Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 14
14
Helgarblað
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
x>v
Þingbræður saka
Kristin um einleik
- ég tala fyrir mínum skoðunum án þess að spyrja Halldór Ásgrímsson hvað honum finnist um þær
Breyttir tímar í Framsóknarflokknum:
Ólga innan þingflokks Framsóknar
Sumir þingbræðra Kristins H. Gunnarssonar eru ekki hrifnir af framtaki hans undanfarið
en hann segist umfram allt fylgja sannfæringu sinni.
Hugsanlegt er að málflutningur Kristins undanfarið eigi þátt í fylgisaukningu Framsóknar skv. nýrri könnun DV.
Ný skoðanakönnun DV sýnir að
Framsóknarflokkurinn hefur bætt
við sig atkvæðum frá síðustu könnun
og er kominn nálægt kosningafylgi.
Spurningin er hvort málílutningur
Kristins H. Gunnarssonar eigi þar
þátt. Ýmislegt bendir til að svo sé,
ekki síst í ljósi þess að frjálslyndir
taka einnig stökk og Kristinn og
frjálslyndir hafa öðrum þingmönnum
fremur haft sig í frammi vegna smá-
bátamálsins.
Kristinn er bæði þingflokksfor-
maður flokksins og varaformaður
flokksins þannig að metorð hans eru
ærin. Hins vegar eru skiptar skoðan-
ir um frammistöðu hans. Kristinn
hefur með vaxandi hætti gagnrýnt
núverandi flskveiðiskipulag og sum-
ir samflokksmanna hans telja að
„einleikur" hans á því sviði sé afar
óviðeigandi. Lítið hefur heyrst frá
öðrum þingmönnum. Þeir hafa ekki
lagst opinherlega gegn skoðunum
Kristins en heldur ekki stutt þær og
samkvæmt heimildum DV hefur
kurr farið stígandi innan þingliðsins.
Rifjað er upp að það hafi ekki kunn-
að góðri lukku að stýra þegar þing-
menn Framsóknar hafi klofið sig frá
„flokkssálinni" en annað bendir til
að áhætta Kristins og það sem hann
kallar sannfæringu sína fái hljóm-
grunn hjá þjóðinni.
Viðkvæmt mál
Áherslumunur Kristins og flokks-
bræðra er viðkvæmur og þingmenn
flokksins vilja ekki ræða þessi mál
opinberlega. Hins vegar segja þeir án
þess að koma fram undir nafhi að
upphaf kaflaskilanna hafi orðið á
flokksþinginu í vetur. Kristinn hafi
þá unnið upp tillögu að ályktunar-
drögum um sjávarútvegsmál sem
sátt hafi verið um en skömmu fyrir
þingið hafi hann komið með glænýja
tillögu sem hafi gengið þvert á fyrri
gögn. í nýju tillögunni var m.a. fyrn-
ingarleiðin komin sem valkostur.
Síðan hefur Kristinn orðið æ sýni-
legri í andstöðu sinni við núverandi
kerfi, einkum hvað varðar smábát-
ana. Er víst að flokksformanni og
samstarfsmönnum í Sjálfstæðis-
flokknum hefur ekki alltaf verið
skemmt en á hriflu.is hafa reykvísk-
ir framsóknarmenn ítrekað lýst
hrifningu á störfum Kristins og val-
. • Æ • f / ,
■
'f* M. # i"!
Innlent fréttaijós
Björn Þorláksson
blaðamaður
ið hann sem mann vikunnar, auk
þess sem Samband ungra framsókn-
armanna hefur stutt Kristin. Spurn-
ingin er þvi hvort boðuð bylting
hans njóti vaxandi fylgis. A.m.k.
vekur athygli að enn hefur Halldór
„ekki slegið á puttana á honum“ eins
og einn viðmælandi DV orðaði það.
En Halldór neitar því í fjölmiðlum
að ágreiningur sé milli hans og
Kristins.
Meint frumhlaup
Framsóknarþingmaður kallar það
frumhlaup flokksbróður þegar Krist-
inn hafi oftúlkað mjög flokksviljann
til aö fresta gildistökunni um kvóta-
setningu smábáta. Hann segir að
þegar þingflokkurinn hafi fundað
um málið hafi Kristinn og Hjálmar
Árnason, sem sjávarútvegsnefndar-
menn, lýst þeim umræðum sem far-
ið höfðu fram milli stjórnarflokk-
anna, Árna Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra og Halldórs Ásgrímssonar.
Halldór hafi lagt fram hugmyndir
um hvernig fresta mætti lögunum
með frekari sóknartakmörkunum og
mönnum hafi litist þokkalega á það
sem einhvers konar millileið í mál-
inu. Spjallið hafi hins vegar verið
óformlegt og engin tillaga gerð um
málið en Kristinn hafi í fjölmiðlum
oftúlkað samræðurnar sem óskiptan
vilja framsóknarmanna og gengið
fram fyrir skjöldu með það að leiðar-
ljósi.
Einn á báti meö
fjölmiðlunum
Fleiri viðkvæm mál mætti nefna
og siðast í DV á miðvikudag lýsti
Kristinn frati á tillögur um afla
næsta fiskveiði-
árs og taldi sýnt
að sóknin í afl-
ann skipti ekki
jafnmiklu máli
og Hafró hefði
talið. „Hann hef-
ur haft sig mjög í
frammi síðustu
vikur en meðal
flokksmanna
held ég að fram-
ganga hans hafi ekki styrkt hann,
hvað sem verður. Það er athugunar-
efni að formaður þingflokksins sé á
allt annarri skoðun en opinber
stefna flokksins hefur verið í sjávar-
útvegsmálum," segir þingmaður
Framsóknar. „Mér finnst að Kristinn
ætti fremur að stofna til umræðu
innan þingflokksins um þessi mál
frekar en að spila sóló i fjölmiðlun-
um,“ segir sami þingmaður og bend-
ir á að þingflokkurinn sé eitt lið og
liðsheildin þurfi að spila saman til
að ná árangri. „Það gæti allt eins
gerst að honum verði skipt út af og
ef mönnum mislíkar framganga
hans þá verður hann að taka afleið-
ingum þess, burtséð frá því í hvaða
flokki hann stendur. Ég veit ekki til
þess að Kristinn ræði við nokkurn
mann nema þá bara fjölmiðla."
Ögrun við Halldór
Þarna er komið inn á annað mál,
sem er stjórn Kristins á þingflokkn-
um. Ekki er sátt um verklag hans
burtséð frá skoðunum. Bent er á að
að hann hafi lítið sem ekkert samráð
við aðra stjórnarmenn þingflokksins
og þessu eigi framsóknarmenn ekki
að venjast.
„HaÚdór hefur gert allt sem hann
hefur getað til að halda friðinn út á
við gagnvart Kristni en það er ekki
ólíklegt að breyting verði á því inn-
an tíðar. Þetta er mjög mikil ögrun,
bæði við okkur hina þingmennina,
Halldór og samstarfsflokkinn. í smá-
bátamálinu var hann t.d. gjörsam-
lega á mörkunum gagnvart Davíð og
Árna,“ segir stjórnarþingmaður.
Davíð hefur ekki rætt þá uppákomu
grímsson.
efnislega nýverið en bendir á að
Kristinn sé ekki á hans vegum.
í raun bara áherslumunur?
„Ég skynja það ekki þannig að ein-
hver einn þingmaður sé búinn að
mála sig út í horn,“ segir Jón Sig-
urðsson sem talinn er líklegur til að
stýra nefnd Framsóknarflokksins
um endurskoðun fiskveiðistefnunn-
ar. Vinna nefndarinnar mun felast í
samanburði ólíkra leiða við gjald-
töku auðlindarinnar, þ.e.a.s. fiski-
miðanna, þannig að nefndinni er
vandi á höndum. „Þetta hljómar eins
og mikill ágreiningur og auðvitað
eru menn ósammála. En þegar málið
er greint nánar, sést að þetta eru
frekari mismunandi áherslur en að
djúp gjá hafi myndast. Menn geta
verið stækustu stuðningsmenn
kvótakerfisins en sagt jafnframt: Ég
vil að það verði sameiginlegur kvóti
á þennan tiltekna smábátaflota sem
veiðir þessa tilteknu stofna á þessum
tilteknu miðum með þessum tilteknu
veiðarfærum. Kristinn hefur dálítið
gagnrýnt að þetta skyldi kvótasett
núna, vegna þess að hann er hlynnt-
ur því að smábátaflotinn verði með
sameiginlegan kvóta. Ef ég skil hann
rétt þá vildi hann bíða með þessar
ákvarðanir," segir Jón.
Skapar umræöu
Hann telur ekki að þverrandi til-
trú á vísindin í kjölfar svartrar
skýrslu Hafró verði endilega vatn á
myUu andstæðinga kerfísins. „Nei,
þessi umræða kemur kvótakerfmu
ekki við. Það er hægt að vera með
kvótakerfi, aflamarksstýringu eða
hvaða kerfi sem ér og eyðileggja
samt miðin með ofveiði. Fiskifræð-
ingar, sjómenn, stjórnvöld og aðrir
geta gert mistök í öUum kerfum."
En hvað segir líklegur formaður
sjávarútvegsnefndar Framsóknar-
flokksins um horfur Kristins tU
framtíðar. „Ég var ekki á flokksþing-
inu en eftir því sem mér er sagt var
Kristinn fyrst og fremst að varpa
fram nýjum sjónarmiðum tU að
skapa frjálsari og óbundnari um-
ræðu um málið en hann taldi að
hefði verið. Ég hef ekki upplýsingar
um annað en að Kristinn sé tUbúinn
að skoða aUa möguleika."
Framsóknarflokkurinn hefur sam-
þykkt auðlindagjald en flokkurinn
eigi að skoða fleiri en eina leið. í
fyrsta lagi verður kostnaðargjaldið
skoðað, í öðru lagi veiðigjaldið og í
þriðja lagi fyrningarupptaka. „Verk-
efni okkar er einfaldlega að koma af
stað málamiðlun og ég tel að við höf-
um góða möguleika tU þess. Ef sú
stund rennur upp að íslendingar
verði sammála um framkvæmd fisk-
veiða og gjaldtöku er runnin upp ný
stund í 1100 ára sögu þjóðarinnar,“
segir Jón Sigurðsson.
Spyr ekkl Halldór fyrst
Sjálfur hafnar Kristinn H. Gunn-
arsson því að hann telji sig hafa mál-
að sig út í horn innan flokksins und-
anfarið. Árangur baráttu hans í sjáv-
arútvegsmálum sé samþykkt síðasta
flokksþings sem standi mjög nálægt
hans eigin skoðunum. ÖU nálgunin í
samþykktinni byggist á því að líta á
sjávarútveginn sem atvinnumál
einnig. Greinin eigi að tryggja at-
vinnu í sjávarplássunum, m.a. með
viðhaldi smábátaveiðanna. „Ég get
ekki faUist á að ég sé að að spUa ein-
hvern einleik með þvi að framfylgja
þessari samþykkt," segir Kristinn.
Spurður um samband sitt við HaU-
dór Ásgrimsson segir Kristinn að
hann telji að það hafi ekki skaðast.
„Það hefur verið ágætt og ég held að
það hafi ekki breyst. Hins vegar tala
ég fyrir mínum skoðunum án þess
að spyrja Halldór hvað honum finnst
um þær. Ég sé ekki að þetta hafi háð
mér. Ég hef náð árangri."
Kristinn hefur ekki skýringar á
þvi af hverju rödd annarra fram-
sóknarþingmanna hefur farið lágt í
umræðu um sjávarútvegsmál undan-
farið. Þeir verði sjálfir að skýra það
en hitt sé annað mál að menn hafi
mismunandi mikinn áhuga á sjávar-
útvegi.
Framsókn efgnaö kerfiö
Kristinn segist hafa sérstakan
stuðning á Vestfjörðum en hann
heyri Reykvíkinga einnig ræða það
af kappi hve brýnt sé að gera breyt-
ingar á sjávarútvegsmálunum.
„Annas vegar ræðir um atvinnuör-
yggi í sjávarplássunum en einnig er
mikil óánægja með eignarhald,
þ.e.a.s. hve peningamir flæða í gegn-
um fárra manna hendur. Margir
segja að núverandi kerfi skaði Fram-
sóknarflokkinn af því að honum er
eignað kerfið, aö nokkru leyti með
röngu ..."
- En kerfið er þó varið af for-
manni Framsóknarflokksins?
„Svona að flestu leyti en hann hef-
ur líka verið gagnrýninn á ýmsa
þætti eins og brottfallið og peninga-
hliðina. Hann hefur líka tekið undir
gagnrýni sem lýtur að afleiðingum
framsailsiris á atvinnuöryggi í byggð-
um.“
í krossferö
Og segja má að Kristinn sé í kross-
ferð, því hann lítur á sjávarútvegs-
málin sem lykilmál fyrir Framsókn.
„Forsenda Framsóknarflokksins til
að ná sér á strik aftur er að ná góðri
niðurstöðu í þessum málum. Þótt
mér sé ljóst aö það geti ekki allir ver-
ið sammála mér hlýtur samþing-
mönnum mínum að vera ljóst að
málið sé í þannig stöðu að breytinga
sé þörf. Við verðum að finna betri
lausnir en við búum við. Óbreytt
ástand dugar ekki en menn eru ekki
að segja með því að henda eigi kvóta-
kerfinu. A.m.k. ekki enn þá.“
Kristinn H.
Gunnarsson.
Davíö Oddsson.
Halldór As-
Arni Mathlesen.