Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Page 12
12
________________________________________LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
Helgarblað________________________________________________ I>V
Dick Cheney má búast við þvi að
þurfa fyrr eða síðar að gera grein
fyrir viðskiptum sínum í Angóla.
Verðandi varaforseti Bandaríkj-
anna gegndi starfi framkvæmda-
stjóra olíufélagsins Halliburton, sem
hefur aðalstöðvar slnar í Texas, þar
til í júlí á síðasta ári. Halliburton er
eitt fjölmargra olíufélaga sem eru
nú til skoðunar hjá frönskum yfir-
völdum vegna rannsóknar á ólög-
legri vopnasölu til Angóla, hneyksl-
ismáli sem þegar hefur lagt mann-
orð sonar fyrrum Frakklandsforseta
í rúst og sem kann að koma íleiri
frönskum stjómmálamönnum illa
þegar öll kurl verða komin til graf-
ar.
Mikið lagt á sig
Halliburton hefur stimdað um-
talsverð viðskipti við stjórnvöld í
Angóla og í baráttunni fyrir forseta-
kosningamar vestra á síðasta ári
var Cheney sakaður um að hafa
mistnotað stöðu sína sem fyrrum
landvarnaráðherra Bandaríkjanna
til að tryggja fyrirtækinu viðskipta-
samninga.
Cheney vísar á bug öllum ásökun-
um demókrata um að hafa mistnot-
að aðstöðu sína.
Skjöl bandaríska utanríkisráðu-
neytisins staðfesta hins vegar að
starfsmenn bandaríska sendiráðsins
í Luanda, höfuðborg Angóla, hafi
lagt mikið á sig til að tryggja Halli-
burton samning aö andvirði 68 millj-
ónir dollara árið 1998.
Þegar Cheney var landvamaráð-
herra í stjómartíð Georges Bush
eldri, foður verðandi forseta Banda-
ríkjanna, var hann ákafur stuðn-
ingsmaður angólsku uppreisnar-
hreyfingarinnar UNITA, undir for-
ystu Jonasar Savimbis. Sem fram-
kvæmdastjóri Halliburton var hann
hins vegar kominn í þá skringilegu
aðstöðu að eiga i viðskiptum við for-
Erlent fréttaljós
seta Angóla, marxistann José Edu-
ardo Dos Santos, svarinn óvin
Jonasar Savimbis.
Pylsugerðarmennirnir
Vopnasöluhneykslið sem hefur
skekið franskt stjómmálalíf frá því
fyrir jól, þegar Jean-Christophe Mitt-
errand, sonur franska forsetans sál-
uga, var úrskurðaður í gæsluvarð-
hald, byrjaði ósköp sakleysislega, ef
viðhafa má það orð yfir sakamál.
Verðandi varaforseti Bandaríkjanna nefndur í sömu andrá og ólögleg vopnasala til Angóla:
Cheney neitar að hafa
misnotað aðstöðu sína
Dick Cheney
Nafni veröandi varaforseta Banda-
ríkjanna hefur skotiö upp i tengslum
viö vopnasöluhneyksli í Frakkiandi.
Faðir og sonur
Jean-Christophe Mitterrand var náinn ráögjafi fööur síns, Frangois heitins forseta, i máiefnum Afríku. Sonurinn er nú
flæktur í hneykslismál sem snýst um ólöglega vopnasötu til Angóia. Flann hefur veriö sakaöur um margvíslega glæpi,
svo sem peningaþvætti og um aö hafa misnotaö aðstööu sína meö því aö koma i kring viöskiptum meö vopn.
er þjórfé,“ segir umsvifamikill milli-
göngumaður í þess háttar viðskipt-
um í viðtali við franska vikuritið Le
Nouvel Observateur.
Sjálfur segir hinn 54 ára gamli
Mitterrand, sem hefur hlotið viður-
nefnið „pabbi sagði“ í Frakklandi,
að hann hafi fengið milljónirnar fyr-
ir alls óskyld ráðgjafarstörf vegna
alþjóðlegs láns til Angóla.
Peningar Mitterrands vora lagðir
inn á bankareikning í Sviss. Þarlend
yfirvöld tilkynntu í vikunni að þau
ætluðu hefja glæparannsókn á
meintu peningaþvætti forsetasonar-
ins og fleiri manna.
„Grunur leikur á að glæpur hafi
verið framinn. Það eru bankareikn-
ingar í Sviss. Rannsókn okkar verð-
ur að leiðá i ljós hver gerði hvað og
komast að raun um hvort þeir sem
notuðu þessa sjóði geti verið taldir
sekir ’um peningaþvætti samkvæmt
svissneskum lögum,“ sagði Bemard
Bertossa, aðalsaksóknari í Genf, við
fréttamenn.
Dómsmálayfirvöld í Genf hafa
fryst átta bankareikninga vegna
rannsóknarinnar og í Zúrich hafa
tveir reikningar verið frystir. Ber-
tossa neitaði að greina frá því hve
miklir fjármunir eru inni á reikn-
ingum þessum.
Ráðherrar nefndir til sögu
Það flækir svo rannsókn málsins í
Frakklandi að því hefur verið hald-
ið fram að Falcone hafi i raun starf-
að á vegum hátt settra franskra
stjórnmálamanna og ríkisfyrirtæk-
isins Sofremi sem stjómar vopna-
sölu innanríkisráðuneytisins til út-
landa.
Bernard Poussier, fyrrum for-
stjóra Sofremi, hefur einnig verið
stungið inn. Saksóknarar uppgötv-
uðu nefnilega að hann hefði þegið
stórar fjárhæður frá Falcone.
Henri Hurand, núverandi fram-
kvæmdastjóri Sofremi, hélt því fram
við yfirheyrslur í París í vikunni að
fyrirtækið heföi lengi verið notað
sem skálkaskjól fyrir vopnabrask.
Hurand sagði að Falcone hefði
verið eini milligöngumaður fyrir-
tækisins í vopnasölu til erlendra
ríkja og að hann hefði borið fé á alla
í áraraðir.
Forstjórinn gekk svo langt bera
fram ásakanir á hendur fyrrum inn-
anrikisráðherrum Frakklands sem
báru ábyrgð á Sofremi. Hann stað-
hæfði þó að þeir Charles Pasqua,
sem er mið-hægrimaður, og sósí-
alistinn Pierre Joxe hefðu „fylgst
mjög nákvæmlega með starfsemi
fyrirtækisins".
Byggt á The Sunday Times, Le
Monde, Le Nouvel Observateur,
Reuters og The Guardian.
Marxistinn í Angóla
José Eduardo Dos Santos, marxisti
og forseti Angóla, átti i viöskiptum
viö olíuféiagiö sem Dick Cheney rak.
Þannig var að í september 1998
handsamaði franska lögreglan hóp
glæpamanna sem grunaður var um
fjárkúgun. Glæpamenn þessir voru
það sem lögreglan kallar „pylsugerð-
armenn" vegna þeirrar aðgerðar
þeirra að kefla og binda fómarlömb-
in eins og rúllupylsu. Bófarnir
höfðu kúgað sem svarar um fimmtíu
milljónir króna út úr kaupsýslu-
manninum Henri Benhamou en sá
sagði að þeir hefðu aðeins stolið af
sér tæpum fjórum milljónum króna.
Lögreglan komst fljótlega að því
hvers vegna Benhamou hafði ekki
tilkynnt þjófnaðinn. í skjölum sem
pylsugerðarmennirnir höfðu haft
með sér úr skrifstofu Benhamous
vom skrár yflr fjármagnshreyfmgar
sem lögreglunni þótti grunsamlegar.
Slóðin var að lokum rakin til glæsi-
legs búgarðs í Scottsdale í Arizona í
Bandaríkjunum, heimilis franska
kaupsýslumannsins og vopnabrask-
arans Pierres Falcones.
Bush yngri meðal gestanna
Glæsihýsin era mörg í Scottsdale
en búgarður Falcones þykir einna
glæsilegastur. Þangað heimsótti
hann mikilli fjöldi frammámanna í
viðskiptum og stjómmálum. Bill
Gates, stofnandi hugbúnaðarfyrir-
tækisins Microsoft, var gestur þessa
45 ára snyrtilega, glaðlynda og sköll-
ótta Frakka. George W. Bush, verð-
andi forseti Bandaríkjanna, var þar
gestur líka, enda lagði Falcone til fé
í kosningabaráttu hans. Og það sem
meira er, konur þeirra voru, og eru
kannski enn, vinkonur.
Jean-Christophe Mitterrand var
tíður gestur á búgarði Falcones.
Fyrsta heimsókn hans þangað var
árið 1992. Mitterrand hafði verið
einn helsti ráðgjafl föður síns,
Francois Mitterrands forseta, um
málefni Afríku og hann var nú stað-
Franskir rannsóknardómarar
halda því fram að annað fyrirtæki
Falcones, Brenco Intemational, hafl
gert samning við Simportex um að
útvega angólska hernum rússnesk
umframvopn og falsa skjöl til að
fara í kringum alþjóðlegt bann við
slíkum viðskiptmn.
Félagi Falcones í vopnabraskinu
var Rússinn Arkadí Gaidamak,
milljarðamæringur og fyrram út-
sendari sovésku leyniþjónustunnar
KGB. Gaidamak þessi hafði keypt
sovéskar þyrlur árið 1986 með það í
huga að selja þær til Kólumbíu og
annarra landa í Rómönsku Amer-
íku. Gaidamak skipti hins vegar um
skoðun eftir að hann hitti Falcone í
Angóla, fyrir milligöngu Jeans-
Christophes Mitterrands, og ákvað
að koma þeim til Angóla. Við
þyrlumar bættust svo Mig-orrustu-
þotur og skotfæri.
Falcone var þekktur fyrir að
dreifa stórum fjárfúlgum til vina
sinna, þeirra sem hann hafði gaman
af og hinna sem hann taldi að hann
gæti haft gott af síðar. Hann var
handtekinn þann i. desember síðast-
liðinn og situr enn í gæsluvarðhaldi.
Gefin hefur verið út alþjóðleg hand-
tökuskipun á hendur Gaidamak en
talið er að hann haldi til í ísrael.
Bara þjórfé
Jean-Christophe Mitterrand sat
inni yfir jólin, í hinu illræmda
Santé-fangelsi í París, en á fimmtu-
dag reiddi móðir hans, ekkja
Frangois heitins Mitterrands, fram
sextíu milljónir króna í tryggingafé
fyrir lausn hans úr gæsluvarðhaldi.
Mitterrand mun hafa fengið sem
svarar 140 milljónum króna fyrir að
koma á viðskiptum Falcones og
stjórnvalda í Angóla. Sá samningur
hljóðaði upp á 40 milljarða króna.
„Þetta eru ekki umboðslaun, þetta
ráðinn í að nýta sér tengsl sín við
málsmetandi menn í álfunni til að
skara eld að eigin köku. Pierre
Falcone, einhver umsvifamesti
vopnasedi i heimi, var einnig að búa
sig undir mestu viðskipti lífs sins.
Milligöngumaðurinn um fund
þeirra var einn stjórnenda frönsku
fyrirtækjasamsteypunnar Thomson-
CSF. Nafn þess manns hefur verið
nefnt í tengslum við annað hneyksl-
ismál í Frakklandi, sölu á freigátum
til Taivans.
Matur og einkennisbúning-
ar
Falcone er forstjóri olíufyrirtæk-
isins Falcon Oil, sem á tíu prósent í
einhverjum gjöfulustu oliulindum
Angóla. Hann er einnig fram-
kvæmdastjóri Simportex, angólsks
fyrirtækis sem sér um að útvega
angólska hemum bæði matvæli og
einkennisbúninga.
Gestur vopnabraskara
George W. Bush heimsótti franska
vopnabraskarann Pierre Faicone á
búgarö hans i Arizona.