Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Blaðsíða 4
Fréttir
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
r>v
Innflutningur bifreiða dregst saman um 45% á milli ára:
Tekjutapi ríkisins mætt
með hækkun gjalda
„Ef viö lítum á tölur um tekjur
ríkisins af bifreiðakaupum þá sjá-
um viö glögglega áhrif samdráttar-
ins í innflutningi
á nýjum bifreiö-
um milli áranna
1999 og 2001. Við
sjáum líka að
menn hafa verið
aö stórauka
notkunarskatt-
ana. Þrátt fyrir
allan þann mikla
samdrátt á inn-
flutningi bifreiða
sem talinn er þýða tekjurýrnum
fyrir ríkið upp á tæpa þrjá millj-
aröa þá tapar ríkið ekki heldur
bætir sér það upp með tekjum á
öðrum sviðum sem tengjast m.a.
notkun bifreiöanna," segir Runólf-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Félags íslenskra bifreiðaeigenda.
í „bandormi" ríkisstjórnarinn-
ar, sem ræddur var á Alþingi í
gær, er gert ráð fyrir 10% hækkun
bifreiðagjalda sem þýðir, nái til-
lagan fram að ganga, að tekjur rík-
isins af bifreiðagjöldum á árinu
verða 2.915 milljarðar króna og
hækka um 404 milljónir milli ára.
Eins og fram kemur í grafi námu
þessi gjöld 970 milljónum króna
árið 1990 og hafa hækkað nánast
reglulega síðan.
Tekjur ríkisins af bifreiðum
hafa hækkað geysilega á einum
áratug. Árið 1990 voru þær 13,2
milljarðar, áriö 1995 18,6 milljarð-
ar og hæstar voru þær árið 2000,
samtals 30 milljarðar (samkvæmt
áætlun). Á sama tíu ára tímabili
hækkuöu tekjur af notkun bifreiða
úr 8,5 milljörðum árið 1990 í 11,2
milljarða árið 2000.
„Álögurnar hafa veriö að aukast
jafnt og þétt og á 10 ára tímabili
hækkuðu tekjur hins opinbera um
17 milljarða á ársgrundvelli sem
er auðvitað langt umfram verð-
lagsþróun. Allan þennan áratug
hafa setið í forsæti menn sem hafa
haft að leiðarljósi „báknið burt“ og
„drögum úr sköttum" þannig að
þetta virkar undarlega. En því
verður ekki á móti mælt að það
hefur verið í gangi sú viðleitni að
klípa sifellt meira og meira af al-
menningi vegna bifreiða. Það vek-
ur auðvitað athygli og m.a. vegna
þess að við höfum enga valkosti á
móti. Við vitum það að bíllinn er
nauðsynlegt tæki, hann er alls
enginn lúxus, allra síst í dreifðu
byggðunum þar sem það er undir
hverjum og einum að koma sér á
milli staða vegna þess að það er
ekki boðið upp á neina aðra mögu-
leika í samgöngum," segir Runólf-
ur.
Hann segir greinilegt að yfir-
völd líti á bílinn sem „auðveldan
skattstofn" vegna þess að hann sé
tæki sem fólk verði aö nota. „Það
er ljóst að þegar fólk þarf að skera
niður þá kemur það fljótlega fram
í samdrætti á endurnýjun og kaup-
um á bílum. Notkun bíla er hins
vegar með því ailra síðasta sem
fólk sker niður og er meira að
segja byrjað að skera niður matar-
útgjöld áður en að því kemur.
Þetta er einfaldlega vegna þess
hversu nauðsynlegur bíllinn er,“
segir Runólfur Ólafsson.
-gk
18.000 r
16.000
14.000 -
12.000
Tekjur ríkissjóðs af notkun bifreiöa
18.762
17.891
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
MiQjarðar
16210
8.509
9.565 ^946
“105*8
1L567
12261
13.400
14273“M-733
1
'<«
'S
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001
Tekjur ríkissjóðs af bifreiðakaupum
10.820
--- g253
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
Þús.
ndija.
7.727
5.557
6295
3270-
4.634 |
4.057 3.980 3 590
Mm
5.523
2.650
JJ
1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001
Efri-byggðaframboð var undirbúið fyrir áratug en fór ekki af stað:
Úthverfaframboð
á sér forvera
- borgarstjórastarfið ekki kvenmannsverk, segir Ásgeir Hannes
Úthverfaframboð
Einstaklingar í íbúasamtökum Grafarvogs standa nú að und/rbúningi hverfaframboðs.
K j ararannsókn:
Kaupmáttur dag-
vinnu rýrnaði um
0,3 prósent
Dagvinnulaun fólks á almenn-
um vinnumarkaöi hafa hækkað
að meðaltali um 7,6% frá 3. árs-
fjóröungi í fyrra fram til 3. árs-
fjórðungs í ár. Þetta kemur fram í
nýjum niðurstöðum launakönnun-
ar kjararannsóknarnefndar. Á
sama tíma hækkaði vísitala
neysluverðs um 8,0%. Samkvæmt
því rýrnaði kaupmáttur dag-
vinnulauna að meðaltali um 0,3%
eftir að hafa hækkað óslitið frá
niðurstöðum 1. ársíjórðungs 2000.
Launahækkun flestra starfsstétta
var á bilinu 5,8% til 8,8%. Laun
kvenna hækkuðu um 7,9% en
karla um 7,3%. Laun á höfuðborg-
arsvæði hækkuðu um 8,7% en
laun utan höfuðborgarsvæðis um
6,1%.
Nýir kjarasamningar tóku gildi
fyrri hluta ársins 2000 fyrir flesta
launamenn á almennum vinnu-
markaði en nokkrir kjarasamn-
ingar voru gerðir síðar á árinu.
Kjarasamningar kváðu almennt á
um 3% áfangahækkun 1. janúar
2001 auk sérstakrar hækkunar á
launatöxtum. Á timabilinu frá 3.
ársfjórðungi 2000 til 3. ársfjórð-
ungs 2001 fengu því flestir launa-
menn á almennum vinnumarkaði
eina hækkun samkvæmt kjara-
samningum.
Launabreytingar eru mældar
fyrir tæplega 6.500 einstaklinga
sem voru í úrtaki nefndarinnar
bæði á 3. ársfjórðungi 2000 og 3.
ársfjóröungi 2001.
Úthverfaframboöið sem nú er í und-
irbúningi að frumkvæði einstaklinga
í íbúasamtökum Grafarvogs er ekki
fyrsta framboðið af þessu tagi sem
rætt er um i Reykjavík. Á árunum í
kringum 1990 var til umræðu að ýta af
stað sérstöku efri-
byggðaframboði,
sem svipar um
margt til þess út-
hverfaframboðs
sem nú er á dag-
skrá. Aðalhvata-
maðurinn að efri-
byggpaframboðinu
var Ásgeir Hannes
Eiríksson og sagð-
ist hann í samtali
við DV í gær ekki sjá betur en menn
væru nánast að taka kópíu af því sem
hann og fleiri voru að gera fyrir tíu
árum. Ásgeir Hannes sagði að á sín-
um tíma hafi menn verið komnir svo
langt að ákveða nafn á framboðið og
listabókstaf, sem hafi verið Reykjavík-
urlistinn og listabókstafurinn átti að
vera R. „Aðrir tóku svo bæði nafnið
og stafinn sem við höfðum verið að
vinna með,“ segir Ásgeir. Hann segir
það ekki skrýtið að svona framboð
komi fram, því full þörf sé á slíku og
kveðst aðspurður reiðubúinn til að
taka þátt í kosningastarfinu, enda
kunni hann sitthvað fyrir sér í þeirri
vinnu.
„Reyndar held ég að stór hluti borg-
arbúa myndi kjósa hvað sem er í dag,
og ég tala ekki um ef það væri karl-
maður í framboði. Það eitt og sér tel
ég að gæti skilað mörg þúsund at-
kvæðum," segir Ásgeir. Hann segir að
sem betur fer sé ákveðin karlremba
enn til í þjóðfélaginu og fjöldi manns
líti einfaldlega ekki á borgarstjóra-
starfiö sem kvenmannsverk.
Um hugmyndafræði hverfafram-
boðs segir Ásgeir aðalatriðið að flokk-
arnir geti ekki lengur skammtað fólki
frambjóðendur heldur fái frambjóð-
endur að spretta upp sjálfir. „Síðan er
það náttúrlega sú sýn að fólkið geti
tekið á sínum eigin málum eftir sín-
um þörfum, en ekki eftir þörfum
flokks eða borgarstjórnarlista sem er
með einhverja gróna hagsmuni hér og
þar,“ segir Ásgeir Hannes Ehíksson
sem var hvatamaður að efri-byggða-
lista fyrir áratug.
-BG
Asgeir Hannes
Eiríksson.
Sólarga
■ -^LjíitlLW
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 15.36 14.56
Sólarupprás á morgun 11.05 11.17
Síðdegisflóð 12.31 17.04
Árdegisflóð á morgun 01.19 04.52
Suðlæg átl og úrkomulítift
Suölæg átt, 8 til 15 m/s og úrkomu-
lítið í kvöld. Hiti verður á bilinu 0 til 6
stig.
Veðrið á
Rignir sunnanlands
Á sunnudag veröur suölæg átt, 8 til
13 m/s og rigning sunnan- og vest-
anlands. Hiti verður á bilinu 5 til 10
stig.
1 Veðríð
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
^ ^
Hiti 5° Hiti 5° Hiti 5°
til 10° tii 8° til 10°
Vindur: Vindur: Vindur:
8-13m/» 5-10 5-10™/*
4 4
Su&læg átt,
8 til 13 m/s
og rigning
sunnan- og
vestanlands.
Su&vestan
átt og stöku
skúrir, elnk-
um sunnan-
og vestantll.
Kölnar.
Sunnanátt,
áfram vætu-
samt og
hlýtt í veftrl.
«7 1 í
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
f ■■
AKUREYRI skýjaö 2
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK rigning 3
EGILSSTAÐIR rigning 7
KIRKJUBÆJARKL. skúrir 3
KEFLAVÍK rigning 3
RAUFARHÖFN skýjað 3
REYKJAVÍK rigning 4
STÓRHÖFÐI rigning 6
BERGEN skýjað -3
HELSINKI alskýjaö 4
KAUPMANNAHÖFN þokuruöningur 2
ÓSLÓ skýjaö -3
STOKKHÓLMUR þokumóöa 3
ÞÓRSHÖFN rigning 11
ÞRÁNDHEIMUR skýjaö -3
ALGARVE þokumóöa 16
AMSTERDAM léttskýjað 8
BARCELONA léttskýjaö 15
BERLÍN súld 5
CHICAGO léttskýjaö 2
DUBLIN skýjaö 14
HALIFAX léttskýjaö 7
FRANKFURT léttskýjað 5
HAMBORG léttskýjað 4
JAN MAYEN skýjaö 2
LONDON skýjaö 10
LÚXEMBORG léttskýjaö 5
MALLORCA skýjaö 17
MONTREAL skýjaö 13
NARSSARSSUAQ heiöskírt -19
NEWYORK alskýjaö 12
ORLANDO léttskýjaö 18
PARÍS léttskýjaö 8
VÍN skúrir 8
WASHINGTON alskýjaö 12
WINNIPEG alskýjaö 8