Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Blaðsíða 21
21 LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 X>V__________________________________________________________________________________________________Helgarblað Yasmine Bleeth Einhverjir hafa áhyggjur af því aö hún neyti ólöglegra efna. Með nefið í ólög- legum efnum? Hún var rosalega sæt á laugardög- um í hlutverki Caroline Holden, systur Stephanie Holden, konunnar með litlu brjóstin. Auðvitað er verið að tala um Strandverðina knáu sem skokkuðu tindilfættir um strendur Kaliforníu en eru því miður alveg horfnir af sjón- varpsskjáum. Núna er Caroline i eigin þáttum sem heita Titans. Eitthvað hefur formúlan mistekist hjá framleiðendum því að þátturinn hefur vægast sagt gengið illa og veitt áhorfendum sínum lítið, nema helst gyllinæð af leiðindum. Fyrir utan leiðindin í Titans hefur nýtt áfall riðið yflr Yasmine. Einhverjir sem kalla sig vini hennar segja frá því í Star-tímarit- inu í Bandaríkjunum að hún sé með nefið í ólöglegum efnum. Það sem „vinir“ hennar hafa fyrir sér 1 þeim efnum er að hún fær annað slagið blóðnasir án skýringa og hefur tapað fleiri kílóum af líkama sínum en góðu hófi gegnir. Þrátt fyrir vinsemd- ina þá vildu þeir ekki láta nafns síns getið en sögðu að þessu væri komið á framfæri af góðmennsku einni. Þeim þætti vænt um hana og sæju þetta einu leiðina til að hún leitaði sér hjálpar. Einhvern veginn hefðu margir farið fyrst til hennar og beðið hana um að hugsa sinn gang. Ef það gengi ekki hefði verið hægt að leita til sérfræð- inga. Síðasti kosturinn hefði líkast til verið að fara í slúðurpressuna í Banda- rikjunum. Það er nefniiega ekki víst að það geri ferli Yasmine neitt gott. En hún er sæt... A fósturvísi í frysti Stundum er erfitt að gera sér fyllilega grein fyrir því hversu valdamiklar sumar stjörnur eru. Sú er raun- in með Celine Dion sem er af- Celine Dion skaplega vinsæl í Hún má segja allt heimalandi sinu, sem hún vill en Kanada, og mikið aðr/'r mega ekki er hlustað á það skrifa það. sem hún segir. ............. Hún er Títaník í mannsgervi. Nýlega veitti Celine sjónvarpsstöð einni í Kanada viðtal við sig. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema hvað hún sagði ýmislegt. Bar þar hæst að hún sagði að hún ætti fósturvísi í frysti. Hún gengur sem kunnugt er með barn um þessar mundir. Líffræði- lega séð þýðir þetta að ófæddur sonur hennar eigi tvíbura sem hún ætlar að ganga með einhvem tímann síðar þeg- ar það hentar henni betur. Fregnin um frosna soninn barst víða og var á forsíðu margra dagblaða og tímarita i Kanada eftir að hún sagði frá í sjónvarpinu. En þegar eitt timarit- ið tók þá ákvörðun að setja á forsíðu sína: ‘Sonur minn á nú þegar bróður’ fór gamanið að kárna. Þetta var alls ekki það sem hún hafði ætlað sér að yrði úr þessari litlu sætu tilkynningu. Rene Angelil, maður Celine, rauk því til og skipaði ritstjórunum að henda blaðinu og breyta forsíðunni. Hann sagði að blaðið hefði gert of mikið úr orðum Celine og þetta væri ruslblaða- mennska. Þetta varð auðvitað rusl- blaðamennska því öllu upplaginu var ekið á haugana og það eyðilagt. Síðan var prentað nýtt upplag fyrir gríðar- miklar fúlgur og nú var á forsíðu blaðsins: ‘Celine opnar hjarta sitt’ og þá voru allir ánægðir. Tjáningarfrelsið gildir ekki í húsi Celine. ekkisyngja Alls Það ber flestum saman um það að George Clooney sé ævintýralega kyn- þokkafullur. Margir sakna hans úr Bráðavaktinni, enginn fer lengur 1 körfubolta við unga sjúklinga bak við hús eða hina læknana. Clooney er far- inn og við verðum bara að sætta okk- ur við það. Enda er ekki ástæða til að örvænta því hann hefur tröllriðið bíó- húsum heimsins. Þrátt fyrir að vera kynörvandi leik- ari hefur eitt komið í ljós sem hægt er að segja að sé honunrtil lasts. Hann getur ekki sungið. Þessu komust Coen- bræður að fyrir skömmu við upptökur - vertu bara sexí myndarinnar 0 Brother, Where Art Thou? en þar átti hann að syngja tvo blússlagara. Clooney hefur verið til- nefndur til Golden Globe verðlaun- anna en ekki er líklegt að svo væri hefði hann notað söngrödd sína í myndinni. Um leið og komið var inn í stúdíóið og Clooney opnaði fagran munninn fór hrollur um Coen-bræður og aðra við- stadda. Söngurinn var ekki til þess fall- inn að auka hróður hans og myndar- innar. „Við störðum bara á tærnar á okkur, þetta var svo vandræðalegt,“ segir Joel Coen. Sem betur fer áttaði Clooney sig al- veg á því að hann ætti bara að hætta að syngja. „Ég ákvað að það yrði auð- veldara að hreyfa bara varirnar," segir Clooney. Hann tók hins vegar enga áhættu. Daginn eftir að prufan var í hljóðver- inu skaust hann þangað og lét Bar- lægja öll sönnunargögn sem gætu lek- ið út með söngrödd hans. Það hefði ef- laust verið gaman að fá að heyra sjar- mörinn taka lagið en það verður vænt- anlega ekki af því nema einhver hug- vitssamur starfsmaður hafi óvart tekið afrit. Það er bara að bíða og vona. George Clooney Ekki syngja, sögöu Coen-þræður. Grundig ferðageislaspilarar AKAI stereó myndbandstæki kr. 24.900 Ádur In. 34.900 29" Kolster sjónvörp kr. 19.990 Áður kr. 24.990 Grundig myndbandstæki Hitachi hljómtæki kr. 34.900 29" 100Hz Grundig sjónvörp Kaffikönnur, brauðristar, sjónaukar og útvarpsvekjarar í miklu úrvali frá kr. 990 Hátalarar á ótrúlegu verði - Polk Audio og IBL Geísladiskageymslur með allt að 75% afslætti! UMBOSSMENN UM AUJ LAND - REUllUUDt Hagkagp. SnáatnrgL Heimskringlan. Kringlunní.Iónborg, Köpavogi. VESTURLAND: HliómsýaAkranesi. Kaupfélag Burgfiröinga. Borgamesi. Blómsturvellir. Hellissandi. Guðni Hallgrimssnn, Gninilarfirði.VESTFIRBIB: Kaupfélag Steingrimsljarðar. Drangsnesi. Póllinn, kalirii. NORDUBLANO: Ef Steingrímsfiarðar, Hölmavik. tf V-Húnvetninga, Hvammstanga. (I Húnvetnínga, Blnnduósi. Skagfirðingabóð. Sauðáikióki. Elektró. Dalvik. Ljósgjatinn. Akureyri. Oryggi, Húsavík. Urð. Raufarhnfn. AUSTUBLANO: Kf Héraðshúa. Egilsstöðum.Verslunin Vík. Neskaupsstað. lauptiin. Vopnalirði. Kf Vopnfirðinga. Vopnalirði. Kf lléraðshúa. Seyðislirði. Turnhræður. Seyðisfirði. Kf Eáskrúðsfjarðar. fáskróðsfirði. KASK, HölnHornalirði. SUOUBLAND: Ralmagnsverkstæði IR. Hvnlsvelli. Moslell. Hellu. KA. Sellossi. Rás. Þorlákshöfn. Brimnes. Vestmannaeyjum. REVKJANES: Stapalell. Kellavik. Bafeindatækni. leflavík. Rafbnrg. Grindavik RaflagnavinnusL Sig. Ingvarssonar, Garði. BafmæltL Hafnarfirði. afsláttur afsláttur afsláttur afsláttur afsláttur > fíj r * ■■ i HIMk v m m M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.