Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Síða 28
28
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV
„Ég geri mér engar
grillur um að ég sé
sérstaklega vinsœll. Það
er hvorki það sem ég á
von áné er ég mikið að
hugsa um það. Stjóm-
málamaður er hins vegar
þá fyrst í tilvistarkreppu
ef hann er ekki sannfœrð-
ur um það sem hann er
að gera. “
Eitt af ástsælustu skáldum
íslensku þjóðarinnar, Hall-
dór Laxness, mim vera höf-
undur þeirra fleygu orða að lífið
sé saltfiskur. Hann lét reyndar
eina af söguhetjum sínum segja að í
þessu landi væri líf sauðkindarinn-
ar okkar líf, því honum var tamt að
hjálpa þjóð sinni að skilgreina til-
vist sina í gegnum þær skepnur sem
hún byggir tilvist sína á.
Ef það er eitthvert eitt dýr sem ís-
lenska þjóðin byggir líf sitt á og hef-
ur gert um aldir þá er það þorskur-
inn, Gadus morhua eins og hann
heitir á latínu, ránfiskur sem unir
sér vel ofarlega í fæðukeðjunni og
étur allt sem að kjafti kemur.
Fíngert og drifhvítt hold þorsks-
ins hefur verið eftirsóttur veislu-
matur um aldir og íslendingar hafa
elt þessa harðgerðu skepnu út á sex-
tugt dýpi og oft látið líf sitt í staðinn
fyrir þorskinn. Enn er þorskurinn
og afurðir hans einn af homstein-
unum sem efnahagslíf okkar stend-
ur á og þegar Hafrannsóknastofnun
tilkynnti það um daginn að hún
hefði vanmetið stofnstærð Gadus
morhua sem næmi 345 þúsund tonn-
um þá fór kaldur hrollur um þjóð-
ina. Hvar er þorskurinn? spurðu
menn og litu hver á annan en engin
svör liggja á borðinu.
Boöberi illra tíðinda
Það kom í hlut Árna M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra að
flytja þjóðinni þessi válegu tiðindi
ásamt því að boða 30 þúsund tonna
samdrátt í afla milli ára. Við spurð-
um Árna yfir kóki og samlokum í
ráðuneytinu hvernig honum þætti
að vera boðberi illra tíðinda.
„Það er ekki gott,“ sagði Árni án
þess að honum væri sjáanlega
brugðið.
„En maður getur ekki ætlast til
þess að það sé allt skemmtilegt sem
maður þarf að gera. Það verður
bara að taka þessu eins og hverju
öðru hundsbiti. Við höfum ákveðn-
ar aðferðir til að bregðast við þessu
og beitum þeim.“
Aðferðimar sem Ámi vísar til
eru svokölluð aflaregla sem segir að
óhætt sé að taka 25% af þorskstofn-
inum en breytingar milli ára séu
aldrei meiri en 30 þúsund tonn upp
eða niður og því er heimiluð 190
þúsund tonna þorskveiði næsta fisk-
veiðiár sem þýðir í framkvæmd 30
þúsund tonna samdrátt milli ára.
Árni segir að þessi válegu tíðindi af
mistökum Hafrannsóknastofnunar
hafi í rauninni legið á borðinu í vet-
ur þegar menn höfðu metið niður-
stöðurnar úr árlegu togararalli
Hafró. Þær tölur sem þá lágu á borð-
inu hafi í rauninni sagt vönum
mönnum þessi slæmu tíðindi.
- En hvemig er hægt að undirbúa
sig?
„Maður verður að lesa sér til. Það
verður að skoða skýrslurnar og
setja sig inn í málið og reyna að
kynna sér þetta ofan í kjölinn. Þess-
ar aðferðir eru ekki flóknari en svo
að þeir sem hafa vísindamenntun
eiga auðvelt með að setja sig inn í
þær.“
Á að loka Hafró?
Árni lærði dýralækningar í Bret-
landi í Edinborg og fisksjúkdóma-
fræði í Stirling-háskóla. Þess vegna
hefur hann nokkra innsýn í þær
greinar sem vinnubrögð Hafró
byggja á.
- En hvað á að gera við Hafró?
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefur sagt að stofnunin njóti alls
ekki sama trausts og áður. Eigum
við kannski bara að loka?
„Niðurstöður Hafrannsóknastofn-
unar njóta ekki sama trausts og
áður. Það væri að berja höfðinu við
steininn að viðurkenna það ekki.
Það vitlausasta sem við gerðum
væri þó að snúa baki við Hafró. Við
eigum frekar að gefa í og reyna að
lagfæra það sem miður hefur farið.“
Fiskifræðingar óskast
Ámi segist hafa lagt fram í nóv-
ember síðastliðnum tillögur að
ákveðinni uppbyggingu Hafró sem
verði hrundið í framkvæmd á nýju
fjárlagaári.
„Ég vona að fyrsta skrefið sjáist í
næstu fjárlögum. Það sem er merki-
legast i þessu máli er að sá þáttur
sem takmarkar starfsemi Hafrann-
sóknastofnunar hvað mest er ekki
fjárskortur heldur mannekla í þeim
skilningi að við eigum ekki til fiski-
fræðinga til að starfa þar. Við þurf-
um 30 nýja fiskifræðinga til að upp-
fylla þau áform sem við höfum fyrir
þessa stofnun."
- En getum við ekki ráðið þá frá
útlöndum?
„Það eru þegar fleiri erlendir
fiskifræðingar starfandi hér hjá
Hafrannsóknastofnun en íslenskir
fiskifræðingar erlendis þannig að
það hallar þegar á okkur i þessum
efnum. Þetta er ekki bara spursmál
um að þetta sé fjársvelt ríkisstofn-
un.“
Kunna þeir ekki að telja?
Svo virðist sem ástæðurnar fyrir
mistökum Hafrannsóknastofnunar
séu margþættar. Eitt er vanmat
þeirra á breyttri veiðitækni, annað
er hugsanlegt vanmat á lönduðum
afla, þriðja er brottkast afla og það
fjórða getur verið reiknuð slæging-
arprósenta og margt fleira getur
orðið til þess að trufla menn sem
vilja telja fiska mjög nákvæmlega.
Allt tengist þetta hinu misvin-
sæla kvótakerfi en Árni leggur
áherslu á að stofnstærð og mat á
henni sé einn mikilvægasti horn-
steinninn undir allri fiskveiði-
stjórnun en hefur jafnframt boöað
heildarendurskoðun á starfsháttum
Hafrannsóknastofnunar í samvinnu
við erlenda sérfræðinga. Sumir hafa
litið á veiðitölur frá upphafi aldar-
innar sem var að líða og sagt að þær
sýni að Hafrannsóknastofnun sé á
alrangri leið.
Má ekki hlusta á Jón?
Árni hafnar þessum málflutningi
og telur að veiðitölur staðfesti að
stofninn hafi verið ofveiddur nánast
alla öldina og við súpum seyðið af
því í dag. Jón Kristjánsson fiski-
fræðingur starfar ekki á Hafrann-
sóknastofnun. Hann hefur gagnrýnt
aðferðir þeirra en spáði fyrir um
þróun síöustu ára fyrir nokkrum
árum. Svo virðist sem ekki sé hlust-
að á hann. Þarf ekki að taka meira
tillit til skoðana eins og hans ef ár-
angur á að nást?
„Það er stórt orð vísindamaður og
menn verða að sýna fram á að kenn-
ingar þeirra standist vísindalega
skoðun. Ég er viss um að Jón á eft-
ir að fá sitt tækifæri til þess og
skoðanir eins og hans þurfa auðvit-
að að eiga sinn sess í framtíðinni.
Við erum í þeirri stöðu að viö verð-
um að skoða allar kenningar sem
settar eru fram á vísindalegum
grunni."
Ámi telur að málflutningur
manna sem gagnrýna Hafrann-
sóknastofnun hafi ekki alltaf verið
eingöngu vísindalegur.
„Þeir eru fyrst andstæðingar
kvótakerfisins en síðan andstæðing-
ar Hafró og málflutningur þeirra
einkennist af því. Okkar vandamál
snýst um fiskifræði en ekki pólitík
þótt menn rugli þessu tvennu tals-
vert saman."
Tvisvar lög á sama verkfallið
Ámi hefur verið sjávarútvegsráð-
herra síðan 1999 þegar Þorsteinn
Pálsson, forveri hans í starfi, hvarf
til sendiherrastarfa og er að hefja
sitt þriðja starfsár í embætti. Hann
hefur ekki alltaf átt rólega daga í
starfi og tók harðan slag i vetur þeg-
ar segja má að hann hafi tvisvar
sinnum sett lög á sama verkfallið.
Fyrst þegar hann lét setja lög sem
frestuðu verkfalli sjómanna um
þrjár vikur og síðan þegar hann
beitti sér fyrir því að verkfalli sjó-
manna var aftur frestað og vinnu-
deila sjómanna og útgerðarmanna
sett í gerðardóm. Sjómenn þyrptust
á Austurvöll og mótmæltu í
sjóstökkum með logandi neyðar-
blysum þegar lögin voru sett. Er
sanngjarnt að segja að hann sé með-
al allra óvinsælustu sjávarútvegs-
ráðherra?
„Ég hef ekki séð neinar mælingar
á því. Ég geri mér engar grillur um
að ég sé sérstaklega vinsæll. Það er
hvorki það sem ég á von á né er ég
mikið að hugsa um það. Stjómmála-
maður er hins vegar þá fyrst í til-
vistarkreppu ef hann er ekki sann-
færður um það sem hann er að
gera.“
Alltaf sáttur að lokum
- Hefur þú alltaf verið sáttur við
allar ákvarðanir sem þú hefur tekið
í þessu embætti?
„Þær hafa auðvitað verið miserf-
iðar en ég hef alltaf verið sáttur við
þær að lokum. I stöku tilvikum hafa
komið fram upplýsingar eftir á sem
gera það að verkum að maður sér
ákvörðun sína í nýju ljósi. Þannig
sé ég til dæmis að það var rangt að
fresta kvótasetningu smábáta síð-
astliðið haust um eitt ár. En skýrsla
Hafró sem kom út í fyrra eftir frest-
unina sýndi mjög slæma stöðu ýsu-
stofnsins. Það sem við vitum nú um
ágang smábáta í ýsustofninn gerir
það að verkum að það hefði átt að
setja kvóta á þá fyrir ári. Ef það
hefði verið gert væri staða okkar
auðveldari í dag og við hefðum get-
að aukið sóknina í ýsuna núna.
Smábátar hafa verið að veiða ýsuna
umfram það aflamark sem ákveðið
hefur verið undanfarin ár og það
mun ná hámarki á þessu ári.“
Ámi segist ekki hafa lagt mat á
það hvaða ákvörðun í starfinu hafi
reynst honum sérstaklega erfið og
telur að það bíði ævisögunnar.
Ég var slitinn úr samhengi
- En var ekki erfitt að setja lög á
sjómannaverkfallið?
„Það var í raun miklu erfiðara að
gera það ekki fyrr vegna þeirra
verðmæta sem voru í húfi. Það var
í raun erfiðara að láta deiluna
standa í sex vikur eftir frestunina
án þess að gera neitt. Sjálf lagasetn-
ingin var frekar erfið því það var
stöðugt verið að herma upp á mig
hluti sem ég hafði sagt í öðru sam-
hengi.“ Þarna vísar Árni til þess að
hann sagði í sjónvarpsviðtali að
ekki yrðu sett lög á verkfall sjó-
manna. Þetta var iðulega rifjaö upp
meðan þingið ræddi lögin um gerð-
ardóminn en Árni segir að þetta
hafi verið ómaklegt og slitið úr sam-
hengi.
Þeir féllu á prófinu
- Var þetta ekki gullið tækifæri
til að leyfa sjómönnum og útvegs-
mönnum að útkljá deilur sínar í eitt
skipti fyrir öll án afskipta ríkisins?
„Þeir fengu þetta tækifæri með
því að vera í verkfalli í sex vikur.
Þetta hefði allt átt að hjálpast að til
að leysa deiluna. Það voru þeir sem
féllu á prófinu en ekki ég. Vandinn
var sá að þeir áttu alltaf von á lög-
um og hluti þeirra spilaði upp á
þetta. Ég held jafnvel að hluti deilu-
aðila hafi haldið að þeir gætu síðan
samið við mig um það hvernig lög-
in ættu að vera og það væru þeir
samningar sem ætti að ná. Þetta á
bæði við um útvegsmenn og sjó-
menn.“
Baldur og Konni hvaö?
- Grétar Mar Jónsson, einn for-
ystumanna sjómanna, sagði í viðtali
við Ægi fyrir fáum árum að sjávar-
útvegsráðherra og formaður LÍÚ
væru eins og Baldur og Konni þar
sem ráðherra væri Konni. Karl V.
„Mér finnst þetta leiöinlegt. Ég
sjóm
- Árni M,
sjómannadaginn. Ri
Matthíasson og Kristinn Gunnars-
son þingmenn hafa báðir í viðtölum
við DV að undanförnu lýst þeirri
skoðun að ríkisstjórnin dragi taum
stórútgerða meira en góðu hófi
gegnir. Er þetta réttmæt gagnrýni?
„Þeir aðilar sem þú vitnar til eru
auðvitað pólitískir keppinautar
mínir og forvera míns þótt einn
þeirra sé stjórnarþingmaður. Ég
veit að hvorki ég né forveri minn
tökum við neinum skipunum frá
LÍÚ og þeir eru langt í frá ánægðir
með margt af því sem ég geri og
nægir að nefna frestun á kvótasetn-
ingu smábáta og breytingar á teg-
undatilfærslum í því sambandi. Viö
verðum líka að gæta að því að stór-
ar útgerðir eru stór hluti af sjávar-
útveginum og sjávarútvegurinn er
stór hluti af efnahagslífinu og þegar
ákvarðanir eru teknar þá eru þær
teknar í samræmi við hagsmuni
Árni hefur boöaö mikla endurskoöun á Hafrannsóknastofnun.
„Niöurstööur Hafrannsóknastofnunar njóta ekki sama trausts og éöur. Þaö
væri að berja höföinu viö steininn aö viöurkenna þaö ekki. Þaö vitlausasta
sem viö geröum væri þó aö snúa baki viö Hafró. Viö eigum frekar aö gefa í
og reyna aö tagfæra þaö sem miöur hefur fariö. “