Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 25
25 LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001_________________________________________________________ I>‘V' Helgarblað Útkall í Djúpinu: Yissu að skip- ið færi niður í febrúar 1968 gerði ofsaveður við landið og þrjú skip fórust í ísafjarð- ardjúpi. í tvo sólarhringa börðust á fimmta hundrað sjómenn við að halda skipum sínum á floti i gífur- legri ísingu á Djúpinu. Þar á meðal voru menn í áhöfnum togaranna Notts County, sem strandaði við Snæfjallaströnd, og Ross Cleveland. Varðskipinu Óðni tókst að bjarga áhöfninni á breska togaranum Notts County og Harry Eddom, skip- verji á Ross Cleveland, bjargaðist með undraverðum hætti. Óttar Sveinsson, blaðamaður og rithöf- undur, segir frá atburðunum í nýút- kominni bók sinni, Útkall í Djúp- inu. Frækilegt björgunarafrek Á blaðamannafundi sem haldinn var um borð í Óðni, sama skipinu og bjargaði áhöfninni á Notts County, í tilefni af útkomu bókar- innar, þakkaði Richard Moore áhöfninni á Óðni fyrir frækilegt björgunarafrek og sagðist aldrei hafa lifað gleðilegri stund en þegar hann sá varðskipið fyrir aftan Notts County. „Við vorum búnir að vera í brúnni í nokkra klukkutíma og hlusta á önnur skip í talstöðinni og reyna að halda á okkur hita og við öðluðumst nýja von þegar við sáum varðskipið. Það var ekkert rafmagn í skipinu, fyrir utan neyðarljósin, þannig að við vorum bæði hita- og vatnslausir. í fyrstu töldum við ólík- legt að mönnunum á Óðni tækist að koma björgunarbátum yfir til okk- ar, veðrið var svo vitlaust. En þeir sýndu ótrúlegt hugrekki og tókst að flytja okkur yfir.“ Að sögn Richards voru varðskips- menn smeykir um að skipverjarnir á Notts County myndu missa stjórn á sér af hræðslu og stökkva fýrir borð til að komast í Zodiak-bátinn. „Okkur tókst að sannfæra þá um að við værum rólegir. Það tók rúman klukkutíma að koma okkur yfir í varðskipið og ég man eftir því að ferðin á milli var mjög erfið.“ Breytti lífi mínu Richard segist muna vel eftir því síðasta sem áhöfnin á Ross Cleveland sendi frá sér áður en skipið fór á hliðina. „Þeir vissu að skipið væri að fara niður og báðu fyrir kveðju heim til fjölskyldna sinna og svo heyrðist ekki meira í þeim. Ég held að á þeim tíma höfum við haft mestar áhyggjur af okkur sjálfum en eftir á að hyggja var þetta hræðileg reynsla. Það var mikið af ungum mönnum sem fórst þessa nótt. Sú lífsreynsla sem ég lenti i þessa nótt breytti lífi mínu til frambúðar. Ég hætti á sjónum í nokkra mánuði og fór að vinna í pappírsmyllu í Notts County Varðskipiö Óóinn bjargaði áhöfn tog- arans úr miklum háska í febrúar árið 1968. Noregi. Ég réð mig svo aftur á sjó- inn en stoppaði stutt. Eftir það fór ég að vinna hjá símanum og kynnt- ist eiginkonunni. í dag á ég þrjú börn og fjögur bamabörn. Dóttir mín eignaðist tvíbura í haust og ég er mjög stoltur afi.“ Tilfinnlngaþrungin stund Eiginkona Richards, Elizabeth Moore, er með honum hér á landi. Hún sagði að það væri mjög tilfinn- ingaþrungin stund fyrir sig að hitta mennina sem björguðu lífi manns- ins síns. „Við hittum hluta af áhöfn- inni á Óðni rétt fyrir blaðamanna- fundinn þannig að ég gat þakkað þeim öllum fyrir að bjarga eigin- manni mínum og fyrir þaö að við eigum þrjú börn og fjögur bama- börn.“ -Kip DV-MYND GVA Skipst á gjöfum Sigurður Þ. Árnason, skipherra á Óðni, og Páimi Hlöðversson, annar stýrimaður, færöu Richard Moore mynd og penna að gjöf og hann gaf þeim glæsilegan vasapela. Jóhann Friðgeir Valdimarsson, tenór Sigurjón Jóhannesson, tenór Ólafur Vignir Albertsson, píanö Björn Steinar Sólbergsson, orgel Akureyrarkirkju, Akureyri 28. nóvember 2001, kl. 20.30 Miðasala við innganginn. Forsala miða í Bókvali, Akureyri. Miðgarði, Skagafirði 25. nóvember 2001, kl. 21.00 4 Miðasala við innganginn. DV-MYND GVA Útkall í Djúpinu Óttar Sveinsson rithöfundur og Richard Moore, einn þeirra sem björguð- ust um borð í varðskiþið Óöin í ofsaveöri árið 1968. GÍæsífcfj ísfensk söngveísfa með eftírfætís eínsöngsföjjum okliar o£ dúettum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.