Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.2001, Page 44
~*52
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 2001
Helgarblað
DV
Det smager godt
Á Suðurlandsbraut 4a er eitt besta
kaffihús bæjarins, nokkuð úr alfaraleið.
Það heitir Café Konditori Copenhagen.
Þama er eiginlega tvískipt starfsemi.
Annars vegar er þetta bakari eða öllu
-> heldur konditori þar sem fást einhverj-
ar allra bestu kökur í bænum og senni-
lega á öllu landinu. Allt er með dönsk-
um blæ og eplakökurnar og vínar-
brauðin þeirra geta komið fullorðnum
karlmanni til að klökkna. Það er alltaf
biðröð i bakariinu sem segir sína sögu.
í helmingi rýmisins geta gestir síðan
sest niður og gætt sér á kræsingum
staðarins i fallegu umhverfi undir lista-
verkum á veggjum og kertaljósum.
Bombugóður espressóbolli kostaði 220
krónur og sendi mig hoppandi út í dag-
inn. Úrvalið af meðlæti er allt frá hollu
brauðmeti yfir í syndsamlegar kaloriu-
bombur. Det smager sgu fandeme godt
-ppá
Benz-kaffi
4 Stuttgart
Kaffihúsarýnir DV var á ferð um
Þýskaland fyrir skömmu. Því miður
gafst ekki tími til að líta inn á nema
eitt kaffihús. Kaffihúsið var í Mercedes
Benz-safninu í Stuttgart. Stemningin á
kaffihúsinu var skemmtileg og innrétt-
ingamar rándýrar - Benzbílar frá upp-
hafi og þar af einn Popemobile. Það
vakt einnig athygli mína að flestir við-
skiptavinimir voru karlmenn sem er
líklega eðlilegt þar sem þetta er bíla-
safn.
Þegar ég pantaði tvöfaldan espressó
og jarðarberjaköku gerði ég mér litlar
vonir og reiknaði með miðlungsgóðu
kaffi. Mér til mikillar ánægju var kaff-
ið mjög gott, ilmsterkt og bragðgott.
Kakan olli mér aftur á móti vonbrigð-
‘um, hún var of hlaupkend og minnti
frekar á berjabúðing en köku.
Mér var tjáð að verðið á kaffinu
væri í hærri kantinum, eins og gengur
og gerist á söfnum. Þrátt fyrir það var
kaffið ódýrara en við eigum aö venjast
hér á landi, espressóbollinn kostaði 175
krónur og kaka 170 krónur. -Kip
Kaffi Fjörður
Hafnarfjörður er fallegur bær og
sjarmerandi. Það sama má einnig segja
um marga Hafnfirðinga. Hins vegar er
ekki hægt með góðri samvisku að nota
sömu orð um Kaffi Fjörð sem er á
annarri hæð í verslunarkjama sem
einfaldlega nefnist Fjörður.
Staðsetningin býður upp á margt
gott, til dæmis er útsýnið yfir höfnina
mjög skemmtilegt. Innréttingar staðar-
ins em hins vegar ekki fagrar auk þess
sem lítill rafmagnsofn var óþarflega há-
''•vær og keppti við Bing Crosby um at-
hyglina.
Um þessar mundir em jól á Kaffi
Firði og einhverjar skreytingar minna
á það, til dæmis skreytt jólatré í bland
við pottaplöntur. Ég fékk mér dísæta
jarðarberjatertu (490 kr.) sem smakkað-
ist ágætlega og cappuccino (220 kr.) var
pinnig ágætt. En kaffihús er ekki bara
■iaffi... -sm
'Wi*. ,Q.
Matarást
Elvis Presley
Elvis Presley hafði mikil áhrif á rokksöguna
og aðdáendur hans supu hveljur í hvert sinn er
mjaðmir hans hnikuðust til. Og eins og títt er
hafði Elvis ekki aðeins tónlistarleg áhrif á
áhorfendur sína heldur einnig á lífsstíl þeirra.
Elvis Presley er í mörgu tilliti Ameríka holdi
klædd. Gildi hans voru amerisk.
Elvis ólst upp í Suðurríkjunum og mótaði það
mjög matarsmekk hans þótt hann hafi einnig
verið mjög hrifinn af asiskum mat og þá sér-
staklega ef svinakjöt var í réttunum. Hann fór
oft á austurlenskan stað í Memphis og einnig
var austurlenskur
matur oft á borð-
um við kvik-
myndatökur á
Hawaii. Að öðru
leyti var Elvis ekki
gefinn fyrir fram-
andi matargerðarlist.
Matur móður hans, sem
einkenndist af svínakjöti,
beikoni, grilluðum kjúkling-
um og mikilli heimatilbúinni
sósu, stóð hjarta hans næst. Elvis var
illa við að matur væri ekki eldaður
til fulls; hann vildi steikina
„well done“.
Á sjötta áratugnum
varð Elvis mjög hrif-
inn af einum rétti
sem margir hafa
síðan tengt beint
við hann.
i&gHnetusmjörs-
Pog bananasam-
'O lokan hans er
iikannski ekki
_ jp'uppflnning hans
en hún varð að
fSSf einkennisfæði
hans. Um þá sam-
loku má lesa hér að
neðan.
matur@dv.is
Uppskriftir að eftirlætisréttum Elvis Presley:
búið til stífan marengs. Blandið saman
við deigið og heilið yflr ananasinn í
mótinu.
Bakið í 35 mínútur eða þar til kakan
flaðrar við snertingu
eins og svampur.
Látið kökuna
kólna í tíu
mínútur
og skellið
henni þá
á flnan
disk.
Elvis Presley var og er konungur
rokksins. Tónlist hans er órjúfanlegur
hluti vestrænnar dægurmenningar;
það er í raun fátt amerískara en Elvis
heitinn. Allt sem Elvis kom nálægt er í
augum hörðustu aðdáenda hans helgi-
dómur. Ótal bækur hafa verið skrifað-
ar um hann og lífsstíl hans. Ein þeirra
bóka sem ritaðar hafa verið um kóng-
inn er „Are You Hungry Tonight?" eft-
ir Brendu Arlene Butler en í henni eru
birtar uppskriftir að eftirlætisréttum
Elvis Presley. I bókinni er meðal ann-
ars að flnna uppskriftina og nákvæmar
leiðbeiningar við gerð brúðartertunnar
sem var á borðum í Las Vegas þann
fyrsta maí 1967 þegar Elvis gekk að eiga
Priscillu Beaulieu. Eins og gefur að
skilja er sú uppskrift nokkrar blaðsíður
og verður ekki birt hér. Hins vegar birt-
\im við hér uppskriftir að nokkrum af
eftirlætisréttum Elvis eins og ostborg-
ara, kjúklingi a la Kóngurinn og hinni
frægu hnetusmjörssamloku.
Steikt hnetusmjörs-
og bananasamloka
Elvis gerði þessa samloku fræga og
hún varð fljótlega hluti af amerískri
matargerð. Hann kallaði hana yfirleitt
„peanut butter and ‘nanner sandwich"
og ást hans á réttinum gerði hann að
einkennismat konungsins. Skipti engu
máli hvenær sólarhringsins hann varð
svangur, hann var alltaf til í þessa sam-
loku.
1 lítill þroskaður banani
2 sneiðar franskbrauð
3 msk hnetusmjör
2 msk smjör
Setjið bananann í litla skál og merj-
ið hann með skeið. Setjið brauðið í
brauðrist. Smyrjið hnetusmjörinu á
aðra sneiðina og banananum á hina.
Leggið sneiðamar saman og setjið á
pönnu. Steikið samlokuna í smjörinu
þar til hvor hlið verður gullinbrún.
Skerið hom í horn og beriö samlokuna
fram heita.
Ostborgari meö öllu
Elvis Presley elskaði hamborgara og
allra mest ostborgara. Hvenær sem var
á sólarhringnum fór hann út með vin-
um sínum til að fá sér borgara og end-
aði þá vanalega á Gridiron veitinga-
staðnum við Highway 51 í Memphis
(sem nú heitir Elvis Presley Bou-
levard).
500 g nautahakk
1/4 bolli fínt saxaður laukur
1 tsk. hvítlaukssalt
1 tsk. oregano
1/4 tsk. svartur pipar
4 ostsneiðar
4 hamborgarabrauð
salat
sinnep
majones eða dressing
súrsaðar gúrkur
sneiddir tómatar
sneiddir rauðlaukar
Ostborgari
með öllu
Einrt af
eftirlætisréttum
kóngsins var ostborgari meö
öllu. Ostborgarinn hentar ágætlega í
hraöa jólaundirbúningsins.
sojasósunni og
paprikunni saman við. Minnkið
hitann og eldið þar til sósan er orðin
heit en sýður ekki. Hrærið hvítvíninu
saman við og eldið í eina mínútu.
Hawaii og ananas
Elvis Prestey var hrifinn af
ananastertum.
Hitið ofninn upp í 175 gráðim. Bræð-
ið 1/3 bolla af smjöri í stóru eldfóstu
móti. Takið mótið úr hitanum og hrær-
ið púðursykurinn saman við. Takið
safann af ananasnum en haldið eftir
tveimur matskeiðum af safanum. Setjið
ananasinn í blönduna og eitt kirsuber i
miðju hverrar sneiðar.
Hrærið saman afganginum af smjör-
inu og 1/2 bolla af flórsykri. Þeytið
eggjarauðurnar, eina tsk. af rifnum
sítrónuberki, 1 msk. sítrónusafa og
vanilludropunum.
Hrærið í annarri skál saman hveiti,
lyftidufti og salti. Bætið hveitihrær-
ingnum, sýrða rjómanum og safanum
af ananasnum saman við eggjablönd-
una og hrærið.
Þeytið eggjahvíturnar.
stðan afgang-
inum af flór-
sykrin-
um út í
Bræðið
smjörástórri í
pönnu. Legg- I
ið kjúkling- I
inn á pönn-
una í einfóldu
lagi og steikið
á miðlungs-
hita í flórar
mínútur. Snú-
ið öllum
stykkjunum
við og
steikið á
sama
hátt.
Krydd-
ið með
salti og
pipar.
Hrær-
ið
sýrða
ijóm-
anum,
Takið grillið til á hefðbundinn hátt.
Blandið saman i skál hakkinu, laukn-
um, hvítlaukssaltinu, oregano og svört-
um pipar. Hrærið saman og búið til
flóra jafnstóra borgara.
Grillið í 5-7 mínútur á hvorri hlið
eða þar til borgararnir eru velsteiktir.
Um það bil tveimur minútum áður en
seinni hliðin er fullgrilluð er osturinn
settur á.
Berið borgarana fram i brauðinu
með salati, sinnepi, majonesi eða salat
dressingu, súrsuðum gúrkum, tómöt-
um og rauðlauk. Ekki má gleyma
frönsku kartöílunum sem á að með-
höndla á hefðbundinn hátt.
Kjúklingur a la Kóngurinn
Þegar Elvis rikti í Las Vegas var
þetta rétturinn. Hægt var að bera hann
fram við rómantíska málsverði og þá
var eina lagið sem dugði sem bak-
grunnstónlist King of the Whole Wide
World.
1 msk. smjör
750 g beinlausar, hamflettar kjúkling-
arbringur, skornar í tveggja sentímetra
teninga
1/2 tsk. salt
1/4 tsk. pipar
1 1/2 bolli sýrður rjómi
1 tsk. sojasósa
1 tsk. paprika
. 2 msk. hvítvín
Hitið baunimar, perlulaukinn og
sveppina og bætið þeim síðan saman
við. Hellið kjúklingablöndunni yfir í
eldfast mót. Dreifið parmesanostinum
yfir. Setjið undir griilið í ofninum í
u.þ.b. flórar mínútur eða þar til réttur-
inn hefur tekið ljósbrúnan lit.
Ananasterta á hvoHi
Elvis Presley kynntist nýjum vídd-
um mannllfsins á Hawaii enda fóru
blómaskyrtumar honum einkar vel.
Og ananasinn.
2/3 bolli smjör
2/3 bolli púðursykur
1 dós ananas
10 kirsuber
3/4 bolli flórsykur
2 egg, aðskilin rifinn börkur og safi úr
einni sítrónu
1 tsk. vanilludropar
1 1/2 bolli hveiti
1 3/4 tsk. lyftiduft
frosnar grænar baunir
perlulaukur
sveppir
4 msk. parmesanostur
6 sneiðar franskbrauð, ristaðar og hver
skorin í fjóra þríhyrninga
1/4 tsk. salt
1/2 bolli sýrður rjomi
Ertu hungruð í kvöld?