Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2001, Síða 60
68 •*> Tilvera LAUGARDAGUR 24. NÓVEMBER 2001 DV Litiö til fortíðar: Hverjar eru bestu skákirnar? Nú í næstu viku hefst heims- meistarakeppni FIDE og einvígi Kramniks og Kasparovs í Moskvu. Herlegheitin byrja 27. nóvember og reynum við að fylgjast með eftir bestu getu. Þá verða margar nýjar og glæsilegar skákir tefldar. Þess vegna er gott að líta aðeins til fortíð- ar, en þó ekki nema örfá skref. Á vefsíðunni http://masker- et.com/clink/ „Mecca Chess Encyclopedia" er verið að kjósa um bestu skákir síðustu áratuga síð- ustu aldar og kennir þar margra' auðugra grasa. Beina leiðin að kosn- ingunni er http://www.geocities.com/faros8/v ote.htm og hvet ég alla skákáhuga- menn sem vilja kynna sér sögu skákarinnar og flnna bestu skáksið- umar (og verstu!) að líta á þær. Ég valdi 2 skákir með vinum okkar þar sem drottningartilfæringar leika að- alhlutverkin. Margar eru þær skák- irnar sem ekki mega falla í gleymskunnar dá þótt ég viti að margar glæsilegar skákir hafi einmitt gert það! Þessi frábæra skák er frá mótinu í Lugano 1970, þar sem Friðrik Ólafsson varð i 2. sæti á eftir Bent Larsen og þar sem hann vann einnig Kavalek glæsilega. Sú skák hefur oft verið á síðum blaða og tímarita hér heima þannig að henni er sleppt núna þó að það sé í fullu gildi að sjaldan sé góð visa of oft kveðin. Bent Larsen var mikið heljar- menni í skákinni á síðustu áratug- um síðustu aldar og það var ekki fyrr en um 1990 að hann fór að slaka eitthvað verulega á. Um 1970 var hann í allra fremstu röð. Strákur- inn frá Brooklyn, Bobby Fischer, gerði honum þann grikk að hrifsa heimsmeistaratitilinn hér í Reykja- vík af Spasski 1972 og láta sig síðan hverfa. Larsen var aðstoðarmaður Fischers í kandídatamótinu 1959 og fór sú starfsemi aðallega fram í því að Bent las úr Tarzan-teiknimynda- bókum fyrir snillinginn, auk um- ræðna um hluti sem Bent hafði tak- markaðan áhuga á. Hann var þó nokkurs konar fóðurímynd fyrir Bobby sem veitti ekki af - strákur sá hafði aldrei nein samskipti við föður sinn svo vitað sé. Hvar er svo Bobby Fischer núna? Líklega í Ungverjalandi; þó er það ekki víst. Birst hafa nokkur út- varpsviðtöl við „hann“ nýlega í Asíu þar sem hann fer ófógrum orð- um um Bandaríkjastjóm og -menn og eru þau í raun versta vitleysa. Einn ágætur skákmaður orðaöi það svo „að Fischer væri illa leikinn" og er ég ekki frá því að það sé rétt því að í nýjustu viðtölunum er hann að- eins dimmraddaðri, fleiri blótsyrði í hverri setningu og Brooklyn-mál- lýskan hefur breyst aðeins. En það getur verið að ég sé kominn með „paranoid“-hugmyndir líka. Hvítt: Bent Larsen Svart: Lubomir Kavalek Larsen-byrjun. Lugano, Sviss (10) 1970 1. b3 c5 2. Bb2 Rc6. Bent sagði mér sjálfur að hann hefði teflt þessa byrjun fyrst í Palma de Mallorca 1968 af einhverri alvöru. Hún færði honum margan vinninginn á átt- unda áratugnum og mér líka þvi ég var og er mikill Larsen-aðdáandi! 3. c4 e5 4. g3 d6 5. Bg2 Rge7 6. e3 g6 7. Re2 Bg7 8. Rbc3 0-0 9. d3 Be6 10. Rd5 Dd7. Næst kemur alvöru- Larsenleikur! Hann hefur oft minnst á það, og líklega er það rétt hjá honum, að enginn skákmaður í heiminum notar a- og h-peðin jafn- mikið og hann. Allavega hafa þau fært honum margan vinninginn. 11. h4 f5 12. Dd2 Hae8 13. h5 b5 14. hxg6 hxg6 15. Rec3 bxc4 16. dxc4 e4?! 17. 0-0-0 Re5 18. Rf4 Hd8 19. Kbl Bf7. Þetta virðist vera rólegheitastaða þar sem bíða má eitthvað eftir bar- daganum. En Bent hefur tekið eftir þvi að hægt sé að koma hvítu drottningunni í ógnvænlega að- stöðu og bíður ekki boðanna! 20. g4!? Rxg4 21. f3 exf3 22. Bxf3 Re5 23. Dh2! Hvítur fórnar nú öðru peði fyrir innrás kvenkosts síns. Ég ætla ekki að segja ykkur hvernig þetta er sagt á ensku skákmáli, kannski seinna?! 23. - Bxc4 24. bxc4 Rxf3 25. Dh7+ Kf7. Staða hvíts er nú þegar unnin en hvar liggja mistök svarts? Þau liggja lík- lega í hinum mjög svo eðlilega leik 16. e4. Það má ekki mikið út af bera gegn snillingum! Nú opnast skálín- an al-h8 upp á gátt. 26. Rcd5! Hg8 27. Rxe7 Hb8 Síðasta hálmstrá svarts, sem reyndar er brotið, og staðan, hm! Með einfoldum en fallegum leik ger- ir Larsen „flókið“ mál einfalt. Eftir 28. - Hxb2 29. Dg8+ er allt „draslið" fjarlægt! 28. Kal!! Dxe7 29. Dxg6+ Kf8 30. Re6+ Dxe6. “Ekki vildi hann vatnið smakka, var hann þyrstur þó.“ 31. Bxg7+! Ke7 Svartur er peði yfir og myndi vinna endatailið eftir 32. Dxe6+ Kxe6! En sem betur fer má fórna „guðsmanninum"! 32. Bf8+! HbxfB 33. Hh7+ 1-0. Eftir 33. Hf7 34. Hxf7+ Dxf7 35. Dxd6+ Ke8 36. Dd8+ er líka mát! Töframaðurinn frá Riga „Polu“ var einn af þeim sem bæði töpuðu og unnu oft fallega. Nú eru þeir Polu og Tal báðir komnir yfir móðuna miklu en skákir þeirra lifa enn og skákum þeirra, sérstaklega Tals, fyrrverandi heimsmeistara, verður haldið á lofti lengi. Þessi skák er makalaus sóknarskák og Tal tefldi á heimavelli! Maður er orðlaus yfir snilldinni! Og á þessum árum var Töframaðurinn frá Riga oftar í stuði en óstuði; sjúkdómar mannkynsins eru margir og slyngir! Hvítt: Lev Polugajevskí Svart: Mikael Tal Enski leikurinn. Millisvæðamótið Riga Lettlandi (2), 1979 1. Rf3 c5 2. c4 Rf6 3. Rc3 d5 4. cxd5 Rxd5 5. e4 Rb4 6. Bc4 Be6?! Hvort Polu hefur verið upphafsmað- urinn að þessari taflmennsku skal ósagt látið. Svo mikið er víst að þeg- ar þurfti að hugsa frumlega var venjulega ekki komið að tómum kofunum hjá meistara Tal. En þessi leikur 6. Be6 þykir ekki sá besti í dag! Menn halda því fram að 6. Rd3+ 7. Ke2 Rf4+ 8. Kfl sé betra framhald fyrir svartan. En það var erfitt að vita þessa haustdaga í Riga 1979. Anatolí Karpov var heims- meistari og Leonid Breshnev var að- alritari í Kreml. 7. Bxe6 Rd3+ 8. Kfl fxe6 9. Rg5! Db6. „So far, so good!“ En hér eru til betri drottningarleik- ir, 10. Df3,10. Dg4 og 10. Da4+ - allt eftir persónuleika og skákstíl manna! 10. De2? c4 11. b3 h6 12. Rf3 Rc6 13. bxc4 0-0-0 Valdar allt og heldur hvítum niðri á kostnað peðs. Nú þarf aðeins að koma mönn- unum í betri stöður og svarta drottningin á eftir að dansa víðar! 14. g3 g5! 15. Kg2 Já, var ég ekki að minnast eitt- hvað á svörtu drottninguna? Nú hugsar Tal henni til hreyfings! 15. - Dc5! 16. Hbl? Bg7 17. Rb5? Dxc4 Nú hótar óþyrmilega 18. Rf4+ Polu hefði e.t.v. getað bjargað sér frá þessarri frægð með 16. Rel og 17. Rel en sem betur fer bar hann ekki gæfu til þess?! 18. De3 HhfB 19. Hfl g4 20. Rh4 Rxf2 Nú eru stöðuyfir- burðir Tals umtalsverðir og bara spurningin hvernig hann íléttar gegn Polu. 21. Rg6 Hd3 22. Ra3 Da4 23. Del Skiptamunsfóm varð fyrst, heill- in! Hvíti riddarinn á g6 og síðar f8 er eini maöur hvíts sem komst yfir miðju og vel inn í vítateig svarts. En þegar allt liðið er í vörninni er litla hjálp að fá! 23. - Hdf3! 24. Mikael Tal Töframaðurinn frá Riga. Rxf8 Rd3 25. Ddl Dxe4 26. Hxf3 gxf3+ 27. Kfl Hvítur er hrók yfir en svarta drottningin dansar dauðadansinn. 27. - Df5! 28. Kgl Bd4+ 0-1. Eins gott að hætta þessari og tefla bara aðra! íslandsmótið í atskák Undanrásir íslandsmótsins í at- skák fara fram nú um helgina. Tefldar verða 9 umferðir Monrad og er umhugsunartíminn 25 mín. á skák. Umferðir hefjast kl. 13.00 og verða tefldar 5 umferðir á laugardag og 4 á sunnudag. 6 skákmenn vinna sér rétt til þátttöku í úrslitum úr undanrásunum og 2 skákmenn úr úrtökumótum Norðurlands og Vest- Qarða. Teflt verður í félagsheimili TR í Faxafeni 12. íslandsmótiö í netskák 2001 Mótið fer fram sunnudaginn 25. nóvember 2001 og er lokahluti Bik- arkeppni Striksins. Að mótshaldinu Sævar Bjarnason skrifar um skák B standa, auk Taflfélagsins Hellis, Strik.is, Íslandssími og ICC. Islands- mótið fer fram í tvennu lagi: Opinn flokkur, sem er opinn fyrir alla (nema þá sem tefla í landsliðs-' flokki), hefst kl. 18.00. Þeir sem vilja taka þátt þurfa að mæta fyrir 17.45 og slá inn: tell pear join. Tefldar eru níu umferðir. Um- hugsunartími er fjórar mínútur á skák, auk tveggja viðbótarsekúndna á leik. Hellir býður jafnframt allt að 5 skákmönnum að tefla í Hellis- heimilinu, Álfabakka 14a, þar sem félagið rekur Netkaffið NetHelli. Áhugasamir hafi sem fyrst sam- band með tölvupósti í netfangið hellir@hellir.is Þeir sem tefla eru jafnframt beðnir um að senda „message“ til Vandradur a ICC eða tölvupóst þar sem tilgreint er notendaheiti, nafn og kennitala til að auðvelda. Landsliðsflokkur Svo er það landsliðsflokkurinn sem hefst að loknum opnum flokki og er áætlað að hann hefjist um kl. 20. Þar taka 20 keppendur þátt - þeir átján sem bestum árangri náðu í bikarkeppninni, auk þess sem mótshaldarar eiga tvö boðssæti. Tefldar eru níu umferðir. Umhugs- unartími er fiórar mínútur á skák, auk tveggja viðbótarsekúndna á leik.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.