Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2001, Page 46
54
Tilvera
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ára
Halldór Björnsson,
Stóru-Seylu, Varmahlíö.
Herbert Sigurösson,
Ofanleiti 17, Reykjavík.
Rósa Þórunn Guðmundsdóttir,
Ásholti 2, Reykjavík.
75 ára_____________________________
Emilía Kristbjörnsdóttir,
Vorsabæ 2, 801 Selfossi.
Gunnar Guömundsson,
Skúlagötu 40, Reykjavík.
Siguröur Ólafsson,
Hrísmóum 1, Garðabæ.
60 ára_____________________________
Gunnar Gunnarsson,
Klapparbergi 4, Reykjavík.
Gylfi Einarsson,
Skólageröi 28, Kópavogi.
Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Lindarbraut 47, Seltjarnarnesi.
Þórey Ragnarsdóttir,
Holtsgötu 27, Njarövík.
50 ára_____________________________
Anna K. Ágústsdóttir,
Háageröi 49, Reykjavík.
Guöbjörg Edda Eggertsdóttir,
Vallarbaröi 10, Hafnarfiröi.
Guörún Lára Aradóttir,
Ránargötu 2, Reykjavík.
Halldór Gíslason,
Laugateigi 44, Reykjavík.
Helgi K. Helgason,
Sæunnargötu 12, Borgarnesi.
Hermann Noröfjörö,
Suðurgötu 59, Hafnarfiröi.
Inger 0. Traustadóttir,
Háaleitisbraut 117, Reykjavík.
Ósk Dagbjört Guömundsdóttir,
Svarthömrum 24, Reykjavík.
Siguröur Björnsson,
Dúfnahólum 4, Reykjavík.
40 ára_____________________________
Guðmundur Kristinn Guömundsson,
Kaðalstöðum 1, 311 Borgarnesi.
Halldór Friögeir Ólafsson,
Brekkuhjalla 3, Kópavogi.
Ingibjörg Poulsen,
Mururima 1, Reykjavík.
Jóna Járnbrá Jónsdóttir,
Blómsturvöllum 22, Neskaupstaö.
Ragnar Kristinn Pálsson,
Kastalageröi 11, Kópavogi.
Rainer Jessen,
Melgötu 4a, Grenivík.
Sjöfn Magnúsdóttir,
Klukkurima 83, Reykjavík.
Snæbjörn Tryggvi Guönason,
Laufengi 160, Reykjavík.
Sólveig Sigmarsdóttir,
Lóurima 29, Selfossi.
Steini Krístjánsson,
Skúlabraut 21, Blönduósi.
Þorbergur Þórsson,
Seilugranda 4, Reykjavík.
Andlát
Hannes Heiöar Jónsson lést á heimili
sínu miövikud. 10.1.
María Magnúsdóttir lést á Landspítal-
anum, Hringbraut 9.1.
Haraldur Sigurösson, Eyjabakka 6, lést
á heimili sínu að kvöldi miövikud. 10.1.
Kristbjörg S. Olsen frá Patreksfiröi, síö-
ast til heimilis á Hrafnistu, Hafnarfiröi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi miö-
vikud. 10.1.
Gunnar Valgeirsson, Hrisateigi 24,
Reykjavík, lést þriöjud. 9.1.
Bjami Þorsteinsson, Guðrúnargötu 4,
lést á Vífilsstaðaspítala 2.1. sl. Jarðar-
för hans hefur fariö fram í kyrrþey aö
ósk hins látna.
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Þórðargata 20, Borgamesi, þingl. eig.
Hallur Bjömsson, gerðarbeiðendur Líf-
eyrissjóðurinn Lífiðn og Samvinnulífeyr-
issjóðurinn, þriðjudaginn 16. janúar
2001, kl. 10.
■SÝSLUMAÐURINN 1 BORGARNESI
UPPBOÐ
Uppboð mun byrja á skrifstofu
embættisins að Strandgötu 52,
Eskifirði, sem hér segir á eftir-
farandi eign:
Dalbarð 15, Eskifirði, þingl. eig. Bene-
dikt Jón Hilmarsson, gerðarbeiðendur
Fjarðabyggð og Ibúðalánasjóður,
fimmtudaginn 18. janúar2001, kl. 10.
^..SÝSLUMAÐyRlNN^E^iyFIRÐi
LAUGARDAGUR 13. JANÚAR 2001
DV
Sextug
Gígja Friðgeirsdóttir
starfsmaður við Landsbankann á Akureyri
Gígja Friðgeirsdóttir, starfsmað-
ur við Landsbanka íslands hf. á Ak-
ureyri, er sextug í dag.
Starfsferill
Gígja fæddist á Akureyri og ólst
þar upp á Eyrinni, fyrst að Norður-
götu 16 og síðan í Grænugötu 4. Hún
lauk stúdentsprófi frá MA 1962 og
stundaði nám við kvennaháskólann
Mount Holyoke College í
Massachusetts.
Gígja hóf störf á bæjarskrifstofum
Akureyrar 1964 þar sem hún kynnt-
ist mannsefni sínu. Þau bjuggu fyrst
i Glerárhverfi i þrjú ár, að Lundi í
Öxarfirði 1967-68, áttu heima á Sval-
barðseyri 1968-72, en settust að á
Blómsturvöllum í Glæsibæjar-
hreppi 1973 og hafa búið þar síðan.
Fjölskylda
Gígja giftist 24.10. 1964 Kristjáni
Helga Sveinssyni, f. 9.5. 1937, bónda
og kennara á Blómsturvöllum.
Hann er sonur Sveins S. Kristjáns-
sonar, f. 23.7. 1905, d. 28.9. 1974, og
k.h., Margrétar S. Jónsdóttur, f.
30.7. 1901, d. 6.2. 1995, er bjuggu á
Uppsölum í Glerárþorpi.
Böm Gígju og Kristjáns eru Frið-
geir Einar Kristjánsson, f. 7.3. 1965,
búsettur í Reykjavík; Rósa Guðlaug
Kristjánsdóttir, f. 3.5. 1967, stúdent,
búsett í Reykjavik; Dóra Margrét
Kristjánsdóttir, f. 10.3.1970, stúdent,
búsett í Reykjavík; Sveinn S. Krist-
jánsson, f. 14.4. 1968, í foreldrahús-
um.
Systir Gígju er Erla Friðgeirsdótt-
ir, f. 6.11. 1935, búsett í Njarðvík.
Foreldrar Gígju: Friðgeir Einar
Sigurbjömsson, f. 6.11.1896 að Sval-
barðsseli í Þistilfirði, d. 27.1. 1983,
húsgagna- og síðar hljóðfærasmiöur
á Akureyri, og k.h., Halldóra Sum-
arrós Jóhannesdóttir, f. á Hrúthóli í
Ólafsfirði 22.6. 1906, d. 7.12. 1995,
húsmóðir.
Ætt
Friðgeir var hálfbróðir, sam-
mæðra, Ástfríðar, frumbyggja á
Kópaskeri. Friðgeir var sonur Sig-
urbjörns, frá Núpi í Öxarfirði, bróð-
ur Þórhildar, móður Friðriks Frið-
rikssonar, kaupmanns í Kanada.
Sigurbjörn var sonur Friðriks, b. og
smiðs á Núpi Ámasonar, Sigurðs-
sonar, b. á Þómstöðum í Kaupangs-
sveit og á Vestari-Krókum Sigurðs-
sonar, Guðmundssonar. Móðir Áma
var Katrín Ámadóttir. Móðir Sigur-
björns var Guðný Bjömsdóttir frá
Haga í Aðaldal.
Móðir Friögeirs var Sabína, syst-
ir Steinunnar Sesselju, ömmu Ein-
ars Kristjánssonar, rithöfundar frá
Hermundarfelli. Sabína var dóttir
Jóns, b. á Múla í Öxarfirði Jónsson-
ar, b. á Snartarstööum Jónssonar.
Móðir Sabinu var systir Þórunnar,
fyrstu konu Sigurbjöms frá Núpi.
Móðurbróðir Sabínu var Sigurður á
Harðbak er átti Friðnýju, systur
Sigurbjöms frá Núpi. Móðurfaðir
Sabínu var Steinn, á Harðbak Há-
konarson, b.í Grjótnesi Þorsteins-
sonar. Móðir Steins var Þórunn
Stefánsdóttir Scheving. Móðurmóð-
ir Sabínu var Sesselja Sigurðardótt-
ir, frá Grímsstöðum á Fjöllum, af
ætt þýska greifans Johanns
Rantzau.
Halldóra Sumarrós var systir
Steins G. Hólm, fyrrv. kaupmanns á
Ólafsfirði. Halldóra var dóttir Jó-
hannesar Hólm, b. á Hrúthóli, bróð-
ur Sæmundar, foður Björgvins, bæj-
arstjóra á Akranesi. Jóhannes var
sonur Steins, b. á Hrúthóli Þórðar-
sonar og Guðrúnar Oddsdóttur,
vinnumanns i Brimnesi Jónssonar,
pr. á Kvíabekk, bróður Ingibjargar
á Mööruvöllum í Kjós, langömmu
Péturs í Engey, afa Bjama Bene-
diktssonar forsætisráðherra, foður
Bjöms menntamálaráðherra. Jón
var sonur Odds, b. á Atlastöðum í
Svarfaðardal og í Stíflisdal í Þing-
vallasveit Sæmundssonar, pr. í
Miklabæ Magnússonar, b. í Bræðra-
tungu Sigurðssonar. Móðir Sæ-
mundar var Þórdís Jónsdóttir (Snæ-
fríður íslandssól). Móöir Odds á
Atlastöðum var Guðrún Þorsteins-
dóttir, Steingrímssonar, forfoður
Steingríms Hermannssonar, fyrrv.
forsætisráðherra.
Móðir Halldóru Sumarrósar var
Ólöf Jóhannsdóttir, Jónsson sterka
Ólafssonar, vinnumanns á
Grýtubakka Magnússonar. Móðir
Jóns sterka var Guðný
Halldórsdóttir, b. á Grýtubakka
Pálssonar. Móðir Ólafar var Oddný
Ólöf Jónsdóttir frá Skeiði í Fljótum
og var móðir hennar Guðrún Magn-
úsdóttir kona Jóns Jónssonar, en
hún var systir Baldvins Magnússon-
ar á Siglunesi og voru þau þaðan
ættuö, enda börn Magnúsar Þor-
leifssonar frá Siglunesi og konu
hans Oddnýjar Sigfúsdóttur af
Krossaætt.
Sveinn Jónsson
matargeröarmaður á Reyðarfirði
Sveinn F. Jónsson, mat-
argerðarmaöur, Brekku-
götu 2, Reyðarfirði, er fer-
tugur i dag.
Starfsferill
Sveinn fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp.
Hann lauk grunnskóla-
prófi frá Fellaskóla 1976,
hóf síðan matreiöslunám
og stundaöi nám viö Hótel- og veit-
ingaskólann.
Sveinn hóf að sendast hjá KRON
tólf ára og starfaði síöan á ýmsum
matsölustöðum í Reykjavik.
Sveinn flutti á Norðfiörö 1980 og
stundaði þar sjómennsku sem kokk-
ur á togaranum Barða til 1990. Þá
flutti hann á Blönduós þar sem
hann var kokkur á Hótel Blönduósi
til 1996. Hann flutti þá á Reyðarfiörð
og hefur veriö þar búsettur síöan.
Sveinn er nú hótelstjóri á Foss-
Hótel á Reyðarfirði og starfrækir
Shell-skálann á Reyðarfirði.
Fjölskylda
Sveinn kvæntist 12.5.1979 Sigríði
Halldórsdóttur, f. 29.5. 1961, kaup-
konu. Hún er dóttir Halldórs Ing-
ólfssonar, matsveins í
Reykjavík, og k.h., Elisa-
betar Lunt verkakonu.
Börn Sveins og Sigríö-
ar eru Elísabet E. Sveins-
dóttir, f. 14.1. 1979, gjald-
keri í Reykjavík, en mað-
ur hennar er Steinþór
Björnsson, nemi við HÍ,
og er dóttir þeirra Bryn-
dís, f. 30.6. 2000; Þórey K.
Sveinsdóttir, f. 21.4.1980, verslunar-
maður á Reyðarfirði, en maður
hennar er Kristján Larsen verka-
maöur og er sonur þeirra Sveinn M.
Larsen, f. 30.4. 1999; Silvía D.
Sveinsdóttir, f. 20.10. 1985; Snædís
H. Sveinsdóttir, f. 6.8.1989; Svanhvít
H. Sveinsdóttir, f. 20.1. 1992.
Systkini Sveins eru Hildur E.
Jónsdóttir, f. 20.2. 1962, búsett í
Reykjavík; Þorstein Þ. Jónsson, f.
24.9. 1963, búsettur í Mosfellsbæ;
Leiknir Jónsson, f. 28.4.1968, búsett-
ur á Reyðarfirði; Hilmir Þ. Jónsson,
f. 3.10. 1975, búsettur í Mosfellsbæ.
Foreldrar Sveins eru Jón K. Þor-
steinsson, f. 6.7. 1941, húsasmiður í
Reykjavík, og Þórey Á. Kolbeins, f.
14.12. 1941, húsmóðir.
Sjötíu og fimm ára
Jóhann Guðmundsson
málarameistari og fyrrv. garðyrkjubóndi
Jóhann Guðmundsson
málarameistari, Viði-
grund 4, Sauðárkróki,
veröur sjötíu og fimm ára
í dag.
Starfsferill
Jóhann fæddist á Eiði á
Langanesi og ólst upp á
Þórshöfn á Langanesi.
Hann flutti frá Þórshöfn
til Akureyrar 1947, stundaði nám
við Iðnskólann á Akureyri og læröi
málaraiðn hjá Gunnlaugi Torfasyni
málarameistara. Jóhann lauk
sveinsprófi í greininni 1953 og öðl-
aðist síöan meistararéttindi.
Jóhann og kona hans fluttu aö
Brúnalaug í Öngulsstaðahreppi 1968
þar sem Jóhann var garöyrkjubóndi
auk þess sem hann stundaði sína
iðngrein.
Þau hjónin voru búsett að Brúna-
laug til 1986 en fluttu þá til Akureyr-
ar. Þar var Jóhann búsettur til 1991.
Þá flutti hann á Sauðárkrók þar
sem hann hefur búiö síðan.
Fjölskylda
Jóhann kvæntist 1.12. 1951 Ólöfu
Sigtryggsdóttur, f. 6.2. 1932, d. 2.10.
1990, húsmóöur og garð-
yrkjubónda. Hún var
fædd og uppalin á Akur-
eyri, dóttir Sigtryggs Þor-
steinssonar, deildarstjóra
hjá KEA, og k.h„ Sigur-
línu Haraldsdóttur hús-
móður.
Dætur Jóhanns og
Ólafar eru Sigurlina Jó-
hannsdóttir, f. 17.4. 1952,
starfsmaður við íþróttamiðstöðina í
Mosfelisbæ og á hún fimm börn;
Hólmfríöur Jóhannsdóttir, f. 7.6.
1954, sjúkraliði við Sjúkrahúsið á
Sauðárkróki og á hún þrjú börn;
Þorgerður Ásdís Jóhannsdóttir, f.
3.9. 1956, kennari í Noregi og á hún
einn son; Ólöf María Jóhannsdóttir
Kerr, f. 16.6. 1963, skrifstofu- og
verslunarmaður, nú búsett í Úkra-
ínu og á hún eina dóttur.
Systur Jóhanns: Steinunn Krist-
ín, búsett á Akureyri; Aðalbjörg, bú-
sett á Akureyri; Unnur Margrét, nú
látin.
Foreldrar Jóhanns: Guðmundur
Jósepsson, f. 21.8. 1892, d. 3.12. 1966,
verkamaður á Þórshöfn, og
Hólmfríður Guðbrandsdóttir, f. 9.6.
1888, d. 18.9.1980, verkakona.
Arínu eldrí
Jón Bjarman
sjúkrahúsprestur,
verður 68 ára í dag.
Jón er í hópi fyrstu
klerka hér á landi
. _ sem sérhæfðu sig með
íliðsjón af breyttum þjóðfélagshátt-
um. Aö loknu guðfræöiprófi stund-
aði hann framhaldsnám við Há-
skólann í Colorado, m.a. í æsku-
lýðsmálum og síöar í sálgæslu og
kynnti sér störf fangelsispresta.
Hann var prestur í Manitoba í
Kanada, í Laufásprestakalli, var
æskulýösfulltrúi Þjóökirkjunnar,
var fangaprestur og loks sjúkrahús-
prestur. Hann hefur sent frá sér
ljóö og skáldverk og þýtt fiölda rita
trúarlegs eðlis.
Ingimundur Sig-
fússon, fyrrv. for-
sfióri og stjómarfor-
maður Heklu, og nú
sendiherra í Berlín, er
63 ára í dag. Ingimundur stundaði
nám i viðskiptafræði í Kaup-
mannahöfn og lauk lögfræðiprófi
frá HÍ. Hann var forstjóri Heklu til
1990, stjómarformaður fyrirtækis-
ins frá 1991 og þar til hann var
skipaður sendiherra i Þýskalandi.
Oft stendur styr um ráðningu
sendiherra, einkum ef stjómmála-
menn eiga í hlut. Þjóöin lét sér
hins vegar vel líka ráðningu Ingi-
mundar enda ekki annað að sjá en
hann sé hinn besti sendiherra.
Jón Dalbú Hró-
bjartsson er annar
merkur klerkur sem
á afmæli í dag en
hann er 54 ára. Hann
var sóknarprestur og prófastur í
Laugamesprestakaili og í Hall-
grímskirkju frá 1998. Jón er vel lið-
inn í sínum stóra söfnuði. Bróðir
hans er Helgi sem var prestur í
Hrisey en hefur verið kristniboði
víða um heim. Þá var Margrét,
systir Jóns, kristniboði um árabil.
Jón Dalbú er af miklum sunnlensk-
um presta- og biskupaættum.
Jón Reykdal myndlistarmaður
veröur 56 ára á
morgun. Jón er í
hópu virtustu mynd-
listarmanna okkar.
Hann stundaði fram-
I haldsnám í grafík við
Gerrit Rietveld Academie í Amster-
dam og síðan nám við Konunglega
listaháskólann í Stokkhólmi og við
Teiknikennaraskólann þar. Hann
hefur haldið fiölda sýninga og
myndskreytt margar bókakápur.