Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Síða 29
28 37 Helgarblað LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 DV LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001 I>V Helgarblað Sel ekki samvisku mina Jón Steinar Gunnlaugsson ræðir um öryrkjadóm- inn, vináttu sína við Davíð, pólitík Hæstaréttar og „litla sæta danska prinsinn" á Bessastöðum. Jón Steinar Gunnlaugsson hefur um margra ára skeið verið einn þekktasti lögmaður landsins og er meðal annars kunnur fyrir að liggja ekki á skoðunum sínum varðandi menn og málefni og þá kannski sér í lagi Hæstarétt og hæstaréttardóm- ara. Nafn Jóns Steinars hefur verið of- arlega á baugi síðustu vikurnar í sambandi við dóm Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalags íslands gegn Tryggingastofnun ríkisins. Forsætis- ráðherra skipaði hann sem kunnugt er formann starfshóps sem átti að fara yfir dóminn og finna leiðir til að verða við honum. Greining dómslns Skýrsla starfshópsins var gerð op- inber á miðvikudag svo og nýtt laga- frumvarp ríkisstjórnarinnar vegna öryrkjamálsins. Viðbrögð forsvars- manna öryrkja við niðurstöðu starfs- hópsins og nýju frumvarpi voru hörð. Meðal annars var því haldið fram að frumvarpið væri eins og „blaut tuska framan í Hæstarétt“, „stórhættulegt fordæmi", „nýtt stjórnarskrárbrot" og einnig var sagt: „starfshópur hiutdrægur". „Starfshópurinn fékk það verkefni að fjalla um dóminn á lögfræðilegan og því hlutlausan hátt,“ segir Jón Steinar. „Það er fráleitt að halda því fram að hlutverk hópsins hafi verið að komast að annarri niðurstöðu. Starf okkar fólst í því að greina hvað fælist í dómnum, hvað þyrfti til að framfylgja honum. Ef ætlast hefði verið til að niðurstaða okkar yrði hlutdræg, hefðum við i reynd verið beðnir um niðurstöðu, sem fæli í sér nýtt tap Tryggingastofnunar ríkisins í máli sem af því myndi hljótast. Það hefði varla verið mjög gáfulegt að biðja um slíkt og hvarflaði ekki að neinum. Þá hefði ég reyndar ekki tekið verkefnið aö mér og áreiðan- lega ekki félagar mínir í nefndinni heldur. Við greinum í sundur hvað felst í dómnum. Við teljum m.a. að fyrning krafna sé fjögur ár og byggjum það á beinu ákvæði fyrningarlaganna. Svo er að sjá sem einhverjir séu því ósammála. Þeir geta þá látið reyna á þetta fyrir dómstólum, sem er sú leið sem menn fara til að fá leyst úr rétt- arágreiningi. Það sér hver maður að starfshópur sem fjallar um niður- stöður dómsins leggur ekki til að fymdar kröfur skuli greiddar." Pólitískt upphlaup ÖBÍ Viðbrögð ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýnd mjög af forystu Ör- yrkjabandalagsins og stjómarand- stöðunni. Jón Steinar telur viðbrögð ríkisstjómarinnar hafa verið rétt. „Og ekki bara rétt heldur nauð- synleg. í dómnum var ekki dæmt um einstakar kröfur og raunar segir í honum að af honum verði ekki dregnar ályktanir um rétt einstakra lifeyrisþega. Það var því ábyrgðar- hlutur að senda öryrkja inn í Trygg- ingastofnun 2. janúar til að sækja bætur, eins og forystumenn Öryrkja- bandalagsins gerðu.“ Jón Steinar segir erfitt að segja til um hvort þetta muni skaða ríkis- stjómina. Kringumstæöur hafi verið mjög erfiðar. „Pólitík, tilfmningar og hags- munabarátta hafa einkennt allar um- ræður um málið. Mér finnst við- brögðin við útspili ríkisstjómarinn- ar ekkert hafa með lögfræði að gera. Þetta er miklu frekar pólitískt upp- hlaup, sem forysta öryrkjabanda- lagsins tekur þátt í og helgast af póli- tísku andófi við ríkisstjómina og þá sérstaklega viö Davíð Oddsson. Það hefði verið alveg sama hver niður- staðan hefði verið. Þetta er pólitísk- ur loddaraleikur. Markmið starfshópsins var að koma með lögfræðilega réttar álykt- anir. Hann lét ekki þessar aðstæður hafa áhrif á niðurstöðuna öryrkjum til hagsbóta né heldur til hnjóðs. All- ir sem kynna sér málin og eru ekki blindaðir af pólitískri skammsýni sjá að unnið hefur verið af heilindum. Það er einkennandi fyrir málið allt að þeir sem fá leiðréttingu eru ekki endilega þeir sem þurfa mest á því að halda. Það verða til mikil vanda- mál þegar dómstólar taka að móta reglur sem á undir löggjafann að setja. Okkar starf laut þó ekki að því að gagnrýna dóminn, heldur greina hvað í honum fælist. í skýrslu okkar er dómsniðurstaðan hvergi gagn- rýnd.“ Garðar hleypur í skjól Hvert er álit þitt á Garðari Sverrissyni? „Ég vil ekki segja neitt ljótt um blessaðan manninn. Ég kemst þó ekki hjá því að segja að það hefur vakið athygli mína hversu persónu- legur hann er í baráttu sinni. Þjóðin hefur fylgst með honum beina spjót- um sínum að persónum ákveðinna manna og er forsætisráðherra þar fremstur í skotlínu. Það er áreiðan- lega mjög erfitt fyrir stjórnmála- mann sem almenningur hefur kosið tO ábyrgðarmestu trúnaðarstarfa, þegar talsmaður hagsmunasamtaka, sem njóta almennrar samúðar, tekur að ráðast á hann á persónulegan hátt. Algengast er að stjómmála- menn reyni að leiða slíkar árásir hjá sér svo það verði ekki túlkað þannig að þeir séu að ráðast á hagsmuna- hópinn. Ég virði það við vin minn Davíð Oddsson að hann skuli ekki láta bjóða sér þetta þegjandi. Það er fráleitt að halda því fram að hann hafi andúð á öryrkjum þótt forystu- maður öryrkja hlaupi ætíð í það skjól, að allir sem andmæli honum stundi árásir á öryrkja. Ég veit að því fer fjarri að Davíð beri óvildar- hug til öryrkja. Það geri ég ekki held- ur sjálfur, þó að ég hafi verið hafður fyrir þess háttar sökum í orðagjálfri síðustu daga. Menn sem láta sér slík- ar ásakanir um munn fara gætu rifj- að það upp fyrir sjálfum sér að ég barðist um langt árabil harðri bar- áttu fyrir endurbótum á skaðabóta- lögum tii hagsbóta fyrir það fólk sem missir starfsorku sína í slysum og krefst skaðabóta. Forsætisráðherr- ann studdi þessa baráttu og réttarbót fékkst á árinu 1999. Þetta er nú meiri fjandskapurinn. Formaður ÖBÍ hefur farið mikinn en hann verður að eiga um það við sjálfan sig.“ Kómískur vinkill „Það er kómískur vinkill á mál- inu,“ segir Jón Steinar og minnir á að tekjutenging sé miklu fremur bar- áttumál þeirra sem kenna sig viö jöfnuð og félagshyggju. „í dóminum felst að skorður eru reistar við tekju- tengingu. Það ætti frekar að vera í andstöðu við stefnu núverandi stjórnarandstöðuflokka. Viðbrögð stjórnarandstöðunnar eru dæmigerð og segja dapra sögu um íslenska stjórnmálamenn. Þeir láta meintan stundarávinning villa um fyrir sér og vilja ganga í augun á þeim sem eiga hagsmuna að gæta. Á þeim grundvelli taka þeir afstöðu. Málið snertir valdmörk löggjafarvalds og dómsvalds, sem líka munu skipta máli, ef núverandi stjórnarandstaða nær því markmiði sínu að komast til valda og geta stjórnað með tilstyrk þingmeirihluta. Þetta virðast þeir ekki sjá í sínu stundarpólitíska karpi. Þó að ég sé algerlega ósammála dómsniðurstöðunni, legg ég áherslu á að virða verður niðurstöðuna. Þar er afar rík meginregla í stjórnskip- uninni í húfi, sem við höfum í heiðri. Pólitísk viðhorf dómara Umræða um Hæstarétt hefur opn- ast á síðustu misserum og telur Jón Steinar það vera jákvæða þróun. „Á vettvangi lögfræðinga hefur verið rætt nokkuð um valdsvið og valdmörk dómstóla. Fyrir aldarfjórð- ungi, um það leyti sem ég hóf störf sem lögmaöur, var miklu síður rætt um dómstólinn en sem betur fer hef- ur það breyst. Dómarar fara með ákaflega þýðingarmikið þjóðfélags- vald. Þeir eru æviskipaðir og geta nánast gert hvað sem er án þess að bera nokkra raunverulega stjórn- skipulega ábyrgö á gjörðum sínum, eins og alþingismenn verða að gera, þegar þeir þurfa að sækja umboð sitt til þjóðarinnar á íjögurra ára fresti. Þessar kringumstæður gera það að verkum að dómarar eiga ekki að vera í pólitík. Þeir eiga aö dæma eft- ir lögum og meðal annars gæta þess að löggjafmn brjóti ekki mannrétt- indi á borgurunum en draga mörkin þar. Fyrir 15 árum var málum svo hátt- að, að stjómarskrárvarin réttindi voru hálfgert tabú í lögfræði. íslensk- um dómumm og öðrum lögfræðing- um var illa við að mikið væri verið að ræða slíka hluti. Síðan hefur mik- ið vatn runnið til sjávar. Núna finnst mér í staðinn komið agaleysi í stjórnarskrárskýringum. Dómstólar leyfa sér hluti sem þeir hafa að rétt- um stjómlögum ekki heimild til. Þá seilast þeir inn á verksvið hins þjóö- kjörna löggjafa. Hann ber hina póli- tísku ábyrgð en ekki æviráðnir dóm- arar. Áður var mjög erfitt að fá dóminn til að viðurkenna augljós mannrétt- indi. Á sínum tíma skrifaði ég bók um það. En nú er svo komið að dóm- stóllinn gengur lengra en heimilt get- ur talist samkvæmt grundvallarregl- um íslenskrar stjómskipunar. Dóm- arar mega ekki freistast til láta póli- tísk viðhorf sín ráða verkum sínum í dómsýslunni." Er þetta orðið vandamál? „Já, en ekki bara hér á landi. Þetta mátti sjá í málaferlum eftir forseta- kosningarnar í Bandaríkjunum, sér- staklega í Flórída þar sem dómstóll tók sér vald til að víkja lagareglum til hliðar. Um þetta er mikið rætt í Bandaríkjunum og það gagnrýnt að dómstólar taki sér um of slíkt vald. Dómstólar hafa ekki vald til að setja lög þótt sú kenning sé uppi hér, meira að segja hjá þeim prófessor við lagadeild Háskóla íslands, sem þar hefur kennt laganemum um réttar- heimildirnar. Hann hefur sagt að hlutverk dómstóla sé að setja lög og að takast jafnvel á við löggjafann um lagasetninguna. Svona kenningar eru hreinasta fjarstæða og eru að- eins til þess fallnar að stuðla að laus- ung og agaleysi við dómsýsluna." Ekki næsti dómari Dómar Hæstaréttar hafa fordæm- isgildi. I þvi felst eins konar fyrirheit um að önnur eins mál fái sömu úr- lausn og segir Jón Steinar að þvi sé mikilvægt að í mikilvægum málum sitji sjö dómarar. „Það styrkir fordæmisgildi dóms- ins ef dómarar eru fleiri. í þessu til- felli komast þrír af níu dómurum Hæstaréttar að þeirri niðurstöðu sem deilt er um í öryrkjamálinu. Ef annað sambærilegt mál kemur til kasta dómstólsins gæti hann orðið skipaður öðrum dómurum en nú dæmdu og mynduðu meirihlutann. Ef einn af þeim þremur sem stóðu að dómi meirihlutans hefði vikið og einn hinna fjögurra sem fyrir utan stóð tekið sæti hans hefði niðurstað- an getað orðið önnur. Því er heppi- legra að fleiri dómarar skipi dóminn, í þýðingarmiklum málum." Verður þú næsti hæstaréttardóm- ari? „Nei.“ Gætir þú hugsað þér að verða hæstaréttardómari? „Kannski." Háttur vinstrimennskunnar Margir hafa sagt að Jón Steinar hafi fært sig og sitji nú hinum megin við borðið, þ.e. að nú berjist hann fyrir ríkið gegn einstaklingunum, ólikt því sem birtist í bók hans um Hæstarétt. „Ég hef heyrt þetta. Það er eins og menn telji þetta vera fótboltaleik og þar séu einhver lið, sem menn hafi skipað sér í til frambúðar. Þess vegna eigi ég alltaf að taka afstöðu með þeim sem beri fyrir sig mann- réttindaákvæði. Þetta er fráleitt sjón- armið. Afstaða til einstakra mála ræðst af efni þeirra en ekki ein- hverri liðskipan af því tagi sem hér um ræðir. Ég er alveg jafnmikill mannréttindasinni nú sem fyrr og tek ekki þátt í því að skipa mér til liðs með þessum ómálefnalega hætti. Vinstri menn hafa mikla tilhneig- ingu til að gera þetta. Þeir tala alltaf um liðskipan og væna menn um hlutdræga stöðu þegar þeir treysta sér ekki til að ræða málefnið sem til meðferðar er hverju sinni. Reyndar hefur þessa sést merki núna eftir að skýrsla okkar í nefndinni birtist. í stað þess að ræða hana efnislega reyna þeir að gera mig og félaga mína tortryggilega vegna tengsla okkar við ráðherrana sem skipuðu okkur. Það er eins og nefndin hafi haft stöðu sem úrskurðaraðili um málið í stað þess að vera ráðgefandi. Engin vanhæfissjónarmið eiga hér við. Þetta er einfaldlega tilraun að hætti vinstri manna til að rugla um- ræðurnar og forðast umræður um efni málsins. Vinur Davíðs Það hefur ekki farið fram hjá nein- um að Jón Steinar og Davið Oddsson eru miklir félagar. „Við erum persónulegir vinir og tölum oft saman. Það er þó misjafnt hversu langur tími líður á milli sam- tala. Við kynntumst um það leyti sem við lukum lögfræðiprófl en við lukum námi á svipuðum tíma. Við erum pólitiskir samherjar og ég hef stundum hlegið að því með sjálfum mér þegar ég heyri Davíð taka af- stöðu til þjóðmála, að hún er oftast sú sama og ég hef tekið til sama máls án þess að nokkur samtöl hafi átt sér stað. Ég held að þetta sé til marks um að lífsskoðanir okkar eru mjög svipaðar. Davíð hefur þó þurft að semja meira um sína lífsskoðun. Það eru í sjálfu sér forréttindi að vera maður úti i bæ og engum háður eins og ég. Davíð nýtur ekki þeirra for- réttinda. Við veiðum saman og konur okkar eru góðir kunningjar en þær voru saman í hjúkrunarfræði. Með okkur er mikill vinskapur og ég met Davíð mikils, bæði sem vin og persónu." Er Davíð jafngóður stjórnmála- maöur og veiðimaður? „Þetta verður varla borið saman. Þó er unnt að segja að hann standi áreiöanlega framar í hópi stjórn- málamanna, þar sem hann er fremst- ur, heldur en hann stendur í hópi veiðimanna, þar sem hann er ekki fremstur, þó að hann sé mjög lunk- inn á því sviði.“ Hvemig myndirðu lýsa Davíð? „Hann er heiðarlegur og málefna- legur. Hann hefur gott innsæi í þjóð- félagið og þá strauma sem þar liggja án þess að hann láti endilega stjóm- ast af þeim. Hann er kjarkmikÚl og áræðinn." Hreinskilin gagnrýni Eruð þið einhvem tíma ósam- mála? „Ég er stundum ósammála Davíð og þegar það gerist þá tjái ég honum þaö - umbúðalaust. Við tölum saman af hreinskilni. Hann lætur gagnrýni vina sinna aldrei hafa nein áhrif á persónuleg samskipti. Fyrir það er hann meiri maður. Hann veit að slík gagnrýni er sett fram af góðum huga. Oft held ég að hjarta hans slái meö gagnrýninni þrátt fyrir að hann hafi talið sig þurfa að taka þá ákvörðun sem gagnrýnd er.“ Stundum er talað um að Davíð sé umkringdur já-mönnum. Heldurðu að fleiri en þú talir svo hreinskilnis- lega við hann? DV-MYNDIR GVA Pólitísk viðhorf hæstaréttardómara „Áöur var mjög erfitt aö fá dóminn til að viöurkenna augljós mannréttindi. Á sínum tíma skrifaöi ég bók um þaö. En nú er svo komiö aö dómstóitinn gengur lengra en heimilt getur talist samkvæmt grund- vaiiarregium istenskrar stjórnskipunar. Dómarar mega ekki freistast til aö láta pólitísk viöhorf sín ráöa verkum sínum í dómsýslúnni." Veiðar með Davíð „Viö erum persónulegir vinir og tölum oft saman. Það er þó misjafnt hversu langur tími líður á milli samtala. Viö kynnt- umst um þaö leyti sem viö lukum lögfræðiprófi en viö lukum námi á svipuöum tíma. Viö erum pólitískir samherjar og ég hef stundum hlegiö aö því meö sjálfum mér þegar ég heyri Daviö taka afstööu til þjóömála, aö hún er oftast sú sama og ég hef tekiö til sama máls án þess aö nokkur samtöl hafi átt sér staö. Ég held aö þetta sé til marks um aö lífsskoöanir okkar eru mjög svipaöar. “ „Já. Davíð tekur þeirri gagnrýni vel sem hann finnur að sett er fram af málefnalegum heilindum.“ Ef Davíð lendir í erfiðum málum er ekki óalgengt að lesa megi aðsent bréf í Morgunblaðinu eftir Jón Stein- ar þar sem hann ver gerðir og af- stöðu vinar síns. Hefur Davíð sam- band við þig og biður þig að skrifa? „Nei, Davíð hefur aldrei beðið mig um að skrifa í blöð, hvorki fyrr né síðar. Ég styð Davíð til góðra verka. Stuðningur til þeirra er öllum mönn- um mikilvægur. Mælikvarðinn sem ég legg á störf hans og annarra er minn eigin mælikvarði. Ég styð aldrei neinn í blindni. Samviska mín er ekki til sölu.“ í nýlegri könnun var Davíð valinn mesti stjórnmálamaður aldarinnar. Ertu sammála því? „Já, ég held að því verði ég að svara játandi. Fyrst og fremst vegna þess að ég tel að varanleg áhrif í stjórnmálum felast í því að breyta hugarfari manna. Einstakir kosn- ingasigrar skipta miklu minna máli. Davíð hefur unnið marga slíkra sigra, en það sem gerir hann stóran í mínum augum er sú hugarfarsbreyt- ing sem orðið hefur á íslandi í stjóm- artíð hans, mest fyrir hans atbeina. Sú breyting er að mínum dómi meiri en áður hefur þekkst. Þess vegna tel ég hann verðskulda þessa nafnbót." Velgengnl í starfi Heldurðu að samband þitt við Davíð hafi áhrif á trúverðugleika þinn sem lögmaður? „Nei, hvers vegna ætti það að vera? Margir leita til mín. Það helgast vonandi af því að þeir telji mig taka starf mitt alvarlega. Ég er þakklátur fyrir þá lífsgæfu að hafa notið velgengni í starfinu. Ég tel það vera vegna verka minna á sviði lögfræðinnar en hafi ekkert með annað aö gera. Ég býst ekki við að það spilli fyrir störfum mín- um að ég skuli taka til máls um þjóðmálin öðru hverju. Ef svo er verður bara að hafa það.“ Lítill sætur danskur prins Eitt af þeim málum sem Jón Steinar hefur talað út um án þess að vera endilega að auka vinsæld- ir sínar er afstaða hans til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta ís- lands. „Ég kynntist Ólafi Ragnari Grímssyni í starfi mínu meðan hann var í stjórnmálum. Hann tengdist þá málum sem ég fór með fyrir einstaklinga sem áttu undir högg að sækja. Framganga Ólafs var með þeim hætti að ég fékk mikla skömm á. Hún var óvægin og beindist að mönnum sem ekki gátu borið hönd fyrir höfuð sér. Hann hikaði ekki við að reyna að slá sér upp á þeirra kostnað. Það er satt að segja mjög undarlegt að maður með slíkan feril skuli hafa verið kosinn forseti íslands sem á að vera sameiningartákn þjóðar- innar. Ég er þeirrar skoðunar aö menn eigi ekki að geta endurskapað per- sónu sína með sex mánaða fyrir- vara og slegið striki yfir fortíðina; búið til nýja persónu sem virðist öðruvísi en hin en er það þó auð- vitað ekki. Ég tel ekki heppileg skilaboð til þeirra sem hefja þátt- töku í stjórnmálum að það sé allt í lagi að haga sér fautalega og mis- fara með opinbert vald en geta seinna farið í nýja hempu þvi þjóð- in sé svo fljót að gleyma.“ Miðað við þennan bakgrunn, hvernig þykir þér Ólafur Ragnar hafa staðið sig í embætti? „Persónan er ótrúverðug og mér líkar ekki við hana. Ég hef líka sagt að mér þyki hann hafa gegnt embættinu á ógeðfelldan hátt og dregið einkamál sín inn í það. Hann virðist telja sig konungbor- inn. Hann trúlofar sig í beinni út- sendingu eins og lítill sætur danskur prins. Það er ekki háttur sem sæmir íslenskum þjóðhöfð- ingja.“ -sm í önnum „Ég býst ekki viö aö þaö spilli fyrir störfum mínum að ég skuli taka til máls um þjóömálin ööru hverju. Ef svo er veröur bara aö hafa þaö. “ Átta barna faðir Jón Steinar á stóra fjölskyldu. Hér er hann meö konu sinni, Kristínu Pálsdóttur Bergþórssonar, og börnum þeirra fimm. Þrjár dætur á Jón Steinar frá því fyrir hjónaband.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.