Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2001, Page 56
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
^ Umferðarslys:
Samtímis
Tvö umferðarslys urðu á sömu
mínútunni í Reykjavík í gær. Ekið
var á gangandi vegfaranda á mótum
Bústaðavegar og Háaleitisbrautar
klukkan 17.30 og samtímis lenti bif-
hjól í árekstri við bifreið á Malar-
höfða. Illa leit út við aðkomu og
voru vegfarandinn og bifhjólamaö-
urinn fluttir á slysadeild. Þeir
reyndust hafa sloppið betur en hald-
, ^ ið var í fyrstu. -EIR
ísafjörður:
Sprakk í fót
ísfirskur hjólbarðaviðgerðar-
maður slasaðist í gær þegar hann
var að pumpa lofti í stórt vörubíla-
dekk. Loftið varð of mikið og dekk-
ið sprakk. Skaust hluti þess í fót
mannsins sem lá óvígur eftir. Var
hann fluttur á sjúkrahúsið á ísa-
firði og er á batavegi. Slysið varð
á dekkjaverkstæði á Skutulsfjarð-
arbraut. -EIR
Vinnueftirlitið:
Fjórðungur
barna í
næturvinnu
„Eftirlitsátakið leiddi í ljós að
25% ungmennanna voru við vinnu
eftir miðnætti og 10 ungmenni
störfuðu sem bílstjórar
(pitsusendlar) og voru
einir að störfum.
Hvort tveggja er
brot á reglum,"
segir Vinnueftir-
litið um árangur-
inn af eftirlitsferð
sinni í Reykjavík
og á Akureyri. Tilgangurinn var
að kanna hvemig nýlegri reglu-
gerð um vinnu ungmenna á pitsu-
stöðum, öörum skyndibitastöðum
og fleiri álíka væri fylgt. -HEI
Verð frá
35.500 EVRÓ
Allar stærðir Gsreg^s^^3
ER DUIÐ AÐ
,SKIPTA Á RÚMINU?
LAUGARDAGUR 9. JUNI 2001
Höfuðstöðvar Barnaverndarráðs
Húsiö var útbíað í slagoröum og
skammaryröum frá einstaklingi sem
taldi sig eiga ýmislegt vantalað viö
starfsfólk stofnunarinnar.
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Barnaverndarráð:
Manneskjan
þarf hjálp
DV-MYND BRINK
Skammt stórra högga á millí
Veöurguðirnir hafa sýnt öll tilbrigði litrófsins undanfariö á Noröurlandi. Útivinnandi starfsmenn fögnuöu veöurblíöunni
á Akureyri í gær eftir aö hafa mátt þola snjó og kulda litlu fyrr í vikunni.
„Við höfum grun um hver er hér
að verki. En það er erfitt að eiga
við þetta,“ segir Guðrún Erna
Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaverndarráðs íslands, en höf-
uðstöövar stofnunarinnar á Lauga-
vegi 36 voru útbíaðar í slagorðum
og skammaryrðum frá einstaklingi
sem taldi sig eiga ýmislegt vantal-
að við starfsfólkið þar. „Mann-
eskjan á við erfiðleika að stríða og
þarf hjálp.“
Slagorðin voru hreinsuð af
húsinu síödegis í gær enda höfðu
þau vakið óþarflega mikla athygli
vegfarenda sem voru fjölmargir á
þessum hluta Laugavegarins.
-EIR
Þingmaður í sigurvímu vegna inngöngu í Alþjóða hvalveiðiráðið:
- ekki nóg að draga fram byssurnar og fara að skjóta, segja hvalavinir
„Nú er ekki eftir
neinu að bíða. Við eig-
um að hefja hvalveið-
ar strax,“ sagði sjálf-
stæðisþingmaðurinn
af Vesturlandi, Guðjón
Guðmundsson, þegar
fréttist af hugsanlegri
inngöngu íslendinga í
Alþjóða hvalveiðiráð-
ið. Guðjón hefur barist
fyrir hvalveiðum í öll
-
Guöjón
Guömundsson.
Asbjörn
Björgvinsson.
þau tíu ár sem hann hefur setið á
þingi og vonar nú að gamall draumur
rætist. „Ég hef fjórum sinnum flutt til-
lögu þessa efnis á Alþingi og fékk
þingsályktunartillögu loks samþykkta
fyrir tveimur árum með 37 atkvæðum
gegn 4. Nú er lag því Japanir hafa
ekki viljaö kaupa af okkur hvalaaf-
urðir fyrr en við
værum komnir i
Alþjóða hval-
veiðiráðið,"
sagði Guöjón og
benti á að vel
mætti sjá þetta
mál allt í sam-
hengi við um-
ræöur um ranga
útreikninga Haf-
rannsóknastofn-
fiskistofna: „Þessi
unar á stærð
skepna étur meira en við veiðum. Nú
er bara að gera hvalbátana sjóklára."
í þau 12 ár sem hvalveiðibann hef-
ur verið í gildi hér á landi hefur Krist-
ján Loftsson og fyrirtæki hans, Hval-
ur hf., þurft að greiða hundruð millj-
óna króna i kostnað vegna viðhalds og
reksturs á eignum sínum, bæði i
Hvalfirði og í Reykjavíkurhöfn. Að-
eins lega hvalbátanna við Ægisgarð
hefur kostað Kristján og fyrirtæki
hans 70 milljónir króna.
„Það er ekki nóg að draga fram
byssurnar og fara að skjóta. Það ligg-
ur ekkert fyrir um það að Japanar
vilji kaupa af okkur hvalaafurðir,"
sagði Ásbjörn Björgvinsson, forstöðu-
maður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsa-
vík, en hann gerir ráð fyrir að um 60
þúsund útlendingar komi í hvalaskoð-
un hér á landi á þessu ári. í fyrra
voru þeir 44 þúsund:
„Húsavík er höfuðborg hvalaskoð-
unarinnar í Evrópu og við erum í
raun að endurnýta hvalina. Þá er
hægt að skoða aftur og aftur. Menn
verða að sjá fyrir afleiðingarnar af
Hvalaskoöun
Gert er ráö fyrir aö 60 þúsund útlend-
ingar komi í hvalaskoðun á þessu ári.
hvalveiöum í ljósi þess að stjórnir
allra helstu viðskiptalanda okkar eru
andsnúnar þeim. Það kemur ef til vill
til greina að selja nokkrar hrefnur á
ári en langreyðurin verður aldrei við-
skiptavara. Hún er á lista yfir dýr í út-
rýmingarhættu," sagði Ásbjörn í
Hvalamiðstööinni á Húsavík.
Sjá nánar bls. 2 -EIR
Hvalveiðar strax
William Hague gisti á Snorrabrautinni:
- hótelstjórinn vonar að Bretar vilji sofa í sama rúmi
„Ég hefði aldrei sagt frá þessu fyrir í herbergi 314 þar sem fyrrum
nema vegna þess að leiðtoginn var leiðtogi breska íhaldsflokksins gisti
aö segja af sér. William Hague gisti
hjá mér í tvær nætur í ágústmánuði
síðastliðnum og kom fram eins og
sannur herramaður," segir Ólafur
Skúlason, hótelstjóri í Gistihúsinu
101 á Snorrabraut 29 í Reykjavik.
„Hague var hér með frú sína og
leigðu þau Toyota Yaris til að kom-
ast á Þingvöll, Gullfoss og Geysi."
Ólafur hótelstjóri hyggst láta gera
sérstakan minningarskjöld um dvöl
Hagues á Snorrabrautinni og koma
ágústnæturnar tvær. Vonast hann
til að fjölmargir Bretar sýni því
áhuga að gista í sama rúmi og leið-
toginn fyrrverandi „... enda er hér
ekki um neina smákanónu að
ræða,“ eins og Ólafur hótelstjóri
orðar það.
Líklegt er talið að öryggissjónar-
mið hafi valdið því að Gistihúsið
101 varð fyrir valinu þegar breski
íhaldsforinginn átti hér viðdvöl.
Sérstök lyfta er upp á hótelganginn
Rúmiö enn á sínum staö
Ólafur hótelstjóri í herbergi 314 þar
sem William Hague gisti.
Minningarskjöldur á herbergi 314 /
..1
sem enginn getur notað nema skráö-
ir gestir og telur Ólafur hótelstjóri
að starfsfólk Hagues hafi haft spurn-
ir af því hjá breskum blaða- og
fréttamönnum sem oft hafa gist í
Gistihúsinu við Snorrabrautina.
„Ég hef ekki ákveðið hvernig
minningarskjöldurinn kemur til
meö aö lita út en ég set hann upp
við höfðagaflinn á rúminu þar sem
William svaf. Rúmið er hér enn; það
vantar bara skjöldinn," segir Ólafur
hótelstjóri við Snorrabrautina.
-EIR