Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Side 6
Fréttir
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
I>V
Öryrkjamálið getur farið fyrir dómstóla á ný:
Hefur skaðað
ríkisstjórnina
Nafn: Halldór Ásgrimsson
Staöa: Utanrikisráðherra
Efni: Öryrkjadómurinn, staða Framsóknarflokksins og ríkisstjórnarinnar.
Ert þú fullkomlega sáttur við
aðgerðir ríkisstjórnarinnar í
kjölfar öryrkjadómsins?
„Ég er sáttur við það hvemig
brugðist er við dómnum. Það er hins
vegar ekki það sama og vera sáttur
við kjör öryrkja. Um það fjallar um-
ræðan. Það kemst afskaplega illa í
gegn að hér er verið að bregðast við
kröfum sem varða kjör öryrkja sem
eru í sambúð eða hjónabandi og hafa
tekjur yfir ákveðnu marki. Dómurinn
fjallar ekkert um einstaklinga, né
hjón undir svokölluðu frítekjumarki.
Það er miður hvemig Öryrkjabanda-
lagið kynnir þetta mál. Það er líka
leitt til þess að vita að verkalýðshreyf-
ingin og stjómarandstaðan virðast
enduróma það án þess að hafa fyrir
því að kynna sér málið."
Þú hefðir ekki viljað sjá við-
brögð ríkisstjórnarinnar öðru-
vísi?
Ég tel að þau hafi ekki getað verið
öðravisi. Hins
vegar er spum-
ing um framtíð-
ina. Hvað um allt
það fólk sem
enga leiðréttingu
fær. Ég tel að það þurfi að einbeita
sér að því að lagfæra kjör þeirra sem
minnst hafa og þá fleiri hópa er ör-
yrkja. Það er verkefni starfandi
nefndar og hefur verið ákveðið að
flýta því máli. Tekjutrygging og
grunnlífeyrir öryrkja í sambúð getur
hæstur verið tæpar 51 þúsund krón-
ur. Niðurstaðan út úr þessu öllu er sú
að hann geti aldrei verið lægri en
rúmar 43 þúsund krónur og er það
mikil hækkun. Því er haldið fram að
við höfúm ekki farið að dómnum
vegna þess að niðurstaðan sé ekki 51
þúsund. Ef við hefðum valið þá leið,
þá helðum við verið að viðurkenna
það sem dómurinn gengur ekki út á,
að það megi ekki miða við tekjur
maka. Ef við viðurkennum það án
þess að dómurinn gangi út á það,
hvaöa áhrif hefur það á aðrar viðmið-
anir f þjóðfélaginu? Vilja menn ganga
til þess verks að aldrei megi miða við
makann. Þetta er stór pólitísk spum-
ing sem mér fmnst að stjómarand-
staðan horfi algerlega fram hjá í gleði
sinni og ánægju yfir því að þama sé
gott tækifæri til að beija á ríkisstjóm-
inni. En ég hef ekki heyrt í neinum
lögfræðingum, öðrum en Ragnari Að-
alsteinssyni, lögfræðingi Öryrkja-
bandalagsins, sem hefur þá skoðun að
við séum ekki að fara að dómnum."
Álitamál
Voru ráðherrar Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks sam-
mála um viðbrögð við dómnum
á öllum vinnslustigum málsins í
ríkisstjórn, eða vildu framsókn-
armenn greiða lengra aftur í
tímann heldur en sjálfstæðis-
menn?
„Það var enginn ágreiningur í mál-
inu. Ég lagði á það áherslu í upphafi
máls að fá þyrfti sérfræðinga að þessu
máli með sambærilegum hætti og gert
var í kvótamálinu svokallaða. Við
þyrftum að kalla Alþingi saman eins
fljótt og verða mætti til þess að bregð-
ast við dómnum. Álitamálið var það
hvort greiða ætti 2 eða 4 ár aftur í
tímann. Það var aldrei neitt annað
uppi á borðinu. Varúðarreglan sagði
okkur að rétt væri að fara fjögur ár
aftur og um það var aldrei neinn
ágreiningur.
Hins vegar er afskaplega óþægilegt
í máli sem þessu að geta lítið sagt
fym en niðurstaða er komin.“
í samtölum DV við framsókn-
arþingmenn kom fram megn óá-
nægja með að ekki skyldi vera
gengið lengra í endurgreiðslun-
um. Voruð þið Davíð samstiga
allt frá upphafi?
Já, við vorum það. Ég tel að þetta
sé eitthvað málum blandið. Það liggur
fyrir að þetta tók tíma. Margir fúndir
voru haldnir og mörg álitamál vora í
þessu. Við þurftum að tala okkur í
gegnum það. En það er ekki hægt að
kalla það ágreining. Við leystum þetta
mál vel og farsællega og í sátt.“
Ekkisátt
Heilbrigðisráðherra var sagð-
ur óánægður með þessa niður-
stöðu. Varðstu var við það?
„Heilbrigðisráðherra hefur alla
tíð viljað bæta kjör öryrkja og elli-
lífeyrisþega meira en við höfum
fengið fjármagn í. Það er engin
launung á því að hún vildi við síð-
ustu fjárlagaafgreiðslu bæta kjör ör-
yrkja meira en niðurstaða varð um.
í tíð hennar hef-
ur verið dregið
mjög mikið úr
tekjutengingum.
Heilbrigðisráð-
herra leggur mik-
ið upp úr því
starfi sem er í gangi í nefnd um end-
urskoðun kjara öryrkja og ellilífeyris-
þega og er með kröfur á okkur, for-
ystumenn stjómarflokkanna, að þar
verði staðið myndarlega að málum.
Hún var sátt við viðbrögð við dómn-
um, en hún er ekki sátt við kjör
þeirra sem minnst hafa. Þessi dómur
fiallar eingöngu um það fólk sem hef-
ur mest. Mér finnst mikilvægt fyrir
verkalýðshreyfmguna að átta sig á
því. Það er alveg nýtt fyrir mér að
verkalýðshreyfmgin leggi áherslu á
það fyrst og fremst að bæta kjör
þeirra sem meira hafa.“
Davíð hefur verið gagnrýndur
fyrir framgöngu sína og ýmis
ummæU í öryrkjamálinu. Ert þú
ánægður með hvemig hann hef-
ur haldið á málinu?
„Ég geri ekki athugasemdir við
framgöngu hans. Ef ég hefði athuga-
semdir myndi ég taka þær upp við
hann og býst við að hann hefði sama
hátt á með mig.“
Hvað finnst þér um framgöngu
Garðars Sverrissonar, fram-
kvæmdastjóra
Öryrkjabanda-
lagsins?
„Garðar er
mikill baráttu-
maður og hann er
afskaplega dugleg-
ur. Mér hefur
ekki fundist hann
vera málefhalegur
í sínum rökstuðningi. Ég man aldrei
eftir að hann hafi sagt frá því að þessi
dómur varði mjög lítinn hluta félags-
manna í Öryrkjabandalaginu. Mér
fmnst hann tala eins og þetta varði
hvem einasta mann. Ég býst við að
margir af hans félagsmönnum verði
fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir
átta sig á því að þetta varðar ekkert
þá sem minnst mega sín.“
Skaðaö ríkisstjórnina
Telurðu að þetta mál hafi
skaðað ríisstjórnina?
„Já, ég tel að þetta hafi skaðað rík-
isstjómina. Það þarf að leiðrétta þann
ómálefnalega málflutning sem hefur
komist í gegn. Ég held að hann leið-
réttist á Alþingi. Það er mikil til-
hlökkun 1 mér að tala við stjómar-
andstöðuna á þingi i næstu viku, því
ég tel að hún hafi afskaplega veika
málefnalega stöðu í þessu máli og hafi
fallið i þá freistingu að stökkva um
borð í þann tilfinningahita sem skap-
ast hefur í málinu án þess að lesa
heimaverkefnið. Þetta eru flokkar
sem hafa sérstaklega talið sig vera
fulltrúar réttlætis og jafnaðar í land-
inu.“
Hefur þetta mál skaðað Fram-
sóknarflokkinn?
„Við fmnum fyrir ákveðnu mótlæti
vegna þessa máls. Ég hef hins vegar
útskýrt það fyrir minu fólki. Það er
afskaplega ánægt með þær útskýring-
ar. Sá einfaldi áróður sem settur hef-
ur verið á svið hefur valdið fólki
áhyggjum. Það liggur í honum að við
séum sérstaklega að níðast á þeim
sem minna mega
sín. Við viljum
leggja okkur fram
um að bæta kjör
þeirra. Misskilning-
urinn er sá að dóm-
urinn gengur ekki
sérstaklega út á það.
Helstu laun-
þegasamtök hafa
lýst stuðningi við öryrkja og
segjast munu bíða með aðgerðir
þar til málið hafi verið tekið til
umræðu á Alþingi. Veldur þetta
ríkisstjóminni áhyggjum?
„Já, það gerir það. En það er skyn-
samlegt af þeim að bíða, þvi ég tel að
málið skýrist í meðfórum Alþingis."
Á hvern hátt getur málið
breyst í meðförum þingsins?
„Ég skal ekki segja um það. Ég tel
að málið sé vel undirbúið og sé enga
nauðsyn á breytingum. En ég veit að
sjálfsögðu ekkert hvað upp getur
komið í því nefndastarfi sem fram
undan er. Svo má vel vera að málið
fari á nýjan leik fyrir dómstóla. Það
er viðfangsefni þeirra að skýra lögin.
Það er mikilvægt að skýrt komi fram
að við höfum verið að bregðast rétt
við dómnum.“
Finnst þér Framsóknarflokkur-
inn hafa notið sannmæhs í stjóm-
arsamstarfinu?
„Nei, það finnst mér ekki. Við höf-
um skilað mjög góðu starfi í þessu
stjómarsamstarfi, en orðið fyrir mik-
illi gagnrýni. Við höfum t.d. barist
fyrir virkjunum og stóriðju á Austur-
landi og legið undir þungum höggum
vegna þess. Sem dæmi um málflutn-
inginn í þjóðfélaginu þá fer Lands-
virkjun allt í einu að tala um nýjar
virkjanir á Þjórsársvæðinu sem ég er
ekki að gagnrýna. En fiölmiðlar fara
nánast ekkert ofan i það.
Þú minnist á virkjanir, kemur til
greina að breyta virkjunarröð,
stækka Norðurál á undan Reyðar-
áU?
Við ætlum að ljúka þessu máli hér
á Austurlandi. Við eigum eftir að
leggja fram framvarp um Kára-
hnjúkavirkjun. Á sínum tíma var
samþykkt að virkja í Fljótsdal. Það
þarf að breyta því máli og það nýtur
forgangs. Ég er andvígur því að vera
alltaf að reyna að búa til einhvem
ágreining og samkeppni milli verk-
efna í landinu.
Það hefur mætt nokkuð á
Framsóknarflokknum. Háir
varaformannsleysi flokknum?
„Það er verra. En það verður
flokksþing hjá okkur í mars og þá
verður fyllt í það skarð.“
Og þú sjálfur, heldur þú gal-
vaskur áfram í formennskunni?
„Já.“
Eru einhver teikn á lofti um
að ríkisstjórnin Ufi ekki út kjör-
tímabiUð?
„Ég sé enga ástæðu til að ætla ann-
að en ríkisstjórnin sitji út kjörtímabil-
ið. Við göngum til samstarfs til að
vinna þau verk sem blasa við. Ef við
ætlum að viðhalda stöðugleika í land-
inu og trausi inn á við sem út á við
þá kallar það á stöðugleika í stjóm-
málum. Við erum ekki alltaf sammála
um alla hluti. En við leysum það og
sjáum enga ástæðu til að bera það á
torg.“
Jóhanna S. Sigþórsdóttir
blaöamaöur
„Það er alveg nýtt fyrir
mér að verkalýðshreyfing-
in leggi áherslu á það fyrst
og fremst að hœta kjör
þeirra sem meira hafa. “
Sandkorn
________Omsjon:
Hörður Krístjánsson
netfang: sandkorn@ff.is
Vinir verðlauna
Það kom ýmsum
á óvart þegar
ímark, félag ís-
lensks markaðs-
fólks, valdi Sigurð
Helgason, forstjóra
Flugleiða, mark-
aðsmann ársins
; 2001 - forstjóra
sem rekið hefur
fyrirtæki árum saman með gríðar-
legu tapi. Þegar skoðað er hveijir
voru í dómnefndinni er skýringin
augljós. Þar sátu, meðal annarra,
Bogi Ágústsson fréttastjóri (fyrrver-
andi blaðafulltrúi Flugleiða), Ólafur
Ingi Ólafsson, forstjóri íslensku
auglýsingastofunnar (Flugleiðir einn
stærsti viðskiptavinurinn), Hrönn
Greipsdóttir, hótelstjóri Radisson
SAS Hótel Sögu (gift Sigurði Skag-
fjörð Sigurðssyni, forstöðumanni
þjónustudeildar Flugleiða), og svo
má áfram telja. Sagt er að gárungar
séu þegar farnir að leita í vinahópn-
um að næsta markaðsmanni...
Með afa
Ari Sigurjóns-
son frá Keldu i
Vatnsfiarðarsveit i
Djúpi ólst þar upp
hjá afa sínum og
ömmu. Var Ólafur
Steinsson, afi Ara,
ævinlega með al-
skegg á vetrum.
Hann ritaði hug-
vekju í jólablað SKUTULS á ísafirði
og minntist bemskujóla sinna í
sveitinni. Þótti ritsmíðin ákaflega
vel stíluð og hrærði hún huga
margra Djúpmanna. Með hugvekj-
unni birtist mynd af Ara við mál-
verk af Karli Marx. í jólaboði hjá
hjónum úr Djúpinu og sveitungum
höfundar, Hans og Stefaníu frá
Miðhúsum, barst hugvekja Ara í tal
og var henni hælt í hástert. Þá sagði
Stefanía: „Svo þykir mér það lýsa
honum Ara svo vel að hann skuli
láta mynda sig við hliðina á mynd af
honum afa sínurn..."
Mikið liggur á
Hart er lagt að
Árna Johnsen, for-
manni samgöngu-
nefndar Alþingis,
að hraða tvöfoldun
: Reykjanesbrautar
þannig að hún
verði tilbúin helst
ekki síðar en i
gær. Sagt er að
mikil pressa Suðurnesjamanna sé
ekki tilviljun. Einn helsti áróðurspóst-
urinn fyrir tvöfoldun brautarinnar
mun vera stöðugur akstur olíuflutn-
ingabíla um brautina. Nú mun Hafna-
samlag Suðurnesja þurfa mikið á því
að halda að olíuflutningar verði tekn-
ir af brautinni og fluttir í Helguvíkur-
höfn til að tryggja samlaginu tekjur.
Því liggi á að tvöfalda Reykjanes-
brautina áður en rökin hverfa með ol-
íuflutningunum til Helguvíkur...
Felguiykill að himnaríki
Maður einn l
dó skyndilega og [
stóð allt í einu I
- andspænis |
Lykla-Pétri við j
dyr himnaríkis. J
Pétur sagðist
vilja segja
komumanni
áður en hann
færi á fund Guðs að litið hefði verið
yfir æviferil hans. Allt liti þetta hálf-
vandræðalega út því hann hefði ekk-
ert afrekað sem teldist gott eða vont.
„Gætir þú ekki hjálpað okkur að
nefna eitthvað sem gæti auðveldað
okkur að taka afstöðu um hvert á að
senda þig?“ spurði Lykla-Pétur. -
„Jú, eitt sinn ók ég fram á kven-
mann sem vélhjólamenn voru að
áreita. Ég stoppaöi, tók upp felgulykil
og sneri mér að tattóveruðu vöðva-
búnti í hópnum. Benti ég honum á
að ef hann ætlaði að abbast upp á
konuna þá yrði hann fyrst að eiga
við mig.“ - „Þetta er athyglisvert,"
sagði Pétur. „Hvenær gerðist þetta?“
- „Fyrir um tveim mínútum," svar-
aði komumaður...