrnni
Meö nafnspjöld á bpffenu gleymir
enginn Wita. „Ég
gleymi ekki aöptníeitir Sigrún af
því aö ég þekki aöra konu sem
heitir Sigrún, “ segir Vilhjálmur
viö kennarann, Sigrúnu.
7) Frímínútur
Sólin bræði alla feimni á
skólalóömni
8) Kennarl, kennari
„Sjáöu, viö fundum snigil!"
Kennarinn, Sigrún Hrðnn Hauks-
dóttir, hefur kennií 6 ár og hef-
ur líklega séð margan snigilinn á
þeim tíma.
9) Hvað ætlar þú aö lita?
Systurnar eru báöar búnar aö
læra stafincr&Hgátuþví vel skrif-
aö nöfnin sín á fyrsta verkefni
skólagöngunnar.
10) Bekkjarsystir meö bein í nef-
Inu
Bekkjarsystirin Unnur þorir aö
kyssa snigil og hvaöeina. Sólrún
var því ekki sein á sér aö færa
sig yfir til hennar aö frímínútun-
um liönum.
hún að Björgu en Björg þarf að
mæta I vinnunna og kveður. Kenn-
arinn vísar þeim til sætis. Rannveig
sest strax en Sólrún stendur tvístíg-
andi við hlið hennar. Hún þorir
ekki að setjast við hliðina á þessum
rauðhærða strák á endanum. Rann-
veig tekur af skarið og lætur Sól-
rúnu fá sitt sæti en sest sjálf við
hliðina á stráknum. „Jæja, munið
þið hvað ég heiti?" spyr kennarinn
og bekkurinn, ails 17 krakkar, svar-
ar í kór: „Sigrún! Þú heitir Sigrún.“
Síðan er nafnakall. Allir eru komn-
ir nema Björn. Hann kemur aðeins
of seint og koma hans vekur
þónokkra athygli þar sem hann er
með Pokémon-skólatösku. „Vá!“
heyrist í einhverjum stráknum og
umræður hefjast um Pókemon en
kennaranum finnst fljótlega ástæða
til þess að árétta að i skólanum töl-
um við ekki um Pokémon.
Fyrsta verkefni dagsins er að búa
til merkimiða fyrir snagann sinn
svo enginn fari að rífast um snaga í
vetur. „Ég rífst aldrei um snaga,“
finnst einum stráknum rétt að
árétta.
Allir kunna að teikna og flestir
kunna að skrifa nafnið sitt. Sólrún
teiknar stelpu á nafnspjaldið sitt á
meðan Rannveig teiknar blóm.
Sautján krakkar rétta upp hendur
hver í kapp við annan og hrópa:
„Kennari, ég er búin/n! Kennari."
Kennarinn, Sigrún Hrönn, heldur
ró sinni, enda er hún búin að vera í
bransanum í 6 ár.
Sniglar kysstir í frlmínútum
Eftir sögustund eru komnar fri-
mínútur. Krakkarnir þeysast út úr
stofunni, niður stigann og út á plan.
Allir hlaupa þó að gangavörðurinn,
Halldór, hafi komið sérstaklega í
heimsókn í skólastofuna og sagt að
hann vildi engin læti á göngunum.
En fyrirlestur hans er greinilega
löngu gleymdur. Lfka feimnin. Það
er sól og i sandkassanum eru allir
vinir. Ein stúlkan hangir þó utan í
pabba sínum og skælir og er greini-
lega alls ekki sátt við þetta nýja
hlutverk sitt sem nemandi.
Sólrún sést fljótlega leiða eina
bekkjarsystur sína. Sú er greinilega
nokkuð frökk því hún þorir að
kyssa slímugan snigil. „Oj!“ segja
hinir krakkamir en þó með vott af
aðdáun. Aðdáun Sólrúnar á þessari
nýju bekkjarsystur sinni er svo
mikil að hún heimtar að fá aö sitja
hjá henni að loknum frímínútun-
mn. Hún pakkar saman dótinu sínu
og flytur sig í laust sæti við hliðina
á henni. Rannveig er ekki alveg sátt
við það að þurfa að sitja ein eftir
hjá rauðhærða stráknum Alexander
en lætur þó sem ekkert sé og þegar
kennslan hefst aftur er allt gleymt.
Fram undan er saumatími og síðan
leikflmi og einhvers staðar langt í
fjarska bíða hvítu húfumar.
-snæ