Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Blaðsíða 20
20 LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001 Helgarblað X> V Sígildur Scheving - verk Gunnlaugs Schevings standa alltaf fyrir sínu Rykti íslenskra listamanna hefur tekiö breytingum í timans rás. Til dæmis er vegur Ásgríms Jónssonar öllu minni í dag en fyrir hálfri öld, álit manna á Jóni Stefánssyni rokk- ar til eftir því hvernig verkum hans vegnar á uppboðsmarkaði og senni- lega hefur áhugi á Þorvaldi Skúla- syni minnkað upp á síðkastið. Um þetta gilda engar reglur, og er nær- tækast að vísa til framboðs og tíðar- anda. Hins vegar hefur aldrei orðið breyting á rykti Gunnlaugs Schev- ings, og ef eitthvað er hefur það vax- ið frá því hann lést fyrir aldur fram árið 1972. Fyrir því eru sjálfsagt margar ástæður. Um það ræður sennilega mestu staðfastur trúnað- ur Schevings við veruleika hlut- anna, og þá helst þann veruleika sem íslensk alþýða hrærðist í um aldir alda og fram yfir síðara stríð. Og ekki einasta daglega stritvinnu alþýðunnar til sjós og lands, heldur einnig vitundarlíf hennar: drauma, huldufólkstrú og löngun eftir sælu- reit á jörð. Þennan veruleika túlk- aði Scheving án upphrópana og rómantískrar óskhyggju, í myndum sem eru hvorttveggja í senn, mikil- fenglegar í formi og innilegar í lit. Að þessu leyti sem öðru hefur hann algjöra sérstöðu í íslenskri mynd- list. Til eru góðar heimildir um Schev- ing; viðtalsbók Matthíasar Johann- essen, endurminningar Grete Linck, konu Schevings, og aðskiljanleg við- töl í blöðum og timaritum. Þær draga upp mynd af bráðgreindum og einrænum manni, skemmtileg- um í fárra manna hóp, og fremur viðburðasnauðu lífshlaupi hans. Viðamesta rannsóknarverkefnið Hins vegar er ýmsum spurning- um enn ósvarað varðandi mjög svo viðburðarika myndlist Schevings. Á fjórða áratugnum, þegar hann málar tjáningarríkar innimyndir sínar af alþýðufólki, kallast hann klárlega á við nokkra norska og danska málara; gaman væri aö vita meira um það áhrifasamband. Hvert var svo framlag Schevings til íslenska „þorpsraunsæisins" svonefnda á þessum áratug, var hann leiðandi í þróun þess eða áttu aðrir listamenn stærri hlut að máli? Hver voru síðan áhrif Þor- valds Skúlasonar á Scheving á stríðsárunum? Samsýning þeirra áriö 1943 er af ýmsum talin til tímamótasýninga fyrir móderníska nýsköpun. Loks er tímabært að varpa nýju ljósi á sjó- mannamyndir Schevings - teljast þær tU „hetjumynda" eður ei? - sjálfur hafnaði listamaðurinn þeirri túlkun. Og þar sem vitaö er að Scheving byggði nær allar sjó- mannamyndir sínar á blaðaljós- myndum, og töluvert er enn til af þeim myndum, ætti það að vera meðal forgangsverkefna listfræö- inga að gaumgæfa þessi tengsl. Þegar spurðist að Listasafn ís- lands ætlaði að efna tU íjórðu (!) stórsýningar sinnar á verkum Schevings, hvarflaði óneitanlega að þeim sem þetta skrifar að senni- lega væri brýnna að gera skil öðr- um listamönnum, hverra listferill væri enn sem ónumið land: Júliönu Sveinsdóttur, Snorra Arin- bjarnar, Kristni Péturssyni o.fl. Blásið var tU Schevings-sýningar með töluverðum fyrirgangi, upp- lýst var að hún væri mesta rann- sóknarverkefni sem safnið hefði ráðist i, og á henni yrðu verk sem Jónsmessudraumur Netið. I framhaldinu eru ekki dregnar af þessum myndfjölda nein- ar þær ályktanir sem auka við það sem við þegar vissum um lista- manninn, t.d. þau álitamál sem drepið er á hér að ofan. álfkýrinnar, 1964. upplýsingar um listamanninn og setja þær i samhengi. Á hinn bóginn er ekki að sjá að honum hafi verið vísað á ýmsar markverðar - og óprentaðar - heim- ildir um Scheving, dagbækur hans Sjómenn á og bréf í sjálfu Listasafni íslands (þ. á m. bréf þar sem listamaðurinn lætur í ljós hrifningu sína á stór- myndamálaranum Diego Rivera -) og bréf til Ragnars í Smára, Ragnars Ásgeirssonar og Sigvalda Kaldalóns báti, 1947. í Háskólabókasafninu. Verk Gunnlaugs Schevings standa alltaf fyrir sínu. Því miður er tæplega hægt að segja það sama um Listasafn íslands eins og stend- ur. -Al aldrei hefðu komiö fyrir sjónir landsmanna. Gott og vel. Trúarleg upplifun Það er best að taka það strax fram að á sýningu Listasafns íslands (sem lýkur nú um helgina) er glæsi- legt úrval mynda sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þótt stóri salur safnsins sé i raun allt of litill fyrir flekana sem þar er að finna, gripur mann siík andakt í návist þeirra að helst má jafna við trúar- lega upplifun. Hins vegar er mér ekki örgrannt um að gengisfall hafl orðið á hug- takinu „rannsóknir" i seinni tíð, a.m.k. eru myndlistarmenn gjarnir á að auglýsa ýmsar lauslegar sam- antektir sem árangur af einhvers konar „rannsóknarvinnu". í þessu tilfelli virðist rannsóknarvinna Listasafns íslands aðallega felast í því að demba miklum fjölda ljós- mynda af verkum Schevings inn á Af „óséðuin" verkum er það helst að segja að einungis tvö slík virðast hafa ratað inn á sýninguna. Sex út- lend söfn eiga myndir eftir Schev- ing, aðeins ein mynd úr Statens Museum hefur verið fengin til láns. Ekki virðast heldur hafa verið bom- ar víur í son Gretu Linck sem situr á mörgum ósýndum myndum eftir hann úti í Kaupmannahöfn. Ókannaðar heimildir Og eins og til að tryggja að ekkert nýtt komi nú „út úr“ þessari sýn- ingu, er heimspekingur fenginn - sennilega með stuttum fyrirvara - til að rita megintexta (allt of litillar) bókarinnar sem fylgir sýningunni. Gunnar J. Árnason hefur auðvitað löngu sannað sig sem rökvís og skel- eggur gagnrýnandi, en fyrstur manna mundi hann sennilega sverja af sér sérþekkingu á ís- lenskri myndlistarsögu. Þó ferst honum vel að draga saman helstu Gömul kona, 1934. Bassabáturinn, 1929-1930.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.