Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Blaðsíða 42
50
LAUGARDAGUR 9. JÚNÍ 2001
Formúla 1
Þórhallur Jósepsson
veðjar á Ralf
Þórhallur Jósepsson er landsmönnum kunnur, bœöi sem frétta-
maður hjá Ríkisúlvarpinu og sem sérfrceðingur Rásar 2 um For-
múlu 1, Hann hefur verið mjög virkur í félagsstafi innlends mót-
orsports allt frá árinu 1978. Blm. DV spurði hann nokkurra spurn-
inga um kappakstur helgarinnar og fréttír nýliöinnar viku.
Sjö keppnir afstaönar og Michael Schumacher kominn meö
52 stig af 70 mögulegum. Coulthard 12 stigum á eftir. Hefur
Skotinn úthald og árœði til aö halda í viö Schumacher og
vinna titilinn?
„DC hefur hraðann, úthaldið og árœðina.en MS hefur það
líka og allt annað sem til þarf. Að öllu óbreyttu œtti MS að vinna nokkuð örugglega.
Hins vegar segir hjátrúin að DC vinni titilinn af því að hann vann í Brasilíu."
Hver er þín skýring á því aö McLaren á í svona miklum vandrœöum meö rœsibúnaö-
inn?
„Hver veit? FIA gat ekki fundið út úr tölvubúnaðinum sem stýrir spólvörninni í fyrra,
samt með tugi sérfrœðinga, Þetta er flókið og margslungið forritakerfi, líklega er þetta
eins og við flísalögn, ef fyrsta flísin er skökk þá verða allar hinar líka skakkar. Menn finna
bara ekki enn þessa fyrstu."
Nú var David Coulthard „fastur“ á eftir Enrique Bemoldi í rúmlega 40 hringi í Mónakó-
kappakstrinum eftir að hafa þurft aö rœsa aftastur. Var þaö rétt hjá Brasilíumanninum
að verja stöðu sína eöa átti hann aö hleypa honum fram úr á þeim rökum að hann
vœri að berjast um heimsmeistaratitilinn?
„Það er ótrúlegt að mönnum skuli detta í hug að Bernoldi hefði átt að víkja! Út á hvað
halda menn að kappakstur gangi? Úr því David Coulthard komst ekki fram úr var við
engan nema hann sjálfan að sakast og engum, sem var á undan honum, bar nokkur
skylda til að víkja*.
Ef Newey er raunverulega á leið frá McLaren til Jagúar, hvaða afleiðingar telur þú að
það hafi fyrir McLaren og hvaö ber Jagúar úr býfum?
„Skyldi sagan endurtaka sig? Þegar Newey fór frá Williams til McLaren '96 var Williams
á toppnum en McLaren mátti þakka fyrir að klára keppni í miðjum hópi. Nœsta ár
hafði dœmið snúist við. Heimsmeistaratitillinn fór með Newey frá Williams til McLaren.
Klárt að Jagúar fer að berjast um eitt af fjórum efstu ef Newey fer að vinna fyrir þá."
Hvor er betri fjárfesting, Michael Schumacher eöa Adrian Newey?
„Ógerlegt að segja. MS breytti með dyggri aðstoð Ross Brawn og Jean Todt lánlausu
Ferrari-liðinu í afburðalíð. Newey breytti lánlausum liðum í meistaralið, nœgir að nefna
Williams og sérílagi McLaren 1998. Frank Williams segir að ef bíllinn sé nógu góður þá
sé ekki málið að fá ökumann til aö sœkja titil. Schumacher vann titilinn '94 og '95 á bíl
sem var ekki einu sinni sá nœstbesti á brautinni. Besta fjárfestingin vœri kannski í báð-
um saman en þá yrði Formulan líklega ekkert spennandi lengur."
Kanada er nœsti viökomustaöur. Kemur brautin þar til með að henta einhverjum bet-
ur en öörum?
„Allar brautir henta Ferrari og McLaren vel. Beinu brautirnar henta Williams sérlega vel
þannig að þeir verða sterkir í Kanada, spurning hvort bremsurnar og dekkin hjá þeim
halda. Arrows eru hraðskreiðir á beinum brautum og gœtu gert skurk."
Spá fyrir Kanada?
„ 1, Ralf Schumacher. 2. Mika Hákkinen. 3. Michael Schumacher. 4. Juan Pablo
Montoya. 5. Janro Trulli. 6. Nick Heidfeld.”
Það er almennt álit
sérfræðinga sem starfa
hjá Geimrannsóknastofn-
un Bandaríkjanna,
NASA, að sá tími sem líður frá því að
hugmynd fæðist og þar til hún verður að
veruleika sé óralangur og tekur biðin
stimdum fjölda ára. Þetta er tæknimönn-
um erfítt og hægir á framþróun. í For-
múlu 1 er þessu öfugt farið því hugmynd
sem fæðist í þessari viku er orðin að
veruleika nokkrum dögum seinna. Reyn-
ist hún vel í prófunum verður hún
kannski notuð í næstu keppni því hvergi
má slaka á í sífelldri leit að bættum ár-
angri. Af þessum völdum hafa margir af
þeim kunnáttumönnum sem starfað hafa
hjá NASA fært sig yflr i Formúlu 1 þvi
þar fá þeir forvitni sinni svalað fljótt og
örugglega og ekki skemmir að á síðustu
árum hafa launagreiðslur í Formúlu 1
hækkað verulega, Þróuninn er hröð og
sífellt er barist um hæfústu einstakling-
ana. Fyrir rétt tæpum mánuði tókst For-
múlu 1 liði Toyota að fá súper-séníið
Gustav Brunner til liðs við sig frá ítalska
smáliðinu Minardi. Þar höfðu einstakir
hæflleikar hans haldið aflvana bílunum
innan 107% markanna síðustu ár. Paul
Stoddart, eigandi European Minardi,
sem nýlega hafði gert fimm ára samning
við Brunner, kvartaöi sáran undan miss-
inum og vill nú setja á reglur um yfirboð
á tæknimönnum eins og tíðkast hjá öku-
mönnum og gengur vel.
Barist um tæknimenn
Síðasti „farsinn“ á tæknimarkaðinum
fór af stað fyrsta dag mánaðarins þegar
Jagúar Racing keppnisliðið tilkynnti að
það hefði gert fimm ára bindandi samn-
ing við Adrian Newey. Adrian, sem er 42
ára loftaflsfræðingur, á glæsilegan feril
að baki sem hönnuður í F1 og hefur síð-
ustu fjögur ár verið aðalhönnuður McL-
aren og átt stóran þátt í velgengni þess.
Þessi yfirlýsing kom McLaren-mönnum í
opna skjöldu sem brugðust við með því
að segja Newey ekki vera á neinum för-
um frá liðinu og sögðust nýlega hafa end-
umýjað samning sinn við tæknimann-
inn um nokkur ár í viðbót. Talið er að
Newey hafi getað átt von á tæplega 700
milljónum í vasann frá Jagúar fýrir
fimm ára vinnu og þar að auki getað
starfað með gömlum félaga sínum úr
CART kappakstri á áttunda áratugnum,
Bobby Rahal. Hvort McLaren hafi yfir-
boðið Jagúar skal ósagt látið en það er
greinilegt að þessi tvö keppnislið eru til-
búin að punga út umtalsverðum upp-
hæðum til að geta notið þjónustu galdra-
mannsins og snillingsins Adrians
Neweys.
Schuey eða Newey?
En af hverju öll þessi læti? Níutíu og
nfu prósent sigra undanfarinna tíu ára
hefúr verið hægt að eymamerkja tveim-
ur mönnum. Annars vegar Michael
Schumacher sem hefur 4.500 milljónir í
árslaun og á að baki 48 sigra með
Benetton og Ferrari, og hins vegar Adri-
an Newey sem nú hefur um það bil 150
milljónir í árslaun og á að baki sem
hönnuður 84 sigra, sex ökumanns- og
liðatitla með Williams og McLaren. Ekki
er að undra þótt stundum sé spurt hvort
sé betra að hafa Schuey eða Newey. Það
er ekki nokkur spuming að þjónusta
Neweys er ódýrari og snilld hans hjálpar
báðum ökumönnum liðsins. Falli annar
ökumannana í niðursveiflu eins og Mika
Hákkinen virðist vera að klást við þessa
dagana getur David Coulthard reitt sig á
að honum sé útvegaður keppnisbill í
fyrsta flokki. Hins vegar þjáðist Ferrari
illa um leið og Schumacher braut á sér
fótinn á Silverstone 1999. Þá var dýrt að
hafa hann á launum heima og Eddie Ir-
vine átti í mesta basli með að taka upp
þráðinn af þáverandi félaga sínum hjá
Ferrari.
1 ^ fíOWTER ^ StWliTFC