Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Qupperneq 29
29
LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001
PV___________________________________________________________________________________________________Helgarblað
Söngvari eða
skemmtikraftur
- Jóhann Friðgeir Valdimarsson á annríkt
„Ég hef mikið að gera og má
segja að ég hafi varla undan að
sinna beiönum um söng. Ég er
mjög eftirsóttur í veislur og
skemmtanir, ég syng mikið við
jarðarfarir, brúðkaup og þess hátt-
ar og þetta er mikið álag en
skemmtilegt og hefur í rauninni
gengið betur en ég þorði að vona,“
segir Jóhann Friðgeir Valdimars-
son tenórsöngvari í samtali viö
DV yfir svörtum kaffibolla á Kaffi
Rót.
„Hitt er svo annað mál að það
má kannski segja að í dag sé ég á
íslandi tenórsöngvari sem starfar
sem skemmtikraftur en ekki bara
óperusöngvari. Ég hafði alltaf í
huga þegar ég ákvað að gera eitt-
hvað úr þessum söng að fara eins
langt og ég kæmist. Þess vegna
stefni ég að því að flytja til Ítalíu i
vor með fjölskylduna og starfa þar
sem óperusöngvari."
í fjarlægð
Jóhann segir að verði af flutning-
unum þá muni þau setjast að í Lago
di Iseo sem er rétt við svissnesku
landamærin, ekki langt frá borginni
Brescia en einnig stutt frá Mílanó
þar sem Jóhann lærði lengi söng.
„Þarna býr annar kennari minn
og þaðan er stutt til Þýskalands,
Sviss og Austurrikis en þar eru
helstu atvinnutækifærin. Ég hef
verið að syngja talsvert á Ítalíu síð-
astliðið ár en hef einnig þurft að
neita mörgum verkefnum einfald-
lega vegna fjarlægðarinnar.“
Jóhann kom heim frá námi sínu
fyrir einu og hálfu ári og þegar litiö
er yfir stundaskrá söngvarans verð-
ur ekki annað sagt en hann haíi náð
ferli sínum á umtalsvert flug.
„Hitt er svo annað mál
að það má kannski segja
að í dag sé ég á íslandi
tenórsöngvari sem starfar
sem skemmtikraftur en
ekki bara óperusöngvari.
Ég hafði alltaf í huga
þegar ég ákvað að gera
eitthvað úr þessum söng
að fara eins langt og ég
kœmist. Þess vegna stefni
ég að því að flytja til
Ítalíu í vor með fjölskyld-
una og starfa þar sem óp-
erusöngvari. “
að ræða plötuupptöku í Danmörku
með sinfóníuhljómsveit.
„Ég veit ekki hvað þetta felur í
sér í rauninni en er opinn fyrir öll-
um svona tækifærum."
Hamraborgin ómar
Á nýja disknum er Jóhann meðal
annars að syngja lög eftir Sigvalda
Kaldalóns sem er óumdeilt eitt ást-
sælasta tónskáld Islands. Um þessar
mundir er Jóhann sérlega hand-
genginn verkum hans því hann og
Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, ætla
að halda tónleika í Salnum í Kópa-
vogi 1. desember næstkomandi
ásamt Jónasi Ingimundarsyni pí-
anóleikara og þar munu þau flytja
aUt að 35 lög eftir Sigvalda.
Enn mætti nefna að Jóhann Frið-
geir mun ásamt tveimur öðrum ten-
órsöngvurum koma fram á sérstök-
um tónleikum á svölum Húss mál-
arans á Þorláksmessu. Þessir þrir
íslensku tenórar eru mörgum í
fersku minni frá Þorláksmessu í
fyrra enda vandfundin skemmti-
legri hátíðastemning en í miðbæ
Reykjavíkur á Þorlák.
Jóhann Friögeir hefur verið dug-
legur að hasla sér völl sem söngvari
í íslensku tónlistarlífi á þeim stutta
tíma sem liðinn er síðan hann kom
heim frá námi. Það vekur því for-
vitni blaðamanns hvort hann hafi
umboðsmann.
„Þetta snýst um að vera duglegur
að kynna sig og kynnast lykilfólki í
tónlistarheiminum og svo er það
orðsporið sem hjálpar manni auð-
vitað," segir Jóhann..
„En mannleg samskipti eru mikil-
væg og í heimi tenórsöngvara á Is-
landi eru hljómsveitarstjórar, kór-
stjórar, undirleikarar og útfarar-
stjórar afskaplega mikilvægt fólk.“
PÁÁ
DV-MYND BRINK
Johann Friögeir Valdimarsson tenor
Hann segir líf söngvarans á þröngum íslenskum markaöi einkennast af
annríki en hugur hans stefnir suöur til Ítalíu og þangað vill hann flytja
meö vorinu.
Helg nótt í Hallgrími
Jóhann verður með aðventutón-
leika í Hallgrimskirkju, Vatíkani ís-
lands 4., 6. og 8 desember. Það er
Hörður Áskelsson organisti sem
stjórnar tónleikunum en við orgelið
er Kári Þormar og Daði Kolbeins
leikur á óbó.
„Þarna mun ég og Mótettukór
Hallgrímskirkju undir stjórn Harð-
ar flytja þekkt jólalög og rómantíska
tónlist í bland við minna þekkta að-
ventutónlist. Ég mun bæði flytja
stærri verk eins og Agnus Dei og Pi-
eta Signore og ganga í smiðju
Andrea Bocelli en Ó helga nótt verð-
ur á sínum stað,“ segir Jóhann um
þessa'tónleika.
Undir dalanna sól
Næsta verkefni Jóhanns er í Mið-
garði i Skagafirði, höfuðvígi tenór-
söngs til sveita á íslandi, á morgun
sunnudag kl. 21.00. Þar kemur Jó-
hann fram ásamt Sigurjóni Jóhann-
essyni sem er ættaður úr Skaga-
firði, nánar tiltekið Víðihlíð, en hef-
ur dvalist við söngnám og störf á
Ítalíu undanfarin ár. Efnisskrá þess-
ara tveggja sprengitenóra verða ís-
lensk einsöngslög og vinsælir dúett-
ar við undirleik Ólafs Vignis Al-
bertssonar.
Eins og þetta sé ekki nóg þá er
fyrsti geisladiskur Jóhanns Frið-
geirs kominn út og ber nafn söngv-
arans glaðbeitta. Þar syngur Jó-
hann íslensk einsöngslög og óperu-
aríur ásamt ítölskum kanzónum og
og ljóðum.
„Hluti af disknum er tekinn upp i
íslensku óperunni í fyrra en svo var
lokið við upptökurnar í Víðistaða-
kirkju í sumar.“
Þessi diskur hefur þegar dregið
þann dilk á eftir sér að umboðsmað-
ur danskrar hljómplötuútgáfu sem
heyrði diskinn hringdi í Jóhann og
vill ólmur koma á fundi með honum
Vertu viðbúinn vetrarfærðinni
Hjá Suzuki bílum býðst einstaklega
fjölbreytt úrval fjórhjóladrifsbíla.
Allt frá nettum og einstaklega sparneytnum bæjarbíl eins og Wagon R+ upp í nýjasta og
stærsta jeppann, Suzuki Grand Vitara XL-7, sjö sæta glæsijeppa með 2.7 L173 hestafla vél.
Allir Suzuki fjórhjóladrifsbílarnir eru byggðir á traustum grunni og áratuga reynslu Suzuki
í smíði rúmgóðra og sparneytinna jeppa og fólksbíla.
Grand Vitara 2.0L, 5 dyra Grand Vitara XL-7 2.7L, 7 sæta Grand Vitara 1.6L, 3 dyra
Verð kr. 2.420.000 Verð kr. 3.080.000 Verð kr 2.110.000
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
www.suzukibilar.is
JimnyJLX 1.3L,
Verð kr. 1.665.000
Ignis GL 1.3L,
Verð kr. 1.640.000
Baleno Wagon GLX 1.6L,
Verðkr. 1.955.000
Wagon R+ 1.2L,
Verð+r. 1.375.000
^ SUZUKI
--------—-