Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Qupperneq 12
12 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 Helgarblað_________________________________________________________________________________________________PV Frændur okkar Færeyingar búnir að finna olíu: Nógu sterk bein til að þola álagið Allt er þegar þrennt er. Tvisvar höfðu frændur okkar, Færeyingar, mátt sætta sig við að tilraunaborholur í landgrunni eyj- anna gáfu ekki af sér neina olíu, eins og menn höfðu þó gert sér miklar vonir um og hefur bjartsýn- isbrúnin sjálfsagt verið farin að síga á mörgum. En olíuævintýrið var bara rétt að byrja og nú virðist sem Færeyingar hafi dottið í lukkupott- inn. Þeir eru búnir aö bora niður á fyrstu olíulindina. Og ef að líkum lætur eiga olíulindimar eftir að verða fleiri áður en yfir lýkur. „Ég er fullur af bjartsýni og gleði yfir þessum tíðindum," segir Eð- varö T. Jónsson fréttamaður sem, að öörum ólöstuðum, þekkir líkleg- ast íslendinga best til Færeyja og færeysks samfélags. Olía viö miölínuna Það var síðastliöinn mánudag að Eyðun Elttor, olíumálaráðherra færeysku landstjórnarinnar, stað- festi það sem færeyskir fjölmiðlar höfðu greint frá dagana á undan, nefnilega að olíuborpallurinn Sover- eign Explorer hefði komið niður á umtalsvert magn bæði olíu og gass í færeyskri efnahagslögsögu, nærri miðlínunni að Hjaltlandseyjum. „En, og það er alltaf eitt en, í augnablikinu vitum við ekki um hversu mikið magn er að ræða. En ég held að við eigum að fara varlega í sakirnar við að meta það. Við eig- um bara að staðfesta í fyrstu lotu að olía sé fundin við Færeyjar," sagði Eyðun Elttor á fundi með frétta- mönnum i Þórshöfn á mánudag. Borpallurinn, sem er í eigu bandaríska olíufélagsins Amerada Hess, kom niður á olíuna á 4.246 metra dýpi undir hafsbotninum. Á þessum slóðum er Atlantshafið 975 metra djúpt og því ljóst að borleiðsl- an var rúmlega fimm kílómetra löng. Olían er í setlagi sem er 170 metra þykkt. Upphaflega fékk Faroes Partners- hip, samstarfshópur Amerada Hess, færeyska olíufélagsins Atlantic Petroleum, danska fyrirtækisins DONG og hins breska British Gas, fengið leyfi til að bora niður á 3.800 metra dýpi. Ekkert hafði fundist þegar þangað var náð en í herbúö- um Amerada Hess töldu sérfræðing- ar góðar likur á að olíu væri að finna á meira dýpi. Forráðamönn- um British Gas leist aftur á móti ekki á blikuna og drógu þeir sig út úr boruninni en hin fyrirtækin þrjú héldu áfram. Og þau höfðu heppn- ina með sér. „Þessi jákvæði árangur er upp- örvandi fyrir framtíð olíu- og gas- iðnaðarins í Færeyjum,“ sagði Ben Arabo, útibússtjóri Amerada Hess í Færeyjum. Nick Fairbrother, forstjóri Bret- landsdeildar fyrirtækisins, lýsti yfir ánægju sinni með árangurinn og sagði að allir hlökkuðu til að halda borunum áfram á næsta ári. Átta mánuðir En núna er búið að setja tappa í olíulindina sem fannst á dögunum og hún biður þess bara á hafsbotni að tappinn verði tekinn aftur úr og að farið verði að dæla. Það gerist þó ekki á næstunni. „Þeir eru bara búnir að bora eina holu núna og hafa átta mánuði til að skila niðurstöðu um hvort þeir telji að olíulindin sé vinnsluhæf," segir Steinar Þór Guðlaugsson jarðeðlis- fræðingur, sérfræðingur á Orku- stofnun. Telji olíufélögin í Faroes Partner- ship að svo sé er næsta skref að leggja fram framkvæmdaáætlun um uppbyggingu olíulindarinnar og nýtingu. Þá lýkur rannsóknarleyf- inu og vinnsluleyfið tekur við. Fé- lögin verða þá að ákveða hvernig standa eigi að nýtingu lindarinnar. Aukinn kraftur Steinar Þór segist eiga von á því að þessi tíðindi verði til að fyrir- tækjahóparnir sem hafa fengið leyfi til að bora í næsta nágrenni við Faroes Partnership muni tvíeflast og hraða framkvæmdaáætlunum sínum og borunum frekar en ekki. „Það má því búast við að það hlaupi mikill kraftur í frekari yfir- borðsrannsóknir og boranir," segir Steinar Þór. Eyðun Elttor olíumálaráðherra gaf til kynna á mánudag að hugsan- lega kynni framleiðsla aö hefjast eft- ir fimm til sex ár, reynist olían á annað borð nægilega mikil og vinnsluhæf. Það er heldur lengri tími en tók að byggja upp breska ol- íuvinnslusvæðið Foinaven sem er rétt hinum megin miðlínunnar. Bretar tóku fjögur ár í að byggja Foinaven upp. Steinar Þór segir að ástæðan kunni að vera sú aö haf- dýpið er meira þar sem færeyska lindin fannst. Guölaugur Bergmundsson blaðamaöur Bretar eiga tvö vinnslusvæði viö miölinuna, áðurnefnt Foinaven og Schiehallion. Á hinu síðarnefnda er einhver stærsta oliulind sem Bretar hafa fundið innan lögsögu sinnar á siðari árum. Talið er þar séu 425 milljónir tunna af olíu og að í Foinaven séu um 200 milljónir tunna. Vonandi mikil olía Steinar Þór segir að lindirnar Bretlandsmegin miðlínunnar gefi enga vísbendingu um hversu mikla olíu sé að finna í lögsögu Færeyja. „Hins vegar vonar maður fyrir hönd Færeyinga aö þar geti verið um eitthvað svipað að ræða. Ástæð- an er sú að eins og fundinum er lýst virðist hann vera i svipuðum jarð- lögum og af svipuðum aldri og Schiehallion og Foinaven. Þess vegna ýtir það undir vonir um þarna geti verið um stóran fund að ræða,“ segir Steinar Þór Guðlaugs- son jarðeðlisfræðingur. Eiríkur Þorvaldsson mjólkurbús- stjóri hefur búið í Færeyjum í 23 ár og hefur fylgst náið með öllum hræringum í atvinnu- og stjórn- málalífi eyjanna á þeim tíma. Hann segir aö i Færeyjum hafi alltaf ver- ið lögð mikil áhersla á það að menn gerðu sér ekki of miklar væntingar um hugsanlega olíuvinnslu í fram- tíðinni og að ef olía fyndist mætti það ekki verða til þess að eyðileggja samfélagsgerðina. Báðir fætur á jörðinni „Stjórnvöld leggja mikla áherslu á að það verði í fyrsta lagi eftir fimmtán til tuttugu ár sem einhverj- ir peningar fara að koma í arð af þessu. Það er samt komið fé í sam- félagið vegna þessa. Ég held að það hafi verið hundrað manns á borpall- inum og þeir þurfa sína þjónustu," segir Eiríkur. Og bætir við að þetta hafi skapað það mikla atvinnu að í Þórshöfn sé nú orðið erfitt að fá húsnæði. Bæði fasteignaverð og húsaleiga hafi hækkað mikið. „Ég held að Færeyingar hafi báða fæturna á jörðinni en það er mjög jákvætt andrúmsloft hér í dag. Eða eins og einhver sagði: ég held að ellilaunin min séu komin á réttan stað núna,“ segir Eiríkur Þorvalds- son mjólkurbússtjóri. Eiríkur er á því, rétt eins og Eð- varð T. Jónsson fréttamaður, að ol- íufundurinn muni hafa mikil áhrif á fullveldismál Færeyinga. Sjálf- stæðishugmyndir landstjórnar An- finns Kallsbergs lögmanns hafa átt undir högg að sækja á undanfórn- um mánuðum og úrtölumenn hafa haldiö því fram að Færeyingar hefðu hreinlega ekki efni á sjálf- stæðinu. Dönsk stjómvöld hafa líka reynst afar þvergirðingsleg í öllum viðskiptum sínum við landstjórn- ina. Færeyskur almenningur hefur í auknum mæli snúið baki við stjórninni og lýst yfir stuðningi við jafnaðarmenn og sambandsmenn sem hvorir tveggja vilja áframhald- andi samband við Danmörku. Mikilvægar kosningar „Það á að kjósa í Færeyjum á næsta ári og það eru griöarlega mikilvægar kosningar," segir Eð- varð T. Jónsson sem bjó um árabil í Færeyjum og sagði fréttir þaðan í rikisútvarpinu. „I þeim verður skorið úr um það hvort færeyska þjóðin ætlar að halda áfram á þessari braut. Það er það sem flokkarnir sem standa að stjórninni vilja. En landstjórnin hef- ur ekki notið mikillar lýðhylli síð- asta árið.“ Eðvarð segir að olíufundurinn gæti orðið til þess að breyta stöð- unni mjög mikið, hann gæti gefið stjórnarflokkunum næði til að halda áfram, til dæmis til aö greiða niður „þennan fræga ríkisstyrk sem þeir báðu aldrei um og var eiginlega neytt inn á þá skuldlausa í gamla daga,“ eins og Eðvarð segir. Hann segir að erlend olíufélög hafi þegar dælt miklu fé í færeyskt hagkerfi og meira eigi eftir að koma. Byggð hafi verið oliuhöfn í Skálafirði og félögin hafi styrkt samgöngur á eyjunum. „Færeyingar óttast þessa þróun," segir Eðvarð. „Allur almenningur er milli vonar og ótta. Menn vita hvernig fór fyrir Hjaltlendingum, sem eru næstu nágrannar Færeyja. Þar hefur verið unnin olía í fjölda ára og það hefur komið miklu róti á hjaltneskt samfélag." Færeyingar pluma sig En þótt Færeyingar horfi ef til vill með einhverjum kvíða til þeirr- ar framtíðar sem olíugróði á hugs- anlega eftir að skapa þeim er Eð- varð ekki í nokkrum vafa um að frændur okkar hafi nægilega sterk bein til að þola álagið. „Færeyingar standa mjög þétt og ég hef engar sérstakar áhyggjur af því að þetta ríði þeim að fullu hvað þjóðernið varðar. Ég þykist sann- færður um aö ef þetta tekst vel, sem allt bendir til núna, fái þeir fullveldi og þeir eiga eftir að pluma sig. Og þeir hafa sýnt að þeir eru þess megnugir aö taka taka málin í sínar eigin hendur. En mér finnst mjög já- kvætt að þeir skuli vera hræddir viö þetta. Ég held að þeir muni standast álagið,“ segir Eðvarð T. Jónsson fréttamaður. 3orshotn i Færeyjum Ekki er víst að svona friðsælt verði viö höfnina í Þórshöfn þegar, og ef, olían fer að streyma í stríðum straumum upp úr hafsbotninum. Sigur borgarflokkanna Borgaraflokkarnir í Danmörku unnu á þriðjudaginn stærsta kosn- ingasigur sinn í áttatíu ár þegar þeir veltu ríkisstjórn jafnaðarmanna eftir snarpa kosningabaráttu þar sem inn- flytjendur og flóttamenn voru helsta hitamálið. Poul Nyrup Rasmussen, leiðtogi jafnaðarmanna, stendur því upp úr forsætisráðherrastólnum, fyrir ótví- ræðum sigurvegara kosninganna, Anders Fogh Rasmussen, leiðtoga Venstre, sem nú er orðinn stærsti flokkurinn á þinginu. Fimm drengir láta lífið Fimm palestínskir skóladrengir létu lífiö árla á fimmtudagsmorgun eftir að einn þeirra hafði sparkað í ósprungna ísraelska skriðdreka- sprengju sem lá á vegi þeirra. Atvikið gerðist í Khan Younis-flóttamanna- búðunum á Gazasvæðinu og munu drengirnir, sem voru á aldrinum 6-14 ára, hafa verið á leið í skólann sinn, sem rekinn er af Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna. Dauðinn bíður barnanna Philippes Heff- inck, talsmaður Barnahjálpar SÞ í norðurhéruðum Afganistans, sagði í byrjun vikunnar að SÞ gerðu nú allt til að koma um 120 þúsund af- gönskum börnum, sem þjáðst af hungri, veikindum og kulda í norður- héruðum Afganistan, til hjálpar. „Ef við komum börnunum ekki strax til hjápar er ljóst að ekkert annað en dauðinn bíður þeirra með kólnandi veðri. Birgðir eru á þrotum og okkur fer fljótlega að bráðvanta mat, lyf, hlý fot og ekki síst drykkjarvatn," sagði Heffinck. Fjórir blaðamenn skotnir Fjórir erlendir blaðamenn voru á mánudaginn skotnir til bana i Af- ganistan eftir fyrirsát byssumanna á þjóðveginum frá Jalalabad til Kabúl. Blaðamennirnir, voru á feröinni í átta bíla lest þegar bifreið þeirra var stöðvuð af óþekktum byssumönnun- um. Sögðu sjónarvottar að byssu- mennirnir hefðu neytt blaðamennina út úr bilnum og skipað þeim að fylgja sér upp í hæðirnar við veginn eftir að hafa barið þá og grýtt. Bílstjóri, sem átti leið um veginn stuttu seinna, fann líkin. Rugova vill sjálfstæði Ibrahim Rugova, leiðtogi hófsamra Albana í Kosovo, lýsti á sunnudaginn yfir sigri í söguleg- um þingkosningum sem fóru fram í hér- aðinu á laugardag. Hann hvatti við það tækifæri ríki heims til að viðurkenna sjálfstæði Kosovo þegar i stað. Utanríkisráðherrar Evr- ópusambandslandanna höfnuðu strax þessari málaleitan og ítrekuðu and- stöðu sina við sjálfstæði Kosovo. Konur krefjast réttar síns Hundruð afganskra kvenna komu saman í Kabúl í vikunni til að krefjast þess að fá aft- ur fyrri réttindi sín, eftir fimm ára harð- stjórn talibana. Kon- urnar skildu margar hefðbundinn klæðnað afganskra kvenna eft- ir heima en klæddust þess 1 stað í leðurjakka, pils og slæður með blómamynstri og kröfðust þess að fá aftur leyfi til að vinna utan heimilisins, mennta dætur sínar og til að láta að sér kveða í stjórnmálum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.