Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Blaðsíða 55
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
DV
63 s
Islendingaþættir
80 ára___________________________
Guðlaug Guönadóttir,
Urðum, Svarfaðardal.
Guðrún Kristinsdóttir,
Sólheimum 27, Reykjavik.
75 ára___________________________
Bjarni Jónsson,
Holtsgötu 41, Reykjavík.
Nikólína Halldórsdóttir,
Þiljuvöllum 37, Neskaupstað.
Þuríður Sigurjónsdóttir,
Rofabæ 23, Reykjavík.
70 ára __________________________
Bjarni Guðmann Ágústsson,
Víkurbraut 48, Grindavík.
Guðrún Guönadóttir,
Eyrartúni, Hellu.
60 ára___________________________
Jórunn Guömundsdóttir,
Hlíðargötu 31, Sandgerði.
Kristrún G. Jónsdóttir,
Furugrund 20, Akranesi.
Sigurveig Jóhannsdóttir,
Hjallavegi 1, Reyöarfirði.
Vordís Valgarðsdóttir,
Ásabraut 29, Sandgerði.
50 ára___________________________
Marteinn Þór Kristjánsson,
Vesturtúni 17, Bessastaöahreppi.
Sigurður Sigurðsson,
Sléttuvegi 9, Reykjavtk.
Þórunn Helgadóttir,
Kleppsvegi 130, Reykjavík.
40 ára___________________________
Auður Kristjánsdóttir,
Hátúni 5, Reykjavík.
Guðrún Helga Kristjánsdóttir,
Blómsturvöllum 7, Grindavík.
Hlynur Jón Michelsen,
Klapparstíg 29, Reykjavík.
Jónína Holm,
Melbraut 7, Garði.
Margrét Ósk Haröardóttir,
Hólavegi 69, Siglufirði.
Ólafur Benediktsson,
Miðhópi, Hvammstanga.
Ragnhildur Ólafsdóttir,
Hlíöargötu 33, Sandgerði.
Sigríður Haraldsdóttir,
Arnargötu 4, Reykjavík.
Sigurður Örn Ólafsson,
Jöklatúni 24, Sauðárkróki.
Þórdís Pálsdóttir,
Rauðagerði 72, Reykjavik.
Sendu afmælisbarninu
kveðju í tilefni dagsins
Farðu á siminn.is
EÐA HRINGDU í SÍMA
1446
Sextugur
Sigurður
ríkisendurskoöandi
Sigurður Þórðarson ríkisendur-
skoðandi, Miðvangi 143, Hafnar-
firði, verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Sigurður fæddist í Hafnarfirði,
ólst þar upp og hefur átt þar heima
alla tíð. Hann lauk loftskeytaprófi
frá Loftskeytaskóla íslands 1959,
varð löggiltur endurskoðandi 1982.
Sigurður var loftskeytamaður á
b.v. Surprice 1959-61, var deildar-
stjóri hjá SKÝRR 1961-67, forstöðu-
maður tölvudeildar Loftleiða hf.
1967-73, deildarstjóri hjá Ríkisend-
urskoðun 1973-80, skrifstofustjóri í
fjármálaráðuneytinu 1980-87, vara-
ríkisendurskoðandi 1988-92 og hef-
ur verið ríkisendurskoðandi frá
1992.
Sigurður var í stjóm SKÝRR í
sextán ár og var stjórnarformaður
SKÝRR i tólf ár, var stjórnarformað-
ur Lyfjaverslunar ríkisins í fjögur
ár, stjórnarformaður hjúkrunar-
heimilisins Sólvangs í Hafnarfirði i
átta ár, sat í heilbrigðisráði Hafnar-
fjarðar í í átta ár og var formaður
þess í fjögur ár, var formaður útgerð-
arráðs BÚH í átta ár, sat í stjórn FUS
í Hafnarfirði í sjö ár og var formað-
ur félagsins í þrjú ár, sat í stjórn Rík-
isspítalanna í sex ár, í stjórn Marel
hf. í þrjú ár, í stjórn Félags löggiltra
Þórðarson
endurskoðenda í tvö ár, hefur setið i
ýmsum nefndum á vegum stjórn-
valda, sat í stjórn Endurskoðunar-
ráðs Viðreisnarsjóðs Evrópuráðsins
í Paris í þrjú ár og í stjórn Endur-
skoðunarráðs Evrópuráðsins I
Strassborg í sex ár og situr í Reikn-
ingsskilaráði frá 1992.
Fjölskylda
Eiginkona Sigurðar er Hinrika
Halldórsdóttir, f. 6.5. 1942, banka-
starfsmaður. Hún er dóttir Halldórs
Ásgeirssonar sjómanns og Rannveig-
ar Benediktsdóttur húsmóður.
Börn Sigurðar og Hinriku eru Sig-
ríður, f. 26.2. 1966, arkitekt, en mað-
ur hennar er Bjarni Þór Gunnlaugs-
son tæknifræðingur og eru dætur
þeirra Hinrika, f. 7.6. 1991, og Stein-
unn, f. 6.10. 1994; Rannveig, f. 9.6.
1967, viðskiptafræðingur, í sambúð
með Birni Arnari Magnússyni
tæknifræðingi og eru börn þeirra
Sigurður Darri, f. 18.6. 1996, og Sal-
vör Svanhvít, f. 4.6. 1998; Birgir, f.
31.12. 1973, bifvélavirki, í sambúð
með Svövu Dröfn Bragadóttur nema
og er dóttir þeirra Sunna Dís, f. 26.8.
2001.
Systkini Sigurðar eru Kristín, f.
24.6. 1938, sjúkraliði, en maður
hennar er Sverrir Sighvatsson og
eiga þau tvö börn auk þess sem
Kristín á son frá
því áður; Guðlaug
Gréta, f. 4.1. 1945,
húsmóðir, en mað-
ur hennar er Er-
ling Hermannsson
og eiga þau þrjú
börn.
Foreldrar Sig-
urðar voru Þórður
Bjarnason, f. 11.9.
1897, d. 3.11. 1980,
bifreiðarstjóri í
Hafnarfirði, og Sig-
ríður Ketilsdóttir,
f. 20.4. 1911, d. 18.2.
1998, húsmóðir.
Ætt
Þórður var son-
ur Bjarna, b. í
Móakoti á Vatns-
leysuströnd, bróður Gísla í Minna-
Knarrarnesi, fóður Sigurðar loft-
skeytamanns. Annar bróðir Bjarna
var Sigurður, faðir Þorgríms togara-
skipstjóra, föður Þorgrims stór-
kaupmanns. Bjarni var sonur Sig-
urðar Gíslasonar.
Móðir Þórðar var Kristin Jóns-
dóttir.
Sigriður var dóttir Ketils sjó-
manns, bróður Sigurðar Greipsson-
ar, skólastjóra íþróttaskólans í
Haukadal. Ketill var sonur Greips,
b. í Haukadal, Sigurðssonar, hrepp-
stjóra þar, Pálssonar. Móðir Ketils
var Katrín Guðmundsdóttir, b. á
Stóra-Fljóti í Biskupstungum, Jóns-
sonar.
Móðir Sigríðar var Þórunn Jóns-
dóttir frá Laugum í Biskupstungum.
Sigurður tekur á móti ættingum,,
vinum og vinnufélögum í Húsi frí-
múrara að Ljósatröð 2, Hafnarfirði,
laugard. 8.12. kl. 18.30.
Attræður
Matthías Björnsson
fyrrv. kennari og skólastjóri
Matthías Björnsson, loftskeyta-
maður, vélstjóri og kennari, Duggu-
fjöru 12, Akureyri, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Matthías fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann lauk prófi frá
Gagnfræðaskóla Akureyrar 1942, frá
Loftskeytaskóla íslands 1943, lauk
vélstjóranámskeiði á Akureyri 1952,
kennaraprófi frá handavinnudeild
KÍ 1959, og stundaði síðan frekara
réttindanám við KHÍ.
Matthías sigldi á stríðsárunum,
fyrst á íslenskum togurum en síðan
bandarískum kaupskipum til 1946.
Hann lenti í miklum loftárásum
Þjóðverja á Hull og Grimsby og var
oft hætt kominn. Hann var síðan
loftskeytamaður til sjós og í landi,
stundaði kennslu í Reykjavik, á
Húsavík, við Laugagerðisskóla á
Snæfellsnesi og var síðast skóla-
stjóri við Grunnskóla Mýrahrepps í
Austur-Skaftafellssýslu.
Matthías og kona hans keyptu
jörðina Gislabæ á Hellnum í Breiðu-
vikurhreppi og stofnuðu þar fyrstu
ferðaþjónustu á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi. Þar bjuggu þau í fjórtán ár
og kenndu á vetrum.
Matthías sat í hreppsnefnd
Breiðuvíkurhrepps í sjö ár og var
varaoddviti Mýrahrepps í tvö ár.
Þau hjónin bjuggu síðan í Varma-
hlíð í fjögur ár en fluttu þá til Akur-
eyrar þar sem þau hafa átt heima
síðan.
Fjölskylda
Matthías kvæntist 6.5. 1951 Fjólu
Guðjónsdóttur, f. 3.5. 1933, húsmóð-
ur og kennara. Hún er dóttir Guð-
jóns Guðjónssonar, trésmíðameist-
ara í Völundi í Reykjavík, og Guð-
laugar Brynjólfsdóttur húsmóður.
Böm Matthíasar og Fjólu eru
Steingrímur, f. 27.8. 1951, yfirvél-
stjóri í Kópavogi, kvæntur Maríu
Sallýju Jónsdóttur, starfsmanni við
Hrafnistu, og eiga þau þrjú börn;
Karl Valgarður, f. 12.8.1952, prestur
og alþm. i Grundarfirði, kvæntur
Sesselju Guðmundsdóttur leikskóla-
kennara og eiga þau þrjú börn; Odd-
ný Soffía, f. 6.7. 1954, hjúkrunar-
fræðingur á Sauðárkróki, gift Stef-
áni Evertssyni tölvumanni og eiga
þau þrjú börn; Einar Pálmi, f. 27.12.
1955, húsasmíðameistari í London,
kvæntur Önnu Maríu Jónsdóttur
lækni og eiga þau eitt barn; Guðjón,
f. 26.9.1961, d. af slysförum 2.1.1969;
Inga Nína, f. 15.7. 1968, fatahönnuð-
ur og sölumaður í Reykjavík, gift
Leifi Leifssyni vipskiptafræðingi og
eiga þau tvo syni; Stefán Heimir, f.
15.7. 1968, húsasmiður í Reykjavik,
og á hann eitt barn en kona hans er
Selma Pálsdóttir ferðamálafulltrúi.
Matthías og Fjóla eiga tvö barna-
barnabörn.
Systkini Matthíasar: Ásta, f. 4.9.
1918, hjúkrunarfræðingur í Reykja-
vík; Þóra, f. 17.10. 1919, dó í frum-
bernsku; Gerður, f. 22.10.1920, d. 4.5.
1999, húsmóðir í Reykjavík; Harpa
María, f. 29.11. 1922, d. 21.10. 1987,
húsmóðir; Grímur Mikael, f. 7.3.
1924, tannlæknir í Kópavogi; Jak-
obína Elísabet, f. 15.9. 1927, húsmóð-
ir í Hafnarfirði; Karl Hans, f. 16.7.
1929, d. 28.10. 1991, kennari.
Foreldrar Matthíasar voru Björn
Grímsson, f. 15.5. 1891, d. 26.3. 1986,
verslunarmaður og einn stofnenda
Pöntunarfélags verkalýðsins og
framkvæmdastjóri þess, og Vilborg
Sofíla Lilliendahl, f. 15.1. 1888, d.
13.9. 1974, húsmóðir.
Ætt
Björn var bróðir Gríms, skóla-
stjóra í Ólafsfirði. Björn var sonur
Gríms, b. á Helgustöðum í Fljótum
og á Möðruvöllum í Héðinsfirði,
Björnssonar, b. á Stórholti í Fljót-
um, Þorleifssonar. Móðir Gríms var
Sigurlaug Sofíia Grímsdóttir, pr. á
Barði, Grímssonar, græðara á Espi- *"
hóli, Magnússonar. Móðir Björns
var Ásta Gísladóttir.
Soffía Lilliendahl var dóttir Carls
Péturs Lilliendahls, hafnsögumanns
á Vopnafirði, föðurbróður Karls ís-
felds. Carl Pétur var sonur Jakobs
Christian Lorentzson Lilliendahl,
verslunarstjóra á Akureyri, og Odd-
nýjar Þorvaldsdóttur, b. á Stóra-
Eyrarlandi, Jónssonar, afa Jóhanns
Lárusar á Lýtingsstöðum, afa
Brodda Jóhannessonar skólastjóra.
Móðir Soffíu var Þóra Jakobína
Lilliendahl Beck, systir Hans, föður
Richards Beck, prófessors í Grand
Forks í Norður-Dakota. Þóra var
dóttir Niels Richards Beck, beykis
og verslunarmanns á Eskifirði, son-
ar Christens Nielsens Beck,
assistants á Eskifirði, og Elísabetar,
systur Maríu, langömmu Eiríks,
föður Þórólfs Beck knattspyrnu-
kappa. María var einnig langamma
dr. Jakobs Jónssonar, sóknarprests
i Hallgrímskirkju, og Eysteins fjár-
málaráðherra. Bróðir Elísabetar
var Þórarinn, afi Finns listmálara
og Ríkarðs myndskera. Elisabet var
dóttir Richards Long, ættfóður
Longættar. Móðir Þóru Jakobínu
var Soffía Þorvaldsdóttir, systir
Oddnýjar.
Sextugur
Eyjólfur Garðar Svavarsson
starfsmaður Loðnuvinnslunnar hf., Fáskrúðsfirði
Eyjólfur Garðar Svavarsson,
starfsmaður Loðnuvinnslunnar hf.
á Fáskrúðsfirði, Skólavegi 82, Fá-
skrúðsfirði, verður sextugur á
mánudaginn.
Starfsferill
Garðar fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann stundaði um
skeið nám í framreiðslu.
Garðar fór ungur til sjós á hand-
færabát frá Reykjavík, 1954, var á
varðskipinu Þór um tíma, síðan á
Gullfossi og Dettifossi og á ýmsum
bátum. Hann stundaði bifreiðaakst-
ur um skeið, fyrst hjá Útgerðarfé-
laginu Barðanum en ók síðan stór-
um flutningabílum á vegum Þór-
isóss. Þá starfrækti hann Fiskbúð-
ina við Dalbraut um tíma.
Garðar flutti til Fáskrúðsfjarðar
1978, var matreiðslumaður hjá
Kaupfélagi Fáskrúðsfirðinga og var
á togurum félagsins til 1996. Þá hóf
hann störf hjá Loðnuvinnslunni á
Fáskrúðsfirði og hefur starfað þar
síðan.
Fjölskylda
Garðar kvæntist 25.11. 1967 Höllu
Dröfn Júlíusdóttur, f. 26.3.1946, fóta-
aðgerðafræðingi. Hún er dóttir Júlí-
usar Þórlindssonar vélgæslumanns,
sem er látinn, og Margrétar Jakobs-
dóttur húsmóður.
Börn Garðars og Höllu Drafnar
eru Svavar Júlíus Garðarsson, f. 8.5.
1967, kaupmaður en sambýliskona
hans er Kristín Soffía Hjaltalín;
Þormar Þór Garðarsson, f. 16.8.
1970, rafeindavirki, en sambýlis-
kona hans er Auðbjörg Kristín
Guðnadóttir.
Alsystkini Garðars eru Hreiðar
Svavarsson, f. 29.12. 1943; Edda
Svavarsdóttir, f. 1.8. 1945; Smári
Svavarsson, f. 29.5. 1947, nú látinn;
Hulda Svavarsdóttir, f. 10.7.1950, nú
látin.
Hálfsystur Garðars, samfeðra,
eru Sunna Hildur Svavarsdóttir, f.
15.12. 1957, nú látin; Helga Nína
Svavarsdóttir, f. 12.9. 1959; Svava
Björg Svavarsdóttir, f. 18.12. 1965.
Foreldrar Garðars voru Svavar _
Kristinn Kristjánsson, f. 29.7. 1913, '
d. 16.10. 1978, veitingamaður i
Reykjavík, og Ingileif Friðleifsdótt-
ir, f. 22.3.1921, d. 31.5. 2000, matráðs-
kona.
Garðar og Halla taka á móti gest-
um á Hótel Bjargi, Fáskrúðsfirði,
laugard. 8.12. milli kl. 17.00 og 20.00.