Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.2002, Síða 60
—> 60
Helqarhlað H>"Vr LAUCARDAGUR 4. MAf 2002
Umsjón
Kjartan Gunnar
Kjartansson
Hjörtur Björgvin Amason
rekstrarstjóri í Borgamesi er fimmtugur í dag
Hjörtur Björgvin Árnason, rekstrarstjóri Shell-
stöðvarinnar í Borgarnesi, til heimils að Hamravík
2, Borgarnesi, er fimmtugur í dag.
StarfsferiU
Hjörtur fæddist í Reykjavík 4. maí 1952 og átti
heima í Víðihvammi í Kópavogi til 11 ára aldurs,
flutti þá í Árbæjarhverfið. Hann lauk gagnfræða-
prófi frá Lindargötuskóla 1969, varð búfræðingur
frá Hvanneyri 1971 og gerðist bóndi á Minni-Borg
í Grímsnesi 1972. Þar bjó hann til 1979 en flutti þá
ásamt fjölskyldu sinni til Svíþjóðar og starfaði
MOLTAOG
MOLTUBLANDA
ffyrir blóvnaræktendiír
? og garðeigendur ^ \
MOLTU
BLANDA
X
MOLTA
22 Iftmr
tftwr
d
O
■SSSEi -VF—
Moltu og Moltublöndu cr pakkað í
12,22 og 44 I. poka og fæst i helstu
biómaverslunum landsins.
Framleiðandi Garðamold hf.
fyrst hjá Volvo í Gautaborg en síðar sem bílstjóri
hjá SJ í Malmö. Hann flutti aftur til íslands 1983,
lauk leiðsögumannaprófi 1984 og starfaði sem rútu-
bílstjóri og leiðsögumaður, samhliða búskap á
Minni-Borg til ársins 1987. Hann hóf stöf hjá Skelj-
ungi hf. 1988 og starfaði þar til 1997 er hann tók við
rekstri Shellstöðvarinnar í Borgarnesi ásamt Jóni
Emil bróður sínum.
Hjörtur var formaður íslendingafélagsins í
Lundi í Svíþjóð 1982-1983, einnig var hann í stjórn
Félags leiðsögumanna í nokkur ár, þar af formað-
ur eitt ár. Hann hefur verið ritari golfklúbbs Borg-
arness, formaöur Sjálfstæðisfélags Mýrasýslu, for-
maður Ferðamálasamtaka Vesturlands og félagi í
Röftunum, Bifhjólafélagi Borgarfjarðar,
Fjölskylda
Hjörtur kvæntist 9. janúar. 1972 Unni Halldórs-
dóttur, uppeldisfræðingi, f. í Reykjavík 3. júní 1953.
Hún starfar við rekstur Shellstöðvarinnar í Borg-
arnesi.
Foreldrar hennar eru Halldór J. Einarsson, f. 2.
júlí 1927 á Víðilæk i Skriðdal, og Sigrún Ó. Stefáns-
dóttir, f. 9. ágúst 1931 á Minni- Borg í Grímsnesi.
Þau bjuggu á Seltjarnarnesi, síðan í 20 ár í Gauta-
borg í Sviþjóð, fluttu til íslands 1997 og búa nú á
Selfossi.
Börn Hjartar og Unnar: Ingibjörg Lára Hjartar-
dóttir, f. i Reykjavík 26. júní 1972, fjármálafuBtrúi
í London, maki Calim Bardawil tæknifræðingur f.
í London 1964; Dóttir f. 26. júni 1972, d. 4 júlí 1972;
Halldór, f. í Reykjavík 19. júní 1974, trésmiður, býr
í Hróarskeldu í Danmörku, sambýliskona Hulda
Hrönn Stefánsdóttir, f. 1976; Sigrún f. i Reykjavík
14. nóvember 1976, við nám í Viðskiptaháskólanum
á Bifröst, sonur hennar er Egill Orri Elvarsson f.
2. júlí 2001; Árni f. i Gautaborg 31. desember 1979,
matreiðslunemi í Reykjavík
Bræður Hjartar: Jón Emil, f. 29. september 1948,
slökkviliðsmaður, búsettur í Borgarnesi; Árni
Björn, f. 21. október 1953, dáinn 6. febrúar 1954.
Páll Ingi, f. 26. ágúst 1957, smiður í Gnúpverja-
hreppi. Helgi f. 11. febrúar 1962, múrari, búsettur
í Biskupstungum. Hilmar, f. 15. mars 1963, við-
skiptafræðingur í Reykjavík. Guðni, f. 3. janúar
1967, rafvirki í Gnúpverjahreppi.
Foreldrar Hjartar: Ágúst Árni Jónsson bryti, f.
á Dalvík 14. janúar 1924, d. 5. maí 1999, og Sveins-
ína Ingibjörg Hjartardóttir, f. 25. ágúst 1924, d. 9.
nóvember 1998.
Þau hjón bjuggu í Kópavogi, Árbæjarhverfi og
síðast í Skipholti 47 í Reykjavík. Árni starfaði
lengi á Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins.
Ætt
Foreldrar Ágústs Árna voru hjónin Jón Emil
Ágústsson, sjómaður á Dalvík, f. 1888, d. 1947, og
Jóhanna S. Halldórsdóttir, f. 1891 d. 1975.
Foreldrar Sveinsínu Ingibjargar voru Hjörtur
Björgvin Helgason, kaupfélagsstjóri í Sandgerði, f.
1898, d. 1994, og kona hans, Sveinbjörg Jónsdóttir,
f. 1903, d. 1978.
Hjörtur býður fjölskyldu og vinum til fagnaðar
i Félagsheimilinu Drangey, Stakkahlíð 17, kl. 19.00
í kvöld.
Þú nærð alltaf
550 5000
mánudaga til fimmtudaga kl. 9-20
föstudaga kl. 9 - 18
sunnudaga kl. 16 - 20
sambandi
við okkur!
(B
'CC
E
t/>
smaauglysingar@dv.is
hvenær sólarhringsins sem er
550 5000
§
■ .1
Árangur um alla borg
Ágæti Regkvíkingur
Undanfarin átta ár hefur Reykjavíkurlistinn gert það að forgangsverkefni að bæta þjónustu og fjárfestingu í
þágu fjölskyldnanna í borginni. Allt okkar starf hefur miðað að auknum lífsgæðum og fjölbreytileika í borgarlífinu.
Á þeim grunni sem lagður hefur verið munum við byggja hið reykvíska samfélag framtiðarinnar.
S
Nú um helgina munum við bera í hvert hús borgarinnar bækling sem sýnir þær griðarlegu breytingar sem orðið
hafa á ásýnd borgarinnar, þjónustu hennar og rekstri undanfarin átta ár. Við hvetjum þig til að kynna þér efni
hans og erum stolt af þeim árangri sem náðst hefur.
Frambjódendur Reykjavíkurlistans
-4-