Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
Fréttir
3>V
Hrun hjá íslenskum hótelum í herbergjanýtingu:
Dæmi um 50% samdrátt
- bæði höfuðborgarsvæði og landsbyggð í erfiðleikum - fleiri orsakir en hryðjuverkin
Erna
Hauksdóttir.
Algjört hrun
varð 1 nýtingu hót-
ela í nóvember.
Dæmi er um allt
að 50% samdrátt
hjá gamalgrónum
gistihúsum en
heilt yfir minnkaði
nýtingin á höfuð-
borgarsvæðinu um
15% milli ára. Hún
var 55,74% nú en
70,28% í nóvember í fyrra skv. athug-
un Samtaka ferðaþjónustunnar. Á
landsbyggðinni er ástandið ekki síð-
ur alvarlegt. Meðalnýting hótela þar
varð aðeins 19.91% en var 24.26% í
nóvember árið 2000. Meðalverð her-
bergja stendur nokkurn veginn í stað
bæði á höfuðborgarsvæði og lands-
byggð.
Ástandið er einna verst á hótelum
á Akureyri ef litið er á samdrátt milli
ára. „Að sjálfsögðu er þetta alvarlegt
ástand. Þessi nóvember er sá versti í
sögunni," segir Páll Lárus Sigurjóns-
son, hótelstjóri á Hótel KEA. Hann
Tff .31 m
■
|| tj ”,
ni
; '
■
W V L* IÍB*
e»-1 njmmæ
Hótel KEA
Meðalnýting hótela þar varð aöeins 19.91% en var 24.26% í nóvember árið 2000. Meö-
alverð herbergia stendur nokkurn veginn í stað bæði á höfuðborgarsvæði og landsbyggð.
segir að nú séu 50% færri herbergi
seld hjá Hótel KEA og Hótel Hörpu
miðað við nóvember í fyrra. Aðeins
hafi verið seld 700 herbergi í stað
1400 á þessum tveimur hótelum.
Sögulegt lágmark
Erna Hauksdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar,
segir að nýtingin sé í
sögulegu lágmarki en samtökin
vonist eftir stórauknu fé til mark-
aðsmála svo hægt veröi að laga
stöðuna. Erna segir ljóst að sam-
drátturinn sé að hluta vegna
hryðjuverkanna 11. september en
Páll Lárus telur að þau séu aðeins
örlítill hluti samdráttarins á lands-
byggðinni þar sem íslendingar séu
langstærsti viðskiptahópurinn á
veturna. Hann segist sjá glögg
merki þess að fyrirtæki og einstak-
lingar ferðist minna en fyrr og þá
hafi veður sett strik í reikninginn
og hamlað innanlandsflugi um helg-
ar. „Það er harðara í ári bæði hjá
einstaklingum og fyrirtækjum. Við
ættum til dæmis að vera á fullu í
árshátíðum núna,“ segir hótelstjór-
inn.
Lausleg athugun DV bendir til að
engin hótel standi þó svo höllum
fæti að búast megi við gjaldþroti
innan skamms. Nokkur hótel áttu
þó umtalsverða fjármuni í Sam-
vinnuferðum-Landsýn sem kemur
víða illa niður á fyrirtækjunum.
-BÞ
Alexander
Gíslason.
HIV-smitaður fangi:
Þriðji dagur
hungurverkfalls
Þrjátíu og sjö
I ára gamall og HIV-
smitaður fangi, Al-
exander Gíslason,
hóf hungurverkfall
og þagnarbindindi
í fyrradag. Hann
afplánar eins og
| hálfs mánaðar
fangelsisdóm
vegna fjársektar.
Með þessum að-
gerðum vill hann mótmæla þvi að
hann var settur í fangelsi þrátt fyrir
læknisvottorð úm að hann þoli ekki
að afplána slíka refsingu af heilsufars-
ástæðum.
Alexander hefur sótt um gjafsókn í
fyrirhuguðum málaferlum sínum
gegn Reykjavíkurborg. Hann stefnir
borginni vegna húsnæðisleysis en
hann telur sig eiga rétt á að fá full-
nægjandi húsnæði samkvæmt íslensk-
um lögum og alþjóðlegum samþykkt-
um sem ísland er aðili að. í þvi máli
hefur Alexander hlotið stuðning Al-
þjóðasamtaka leigjenda (IUT) og fleiri
alþjóðlegra samtaka sem láta sig
mannréttindi varða. -HKr.
Stal bíl í hér-
aðsdómi
Lögfræðingur lögregluembættisins í
Reykjavík varð fyrir því óláni á mið-
vikudag að bíllyklum var stolið úr
jakkavasa hans þar sem hann var við
störf í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann
áttaði sig ekki á hvarfi lyklanna fyrr en
í lok vinnudags en þá var jeppabifreið
hans, sem lagt var fyrir utan miðborg-
arstöð lögreglunnar, á bak og burt.
Þjófurinn virðist hafa komist inn í
fataherbergi þar sem lögmenn geyma
yfirhafnir sínar og klæðast viðeigandi
skikkjum. Að sögn lögreglunnar er lík-
legt að maöurinn hafi síðan gengið um
nágrennið og beitt fjarstýringu á lykla-
kippunni til að finna rétta bílinn. Bíll
lögmannsins, dökkblár Nissan Terra-
no-jeppi, var enn ófundinn í gær. -aþ
Blaðið í dag
DV-MYND; HARI
Strætisvagn fauk
Engin slys urðu á fólki þegar strætisvagn fauk út af Álftanesvegi og hafnaði á hliðinni síðdegis í gær. Þrjú börn voru
farþegar í bílnum og svo bílstjórinn. Fjölmennt lögreglu- og sjúkralið fór á staðinn en sem betur fer voru allir ómeiddir.
Ekki er ein báran stök á Álftanesi en þar fauk á miðvikudagskvöldiö annar strætisvagninn út af veginum.
Árvissir fylgifiskar aðventunnar:
Stress, pirringur og meiri drykkja
- segir sérfræðingur á slysadeild Landspítala
„Það sem hefur slegið mig á
kvöldin og nóttunni nú í desember
er þetta stress og pirringur og meiri
drykkja hjá fólki,“ sagði Hrafnkell
Óskarsson, sérfræðingur á slysa-
deild, þegar DV ræddi við hann í
gær.
Hrafnkell sagði þaö áberandi að á
aðventunni kæmi fleira fólk á
kvöldin og nóttunni á virkum dög-
um á slysadeild vegna slysa af völd-
um áfengis. Einnig væri mikil fjölg-
un á fólki sem komið væri með til
blóðprufu vegna gruns um ölvun-
arakstur. Hrafnkell kvaðst ekki
hafa tölur yfir þessi atriði en hann
gæti fullyrt að aukin neysla áfengis
og aukið stress fylgdu íslenskri
jólastemningu. I ár virtist ástandið
svipað og undanfarin ár.
Þá benti Hrafnkell á að undanfar-
ið hefðu orðið allt of margir árekstr-
ar. ökumenn keyrðu gjarnan eins
og þeir væri á ferð um hásumar á
auðu malbiki.
„Mjög margir hafa komið á slysa-
deild með meiösl eftir árekstra.
Megnið af því hefur verið minni
háttar, sem betur fer. En það hefur
verið mjög mikiö um aftanákeyrslu
með hálshnykk og öðrum meiðslum
sem hún veldur.“
Hvað varðaði hálkuslys sagði
Hrafnkell að þau hefðu ekki auk-
ist til muna í hlákunni. Að vísu
hefði verið nokkuð um aö fólk
hefði verið að slasa sig í snjónum
þar sem væri launhált undir. Það
hefði því verið talsvert af tilvik-
um þar sem fólk hefði komið með
úlnliðsbrot eða snúna ökkla síð-
ustu vikuna.
Hins vegar hefði ekkert verið
um snjóhengjuslys. Fólk virtist
vera sæmilega vel meðvitað um
að hreinsa af þökum hjá sér og
koma þannig í veg fyrir slík
óhöpp. -JSS
Jafnvígur á
jakkaföt og
vefjarhött
Erlent fréttaljós
m
Bjöm
endurheimtir
borgina
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson
Líður best
með konuna í
fanginu
Páll Ronslnkrans
Ríkisendur-
skoðandi af-
hjúpar leyndina
Innlent fréttaljós
Bæjarstjóri hættir
Guðjón Hjörleifs-
son, bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum,
hyggst láta af emb-
ætti bæjarstjóra í
vor eftir 12 ára setu
í þeim stól og taka
við sem umboðs-
maöur Sjóvár-Al-
mennra í Vestmannaeyjum. Guðjón
hefur setiö lengst allra í stól bæjar-
stjóra í Eyjum samfellt.
Námsmenn í vanda
Margir námsmenn erlendis eiga í
erfiðleikum vegna lækkunar ís-
lensku krónunnar. Hámarksupp-
hæð lána vegna náms erlendis er
fastsett i íslenskum krónum í regl-
um sjóðsins. í frétt frá SÍNE er
harmað að ekki skuli hafa komið til
leiðrétting á lánum til skólagjalda
vegna þessa.
Hafnarskólinn útskrifar
Páll Pétursson fé-
lagsmálaráðherra j
afhenti í gær fyrsta
útskriftarhópi
Hafnarskólans skír-
teini við athöfn hjp
Samskipum. Skól-
inn annast starfs-
nám fyrir hafnar-
verkafólk og starfsfólk vöruhúsa og
var stofnaður á síðasta ári að frurri-
kvæði Samskipa í samvinnu yið
verkalýðsfélög.
Launin lækka
Dagvinnulaun á þriðja ársfjórð-
ungi i ár lækka að meðaltali um
7,6% frá sama ársfjórðungi í fyrra.
Á sama tíma hækkar vísitala
neysluverðs um 8,0%. Kaupmáttur
dagvinnulauna rýrnar um 0,3% eft-
ir að hafa hækkað frá fyrsta árs-
fjóröungi í fyrra. Þetta kemur fraip
í tölum kjararannsóknarnefndar. j
Samherji kaupir
Stjórn Samherja hefur ákveðið að
nýta heimild frá síðasta aðalfundi
til kaupa á eigin bréfum. Samþykkt
var að kaupa bréf af hluthöfum á'
genginu 10,1 eða fyrir 669 milljónir
króna. Það gerir samanlagt 4% af
hlutabréfaeign almennra hluthafa á
áðurnefndu gengi.
Efling mótmælir
Efling-stéttarfélag mótmælir þvi
sjónarmiði Samtaka atvinnulífsins
að rétt sé aö svipta stéttarfélögin
umsagnarrétti um atvinnuleyfi út-
lendinga. Segir félagið störf stéttar-
félaganna í þessu efni mikilvæg. Efl-
ing telur þvert á móti að ástæða sé
nú til að herða eftirlit með atvinnu-
rekendum.
Leiftur í þrot
Sýslumaður hefur farið fram á
gjaldþrotaskipti á íþróttafélaginu
Leiftri í Ólafsfirði vegna vangold-
inna skatta. Skuldir félagsins nema
vel á fimmta tug milljóna. Málið fór
fyrir héraðsdóm í gær, en vaf
frestað þar sem nú er unnið að upp'
stokkun á fjármálum félagsins. Út'
varp Norðurland sagði frá.
Flugleiðir út
Tvö ný félög koma inn í úrvals'
vísitölu Verðbréfaþings um Delta oS
Sjóvá-Almennar tryggingar. Þa11
koma í stað Flugleiða og Húsasmiðí'
unnar. Þetta er í fyrsta skiptið síðaú
byrjað var að reikna út Úrvalsvís1'
töluna að Flugleiðir er ekki hluti111
henni. -sbs