Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Side 27
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
DV
Helgarblað
27
Spáð í aukakílóin:
Megrunarfæði
á MacDonald’s
í upphafi árs stendur hugur
margra til þess aö taka sig á í ýms-
um efnum, láta af löstum og byggja
sig upp. Eitt vinsælasta átaksvið-
fangsefni þessa árstíma eru
aukakílóin sem gjaman hefur fjölg-
að í jólasukkinu.
Kúrar sem flakka á milli
Megrunarkúrar hafa lengi verið
sérstakt áhugamál kvenna og hver
hefur ekki fengið „kúrinn sem ekki
getur klikkað" á margljósrituðu
blaðsnifsi eða jafnvel í tölvupósti
frá góðri vinkonu. Þessir kúrar eiga
það flestir sameiginlegt að fara á ná-
kvæmlega eftir þeim ef þeir eiga að
bera árangur og framsetning þeirra
minnir nokkuð á einhvers konar
trúboð eða heilaþvott.
Þessir megrunarkúrar geta verið
allkúnstugir í samsetningu. Stund-
um ganga þeir út á aö einungis
einnar matartegundar er neytt, svo
dögum og jafnvel vikum skiptir.
Vinsælastur þess háttar kúra hefur
líklega verið bananakúrinn svo-
nefndi.
Annað sem einkennir þessa kúra
er að oft á að neyta t.d. kjöts á
morgnana og einungis ávaxta á
kvöldin þannig að kúrinn brýtur í
hága við almennar matarvehjur, að
minnsta kosti hér á norðurhveli.
Sykurinn er úti
Þegar farið er á vefsíður sem sér-
staklega eru ætlaðar konum má sjá
að megrun skipar þar iðulega veg-
legan sess. Á femin.is er hægt að
finna þyngdarstuðul sinn, segja
skoðun sína á því hvort maöur sé of
þungur og taka þátt í skoðanakönn-
un um hvort maður ætli að fara í
heilsuátak í janúar (78% þeirra sem
höfðu svarað þeirru spurningu voru
á leið í átak).
Reynt er að selja konum alls kyns
bækur sem bjóða töfralausnir. Nýtt
líf á þremur vikum, tíu eða tólf. Ef
skyggnst er í þessar bækur má sjá
að þeim svipar að mörgu leyti til
margljósrituðu kúranna. Fara á eft-
ir mjög nákvæmri forskrift til að ná
árangri.
Ef leitað er að megrunarkúrum
á Netinu er nokkuð öruggt að mað-
ur lendir i frumskógi. Ein frumleg-
asta slóðin sem blaðamaður rakst
á var líklega slóðin fastfood.com
þar sem seldur er megrunarkúr
sem gengur út á það eitt að borða
skyndimat.
Nokkuö í sama dúr er Atkin’s
kúrinn þar sem ávextir, brauð,
korn, grænmeti með sterkju og
mjólkurvörur aðrar en ostur, rjómi
og smjör eru á bannlista, a.m.k.
fyrstu tvær vikurnar. Máltíðir sem
mælt er með í kúrnum eru spæld
egg og beikon í morgunmat, túnfisk-
ur með majonesi í hádeginu og alls
kyns svína- og nautasteikur í kvöld-
mat. Allur matur er steiktur upp úr
hreinu smjöri og ekkert er spáð í
skammtastærðir. Margir sem reynt
hafa þennan kúr segjast hafa lagt al-
veg ótrúlega af.
Auðséð er að kúrar sem ganga út
á að sleppa sykri en leyfa fitu eiga
allnokkuð upp á pallborðið um þess-
ar mundir.
Aö léttast og aö grennast
Að grennast felst ekki bara i því
að léttast þvi þegar við léttumst get-
um við allt eins verið að missa
vöðvamassa. Þar sem vöðvar
brenna fitu getur með því dregið úr
áframhaldandi fitubrennslu. Einnig
getum við verið að missa vökva úr
líkamanum sem reyndar er eðlilegt
á fyrstu vikum megrunar. Því er
mælt því með að nota spegilinn og
fitumælingar sem líkamsræktar-
stöðvar bjóða til að meta árangur
megrunar fremur en baðvigtina ein-
göngu.
Það sem skiptir mestu máli hlýt-
ur að vera góð andleg og líkamleg
heilsa og viðunandi líkamsþyngd er
liður í því. Mikilvægt er bæði fyrir
konur og karla að taka megrunar-
kúrum af skynsemi því eins og sum-
ir segja getur góða skapið verið það
fyrsta sem maður missir í öflugum
megrunarkúr.
Heillavænlegast er áreiðanlega að
hreyfa sig reglulega, borða hollan
mat og ekki of mikið af honum og
sneiða eftir fóngum hjá fæðu sem
ekkert gerir fyrir líkamann annað
en að gleðja bragðlaukana stutta
stund. -ss
sponáMK
’m n ■
á ferðaœvintýri
8--12.marS:
F«punktargf/da
- Dfósn rCfið-Evrópu
Helgarferðir
8.-12. mars • Laus sæti
15.-18. mars • Örfá sæti laus
Verð frá 49.900 kr.
Budapest
- Perlon við Dónú
Helgarferð
22.-25. mars • 9 sæti laus
Verð frá 50.900 kr.
VISA ferð
Fyrir Far- og Gullkorthafa
lstanbul
- Töfrar tveggja heima
3.-8. mars • Laus sæti
Verð frá 65.900 kr.
V/SA ferð
Fyrir Far- og Gullkorthafa
Moskva
- Borg heillandi andstœðna
29. mars-2. apríl
Örfá sæti laus
Verð frá 59.900 kr.
Tilgreint verð eru á mann í tvíbýli.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, akstur til og frá flugvelli erlendis,
gisting með morgunverði og íslensk fararstjórn.
Opið í Kringlunni frá kl. 10-16 í dag.
Sími 585 4070.
ÆH RVAL-ÚTSÝN
Lágmúla 4: sími 585 4000, grænt númer; 800 6300,
Kringlan: sími 585 4070, Kópavogi: sími 585 4100,
Keflavík: sími 585 4250, Akureyri: sími 585 4200,
Selfoss: sími 482 1666
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
www.urvalutsyn.is
Nýjasti megrunarmaturinn
Einn megrunarkúrinn sem hægt er að fara í felst í að boröa eingöngu skyndimat.
Ndnar á netinu - Bókaðu d netinu • www.urvalutsyn.is